Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Blaðsíða 36

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Blaðsíða 36
60 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995 Santa Claus er velkominn hingað sem nýbúi. Okkar gömlu sveinar Við eigum að sjálfsögðu að halda í okkar gömlu sveina en það er þó ekkert því til fyrir- stöðu að Santa Claus komi hing- að til lands sem nýbúi eða flótta- maður.“ Árni Björnsson, i DV. Hindrunarstökk „Eftir baráttu við kerfið, sem líkja má við hindrunarstökk, tókst mér að fá innflutnings- leyfi.“ Pétur Pétursson, í DV, vegna kaupa á hreindýrakjöti frá Grænlandi. Ummæli Ekki er sökin mikil „Einhvern tímann hafa nú lög verið brotin fyrir minni sök en þá að eiga ekki ofan í sig að éta.“ Sigurður T. Sigurðsson, formaður Verkalýðsfélagsins Hlífar, i Alþýðu- blaðinu. Glefsur eftir gamla kerl- ingu „Það hefur kannski verið óþarflega mikil viðhöfn í kring- um þetta þó að það komi út ein- hverjar glefsur eftir gamla kerl- ingu. Valbjörg Kristmundsdóttir, í DV. Mexíkóborg er líklegast fjöl- mennasta borg í heimi. Fjölmennustu borgir fyrr og nú Til skamms tíma var Tokyo fjölmennasta borg í heimi, með um 12 milljónir íbúa, en nú er Mexíkó líklega stærsta borg í heimi með um 13 milljónir íbúa, en á Mexíkóborgarsvæðinu er talið að séu um 30 milljónir íbúa. í gegnum aldirnar hafa marg- ar borgir státað af því að vera stærstu borgir heimsins en ef farið er allt til ársins 8900 f. Kr. var í raun engin borg til en í írak var til samfélag, Chemi Shanidar, sem í voru 150 íbúar. Fyrstu sagnir um borg í eigin- legri mynd er Jeríkó eri árið 7800 f. Kr. eru íbúar þar 27.000. Árið 600 f. K. eru íbúar í Babýlon orðnir 350.000 og er hún þá stærsta borgin. Blessuð veröldin Fyrsta borgin til að vera með meira en milljón íbúa er Róm en þegar flestir bjuggu í henni var íbúatalan 1,1 milljón árið 133 f. Kr. Árið 1279 er fjölmennasta borg heimsins Angor í Kambod- íu með 1,5 milljónir íbúa. HAPPDRÆTTI BÓKATÍÐINDA VINNINGSNÚMER DACJINS ER: 3937 Ef þú finnur þetta númer á baksíðu Bókatíðinda skaltu fara meö hana í næstu bókabúð og sækja vinninginn: BÓKAÚTTEKT AÐ ANDVIRÐI 10.000 KR. Bókaútgefendur Þokusúld og rigning I dag verður vaxandi suðvestan- átt, stinningskaldi eða allhvasst um landið norðan- og vestanvert en kaldi og stinningskaldi í öðrum landshlutum. Víðast hvar þurrt í fyrstu en síðar í dag og í nótt má bú- Veðrið í dag ast við þokusúld eða rigningu vest- anlands en áfram þurru og nokkuð björtu veðri um landið austanvert. Hiti á bilinu 0 til 9 stig, kaldast í innsveitum suðaustanlands að næt- urlagi en hlýjast á Norðurlandi að deginum. Á höfuðborgarsvæðinu er sunnan- og suðvestankaldi og skýj- að en þurrt að mestu í fyrstu en suð- vestan stinningskaldi og þokusúld síðar í dag. Sólarlag í Reykjavík: 15.32. Sólarupprás á morgun: 11.13 Síðdegisflóð í Reykjavík: 22.29. Árdegisflóð á morgun: 