Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Page 11

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Page 11
 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995 11 Fréttir Nýr floti Skagstrendings senn til veiða: Tveir togarar keyptir og skuldir lækkaðar um 500 milljónir króna DV Akureyri: Mjög miklar breytingar eru að eiga sér stað í rekstri útgerðarfé- lagsins Skagstrendings á Skaga- strönd. Fyrirtækið seldi tvö skipa sinna, sem bæði báru nöfnin Arnar, sá gamli, sem reyndar hafði verið lagt, var seldur til Akureyrar en hinn nýi, sem var um tíma flagg- skip fiskveiðiflota okkar, var seldur til Grænlands. í stað þessara skipa hefur Skag- strendingur fest kaup á tveimur skipum, um 50 metra löngum rækjutogara frá Grænlandi og stór- um togara frá Rússlandi sem er um 60 metra langur og um 1800 brúttó- tonn. Það skip var byggt í Noregi árið 1986 fyrir Færeyinga en selt þaðan til Rússlands í kreppunni í Færeyjum. Rækjuskipið fer til veiða á vegum Skagstrendings í janúar en rússneski togarinn i mars. Fyrir á Skagstrendingur togaránn Örvar sem er og verður í fullum rekstri. „Við settum okkur það markmið að lækka skuldir félagsins um 500 milljónir króna og teljum að það hafi gengið upp hjá okkur. Nú mun- Rækjutogarinn sem Skagstrendingur keypti frá Grænlandi er í „skveringu” í flotkvínni hjá Slippstöðinni Odda á Akureyri þar sem þessi mynd var tekin, en mun fara á veiðar fijótlega eftir áramót. DV-mynd, gk. um við gera út með sama kvóta og áður en með miklu minni tilkostn- aði,“ segir Óskar Þórðarson, fram- kvæmdastjóri Skagstrendings. Hann segir nettóskuldir Skag- strendings hafi numið um 1200 milljónum króna og því hafi fylgt óhemju mikill fjármagnskostnaöur sem hafi þrengt mjög að rekstri fyr- irtækisins. Þessar skuldir voru að lengmestu leyti til komnar vegna kaupanna á Arnari hinum nýja sem nú hefur verið seldur. „Þetta lítur vel út hjá okkur og skuldalækkunin léttir verulega á fyrirtækinu. Skagstrendingur er traustur og stendur á gömlum traustum grunni en fjárfestingin í Arnari tók allt of mikið til sín,“ seg- ir Óskar. -gk Samsung SV-140 X er vandað fjögurra hausa Nicam Hi-Fi Slereo-myndbandstœki. Það með aðgerðastýringum ó skjó sjónvarps, sjólfvirkri stafrœnni sporun, sem tryggir skarpari mynd, pcegilegri þróðlausri fiarstýringu, upptökuminni fram I tímann, Jog-hjóli til að spóla bœði ófram og afluróbak, 2 Scart-tengjum, tengi fyrir sjónvarps- myndavél, Show View-kóda, Long Play upptökumöguleika, hrað hleðslu, Intro Scan, Video Index Searcn System, hœgmynd; og nífaldri hraðspólun með mynd, barnalcesingu o.m.fl. TIL ALLT AÐ 36 MÁNAÐA nAÐGIWIOSUifl TIL ALLTAD 34 MÁNADA Hroðþjónusta við landsbyggðina: (Kostar innanbœjarsfmtal og vönjmor eru sendar samdaaguts) Grensásvegi 11 Sími: 5 886 886 Fax: 5 886 888 Suðurnes: Sameiginleg skólamála- skrifstofa DV, Suðurnesjum: „Við munum stofnsetja og reka skólamálaskrifstofuna og mun hún þjóna öðrum sveitarfélögum á Suð- urnesjum eftir nánara samkomu- lagi. Þau munu greiða fyrir þjón- ustu hennar, hvert sveitarfélag fyr- ir sig,“ sagði Ellert Eiriksson, bæj- arstjóri Reykjanesbæjar, við DV. Bæjarráð Reykjanesbæjar hefur samþykkt að setja á stofn skóla- málaskrifstofu í bænum og verður staða - skólamálastjóra auglýst. Skólamálastjórinn á að hefja störf eigi síðar en 1. febrúar 1996. Bæjar- ráð samþykkti einnig að kanna hentugt húsnæði fyrir skólamála- skrifstofu og markaðs- og atvinnu- málaskrifstofu sem nú er með starf- semi sína í húsnæði því þar sem áður voru bæjarskrifstofur Njarð- víkurbæjar að Fitjum í Njarðvík. -ÆMK Nemendum fækk- ar í Reykholti DV, Akranesi: I haust hófu 64 nemendur nám í Fjölbrautaskóla Vesturlands í Reyk- holti en þeim hefur nú fækkað nið- ur í 46. Fimmtán hafa hætt vegna lé- legrar mætingar eða af persónuleg- um ástæðum og þrír voru reknir vegna fikniefnamáls og áfengisnotk- unar. -DÓ ^TEFALl ARMATAL Sérstök stálplata á botni.sem tryggir að pannan v verpist ekki^ Ný framleiðsla úr áli og stáli.Bestu kostir tveggja efna sameinaðir f einu áhaldi. Frábærir steikingareiginleikar þ.e. hitaleiðni álsins og glæsilegt stálútlit. Að innan eru pönnumar húðaðar með slitsterku viðloðunarfríu efni. sem gerir alta matargerð auðveldari. svo og þrif. TEFAL er langstærsti pottaframleiðandi heims. TEFAL vörur eru seldar í nær ötlum löndum heims. VERÐ FRÁ: / m nm verð: -ekki bam pottar ogpötmur! B R Æ ÐUR N I R ími 553 8820 Reykjavík: Byggt og Búið Kringlunni, Magasín, Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi.Guöni ErHallgrímsson, Grundarfirði. Vestflrðir:.Rafverk,Bolungarvík.Straumur,ísafirði. Norðurland: Kf. Steingrímsfjarðar, Hólmavík. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. Skagfirðingabúð.Sauðárkróki. KEA, byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri. KEA.Dalvík. Kf. Þingeyinga, Húsavík. Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guömundsson, Egilsstöðum. Stál, Seyöisfirði. Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfiröinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergsson, Kirkjubœjarklaustri. Brimnes.Vestmannaeyjum. Reykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík. Fjarðarkaup, Hafnarfirði. Umbobsmenn um allt land

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.