Dagblaðið Vísir - DV - 19.02.1996, Page 4
24
MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1996
MÁNUDAGUR 19. FEBRÚAR 1996
25
4
íþróttir
Iþróttir
Ovæntur
ósigur
hjáKFÍ
Körfuknattleiksfélag ísafjarð-
ar tapaði óvænt leik sínum gegn
Hetti á EgUsstöðum i 1. deUd
karla í körfuknattleik um helg-
ina.
Lokatölur urðu 106-102 fyrir
Hött. Staðan eftir leikinn er
þannig í 1. deUdinni:
Snæfell 16 14 2 1556-1197 28
KFf 16 13 • 3 1442-1255 26
ÍS 15 10 5 1142-1108 20
Reynir S. 15 7 8 1238-1344 14
Þór Þ. 15 7 8 1312-1250 14
Leiknir R. 15 7 8 1214-1230 14
Selfoss 15 7 8 1258-1191 14
Höttur 16 6 10 1092-1242 12
ÍH 15 3 12 1132-1355 6
Stjarnan 15 3 12 1078-1260 6
Fylkismenn
í 3. sætið
Fylkismenn skutust í þriðja
sæti 2. deildar karla í handknatt-
leik um helgina með þvi að sigra
Þór norður á Akureyri með 27
mörkum gegn 25.
Staðan er þannig eftir leik-
inn:
HK
Fram
Fylkir
Þór A.
ÍH
Breiðablik 12
15 13 1 1 471-296 27
13 12 0 1 388-261 24
15 91 5 405-350 20
14 9 0 5 352-335 18
14 8 0 6 309-311 16
1 7 306-304 9
Bl 14 3 2 9 357-427 8
Ármann 13 1 1 11 268-428 3
Fjölnir 14 0 0 14 289-429 0
Kvennakarfa:
Stórsigur
Blikastúlkna
Breiðablik sigraði Akranes með
miklum yfírburðum. Lokatölur urðu
79-24 og staðan er þannig í 1. deild
kvenna eftir leikinn.
Breiðablik 16 14 2 1239-860 28
Keflavík 15 13 2 1257-804 26
Grindavík 15 12 3 1049-823 24
KR 15 11 4 1026-822 22
ÍR 15
Njarðvík 15
Tindastóll 15 5 10 896-1048 10
7 8 999-996 14
7 8 917-914 14
Valur
ÍS
15 4 11
15 2 13
759-998 8
672-1064 4
Akranes 16 1 15 699-1184 2
Haukasigur
Haukar áttu ekki i erfiðleikum
með afspyrnuslaka Eyjamenn á
föstudagskvöldið var. Það þarf
kraftaverk tU að liðið forði sér
frá faUi í 2. deUd. Haukar hvUdu
sínu bestu menn á löngum kafla
að það sýnir yfirburði liðsins.
Eyjamenn misnotuðu sjö
vítaskot í leiknum.
Bjarni Frostason var í
sérflokki á vellinum. Sigmar
Þröstur varði ágætlega hjá ÍBV.
„Gott að ná
jafntefli
hér á Nesinu”
„Það var klaufalegt að ná ekki að
halda forystunni í þessum leik en
við máttum þakka fyrir annað stigið
í lokin. Við höfum staðið okkur
mjög vel á heimavelli og aðeins
tapað þar einum leik. En við
þurfum að gera miklu betur í
útileikjunum,” sagði Jón Þórðarson,
leikmaður Gróttu, eftir jafntefli
Gróttu og Stjörnunnar á
Seltjarnarnesi í Nissandeildinni,
25-25.
Gróttumenn voru yfir lengst af
leiknum gegn Stjörnunni en
Garðbæingar skoruðu fimm mörk í
röð um miðjan síðari hálfleik. Undir
lokin voru það svo Gróttumenn sem
máttu þakka fyrir jafnteflið þegar
Juri Sadovski jafnaði fimm
sekúndum fyrir leikslok.
„Ég var mjög ánægður með
baráttuna hjá strákunum og það var
gott að ná jafntefli hér á Nesinu.
