Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Blaðsíða 11
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 11 Menning Naumt og margbrot- ið á Kjarvalsstöðum Gagnvart þeirn naurat skornu og knöppu innsetningum sem hafa átt svo rajög upp á pallborðið í myndlist- inni á siðustu árum hefur lítt verið hreyft við því sjónarmiði að þar sé um að ræða andsvar gegn ofhlæði upplýs- ingaþjóðfélagsins; hvild gegn sifelldu áreiti á sjónskynjunina ekki hvað síst. Listamenn nútímans séu e.t.v. sum- part í þeirri aðstöðu að þurfa að spyrja sig grundvallarspuminga um það hvað þeir komist af með í stað þess að opna allar dyr sem kalli ein- ungis á óhöndlanlegan glundroða í ætt við súpermarkað. Frumform og frumlitir eru samkvæmt þessu ofar- lega í huga margra listamanna ’nú um stundir, sem og einfaldir strúktúrar i líkingu við byggingar eða húsgögn. Guðrún Hrönn Ragnarsdóttir, sem um helgina opnaði sýningu á Kjarvals- stöðum, er meðal þeirra listamanna sem skapað hafa slík verk. Þó hefur hún jafnan leitast við að Finna jafn- vægi á milli skreytis og einfaldrar byggingar og svo er einnig á sýningu hennar nú. Jafnvægi byggingar og glingurs Guðrún sýnir í miðrými Kjarvals- staða sem nýtur nú góðs af vegg sem skilur á milli rýmisins og glugganna. Sum verka Guðrúnar eru þess eðlis að þau nánast hverfa inn í rýmið, virka eins og hluti af innréttingunni. Verk- in eru flest hver líkust hillum. Þar eru mest áberandi tvö verk sem eru fest við vegginn, bæði með kögri á brún- um, annars vegar úr rauðu snúrukögri og hins vegar með kristal- sperlum. Þar kristallast háríint jafn- vægi á milli frumforsendna mynd- verksins: knapprar og einfaldrar byggingar og þess glingurskreytis eða „kitsch“ sem kögrið er tákngervingur fyrir. Hins vegar nær þessi persónu- lega flétta glingurs og meinlætis hæstu flugi í sjö luktum sem hvíla á litlum syllum þarna andspænis. Stór- ar sultukrukkur hvolfast þar yfir sér- kennOegar ljósaperur sem í eru litlar rauðleitar glerrósir. Sýning Guðrúnar Hrannar vekur ýmsar væntingar og hún hefði gjarn- an mátt vera stærri. Verk hennar eru að einfaldast til muna en um leið virka þau slípaðri og hið persónulega og heimilislega yfirbragð er hvorki of krefjandi né hverfandi. Of margbrotið í vestursalnum opnaði Kjartan Óla- son sýningu um helgina á verkum sem eru bæði mikil um sig og marg- brotin. Kjartan hefur lítt haft sig í frammi síðustu árin og því er forvitni- legt að sjá hvernig hann hefur þróað áfram málverk sitt sem einkennst hef- ur af samspili texta og myndar þar sem mannslíkaminn er yfirleitt í fyr- irrúmi. Maðurinn er enn fyrirferðar- mikill í verkum Kjartans, sem og text- Myndlist Ólafur J. Engilbertsson inn. En margir aðrir hlutir hafa bæst við og nú er svo komið að í raun er réttara að flokka verk Kjartans sem lágmyndir en málverk. Gallinn við þennan margbreytileika er hins vegar sá að verkin missa þann kraft sem býr í mörgum málverkunum, einum og sér. Sem dæmi má nefna verk sem ber þann alvöruþrungna titil: „Skylda hvers manns er að lifa af fortíð þjóðar sinnar". Þar er ofhlæðið slíkt i marg- háttaðri myndskipun að verkið sem heild missir marks. Betur tekst upp þar sem málverkið er einfalt og form- in eru líkust framlengingu á ramma, eins og t.d. í verkinu Beygur. Víða er að finna eftirtektarverða hluti á sýn- ingunni, eins og myndir af klettum í Órum og Án tilefnis og handbrágðið er sömuleiðis athyglisvert, en hér skyldi listamaðurinn íhuga að hætta Æxlunarhvöt, eitt verka Kjartans Ólasonar á Kjarvalsstöðum. DV-myndir TJ Eitt verka Guðrúnar Hrannar Ragnarsdóttur. ber leik þá hæst stendur. Engin skrá er að sýningunni og hélt undirritaður að slíkt væri úr sögunni á Kjarvals- stöðum. Að auki var opnuð um helgina sýn- ing Frakkans Philippe Richards á 180 smáum og skrautlegum gvassmál- verkum á pappír sem hann hyggst umbreyta í flöskuskeyti í maí nk. Þar er um að ræða anga þeirrar alþjóða- hyggju í myndlist sem hefur á undan- fórnum árum stuðlað að auknum sam- skiptum þjóða á milli á myndlist- arsviðinu og er hér ekki um nýtt net að ræða en veiðarfæri engu að síður. ■■ ngum dyíst að nú er vor í íslensku þjóðlífi og sóknarfærin hafa aldrei l^-lverið fleiri. Brýnt er að halda áfram þeirri vakningu sem orðið hefur meðal þjóðarinnar á liðnum árum og halda við umræðunni um mikilvægi þess að efla það sem íslenskt er. Að þessu sinni standa íslenskir dagar yfir ~ ~ frá 19. febrúartil 1. mars. Yfirskrift þeirra er Hrein náttúra - íslensk framtíð en með M: j því er vísað til mikilvægis þess að ísland í skapi sérsérstöðu meðal þjóðanna. Sú 1 sérstaða felst ekki hvað síst í því að 1 V ° úl afurðir okkar eru hreinar og ómengaðar /1 -beint úr náttúrunni. Dagskrárgerðarfólk v Bkl* ’B"1 V jrB Stöðvar 2 og Bylgjunnar leggur sitt af / íslenskum ■4/ Ai - M-r/* dogum. Margrét Blöndal og borgeir Ástvaldssoit í Morgunþœtti á Bylgjunni laugardaga kl. 16-19 íslenskt, já takkl ■BY LGJANi

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.