Dagblaðið Vísir - DV - 05.12.1995, Blaðsíða 21
ÞRIÐJUDAGUR 5. DESEMBER 1995
25
Fréttir
Fyrsta sælunusið a
íslandi endurbyggt
- var byggt vegna átakanlegra atburða í nánd við Ingólfshöfða
Einar R. Sigurðsson, DV, Öræfum:
Á liðnum vetri var ákveðið að
endurbyggja sæluhúsið í Ingólfs-
höfða í Öræfum. Sæluhús þetta er
reyndar fyrsta sæluhúsið á íslandi,
byggt 1912. í sumar var svo unnið að
endurbyggingunni og í nóvember
var haldin vígsluathöfn í húsinu.
Tildrög byggingar upphaflega
sæluhússins árið 1912 voru átakan-
legir atburðir sem urðu í nánd við
Ingólfshöfða einum áratug áður. í
janúar 1903 strandaði þýskur togari
skammt vestan við höfðann, í af-
takaveðri. Skipverjarnir, 12 að tölu,
komust allir í land en hröktust síð-
an í 11 daga vestur fjöruna. Fundust
þeir loks vestur á Brunasandi, 60
km vestar. Þá voru 3 dánir af vos-
búð en hinir meira og minna kalnir
svo að þurfti að aflima þá flesta.
í framhaldi af þessum hörmulegu
atburðum ákvað þýskur konsúll í
Reykjavík að gefa fé til að byggja
tvö sæluhús á þessu svæði. Reis
annað þeirra á Kálfa-
fellsmelum en hitt í Ing-
ólfshöfða.
Með nútíma fjarskipta-
tækni eru sem betur fer
orðin lítil líkindi á að
sæluhús þetta reynist
nauðsynlegt. Ástæðan fyr-
ir endurbyggingunni var
að hluta til að varðveita
þetta gamla hús sem lík-
ast sinni upprunalegu
mynd.
Til vígslunnar mættu á
fjórða tug fólks, flest Ör-
æfingar, en einnig fólk frá
Höfn og Slysavarnafélagi
íslands svo og Egill Jóns-
son alþingismaður. Séra
Einar Jónsson, prestur á
Kálfafellsstað, vígði húsið.
Eftir vígslu var aftur hald-
ið til byggða og kvenfélag-
ið bauð gestum upp á kaffi-
veitingar i samkomuhús-
inu Hofgarði.
Þau áttu hlut að endurbyggingunni. Frá vinstri: Benedikt Steinþórsson yfirsmiður, Guðmundur Ingimundarson, formaður
SVDÖ, Ólafur Sigurðsson, formaður Björgunarsveitarinnar Kára, Einar Sigurjónsson, forseti SVFÍ, og Ester Guðmundsdóttir,
framkvæmdastjóri SVFÍ. DV-mynd ERIS
Sameiginleg vatns-
veita er hagkvæm
- segir Gunnar I. Birgisson
Bæjaryfirvöld í Garðabæ, Hafnar-
firði og Kópavogi hafa látið fara
fram forathugun á því hvort hag-
kvæmt sé fyrir sveitarfélögin að
standa að sameiginlegri vatnsveitu
úr Kaldárbotnum í Hafnarfirði.
Gunnar I. Birgisson, formaður bæj-
arráðs í Kópavogi, segir að niður-
stöðurnar bendi til þess að það sé
hagkvæmt fyrir þau öll enda sé ljóst
að Hafnfirðingar og Garðbæingar
þurfi að fara að skoða sín vatns-
veitumál mjög fljótlega og Reykja-
víkurborg þrýsti á að fá hærra verð
fyrir vatnið frá Kópavogsbúum.
„Þetta er hagkvæmur kostur fyrir
öll sveitarfélögin og þýðir um 7
krónur á rúmmetra af vatni. Við
kaupum vatnið frá Reykjavík í dag
á 6,10 til 6,20 krónur og þeir voru
með hugmyndir um hækkun allt
upp í 8 krónur. Við erum að leita að
ódýrasta kostinum fyrir okkur og
bæjarbúa,“ segir Gunnar I. Birgis-
son, formaður bæjarráðs í Kópa-
vogi.
Búist er við að sveitarstjórnirnar
í sveitarfélögunum þremur taki
ákvörðun um það á næsta ári hvort
borað verður eftir vatni, aðveituæð
lögð og farið í aðrar framkvæmdir
við sameiginlega vatnsveitu. Gert er
ráð fyrir að framkvæmdirnar kosti
samtals 500 milljónir króna. -GHS
Klæðning bauö lægst
Kópavogsbær lét nýlega gera
verðkönnun vegna uppfyllingar í
grjótgarð í Kópavogshöfn. Tilboð
bárust frá Klæðningu hf„ Suður-
verki, Tómasi Grétari Ólafssyni og
Loftorku. Tilboð Klæðningar var
lægst, 10-15 prósentum undir næst-
lægsta tilboði, og var því tilboði
Klæðningar tekið.
-GHS
m?
Fyrir síðustu jól hefur skótahreyfingin selt sígrœn
eðaltré í hœsta gœðaflokki og hafa þau prýtt
mörg hundruð heimili. Svo eðlileg eru trén að
fuglar gœtu ótt það til að gera sér hreiður í
greinum þeirra. Sígrœnu jólatrén fró skótunum eru
grœn og falleg jól eftir jól.
• Skátahúsið, Snorrabraut
VíulA
Sýningarsalur Heklu, Laugavegi
10 ára ábyrgö
8 stœrðir, 90 - 305 cm
Stálfótur fylgir
Eldtraust
íslenskar leiðbeiningar
Jólatré með skrauti - 3 gerðir
1
GJAFAHANDBÓK
JÓLAGJAFAHANDBÓK 1995
Á morgun mun 52 síðna
JÓLAGJAFAHANDBÓK fylgja DV.
Hún er hugsuð sem handbók fyrir lesendur sem eru í leit að
jólagjöfum. Þetta finnst mörgum þægilegt nú, á dögum tíma-
leysis, og af reynslu þekkjum við að handbækur DV hafa verið
afar vinsælar.