Markvarslan hjá þeim var í allt
öðrum klassa en hjá okkur í þessum
leik en við erum með betra lið en
Grótta,” sagði Viggó Sigurðsson,
þjálfari Stjörnunnar, eftir leikinn í
samtali við DV.
Gróttumenn hafa komið mjög á
óvart í vetur og baráttan hjá liðinu
er til fyrirmyndar. Sigtryggur
Albertsson átti enn einn stórleikinn
í markinu og er vafalaust einn af
þremur bestu markvörðum landsins
í dag. Juri Sadovski var einnig mjög
öflugur hjá Gróttu.
Hjá Stjörnunni voru þeir Konráð
Olavsson og Jón Þórðarson bestu
menn. -RR
KR fallið í
2. deildina
- eftir tap gegn Aftureldingu
KR-ingar eru endanlega fallnir í
2. deild eftir ósigur gegn Aftureld-
ingu i Nissandeildinni í handknatt-
leik í gærkvöldi. Afturelding sigr-
aði 25-27 í mjög slökum leik í Laug-
ardalshöll.
KR-ingar stóðu mjög í Aftureld-
ingu og voru lengst af með forystu
í leiknum. Afturelding náði að
tryggja sér sigurinn með marki á
síðustu sekúndu leiksins og ekki
laust við að dómarar leiksins hafi
lagt Mosfellingum drjúgt lið undir
lokin.
„Við töpuðum boltanum allt of
oft í sóknarleiknum og fengum á
okkur hraðaupphlaup sem KR-ing-
ar skoruðu úr. Við vorum hræddir
og óöruggir og duttum niður á
skítaplan,” sagði Einar Þorvarðar-
son, þjálfari Aftureldingar, eftir
leikinn.
Hrafn Margeirsson og Sigurpáll
Árni Aðalsteinsson voru bestir KR-
inga en hjá Aftureldingu voru Jó-
hann Samúelsson og Ingimundur
Helgason bestir að þessu sinni.-PS
IBV bikarmeistari
DV, Eyjum:
ÍBV tryggði sér í gærkvöldi
bikarmeistaratitilinn í 2. flokki
karla í handknattleik. ÍBV lék til
úrslita gegn Val og sigraði 16-14.
Leikurinn var hörkuspennandi
og skemmtilegur. Staðan í
leikhléi var 11-5, ÍBV í vil.
Amar Pétursson skoraði 8
mörk fyrir ÍBV og var maður
leiksins.
Hjá Val var Kári Guðmundsson
langbestur og skoraði hann 6
mörk.
-ÞoGu
KR - Afturelding (12-11) 25-27
3-3, 5-5, 8-6, 10-8 (12-11), 14-12, 15-15, 15-18, 19-19, 21-22, 23-25, 25-27.
Mörk KR: Hilmar Þórlindsson 8/2, Sigurpáll Ámi Aðalsteinsson 7, Haraldur
Þorvarðarson 3, Gylfi Gylfason 3, Eiríkur Þorláksson 2, Einar Baldvin Ámason 1,
Jóhann Þorláksson 1. Varin skot: Hrafn Margeirsson 14/2.
Mörk Aftureldingar: Ingimundur Helgason 5, Páll Þórólfsson 5, Jóhann
Samúelsson 5, Róbert Sighvatsson 5, Bjarki Sigurðsson 5, Þorkell Guðbrandsson 1,
Alexei Trúfan 1/1. Varin skot: Bergsveinn Bergsveinsson 11.
Brottvísanir: KR 2 mín., Afturelding 10. Gunnar Andrésson rautt spjald.
Dómarar: Ólafur Haraldsson og Gunnar Kjartansson, mjög slakir.
Áhorfendur: Um 60.
Maður leiksins: Hrafn Margeirsson, KR.
