Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 13.12.1995, Side 12
12 MIÐVIKUDAGUR 13. DESEMBER 1995 I>V Ekkert smurt brauö? Sæmundur hringdi: Ég vil byija á aö þakka og taka undir lesendabréf í DV 6. des. sl. um jólahlaðborðin. Þau eru sannarlega mörg og misjöfn. Annað er sem ég sakna t.d. á öll- um þessum mörgu ölkrám sem hafa opið til kl. 3 að nóttu - og reyndar á fleiri stöðura sem kalla sig veitingastaði - að geta ekki fengið smurt brauð svo lengi sem opið er. Ég veit ekki betur en vínveitingaleyfin til- skilji að staðirnir bjóði mat jafn- framt. Þetta er engin veitinga- mennska að mínu mati. Ekki heldur krármenning. Mega þær ekki spila? Guðný S. hringdi: Ég er yfír mig hneyksluð á fréttaflutningi, sem áreiðanlega er líka blásinn upp, um að asísk- ar konur stundi hér fjárhættu- spil, veðmál og þaðan af verra, nefnilega vændi. Mega konumar ekki spila í sínum hópi. Þetta er lenska víða um heim og er það glæpur þótt lagt sé undir eitt- hvert smáræði, jafnvel gull? Um vændið legg ég nú ekki hlustir við, svo ómerkilegt er þar rugl allt. Dagsbrún og desemberupp- bótin Sigurður skrifar: Ég er afar sár yfir því hvernig málin hafa æxlast á vinnumark- aðinum. Ég er verkamaður og verð að sjá á eftir desemberupp- bótinni sem þó var boðin til við- bótar hefði verið sæst á að láta kjarasamninga liggja milli hluta þar til í lok næsta árs. Ég er auð- vitað viss um að þessi málalok eru gagnstæð vilja þorra verka- fólks. Raunhæfast væri nú af vinnuveitenda hálfu að greiða öllu sínu fólki hina boðnu des- emberuppbót hvemig sem fer. Þá yrði farsæl lausn fyrir alla. En verkalýðshreyfingin stæði að vonum sneypuleg eftir. Samanburður borgar sig Margrét Davíðsdóttir skrifar: Nú sem endranær borgar sig að bera sjálfur saman verð á milli verslana á þeim hlutum sem kaupa skal en fara ekki blindandi eftir auglýsingum. Um síðustu helgi var borinn inn á mitt heimili myndalisti sem greinilega átti að ná til bam- anna. í listanum er ftdlyrt að þetta eða hitt leikfangið sé á sér- lega hagstæðu verði og m.a.s. til- boði. Á mánudag átti ég leið í ýmsar leikfangaverslanir og varð mjög undrandi að sjá marga af sömu hlutunum og voru í list- anum og áttu að vera á svo hag- stæðu verði á mun hagstæðara verði, án þess að vera á neinu sérstöku tilboði. Því borgar sam- anburður sig. Verslum í heimabyggð S.A. skrifar: Um sl. helgi fór ég í miðbæ Hafnarfjarðar og fannst heldur fátt um manninn. Grátlegt aö vera búinn að byggja þennan glæsilega miðbæ ef fáir versla svo þar. Svo fórum viö í Pjarðar- kaup til að versla til helgarinnar og þar var heldur meira um fólk. Við gátum nýtt ferðina og keypt í jólamatinn því úrvaliö var gott og má t.d. nefna að kjúklingar voru á tiboði, undir 400 kr. kg. Okkur en nauðsynlegt að tryggja að öll verslun hverfi ekki til ein- hverra risafyrirtækja i öðrum bæjarfélögum. Ég hvet því alla Hafnfirðinga til að versla í sinni heimabygð fyrir jólin, og það hjá hafnfirskum fyrirtækjum. ILIliiKA þjónusta allan Spurningin Lesendur i sima 5000 i kl. 14 og 16 Hve miklu eyðir þú í jóla- gjafir? Elísabet Ármannsdóttir íþrótta- kennari: Svona tuttugu þúsundum. Davíð dáleiðir ráðherrana Regína Thorarensen skrifar: Enginn skyldi þingmaður verða nema hafa þekkingu á atvinnuveg- um þjóðarinnar og raunar gjör- þekkja þá. - Ég er sáróánægð með Davíð Oddsson sem hefur verið for- sætisráðherra síðustu árin því alltaf hefur atvinnuleysið aukist með hverju árinu. Davíð varð borgarstjóri Reykja- víkur og byggði stór og mikil hús. Skyndilega rakst hann á þann vegg að Reykjavíkurborg var orðin stór- skuldug. Slóttugur er Davíð því þá fékk hann Markús Örn útvarps- stjóra, þáverandi, sem ávallt hefur verið hrekklaus maður, til að taka við borgarstjórastarfinu. Markús beit á agnið, enda einn þeirra mörgu, bæði ég og fleiri, sem trúðu á Davíð. En eftir stuttan stans sá Markús hve skuldir borgarinnar voru miklar og gekk á fund Davíðs og sagði upp starfinu og vísaði í leiðinni á ágætan og saklausan mann, 75 daga borgarstjórann sem ég kalla svo. Davíð „dáleiðir" hins vegar fólk (nema Jón Baldvin, sem sá við hon- um). Davíð hefur sterkar taugar og ótakmarkað sjálfsálit, sér stutt fram í tímann, en notfærir sér forsætis- ráðherraembættið i ríkum mæli og dáleiðir samráðherra sína. Lögfræðingaklíka Sjálfstæðis- flokksins minnir mig á páfagauks- samkomu. Flestir þeirra hafa ekkert unnið við atvinnuvegina, utan Halldór Blöndal sem hefur stóran sjóndeildarhring. Hann