Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Síða 3

Dagblaðið Vísir - DV - 09.11.1995, Síða 3
FIMMTUDAGUR 9. NÓVEMBER 1995 17 Ofurbyssan Tiltölulega stuttu áður en Persaflóastríðið skall á var írak talið meðal vinveittra ríkja Bandarikja- manna. Það þarf því engan að undra að heimsku- nnur, bandarískur vopnasmiöur, sem Bandarikja- menn höfðu svikið í tryggðum, tekur tilboði íraka um að smíða stærstu fallbyssu sem hefur verið smíðuö. Vopnasmiðurinn Gerald Bull er ekki smíða byssuna peninganna vegna eða vegna ein- hverrar hollustu við Iraka heldur eingöngu sjálfs sin vegna, en hans heitasta ósk er aö eftir hans dag verði hann skráður sem mesti vopnasmiður sem uppi hefrnr verið. Þessi þráhyggja reynist honum dýrkeypt. Meðan á smíðinni stendur fylgjast þrjú stórveldi með framgangi mála, Bandaríkjamenn, sem enn eru ekki búnir aö afskrifa Saddam, Bret- ar, sem vita varla í hvom fótinn þeir eiga að stfga og ísraelar, sem segja útsendara CIA að frekar drepi þeir Bull en hann fái að ljúka við byssugerðina. Doomsday Gun, sem byggð er á staðreyndum, er vel gerð, raunsæ, en um leið spennandi njósna- drama og skörp lýsing á manni sem átti sér stóran draum. DOOMSDAY GUN - Útgefandl: Bergvík. Lelkstjóri: Robert Young. Aðalhlutverk: Frank Langella, Alan Arkln og Kevln Spacey. Bandansk, 1995. Sýnlngartíml 95 mín. Leyfö öllum aldurshópum. -HK Parísartískan Eftir tvær frábærar kvikmyndir, The Player og Short Cut, magalendir Robert Altman í nýjustu mynd sinni, Pret-a-Porter en þar tekur hann á tiskuheiminum í París. Pret-a-Porter er mun veik- ari heldur en tvær fyrmefndar myndir. Altman tekur, eins og við mátti búast, ekki á því neinum silkihönskum hvemig kaupin ganga í tískuheimin- um. Hann hefur sagt aö þegar hann fór fyrst á tískusýningu í Paris hafi honum fundist hann vera í sirkus og út frá þessari staðreynd gerir hann mynd sina og það er skondinn heimur sem áhorf- andinn kynnist. Eins og oft áður segir Altman margar sögur i einu, en nú bregöur svo við að hann á í erfiðleikum með að tengja þær og hefði að ósekju mátt sleppa sumu, til að mynda þætti Juliu Roberts og Tim Robbins. Mest er dvalið við Marcello Mastroianni, sem leikur ítalskan kaup- anda tiskuvara sem býr í Rússlandi. Á meðan á tískuhátíðinni stendur er leitað að honum vegna morðs og er góður húmor í þeirri sögu, en hún eins og aörar sögur missir marks og verður þreytandi í öllum hamaganginum. PRET-A-PORTER - Útgefandl: Skffan. Leikstjórl: Robert Altman. Aðalhlutverk: Marcello Mastroiannl, Sophia Loren og Julia Roberts. Bandarfsk, 1994. Sýnlngartími 127 mín. Leyfð öllum aldurshópum. -HK Heimsmeistarinn Mike Tyson er yfirleitt flokkaður með þeim allra mestu i hnefaleikaíþróttinni. Þegar horft er á Tyson, sem lýsir ferli hans frá því hann hóf að æfa hnefaleika og þar til hann er dæmdur í fangelsi fyrir nauðgun, er ekki hægt að verjast þeirri hugs- un að það nægir ekki að vera sterkur til að takast á við frægðina, það þarf að hafa vit í kollinum, en það virðist Tyson vera nokkuð laus við. í raun er ekki hægt að undrast snöggan endi hnefaleikafer- ilsins þegar haft er í huga að áður en Mike Tyson var orðinn þrettán ára hafði hann verið handtek- inn 38 sinnum. Hæfileikar hans til að herja á sam- borgurum sínum björguðu honum frá fleiri glæp- um. Tyson var orðinn heimsmeistari rúmlega tví- tugur og var þá vemdaður af mörgum. Einfeldni hans og skapofsi gerði það þó að verkum að hann var stanslaust í vandræðum. Tyson er raunsæ lýsing á lifi þessa einstæða hnefaleikakappa. Gallar hans koma vel í ijós, en um leið er verið að rembast við að kenna aðstæðum um hvemig haim var orðinn. Michael Jai White er sannfærandi í hlutverki Tysons. TYSON - Útgefandi: Warner-myndlr. Lelkstjórl: Ull Edel. Aðalhlutverk: Mlchael Jal Whlte, George C. Scott og Paul Wlnfteld. Bandarisk, 1994. Sýnlngarb'ml 92 mín. Bónnuð bömum Innan 16 ára.