Magnús Sigurðsson og félagar hans í Stjörnunni lentu í kröppum dansi á Seltjarnarnesi í gærkvöldi. Jafntefli varð niðurstaðan og hér skorar Magnús eitt marka sinna
í leiknum. DV-mynd Brynjar Gauti
íslandsmótið í handknattleik karla:
„Anægður með stigin
en ekki með leikinn"
- sagði Gunnar Beinteinsson eftir leikinn gegn Víkingi
„Ég er auðvitað ánægður með stig-
in tvö en ég er alls ekki sáttur við leik
okkar. Það ætlar að reynast erfitt að
rífa okkur upp úr doðanum sem hefur
einnkennt liðið í vetur, við erum að
leika illa og alltof mikið sem einstak-
lingar en ekki lið,“ sagði FH-ingurinn
Gunnar Beinteinsson eftir sigur á
Víkingi, 28-27, í Kaplakrika í gær.
Þrumuskot Héðins
réð úrslitum
Það var Héðinn Gilsson sem tryggði
FH-ingum sigurinn á síðustu sekúnd-
um leiksins mð þrumuskoti en þá
voru Víkingar orðnir fjórir í vörninni
gegn sex FH-ingum. Víkingar höfðu
lengi vel undirtökin i leiknum en virt-
ust ekki þola spennuna í lokin og
gerðu afdrifarík mistök.
í liði FH, sem lék lengstum afleitan
varnarleik, var Hálfdán Þórðarson
bestur og Hans Guðmundsson var
sprækur í fyrri hálfleik.
Hjá Víkingum, sem eru að berjast
fyrir lífi sínu í deildinni, lék Árni
Friðleifsson best, einkum í fyrri hálf-
eik, og Knútur Sigurðsson átti ágæta
kafla.
-GH
Nissandeildin í handknattleik:
fVissum að þeir
yrðu erfiðir”
- KA-menn unnu nauman sigur gegn Selfyssingum
DV, Akureyri:
„Þetta var ágætur leikur hjá
okkur, við náðum að halda í við þá
lengst af. Dómgæslan var alveg
ótrúleg á köflum og það er fljótlegt
að flnna sex til átta vafaatriði í
seinni hálfleik sem féllu öll KA-
megin,” sagði Einar G. Sigurðsson,
leikmaður Selfoss, eftir sigur KA
gegn Selfossi á Akureyri í
gærkvöldi en lokatölur urðu 28-26,
KAívfl.
„Þetta var mjög erfiður leikur.
Við áttum von á þeim mjög
erfiðum og sú varð raunin. Við
únnum þá í bikarnum á Selfossi á
dögunum og við vissum að þeir
höfðu áhuga á að hefna fyrir þann
ósigur. Ég var ekki ánægður með
okkar leik að þessu sinni en
sigurinn var sætur,” sagði Leó Örn
Þorleifsson, leikmaður KA, í
samtali við DV eftir leikinn.
Bestir hjá KA voru þeir
Patrekur Jóhannesson í síðari
hálfleik og Duranona í þeim fyrri.
Jóhann Jóhannsson og Leó Örn
Þorleifsson léku einnig vel.
Hjá Selfossi var Valdimar
Grímsson bestur en þeir Björgvin
Rúnarsson og Sigurjón Bjarnason
áttu einnig góðan leik. -SK
NBA-deildin í gærkvöldi:
Jordan með 44 stig
Michael Jordan átti
enn einn st'roleikinn
fyrir Chicago Bulls í
NBA-deildinni í gær-
kvöldi en Chicago vann
þá góðan útisigur á Indi-
ana. Lokatölur urðu
102-110.
Jordan sýndi allar sín-
ar bestu hliðar og skor-
aði 44 stig. Scottie
Pippen gaf Jordan lítið
eftir og skoraði 40 stig.
Saman skoruðu því Jord-
an og Pippen 84 af 110
stigum Chicago í leikn-
um.
Dennis Rodman sýndi
enn einu sinni hversu
snjall hann er í fráköst-
unum. Hann tók 23 frá-
köst í gærkvöldi og átti
mikinn þátt í sigrinum.