vann líka með námi sínu frá því hann var barn og í hans ráðherratíð hafa verkin talað. Davíð hefur hins vegar ekki valið sér menn í rikisstjórn úr hinum vinnandi stéttum. I stjórn Gunnars Thoroddsens voru slíkir menn og mikilhæfir. Hann myndaði- líka ríkisstjóm þegar ráðandi menn í Sjálfstæðisflokknum og Framsókn þorðu ekki að mynda stjóm. - Ég vil að lokum láta Davíð vita það að mér líst vel á Björn Bjarnason, einnig Ólaf G. Einarsson. Þorstein Pálsson myndi ég hins vegar kjósa forseta. Hann er einlægur og sakleysislegur en kann hins vegar lítið í siðaregl- um, en þær gæti hann lært. Gísli Hafliðason vélstjóri: Ég er ekkert farinn að taka það saman. Þrjú þúsund krónum. Hanna Edda Halldórsdóttir kortateiknari: Ég veit það ekki, kannski svona þrjátíu þúsundum. Gróa Helgadóttir, vinnur á dag- vistarstofnun: Ég get ekki gefið það upp. Sigurður Lárusson framreiðslum- aður: Allt of miklu. Sameinuðu þjóðirnar Konráð Friðfinnsson skrifar: Eftir að síðari heimsstyrjöldinni lauk, 1945, töldu menn hyggilegt að koma á fót stofnun er hefði það markmið að einbeita sér að friði í heiminum og viðhalda honum. Þetta er grunnurinn að stofnun Samein- uðu þjóðanna. í stofnsáttmálanum er kveðið svo á að þær gæti hlutleysis f allri ákvarðanatöku og kappkosti að vera óbundnar af stjórnmálum -þátttöku- landanna. Af þessu má ráða að frumkvöðlarnir hafi raunverulega viljað búa til ríki í ríkinu með stofn- un SÞ. sem löndin halda uppi með árlegum framlögum sínum. Öll framkvæmdin væri síðan í höndum mannanna sem með völdin færu á hverjum tíma. Skoði maður þessi mál yfirvegað er ekki annað að sjá en að bollaleggingarnar sem að baki búa hafi ekki verið byggðar á traust- um grunni. Það eitt, að ætlast til þess af þjóðunum sem standa að baki þessu samstarfi að reiða ein- vörðungu fram fé en hafa næsta lít- ið til málanna að leggja, er auðvitað nokkuð sem hlýtur að falla um sjálft sig. Þetta kom beríega fram er aðild- arríkin reyndu að ota sínu fólki fram í helstu valdastöður stofnunar- innar. Hlutleysisstefnan er þannig að S.Þ. áttu ekki að hlutast til um Gagnslítil friðargæsla SÞ? stjórnmál í hinu eða þessu landinu. Sannleikurinn er sá að hlutleysis- stefnan er gagnslaus þegar á reynir, vilji þjóðir á annað borð koma því til leiðar sem til er ætlast af þeim. Því var það þegar SÞ sendu her- flokka og vopnabúnað til Sómalíu til að stilla til friðar að þeir komu að harla litlu gagni. Þessi mannafli mátti ekkert aðhafast og varð því að horfa upp á óöldina án þess að haf- ast að. Sama skeði í fyrrum Júgóslavíu. Ég tel að betur sé heima setið en að aðhafast lítið sem ekkert og bíða fyrirskipana sem aldrei koma. „Fyrir jólin ber mest á léttvínsauglýsingum sem höfða til þeirra sem ætla að kaupa gæðavín með jólasteikinni“, segir m.a. í bréfinu um vínauglýsingar á erlendu sjónvarpsstöðvunum. um, svo sem „Kronenbourg 1664“ o.fl. o.fl. Það er auðvitað ekki hægt annað en að hlæja sig máttlausan að sýnd- armennskunni, hræsninni og hé- giljuhættinum sem felst í þessu aug- lýsingabanni á víni í íslenskum fjöl- miðlum, vitandi það að í landinu eru vínauglýsingar á hverju strái í öllum erlendum miðlum sem lands- menn skoða. Viturlegt væri af stjórnvöldum að ganga hreint tO verks og afnema auglýsingabann á áfengi hér og leyfa útgefendum blaða og tímarita, svo og sjónvarps- stöðvunum að njóta ómældra tekna af þessum fjáröflunarlið. - Skyldi t.d. Sjónvarpinu veita af? Vínauglýsingar á erlendu stöðvunum Helgi Gunnarsson skrifar: Talvert hefur verið rætt og deilt um hin „uppgerðu" áfengislög hér á landi. Frelsi til innflutnings áfengis er þar talið helst nýmælið. Viðhorf- ið til auglýsinga á vínum er enn samt við sig hjá löggjafanum, frekar þrengst ef eitthvað er. Það eru að- eins erlendir aðilar sem mega aug- lýsa hér áfengi í blöðum og tímarit- um. Og nú hefur fjöldi erlendra sjónvarpsrása bæst i hópinn. Ekki getur íslenska ríkisvaldið bannað þær auglýsingar frekar en í tímarit- unum. Það má svo sem flokka það undir illa innrætingu mína að ég brosi í kampinn þegar ég horfi á hinn mikla fjölda prýðilega gerðra vín- auglýsinga á hinum. erlendu sjón- varpsrásum; Sky News, TNT og öll- um þýsku stöðvunum. Núna fyrir jólin ber þar mest á léttvínsauglýs- ingum sem höfða til þeirra sem ætla að kaupa gæðavín með jólasteik- inni. Einnig auglýsingar á t.d. Campari, Cinzano (en það fæst nú ekki lengur á íslandi) og bjórtegund-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.