Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995 5 Fréttir T ©pp tau - skuldir sveitarfélaga 1995 í þúsundum króna - 415,8 410,8 mm mm 380,8 Heimild: Árbók sveitarfélaga '95 -3 Evl Eining í Eyjafirði: Atkvæði greidd um ASÍ-samninginn Gylfi Kristjánsson, DV, Akureyri: Félagar í Verkalýðsfélaginu Ein- ingu í Eyjafirði munu í kvöld greiða atkvæði um samkomulag það sem launanefnd landssambanda ASÍ gerði við vinnuveitendur og ríkis- stjórnina i síðustu viku. Eining er eitt þeirra félaga sem sagt hefur upp gildandi kjarasamningi og kosning- in í kvöld snýst um það hvort félags- menn sætta sig við það sem samið var um nú eða uppsögninni verði haldið til streitu. Björn Snæbjörnsson, formaður Einingar, segist allt annað en ánægður með stöðu kjaramálanna í dag. „Það er búið að stilla okkur upp við vegg því að í samkomulag- inu sagði að ef menn vildu ekki samþykkja það yrði því að vera formlega hafnað fyrir 8. desember, annars væri litið svo á að það væri samþykkt. í raun snýst þetta fyrst og fremst um það hvort þeir sem hefðu átt að fá 13 þúsund króna des- emberuppbót fá 7 þúsund króna við- bót. Þeir sem hafna samkomulaginu verða af þessari uppbót og eiga svo yfir höfði sér að kjaradómur dæmi uppsagnir ólöglegar og þá fá menn ekki neitt. Þetta er því allt annað en skemmtileg staða og menn eru allt annað en ánægðir með að fulltrúar okkar í launanefndinni skyldu taka þessa afstöðu. Meira segi ég ekki um það,“ segir Björn Snæbjörnsson. Hvítasunnusöfnuðurinn: Sættir hafa tekist í fimm ára deilumáli - segir Hafliði Kristinsson forstöðumaður ,;Þetta var mjög góður fundur og honum lauk í sátt og samlyndi," sagði Hafliði Kristinsson, forstöðu- maður Hvítasunnukirkjunnar Fílad- elflu, en þar hafa staðið harðar deil- ur síðustu 5 árin eða allt frá því að Hafðiði tók við starfi forstöðumanns í byrjun árs 1990. Hafliði sendi út bréf til safnaðarins í lok nóvember og boðaði til fundar, sem fram fór á sunnudaginn, þar sem sættir tókust, að því er hann segir.' Þessar deilur innan Hvítasunnu- safnaðarins hófust þegar Einar J. Gíslason lét af störfúm og studdi Hafliða í starf forstöðumanns. Hafl- iði keppti um embættið við Garðar Ragnarsson og hafði sigur. í kjölfar þess var allri stjórn safnaðarins vik- ið frá og ný kosin. Síðan hefur ekki gróið um heilt því það olli miklum sársauka og reiði innan hluta safn- aðarins þegar gömlu stjóminni var vikið frá. Hafliði Kristinsson sagði i samtali við DV að þegar stjórnarskiptin fóru fram hafi ekki verið til neinar regl- ur um hvernig stjórn skyldi valin og í hve langan tíma menn sætu í stjórninni. Þetta hafi eiginlega verið þannig að menn sátu í stjórn eins lengi og þeir vildu eða þar til þeir féllu frá. Ástæðan fyrir stjórnar- skiptunum 1990 var ekki óánægja með stjórnina heldur sú að menn vildu taka upp þá vinnureglu að þegar nýr forstöðumaður kæmi inn kæmi hann að hreinu borði. „Við höfum verið að vinna að lausn málsins í 5 ár. Það má eigin- lega segja að þessi fundur á sunnu- daginn hafi verið svona lokaáfang- inn í málinu. Við höfum verið að semja reglur um stjórnarkjör og stjórnarsetu manna og þessar nýju reglur eru til reynslu hjá okkur í eitt ár. Þeir sem sátu i stjórninni, sem var vikið frá 1990, hafa tekið þátt í því með okkur að semja nýju reglurnar og leysa þetta mál. Þess vegna tel ég að fullar sættir hafi tek- ist í þessu viðkvæma máli,“ sagði Hafliði Kristinsson. -S.dór Akureyn: Minna atvinnuleysi en í