-SK
IR-ingar voru
óheppinir
- gegn Val og töpuðu með eins marks mun, 18-19
IR-ingar geta engum um kennt nema sjálfum sér
hvernig þeir klúðruðu leiknum gegn Val í Seljaskóla í
gærkvöldi. Þó verður að viðurkennast að svolítil
óheppni fylgdi ÍR-ingum í þetta skiptið.
Það var á síðustu mínútum leiksins sem Valsmenn
sigur fram úr og tryggðu sér sigurinn.
í þessum leik sem oftar kom berlega í ljós hve
leikreynslan geta fleytt liðum áfram. Valsmenn sigruðu,
18-19.
Valsmenn náðu þriggja marka forystu í byrjun síðari
hálfleiks en þá tóku ÍR-ingar kipp og skoruðu fimm
mörk í röð. Valsmenn jöfnuðu að vörmu spori og frá þvi
og til loka var leikurinn í járnum.
Magnús Sigmundsson varði vel í marki ÍR og Daði
Hafþórsson var beittur á köflum.
Sigfús Sigurðsson var sterkastur Valsmanna og Júlíus
Gunnarsson var ágætur. Dagur Sigurðsson og Ólafur
Stefánsson hafa oft leikið betur en voru í strangri gæslu.
Valur
KA
Haukar
Stjaman
FH
Afturelding 17 9
Grótta 17 7
Selfoss 18 8
481-394 32
486-429 32
462-431 23
468-443 21
475-452 19
416-404 19
409-410 17
432-478 16
ÍR
Víkingur
1 11 396-423 13
0 13 405-431 10
ÍBV
KR
17
18
4 1 12 384—428 9
0 1 17 430-541 1
KA - Selfoss (14-14) 28-26
2-2, 5-3, 8-6,10-10,13-11 (14-14), 20-15, 23-18, 24-21, 25-23, 27-25, 28-26.
Mörk KA: Julian Duranona 10/4, Patrekur 7/1, Jóhann Jóhannsson 5, Leó Öm
Þorleifsson 4, Björgvin Björgvinsson 1, Erlingur Kristjánsson 1.
Varin skot: Guömundur Amar Jónsson 11, Bjöm Bjömsson 1/1.
Mörk Selfoss: Valdimar Grímsson 7/3, Sigurjón Bjamason 5, Einar Guðmundsson
4, Björgvin Rúnarsson 4, Einar G. Sigurðsson 3, Hjörtur Leví Pétursson 1, Erlmgur
Richardsson 1, Erlingur Klemenzson 1.
Varin skot: Hallgrímur Jónasson 7, Gestur Þráinsson 2.
Brottvlsanir: KA 6 mín., Selfoss 10 mín.
Dómarar: Egill Már og Öm Markússynir, slakir. Áhorfendur: 823.
Maður leiksins: Patrekur Jóhannesson, KA
IBV-Haukar (6-10) 14-21
0-1, 2-3, 2-5, 4-7, 6-8, (6-10). 6-13, 7-14, 9-17,10-18, 11-18,14-21.
Mörk ÍBV: Gunnar Berg Viktorsson 8/2, Svanur Vignisson 2, Amar Pétursson 2,
Ingólfur Jóhannesson 1, Haraldur Hannesson 1.
Varin skot: Sigmar Þröstur Óskarsson 15.
Mörk Hauka: Aron Kristjánsson 6, Halldór Ingólfsson 5/1, Gústaf Bjamason 5, Óskar
Sigurðsson 2, Þorkell Magnússon 1, Petr Baumruk 1, Einar Gunnarsson 1.
Varin skot: Bjami Frostason 22/4.
Brottvísanir: ÍBV 4 mín, Haukar 8 mín.
Dómarar: Gunnar Kjartansson og Ólafur Haraldsson, saemilegir.
Áhorfendur: 225
Maður leiksins: Bjami Frostason, Haukum.
FH - Víkingur (15-18) 28-27
0-2, 2-6, 5-9, 9-9, 11-12, 13-16 (15-18), 17-18, 21-21, 25-24, 27-27, 28-27.