-HK Riddari kölska Tales from the Crypt er hryllingsmyndaflokkur sem þeir ágætu leikstjórar Richard Donner, Walter Hill, Joel SUver og Robert Zemeckis em ábyrgir fyrir. Þrátt fyrir óhugnaðinn hefur oftar en ekki verið gráglettinn húmor í stuttum myndum sem em byggðar á teiknimyndasögum. Demon Knight er í þessum flokki, en nú bregður svo við að um er að ræða kvikmynd i fuUri lengd og satt best að segja hefði hálftíminn alveg dugað. Söguþráðurinn um baráttu kölska og hans sveina um að ná yfír- ráðum á jörðinni er ýktur á nokkuð skemmtUegan máta, en öfugt við hálftímaformið, sem leyfði eng- ar endurtekningar, verður Demon Knight fljótt þreytandi vegna endurtekninga. Það er ekkert í sögunni sem kemur á óvart eftir fyrsta korterið, aðeins endurtekningar á baráttu „lykUberans“ við útsendara kölska, en þá í neðra vantar einn lykU af sjö tU aö geta athafhað sig að vUd á jörðinni. TæknUega séð er myndin vel gerð og emstaka atriði spennandi, en þegar á heUdina er litið er þreytandi að horfa á óijósa óskapnaði væflast um dimma ganga í 90 mínútur. DEMON KNIGHT - Útgefandi: ClC-myndbönd. Lelkstjóri: Ernest Dlckerson. Aöalhlutverk: Billy Zane, William Sadler og Jada Pinkett. Bandarísk, 1995. Sýnlngartíml 89 mín. Bönnuð bömum innan 16 ára. -HK Jeff Daniels í hlutverki Harry Dunne í Dumb and Dumber. Jeff Daniels: Gaf ekkert eftir í sam- leiknum við Jim Carrey Jeff Daniels leikur á móti Jim Carrey í Dumb and Dumber, sem er í efsta sæti myndbandalistans þessa vikuna, og verður að segjast eins og ér að leikur hans er mikiU sigur fyr- ir hann, þar sem flestir áttu von á því að Jim Carrey myndi kaffæra hann í hvelli, en samleikur þeirra er með miklum ágætum og þótt hin- ir miklu gamanhæfdeikar Carrey séu mun meira áberandi þá á Dani- els mörg góð atriði. Það sem aðskU- ur þá fyrst og fremst er að Carrey getur gert nánast allt með andlitinu og setur oft upp stórkostlegan svip. Jeff Daniels segir að hann hafi hlakkað mikið að leika á móti Car- rey: „Það er ekki aðeins að hann er einstakur gamanleikari, heldur er einnig mjög lærdómsríkt að sjá hann vinna, tímasetning hans er einstök og svo er hann mjög upp- tektarsamur. Það var oft tii lítils að læra handritið. Við komum tU vinnu að morgni ög Peter FarreUy (leikstjórinn) spurði strax hvort það væri eitthvað sem hægt væri að bæta við þau atriði sem átti að fara að filma og það brást ekki að Jim Carrey var búinn að fá nýja hug- dettu. Það má segja að heili hans starfi á meiri hraða en þekkist." Jim Carrey er heldur ekkert að spara hrósið um Jeff Daniels og seg- isr að samstarf þeirra hafi verið með miklum ágætum og hann hafi lært margt af Daniels, sem hafi mun víðtækari reynslu en hann. Jeff Daniels hefur lengi verið þekktur leikari, en aldrei slegið al- mennUega í gegn í kvikmyndum og hefur takmarkaðan áhuga á því. Eft- ir frammistöðu sína í Dumb and Dumber hefur hann snarlega hækk- að í verði, en er ekkert að fiýta sér að þiggja launahá hlutverk og hefur því síður í hyggju að hætta að leika á sviði, en aUan hans kvikmyndafer- U hefur hann jöfnum höndum leikið í leikritum. Höfundur tveggja leikrita Jeff