fyrra Gyl£i Kristjánsson, DV, Akureyri: Atvinnulausir á Akureyri voru 80 færri nú um mánaðamótin en á sama tíma á síðasta ári. Þeir voru nú 402 en 480 hinn 1. desember 1984. Hins vegar jókst atvinnuleysið á Akureyri talsvert frá mánaðamót- unum október/nóvember en þá voru 345 á atvinnuleysisskrá. Karlar án atvinnu voru nú um mánaðamótin 200 talsins en konur 202. Sigríður Jóhannesdóttir á Vinnu- miðlunarskrifstofunni á Akureyri segir enga eina skýringu á þessari aukningu og þeir sem hafi bæst við komi ekki úr einni starfsgrein frek- ar en öðrum. Örfáir atvinnulausir á Akureyri eru þessa dagana í svokölluðu átaksverkefni sem sett eru upp af og til þar sem atvinnu- lausir fá tímabundna vinnu. Ársreikningar sveitarfélaganna varla samanburðarhæfir: Sveitarfélögin velja tölur til að sýna - segir Jón Pétur Líndal, sveitarstjóri á Kjalarnesi „Eins og ársreikningarnir eru settir upp í dag fá sveitarfélögin nánast að velja úr þær tölur sem þau vilja sýna. Það er kannski ekk- ert voðalega sniðugt þegar verið er að gera samanburð og leggja hann síðan fyrir peningastofnanir og íbúa,“ segir Jón Pétur Líndal, sveit- arstjóri á Kjalarnesi, en þeirrar gagnrýni hefur gætt meðal sveitar- stjómarmanna að samanburður á fjárhagsstöðu sveitarfélaga sé ekki nægilega marktækur þar sem mis- jafnt sé hvaða tölur sveitarfélögin taki með í reikninginn. í nýútkominni Árbók sveitarfé- laga 1995 kemur fram að Kjalarnes- hreppur er langskuldugasta sveitar- félagið í landinu miðað við skuldir á hvern ibúa. Samkvæmt bókinni skulda Kjalnesingar 415.800 krónur á hvern íbúa. Suðureyrarhreppur er næstskuldugastur með 410.800 á hvern íbúa og í þriðja sæti koma Flateyringar með 380.800 krónur í skuld á íbúa. í öllum þessum tilfell- um eru sveitarfélögin með innan við 1.000 íbúa. Jón Pétur bendir á að í stærri sveitarfélögum hafi gjarnan verið stofnaðir sérsjóðir, til dæmis um veitustofnanir, félagslegar íbúðir eða jafnvel vegna byggingar íþrótta- mannvirkja. Bæjarsjóður Akureyr- ar sé til dæmis talinn standa ágæt- lega en sem ábyrgðaraðili fyrir hita- veituna sé sjóðurinn með miklar skuldir á bakinu. í ársreikningum minni sveitarfélaga sé algengara að taka allar þessar tölur með í reikn- inginn og sýna „rétta“ stöðu sveitar- sjóðsins, eins og hann orðar það. „Ofan á þetta koma alls konar ábyrgðir sem sveitarfélögin hafa verið að gangast i fyrir atvinnulifið, einkafyrirtæki og almenning. Við erum til dæmis ekki með neitt slíkt í gangi. Ég veit ekki hvort ábyrgð- irnar skekkja myndina í heildina en þær skekkja stöðuna innbyrðis, sér- staklega milli stóru sveitarfélag- anna,“ segir Jón Pétur. „Það má segja að reikningar sveitarfélaga gefi rétta mynd en í kynningarefni, til dæmis í Árbók- inni, eru menn að einbeita sér að bæjarsjóðunum og erfitt að lesa í annað. Auðvitað eru allar þessar upplýsingar til. Þeim er skilað inn en það er ekki unnið úr öðru en reikningum bæjarsjóða," segir Árni Mathiesen, bæjarstjóri í Hveragerði, en hann situr í bókhaldsnefnd sveit- arfélaga. -GHS URR-5408 NYTSAMAR UWP-5520 URR-4469 Utvarpsklukka Svört/Hvít KR. 2,990 stgr. Vasadiskó með útvarpi KR. 2.990 stgr. Vasaútvarp KR. 1.990 stgr. UCR-23IS/H Utvarps- klukka með Ijósi Svört/Hvít Diktafónn Tveggja hraða KR. 4.900 stgr. f U\JlYS23 UOM-4570 Akai feróageislaspilari KR. 13.900 stgr. i tAaff SlMii etó e u,i SÍÐUMÚLA 2 • SÍMI 568 9090 • OPIÐ LAUGARD. 10-16

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.