Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Qupperneq 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
Fréttir
Sprengingin í Jerúsalem síðastliðinn sunnúdag þar sem 25 manns fórust:
Missti af strætisvagninum
og slapp við sprenginguna
- fannst ég vera lasinn og lúrði því smástund, segir Snorri Guðjón Bergsson sagnfræðingur
„Það er svo mikið í gangi hjá
okkur um þessar mundir að við
ákváðum að mæta klukkutímanum
fyrr en vanalega á sunnudagsmorg-
uninn. Kvöldið áður hafði ég farið
nokkuð seint að sofa. Þegar ég svo
vaknaði við klukkuna um morgun-
inn leið mér eitthvað Ula. Ég var
með höfuðverk og allur eitthvað
ómögulegur þannig að ég ákvað að
dorma áfram í rúminu. En svo varð
ég skárri eftir smástund og dreif
mig á fætur, fór í sturtu, rakaði mig
og fékk mér svo smákaffisopa. En
þá var ég líka búinn að missa af
strætisvagninum og var orðinn of
seinn i vinnuna.
Fyrir bragðið slapp ég við spreng-
inguna miklu þarna á sunnudags-
morguninn. Ef ég hefði tekið stræt-
isvagninn sem ég ætlaði að taka
hefði ég verið að bíða eftir skipti-
vagni á strætisvagnastöðinni á
þeim tima sem sprengingin varð. Ég
væri eflaust ekki að tala við þig
núna hefði ég verið staddur þar á
þeim tíma. Og það einkennilega við
þetta er að eftir að ég var búinn að
missa af vagninum þama um morg-
uninn og kominn á fætur var ég
ekkert lasinn lengur,“ sagði Snorri
Guðjón Bergsson sagnfræðingur í
samtali við DV en hann starfar um
þessar mimdir í Jerúsalem.
Hann sagði að vinnufélagar sinir,
sem mættu á umtöluðum tíma
þama um morguninn, hefðu orðið
hræddir þegar hann kom ekki I
vinnuna. Þeir höfðu heyrt um
sprenginguna.
„Þeir hringdu þegar í stað heim
til mín til að gá hvort ég hefði farið
með vagninum sem ég hefði átt að
fara með og því lent í sprenging-
unni eða væri bara heima. Þeir
voru fegnir aö heyra í mér en ég
fékk smááfall við að heyra um þetta
og ákvað að vera kyrr heima,“ sagði
Snorri.
Hann sagðist vera um það bil
klukkustund í vinnu með strætis-
vögnum og alltaf fara um stöðina
þar sem sprengingin varð og ef hon-
um liggur á, skipta þar um vagn.
Hann sagði að þegar hann svo fór
síðar í vinnuna hefði strætisvagn-
inn farið cillt aðra leið því búið var
að girða svæðið af þar sem spreng-
ingin varð.
Snorri segir að óneitanlega hafi
sér brugðið þegar hann gerði sér
grein fyrir því hve litlu munaði að
hann hefði verið þama staddur.
„En segir ekki máltækið að ekki
verði feigum forðað né ófeigum í hel
komið,“ sagði Snorri Guðjón Bergs-
son. -S.dór
Nota varð klippur til að ná ökumanni og farþega úr bfl sem lent hafði í hörðum árekstri á mótum Lönguhlíðar og Há-
teigsvegar síðdegis í gær. Kom slökkvilið lögreglu til aðstoðar við að ná fólkinu úr bílnum. Það mun þó ekki hafa
verið alvarlega slasað. DV-mynd S
Skart fyrir rúma milljón í tveimur innbrotum:
mmm
r o d d
Er réttlætanlegtað leggja 4,6 rÁi ifCIIIC á
milljarða í Hvalfjarðargöng? r U LIV OIN O
904-1600
y|
Óskar Óskarsson, annar eigandi verslunarinnar Jón og Óskar.DV-mynd GS
Þetta endar með rimlum
fyrir gluggana
- segir Óskar, eigandi skartgripaverslunarinnar Jón og Óskar
„Þetta endar með því að við verð-
um að setja rimla fyrir gluggana. Þá
verður helsta verslunargata bæjar-
ins ekki fogur á að líta. Við verðum
einhvem veginn að reyna að verja
okkur,“ segir Óskar Óskarsson,
annar eigandi verslunarinnar Jón
og Óskar, í samtali við DV.
Tvö innbrot voru framin í skart-
gripaverslunina Jón og Óskar á
Laugavegi á tveimur dögum. Að-
faranótt sunnudags var brotist inn í
skartgripadeildina og þaðan stolið
fimm hringum að verðmæti ein
milljón króna. Aðfaranótt mánu-
dags var aftur brotist inn en í þetta
sinn í úradeildina. Þaðan hurfu
fjögur úr, giftingarsett, auk trúlof-
unarhringa, og tvö önnur úr að
heildarverðmæti 200 þúsund. í fyrra
skiptið er talið að sleggja hafi verið
notuð en í úradeildinni var líklega
notuð gangstéttarhella.