Mörk FH: Hálfdán Þórðarson 7, Hans Guðmundsson 6/3, Sigurður Sveinsson 5/2,
Héðinn Gilsson 3, Guðjón Ámason 3, Gunnar Beinteinsson 3.
Varin skot: Magnús Ámason 7/1.
Mörk Vikings: Knútur Sigurðsson 8/4, Ámi Friöleifsson 6, Birgir Sigurðsson 3,
Þröstur Helgason 3, Rúnar Sigtryggsson 3, Friðleifur Friðleifsson 2, Kristján Ágústsson
1, Hjörtur Ö. Amarson 1.
Varin skot: Reynir Reynisson 11/1.
Brottvísanir: FH 6 mín., Víkingur 10 mín.
Dómarar: Guðjón L. Sigurðsson og Hákon Sigurjónsson. Áhorfendur: Um 300.
Maður leiksins: Hálfdán Þórðarson, FH.
Grótta - Stjarnan (12-10) 25-25
1-2, 24, 6-5, 8-7, 10-8 (12-10), 14-12, 18-14, 20-16, 22-17, 22-23, 24-24, 24-25, 25-25.
Mörk Gróttu: Juri Sadovski 12/6, Jens Gunnarsson 4, Einar Jónsson 3, Róbert Rafnsson 2,
Jón Örvar Kristinsson 2, Jón Þórðarson 1, Davíð Gíslason 1.
Varin skot: Sigtryggur Albertsson 17, Ólafur Finnbogason 1/1.
Mörk Stjörmmnar: Konráö Olavsson 7/3, Jón Þóröarson 5, Magnús Sigurðsson 5, >Dimitri
Filippov 5/4, Sigurður Bjamason 1, Hafsteinn Hafsteinsson 1, Magnús Magnússon 1.
Varin skot: Ingvar Ragnarsson 4, Axel Stefánsson 3.
Brottvisanir: Grótta 10 mín„, Stjaman 4 mín.
Dómarar: Þorlákur Kjartansson og Einar Sveinsson, frekar slakir að þessu sinni.
Áhorfendur: Um 400.
Maður leiksins: Sigtryggur Albertsson, Gróttu.
IR-Valur (9-11) 18-19
1-0, 2-3, 5-7, 8-8, (9-11). 9-12, 14-12, 14-15, 17-16, 17-17, 17-18, 18-19.
Mörk ÍR: Daði Hafþórsson 5/1, Ragnar Óskarsson 3, Guðfmnur Kristmannsson
2, Njörður Árnason 2, Magnús Þórðarson 2, Einar Einarsson 1, Jóhann Ásgeirsson
1/1, Frosti Guðlaugsson 1, Ólafur Gylfason 1.
Varin skot: Magnús Sigmundsson 20.
Mörk Vals: Sigfús Sigurösson 6, Júlíus Gunnarsson 3, Dagur Sigurðsson 3/3,
Ólafur Stefánsson 3, Jón Kristjánsson 2, Davíð Ólafsson 2.
Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 16/1.
Brottvísanir: ÍR 10 mín., Valur 14 mín.
Dómarar: Hafsteinn Ingibergsson og Gísli Jóhannsson, slakir.
Áhorfendur: Um 400.
Maður leiksins: Magnús Sigmundsson, ÍR.
A-STIG ISI
Fræðslunefnd ÍSÍ heldur námskeið á A-stigi ÍSÍ
23.-25. febrúar nk. í íþróttamiðstöðinni í Laug-
ardal. A-stig ÍSÍ er undirstöðumenntun fyrir leið-
beinendur og þjálfara fullorðinna. Námskeiðið er
26 kennslustundir og er námskeiðsgjald kr. 6.000.
Matur og námskeiðsgögn eru innifalin, auk gist-
ingar á Sport-Hóteli ÍSí ef þörf krefur. Þátttöku
skal tilkynna í síðasta lagi 22. febrúar til fræðslu-
stjóra ÍSÍ sem einnig veitir nánari upplýsingar
(sími 581-3377; fax 588-8848).
Fræðslunefnd ÍSÍ
+