10.49. Heimild: Almanak Háskólans Veðrið kl. 6 í morgun: Akureyri skýjaö 7 Akurnes léttskýjað -1 Bergsstaöir alskýjaö 5 Bolungarvik alskýjaö 6 Egilsstaöir skýjað 1 Keflavíkurflugvöllur þokumóða 6 Kirkjubcejarklaustur hálfskýjaó -1 Raufarhöfn skýjaó 0 Reykjavík alskýjaó 6 Stórhöföi alskýjaö 6 Bergen léttskýjaö 3 Helsinki snjókoma 0 Kaupmannahöfn skýjaö 1 Ósló skýjaö 0 Stokkhólmur léttskýjaó -1 Þórshöfn léttskýjaó 2 Amsterdam súld 0 Barcelona heiöskirt 8 Chicago' snjókoma ■6 Feneyjar hálfskýjaö 1 Frankfurt skýjaó 0 Glasgow skýjaó 3 Hamborg hálfskýjaö -4 London súld 5 Los Angeles rigning 14 Lúxemborg skýjaó -1 Madríd þokumóóa 0 Malaga léttskýjaö 9 Mallorca léttskýjaó 5 New York heiöskírt -4 Nice rigning 7 Nuuk snjókoma -4 Orlando léttskýjaö 13 Paris léttskýjaö 0 Róm skýjaö 10 Valencia heiöskírt 6 Vín snjókoma -.2 Winnipeg skýjað -24 Kristján Gunnarsson, formaður Verkalýðs- og sjómannafélags Keflavíkur: Sendi Vinnuveitendasamband- inu jólakort eins og alltaf DV, Suðurnesjum: „Þegar sumir eru að tala um máttlausa verkalýðshreyfingu þá er félögum mikið að fjölga hjá okk- ur og styttist óðum í að innan fé- lagsins verði þrjú þúsund félagar," segir Kristján Gunnarsson, for- maður Verkalýðs- og sjómannafé- lags Keflavíkur, sem hefur I mörgu að snúast þessa dagana eftir að fé- lagsmenn sögðu upp kjarasamn- ingum á dögunum. Kristján segir að verkalýðs- og Maður dagsins sjómannafélagiÖ sé deildaskipt fé- lag. Sjómenn í félaginu eru eitt huridrað og tíu og fara hagsmunir þeirra ágætlega saman við hags- muni annarra félagsmanna og er sambúðin ákaflega góð. Það eru náttúrlega áherslumunir á milli deilda í félaginu en það eru engin vandmál og ekki annað hægt að segja en að allt hafi gengið vel hingað til. Kristj'án Gunnarsson. Þótt Kristján hafi í mörgu að snúast þá ætlar hann ekki að láta erilinn og kjaramálin trufla sig yfir hátíðirnar. Þrátt fyrir að Vinnuveitendasambandið hafi stefnt félaginu ætlar hann að senda því jólakort: „Ég mun senda því jólakort eins og ég hef alltaf gert og óska því gleðilegs árs og friðar." Áhugamál Kristjáns eru veiðar á sumrin: „Ég reyni þegar tími gefst til að fara að veiða og einnig hef ég mikinn áhuga á ferðalögum innanlands og ekki skemmir það fyrir ef maður kemst aðeins út í hinn stóra heim til að ferðast. Lestur góðra bóka er einnig áhugamál hjá mér.“ Annars hefur mesti frítími Kristjáns og eiginkonu hans, Guðrúnar Jó- hannsdóttur, undanfarin tvö ár farið f að sinna syni þeirra, Jó- hanni Rúnari, 22 ára, sem lenti í alvarlegu bifhjólaslysi og hefur verið í hjólastól síðan: „Hann á hug minn allan. Ég er staðráðinn í að vera vakandi við að fylgjast með kínverska lækninum sem staddur er hér á landi og bind miklar vonir við hann. Það sem hann er að gera er mjög jákvætt. Ég horfi til þess með vonar- og bænarhug," segir Kristján en hann 9g Guðrún eiga einnig eina dóttur, írisi Ósk, sem er 19 