Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1996, Blaðsíða 3
MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1996
23
Iþróttir
Stjörnuleikur KKÍ um helgina:
Troöslukeppnin
var hápunktur
Maloom Montgomery, leikmaður 1. deildar liðs Selfoss, sýndi
snilldartilþrif í troðslukeppninni og sigraði með yfirburðum.
DV-mynd Brynjar Gauti
troðslukeppnin sem var hápunktur
Stjörnuleiksins, en keppendur voru
fiórir, Malcolm Montgomery, Sel-
fossi, Þór Haraldsson, Haukum,
Christopher Oqment, BÍ og Sigur-
björn Einarsson, UMFG.
Montgomery sigraði meö yfirburð-
um, tróð tvívegis stórglæsilega og
fékk fullt hús stiga fyrir, en hver
kepþandi tróð tvívegis, en einkunn-
ir fyrir tvær bestu giltu.
Aðrir náðu sér ekki á strik, að
undanskilinni fyrstu troðslu Þórs
Haraldssonar, sem var glæsileg.
Léleg þriggja stiga
skotkeppni
í þriggja stiga keppninni voru
sömuleiðis fjórir keppendur, þeir
Herbert Arnarson, Teitur Örlygs-
son, Guðjón Skúlason og Micheal
Theole. Það var Teitur Örlygsson
sem bar sigur úr býtum eftir bráða-
bana gegn Theole. Þeir Herbert og
Guðjón Skúlason náðu sér ekki á
strik frekar en í sjálfum leiknum.
Reynda var þriggja stiga kepnin
mjög slök og leikmenn hittu illa.
-PS
Islandsmótið í fjölþrautum um helgina:
stjörnuleiksins
Lið skipað útlendingum sem
leika í deildarkeppninni í
körfuknattleik hér á landi sigraði
landslið íslands í Stjömuleik KKÍ,
116-103, en leikurinn fór fram í
Smáranum í gær.
Leikurinn var frekar bragðdauf-
ur, en það voru snilldartilþrif
Malcolms Montgomerys í troðslu-
keppninni, sem yljuðu áhorfend-
um, en tilþrif eins og hann sýndi
eru því miður of fágæt í
körfuknattleik hér á landi. Þá
hefðu áhorfendur mátt vera fleiri
til að meiri stemning myndaðist, en
um 500 manns sáu ástæðu til að sjá
Stjörnuleik körfuknattleiksmanna
hér á landi.
íslenska liðið lék ágætlega í fyrri
lendingamir höfðu þó yfirhöndina
í hálfleik, 64-63. Útlendingarnir
tóku hins vegar til sinna ráða í síð-
ari hálfleik og sýndu landanum
hvernig leika skal körfuknattleik.
íslenska liðið lék hins vegar á
sama tima ekki nægilega vel. Það
virtist meðal annars há íslenska
liðinu að hæðina vantar í liðið.
Það var aðeins Teitur Örlygsson
sem náði að sýna tennumar og
skoraði hann 28 stig, þar af 15 stig
úr þriggja stiga skotum og þá lék
Guðmundur Bragason ágætlega.
Lykilmenn eins og Herbert Amar-
son, Jón Amar Ingvarsson og Guð-
jón Skúlason voru mjög slakir og
þá vakti sérstaklega athygli
frammistaða Guðjóns sem átti mik-
rétta leið.
Torrey John, sem leikur með
Tindastóli, fór á kostum í leiknum,
var stigahæstur í liði útlendinga
með 22 stig, auk þess sem hann lék
feiknalega vel að öðru leyti.
Þaö vakti einnig athygli að út-
lendingamir sem leika með liðum í
1. deild, léku sérstaklega vel og það
var greinilegt að þeir vildu sýna
hvað í þeim býr.
Þar ber sérstaklega að nefna þá
Willie Rhins, sem leikur með Hetti,
Cham Wrencher, Þór Þorlákshöfn
og Malcolm Montgomery, Selfossi,
en þeir eru allir feiknalega leiknir
með knöttinn og erfitt að ráða við
þá.
