Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.1996, Blaðsíða 5
FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1996
5
pv________________________________________Fréttir
Vilja kaupa upp réttinn til laxveiöa i sjó norðan til 1 Borgéufirði
Hægt að taka réttinn
eignarnámi semjist ekki
„Það sem vakir fyrir mönnum er
að allri laxveiði í sjó við ísland
verði hætt. Ég kem inn í þetta mál
sem formaður Veiðifélags Langár á
Mýrum. Það sem málið snýst um er
að fá keyptar upp laxanetalagnir í
sjó á fimm býlum en þó aðallega á
þremur við norðvestanverðan Borg-
arfjörð. Þetta eru jarðirnar Rauða-
nes, Lambastaðir og Þursstaðir. Eig-
endur þessara jarða neita að selja
réttinn og því er þessi deila komin
upp,“ sagði Jóhannes Guðmunds-
son, formaður veiðifélags Langár á
Mýrum. Öll veiðifélög á vatnasvæði
Mýra- og Borgarfjarðarsýslu standa
saman um að fá þar alla laxveiði í
net í sjó stöðvaða. Njóta þau full-
tingis Orra Vigfússonar við það.
Guðjón Viggósson, bóndi í Rauða-
nesi II, talsmaður þeirra sem stunda
netaveiði á laxi á þessu svæði, sagð-
ist ekkert vilja segja um þetta mál
eins og er. Menn hefðu talið æski-
legt að þetta máli færi ekki í fjöl-
miðla strax.
Samkvæmt lögum um laxveiði er
hægt að taka þessi net eignarnámi
náist ekki samkomulag.
„Menn vilja að sjálfsögðu reyna í
lengstu lög að fara samningaleiðina
enda mun, samkvæmt lögunum,
innlausn á netunum ekki vera leyfð
nema að undangengnum samning-
um. Það er landbúnaðarráðuneytið
sem framkvæmir innlausnina ef til
kemur,“ sagði Jóhannes.
Hann segir það skipta einhverj-
um tonnum sem veiðist af laxi í net-
in þarna. Áður fyrr, meðan verð á
laxi var hátt, skipti þetta miklu
máli fyrir viðkomandi býli. Verð á
villtum laxi hefur hrapað mjög mik-
ið eftir að eldislaxinn kom til sög-
unnar. Því skiptir veiðin þarna
minna máli en áður. Það hefur sýnt
sig að eftir að netaveiði var hætt í
Hvítá hefur laxagengd í Borgar-
fjaröarárnar aukist til muna.
Veiðifélög ánna þar greiða árlega
12,2 milljónir króna til bænda fyrir
að leggja ekki net í Hvítá. Varðandi
netalagnirnar í sjó er gert réð fyrir
að þeim verði endanlega hætt og
fyrir það greitt. Jóhannes vildi ekki
segja hve mikið yrði borgað fyrir
það en það skipti milljónum. Þar
Múlagöngin:
Vegskál-
arnir
mein-
gallaðir
DV, Ólafsfiröi:
Á almennum stjórnmálafundi,
sem Halldór Blöndal landbúnaðar-
ráðherra og Tómas Ingi Olrich þing-
maður héldu á Ólafsfirði nýlega,
kom fram að ráðherra hefur skrifað
vegamálastjóra bréf vegna nauðsyn-
legra úrbóta beggja vegskála Múla-
ganga. Göngin, sem tekin voru í
notkun um jól 1990, voru bylting
fyrir byggðina en vegskálarnir,
einkum skálinn Ólafsfjarðarmegin,
eru meingallaðir.
Lögreglan segir að það sé bara
tímaspursmál hvenær stórslys verði
á þessum stað. Á síðustu þremur
árum hafa orðið 6 árekstrar í beygj-
unni til Ólafsfjarðar og við hurð og
eignatjón umtalsvert.
-HJ
- eigendur jarðanna neita enn að selja
yrði trúlega um eingreiðslu að ræða íjarðarárnar gengur norðvestan að Ekkert veiðist við landið undir fer að veiðast þeim megin í Borgar-
en það væri þó ekki ákveðið. og gengur fyrir Lambastaðatangann Hafnarfjalli. Það er ekki fyrr en lax- firðinum," segir Jóhannes Guð-
„Lax sem gengur í allar Borgar- og með landinu að vestanverðu. inn er genginn lengra upp að hann mundsson. -S.dór
lítrar aí bensíni fylgja hverjum bensínjeppa
úrval al góðum jeppum á góðu verði og á einstöhum hjörum
vaxtalaust lón III24 mánaða að upphæð allt að 1 milljón hr.
ef pó haupir hensínjeppa fylgja eitt þósund lítrar al bensínl
BÍLAÞINgtlEKLU
N O T A Ð I R B í L A R
Bílaþing Heklu • Laugavegi 174 • Sími 569 5