ára. -ÆMK Myndgátan hér aö ofan lýsir orðtaki. DV Bikarkeppnin í handbolta ' Bikarkeppnin í handbolta er komin vel á leið og verða leiknir flmm leikir í sextán liða úrslit- um í kvöld. Á Seltjarnarnesi leika Grótta b og Víkingur, á Hlíðarenda er stórleikur þegar Valur mætir FH, í Kópavogi leika HK og Fram og einnig í Kópavogi leika Breiðablik og Þór, á Selfossi mætast 1. deildar íþróttir liðin Selfoss og Afturelding. Allir leikirnir hefjast kl. 20. Þá verður leikinn einn leikur í 1. deild handboltans. Er um að ræða frestaðan leik á milli KA og Stjörnunnar og fer leikurinn fram á Akureyri. Skák Patrick Wolff sigraði á banda- ríska meistaramótinu, sem fram fór í Modesto fyrir skemmstu, eftir bráðabana við Nick de Firmian og Alexander Ivanov. Þeir hlutu allir 8,5 v. af 13 mögulegum. Yermolinski fékk 8 v., Gulko 7,5, Browne 6,5, Benjamin, Dzindzihashvili og Dmitri Gurevich 6 v. og aðrir minna. Hér er staða frá mótinu. Benja- min hafði svart og átti leik gegn Kudrin: 8 7 6 5 4 3 2 1 20. - Hg3! 21. De2 e5 Nú kemst hvítur ekki hjá liðstapi. 22. Ba7 Hxc3 23. Dg4+ He6 24. Hd2 De7 25. Hfdl Kc7 og svartur vann um síðir. Jón L. Árnason # I if á á iii I ABCDE FGH Bridge Henri Szwarc er einn frægasti spilari Frakka og var reyndar upp á sitt besta fyrir um þremur áratugum. Margir töldu hann þá besta spilara heims en víst er að hann þótti sériega hugmyndaríkur og dró jafnan að sér fjölda áhorfenda á mótum. Hann gefur lítið eftir í spilamennskunni og varð til dæmis í öðru sæti Macalian- tvímenningsins í London fyrr á þessu ári. Hér er eitt frægasta spil Szwarcs þar sem hann sat í sagnhafasætinu í sex hjörtum. Sagnir gengu þannig, austur gjafari og aliir á hættu: * KDG9542 V 732 * -- * ?72 Austur Suður Vestur Norður 3é Dobl pass 5* pass 6» p/h Vestur spilaði út einspili sínu í spaða og Swarc drap níu austurs á ás í fyrsta slag. Hann tók þrisvar sinnum tromp og lagði síðan niður tígulásinn og var þá hú- inn að fá nokkuð glögga mynd af spilum andstæðinganna. Líklegt var að skipting vesturs væri 1-2-7-3 (eftir opnun austurs á þremur spöðum) og skipting austurs þá 7- 3-0-3. Þá var ljóst að hægt var aö vinna slemmuna. Ef vestur átti laufdrottning- una var hægt að svína laufgosanum og vinna spilið með yfirslag. Ef austur átti drottninguna var hægt að renna tromp- um í botn og neyða austur tii að fara nið- ur á K blankan í spaða og drottningu þriðju í laufi. Þá var hægt að endaspila austur á spaða. En hvora leiðina átti aö fara?. Swarc hugsaði lengra en þetta og var í raun sama hvorum megin drottn- ingin lá. Hann spiiaði einfaldlega laufl á ás, tók kónginn og henti tígulkóngnum! Hann trompaði síðan iauf og spilaði tígli að heiman. Vestur fékk slaginn á drottn- inguna en varö síðan að gefa blindum af- ganginn. ísak Örn Sigurðsson 4 106 V 64 ♦ G76 4 ÁKG1 * A83 * ÁKDG * ÁK5 * 8 Höfuðvígi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.