Það var greinilegt að útlending-
arnir komu með rétta hugarfarinu
til leiksins.Þeir skemmtu bæði
sjálfum sér og öðmm með skemmti-
legum tilþrifum og það ber sérstak-
lega að geta þáttar John Rohdes í
leiknum, sem kom leikmönnum og
áhorfendum oft til að brosa.
Stig íslands: Teitur Örlygsson
28, Guðmundur Bragason 15, Her-
mann Hauksson 11, Guðjón Skúla-
son 10, Pétur Ingvarsson 8, Sigfús
Gizurarson 8, Albert Óskarsson 6,
Helgi Guðfinnsson 6, Herbert Am-
arson 6 og Falur Harðarson 5. Þeir
Jón Amar Ingvarsson og Eiríkur
Önundarson, komust ekki á blað.
Stig útlendinga: Torrey John
22, Fred Williams 17, Cham
Wrencher 17, Roland Bayless 13,
Willie Rhins 12, Chrisopher Oq-
ment 10, Malcolm Montgomery 8,
John Rohdes 7, Rondey Robinson 6
og Micheal Theole 6.
Jón Arnar vann
og Sunna setti
örugglega
íslandsmet
Jón Amar Magnússon, Tinda-
stóli, varð um helgina Islands-
meistari í sjöþraut karla innanhúss
og hlaut 4.819 stig. Sunna Gests-
dóttir, HSK, varð íslandsmeistari í
sexþraut kvenna og setti glæsilegt
íslandsmet.
Jón Arnar gekk mjög vel í
keppninni eða þar til kom að stang-
arstökkinu. Þar náði hann ekki að
komast yfir byrjunarhæðina sem
var 4,20 metrar. Jón kenndi kæm-
leysi um ófarimar og eflaust hefur
hann lært sitt af hverju í stangar-
stökkinu að þessu sinni.
Jón Arnar hóf keppni með því að
hlaupa 50 metra á 5,8 sek. Hann
stökk 7,36 metra í langstökki, varp-
aði kúlu 15,74 metra sem er hans
besti árangur, stökk 1,91 metra í
hástökki, stökk ekki byijunarhæð í
stangarstökki eins og áður sagði,
hljóp 50 metra grind á 6,7 sek. og
loks hljóp hann 1000 metra á 3:04,7
mín.
Annar í sjöþrautinni varð Theó-
dór Karlsson, UMSS, með 4.431 stig
og þriðji varð Freyr Ólafsson, HSK,
með 4.100 stig.
íslandsmet hjá Sunnu í sex-
þrautinni
Sunna Gestsdóttir, USAH, setti
íslandsmet í sexþraut, hlaut 4.128
stig. Eldra metið átti Þuríður Ingv-
arsdóttir, HSK, og það var 4.109
stig.
Sunna hljóp 50 metra á 6,5 sek.,
stökk 5,73 metra í langstökki, varp-
aði kúlunni 9,54 metra, stökk 1,53
metra í hástökki, hljóp 50 metra
grindarhlaup á 7,3 sekúndum og
lauk keppni með því að hlaupa 800
metrana á 2:44,7 mín.
Önnur í sexþrautinni varð Helga
Halldórsdóttir, FH, hlaut 3.889 stig
og þriðja Rakel Tryggvadóttir, FH
með 3.702 stig. -SK
Jón Arnar Ingvarsson í baráttu við einn erlendu leikmannanna í
Smáranum um helgina. Útlendu leikmennirnir unnu auðveldan sigur á
íslenska landsliðinu. DV-mynd Brynjar Gauti
Troðslukeppnin var
hápunktur stjörnuleiksins
Eins og áður sagði var það
Jón Arnar Magnússon, Tindastóli, kemur f markið í 50 metra grindahlaupinu en þar náði hann tímanum 6,7
sekúndur sem er mjög góður tími. DV-mynd Brynjar Gauti