„Mér skilst á lögreglunni að
þama hafi dópistar verið á ferðinni
og að þeir hafi verið ansi ruglaðir.
Það er mjög líklegt að sömu aðilar
hafi framið bæði innbrotin. Þessir
menn, sem handteknir voru vegna
innbrotsins, em náttúrlega bara
grunaðir enn þá. Ég veit ekki hvar
þetta endar og lögreglan er hætt að
keyra niður Laugaveginn til að líta
eftir búðunum eins og gert var í
gamla daga,“ segir Óskar. -em
Loðna allan
sólarhringinn
„Það gengur alveg Ijómandi
vel hjá okkur, það er flskur til
taks nánast ailan sólarhringinn.
Það er 1 raun bara förmsatriði
að lenda ekki í veseni. Við erum
að fá svona 400 til 500 tonn í
kasti,“ sagði Lárus Grímsson,
skipstjóri á Júpiter, í samtali
við DV í morgun.
Loðnuskipið Júpiter er nú
beint út af Grindavík og mokar
nú upp loðnunni. Láms segir að
stemningin sé góð um borð enda
veðrið gott. Júpiter náði 1150
tonnum af loönu i kasti undir
Dyrhólaey í síðustu viku. „Það
hjálpar okkur mikið að veðrið
er nú dásamlegt. Við erum á
fullu að flokka og setja yfir í
frystitogarana. Þeir em 3 eða 4 á
eftir okkur, allir að fyllast af
loðnu. Og ætli við ljúkum ekki
að flokkd í dag.“
Skar sig
í innbroti
Tveir menn vom handteknir i
nótt eftir að þeir höfðu brotist
inn i þvottahús við Bergstaða-
stræti. Höfðu þeir brotið rúðu
og annar þeirra skar sig á hönd-
um. Meiri skaða náðu þeir ekki
að valda, hvorki á sjálfum sér
né eigum á staðnum og vora
báðir fluttir í fangageymslur.
-GK
Maðurinn sem
fórst
Maðurinn sem fórst i hús-
brunanum á Árskógssandi að-
faranótt sunnudagsins hét
Bjami Höskuldsson. Hann var
fæddur 3. október árið 1957 og
bjó að Öldugötu 7 á Árskógss-
andi. Hann var fráskilinn og
lætur eftir sig þrjú böm.
Nú er talið sannað að eldur-
inn hafi kviknað út frá eldavél.
Tvær íbúðir eyðilögðust í eldin-
um.
Snorri Guðjón Bergsson sagnfræð-
ingur lúrði smástund og slapp við
sprenginguna.
Stuttar fréttir
Stórgröði Alusuisse
Álfyrirtækið Alusuisse í Sviss
skilaði ríflega 20 milljarða
króna hagnaði á síðasta ári.
Samkvæmt RÚV mun það fjár-
magna framkvæmdir í Straums-
vík með eigin fé.
Meiri sparnaöur
Stjóm Sjúkrahúss Reykjavik-
ur hefur ákveðið meiri sparnaö.
Samkvæmt RÚV er um að ræða
niðurskurð upp á um 40 milljón-
ir króna.
Marel eykur hagnað
Hagnaður af rekstri Marels á
síðasta ári nam um 56 milljón-
um króna á síðasta ári, saman-
borið við tæplega 15 milljóna
króna hagnað árið 1994.
458 þúsund tonn
Alls voru 458 þúsund tonn af
loðnu komin á land í gær. Eftir
er að veiða um 653 þúsund tonn.
Afsögn í Samskipum
Stjórnarformaöur Samskipa,
Gunnar Jóhannsson, hefur sagt
sig úr stjóm ásamt Jóni Pálma-
syni í Hagkaupi. Samkvæmt
Mbl. er ástæðan trúnaðarbrest-
ur milli þeirra og Ólafs Ólafs-
sonar, forstjóra Samskipa.
Atiantsál úr sögunni?
Kaiser Aluminium í Banda-
ríkjunum hefur gert tilboð í
Alumax álfyrirtækið, eitt
þriggja fyrirtækja í Atlantsál-
hópnum sem áformað hefur ál-
ver á íslandi. Tíminn greindi frá
þessu.
Hitaþolnar örverur
Genis, fyrirtæki á sviði líf-
tækni, er að prófa tækni hér á
landi í samráði við bandarískan
aöila til að safna hitaþolnum
neðanjarðarörvemm á allt að 2
þúsund metra dýpi. RÚV
greindi frá þessu.
Vestfirska hættir
Vestfirska fréttablaðið á ísa-
fn’ði kemur ekki lengur út eftir
20 ára útgáfu. Ritstjórinn, Hlyn-
ur Þór Magnússon, er hættur
störfum en nýtt blað, Vestri, hef-
ur göngu sína í næstu viku.-bjb