Daniels er ekki dæmigerður HoUywoodleikari, býr þar ekki og hefur aldrei búið þar. Hann á heim- Ui í borginni Chelsea í Michigan, þar sem hann hefur meðal annars stofnað sitt eigið leikhús The Purple Rose Theater Company, sem er rek- ið á jafnræðisgrundvelli og án ágóða. Þar gefur hann leikurum, leikritahöfundum, leikstjórum og hönnuðum, sem eiga rætur sínar að rekja tU miðvesturríkjanna tæki- færi tU að búa tU leikrit, leika og sýna. Skýrði hann leikhús sitt eftir einni kvikmynd, sem hann lék aðal- hlutverki í, The Purple Rose of Cairo, sem Woody AUen leikstýrði. Aðrar kvikmyndir sem hann hefúr leikið stór hlutverk í eru, Somet- hing WUd, Terms of Endearment, Speed, Arachnophobia, The Butchers Wife og nú síðast Gettys- burg, löng, söguleg kvikmynd, sem sýnd var í kvikmyndahúsum í Bandaríkjunum, en gefin út á mynd- bandi hér á landi og er stutt síðan hún kom út. Fyrsta kvikmyndin sem Jeff Daniels lék í var kvik- myndaútgáfa af hinni frægu skáld- sögu E.L. Doctorow, Ragtime, sem MUos Forman leikstýrði. Jeff Daniels hefur mikið látiö að sér kveða í leikhúslífinu. Auk þess að stýra fyrrnefndu leikhúsi er hann tíður gestur á leiksviðum í New York og hefur hann verið með- limur New York’s Circle Repertory frá árinu 1976. Hann fékk Obie verð- launin fyrir leik sinn í Johnnie Got his Gun, sem sýnt var utan Broad- way. Á þeim vettvangi lék hann í tveimur verkum eftir Lanford WU- son, Lemon Sky og Fifth of July, en síðamefnda leikritið var síðan flutt yfir á Broadway, þar sem Daniels lék aftm- í því. Þá lék hann á Broad- way í Redwood Curtain og var það verk kvikmyndað fyrir sjónvarp í fyrra. Tvö leikrit hefur Jeff Daniels samið, The Kingdom’s Coming, sem sýnt var í Purple Rose leikhúsinu hans og gamanleikinn, The Vast Diffemce, sem sýnt var fyrr á þessu ári í New York. Þá hefúr Jeff Danii- els leikið í nokkrum sjónvarpsmynd- um, má þar nefna The Caine Mutiny Court Martial, sem Robert Altman leikstýrði og No Place Like Home, þar sem hann lék fjölskyldufoöur, sem verður að fara með fjölskyldu sína á vergang þegar íbúð þeirra brennur. Sú mynd hefúr komið út á myndbandi hér á landi. -HK Sölumyndbönd frá Bergvík: Þekktar teiknimynda- persónur á íslensku Bergvík hefur verið að senda frá sér teiknimyndir á sölumyndbönd að undanfómu og er um að ræða ævintýri og teiknimyndapersónur sem öU böm þekkja. Þessa vikuna er að koma Ævintýralandið, sem er á tveimur spólum, og fer þessi mynd einnig á myndbandaleigur. Um er að ræða ævintýrið um Pét- ur og Önnu sem fara í ferð með hr. BjaUvarði og lenda í ýmsu, þau hitta meðal annars Óla lokbrá, Vinda Lindu, Stormrisann, Þrumuskelfi og Skýja- móðuna en þau tilheyra fjölskyldu Veðurfólksins. Um leikraddir sjá Magnús Ölafsson, Sigurður Sigur- jónsson, Stefán Karl Stefánsson, Sonja Maggý Magn- úsdóttir og Linda Gísladóttir. Myndbandið Rauðhetta og fjögur önnur ævintýri inniheldur auk Rauðhettu Hans og Grétu, Gæsa- mömmu, Rapunzel og Mídas konung. Sögumaður er Magnús Ólafsson. Sigurður Sigurjónsson og Magnús Ólafsson sjá um leikraddir á Kalla kanínu og vinum hans og Kalla kanínu á fullri ferð og Magnús Ólafs- son, Linda Gísladóttir og fleiri um leikraddir á Stjána bláa og vinum hans og Stjána bláa bregður á leik. Þessar myndir eru eingöngu til sölu. Á spól- unum um Kalla kanínu og Stjána bláa eru margar stuttar teiknimyndir en hver spóla er í kringum klukkutími að lensd. Kalli kanína talar íslensku á myndböndunum frá Bergvík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.