Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Blaðsíða 21
ALLUR AGOÐI SYNINGARINNAR RENNUR ÓSKIPTUR TIL VÍMUVARNA. Könnun Neytendasamtakanna: Búsetaíbúð- irnar hag- stæðastar Stefán Ingólfsson verkfræðingur gerði fyrri hluta janúar sl. fyrir Neytendasamtökin könnun á því hvaða húsnæði væri hagstæðast fyr- ir neytendur. Skoðaðar voru allar tegundir hús- næðis nema félagslegar leiguíbúðir. Miðað var við þriggja herbergja íbúð sem kostaði 6,5 miUjónir og að það væri 4 mannafjölskylda sem væri að kaupa sína fyrstu eign. Fjöl- skyldan ætti fyrir útborgun eða 15% prósent af íbúðarverðinu. Allur kostnaður var reiknaður, svo sem viðhald, fasteignagjöld, vextir og annað og reiknuð út greiðslubyrði á mánuði. Hér eru nokkur dæmi um hvað kom út úr könnuninni. Félagslegar Búsetaréttaríbúðir með húsaleigu- bótum voru áberandi langhagstæð- astar, þar var kostnaðurinn 20.100 kr. á mánuði fyrir umrædda fjöl- skyldu, félagsleg Búsetaíbúð án hú- saleigubóta 29.900 kr. og almenn Bú- setaréttaríbúð 30.500 kr. Ef miðað var við félagslega eign- aríbúð var kostnaðurinn 33.400 kr. miðað við að fjölskyldan hefði 100 kr. mánaðarlaun, félagsleg íbúð miðað við að fjölskyldan hefði 167 þús. kr. mánaðarlaun kostaði 37.200 kr. á mánuði og ef farið er yfir tekjumörkin kostaði félagslega íbúðin 38.000 kr. Ef tekin var leiguíbúð með húsa- leigubótum var kostnaðurinn 37.100 kr. miðað við 100 kr. mánaðarlaun en með húsaleigubótum, ef miðað var við 225 mánaðarlaun, 38.300 kr. Ef miðað var við eignaríbúð með 40 ára húsbréfum var kostnaðurinn 38.200 kr. á mánuði en með 25 ára húsbréfum 38.700 kr., hvort tveggja miðað við 225 þús. tekjur á mánuði. Einnig var athugað með húsnæði úti á landi og þar voru nýju félags- legu íbúðirnar óhagstæðastar, kost- uðu 38.400 kr. á mánuði ef miðað var við að fólk færi yfir tekjumörk- in. -ÞK Leiðrétting: Hvorki morö- hótun né mútu- greiðsla - frá bandaríska liðþjálfanum í tilefni fréttar DV 12. febrúar sl. um bandariskan liðþjálfa fyrir her- rétti á Keflavíkurflugvelli, vegna gruns um árás á íslenska stúlku, skal það leiðrétt að hann hótaði vin- konu stúlkunnar ekki lífláti ef hún vitnaði í málinu. Jafnframt er það rangt sem kom fram í fréttinni að liðþjálfinn hefði mútað stúlkunni og greitt henni 100 þúsund krónur ef hún aðhefðist ekkert í málinu. Við- komandi eru beðnir afsökunar á þessu ranghermi. Liðþjálfinn sýknaður Þess má geta að liðþjálfinn var sýknaður fyrir herréttinum vegna ósamræmis í vitnisburði og skorts á sönnunargögnum. TILNEFNDUR TIL OSKARSVERÐLAUNA RICHARD DREYFUSS M R HOLLAND'S oas tiþ Heimilistæki hf SÆTÓHI « - 5®9 5500 LIONSKLUBBURINN EIR KVIKMYNDASÝNING í HÁSKÓLABÍÓI Á M0RGUN KL. 20.00 RÁÐGAI®URh£| stiöenunarogreksirasrAðqöf r FURUGEKDI 3 - 2GS RUVTlAVTtC nms MJÓLKURSAMSALAN TRYGGINGA MIÐSTÖÐIN HF. LIONSKLÚBBURINN EIR ÞAKKAR VEITTAN STUÐNING: Ó.M. BÚÐIN GRENSÁSVEGI 14 SÓL OG SÆLA AÐALSTRÆTI 9 HOLTSAPÓTEK GLÆSIBÆ TEXTI H/F ANDRÉS FATAVESLUN VERKFRÆÐISTOFAN VISTA RAFVÖRUR H/F ÓLAFUR ÞORSTEINSSON & CO HF H/F HLÍÐNES SANDGERÐI KREDITKORT ÁRGERÐI EHF T.P. & CO ÍSLENSKA VERSLUNARFÉLAGIÐ H/F OSTA OG SMJÖRSALAN h ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996 25 Fréttir Prófíll frá Reykjavík sigraði í hópkeppninni. Frístæl-keppni: Prófíll og Anna Þóra sigruðu Tuttugu og sjö hópar og tólf ein- staklingar kepptu um íslandsmeist- aratitilinn í Fristæl 10-12 ára í Tónabæ á laugardaginn. Sigurveg- ari í flokki hópa varð Prófíll, sem er frá Reykjavík en sá hópur sam- anstendur af Karen Briem, Aslaugu Heiðu Gunnarsdóttur, Guðnýju Kjartansdóttur og Kötlu Hauksdótt- ur. í einstaklingskeppninni var sig- urvegari Anna Þóra Sveinsdóttir frá Reykjavík, í öðru sæti Karen Drífa Þórhallsdóttir og í þriðja sæti Þór- unn Helga Þórðardóttir. Kynnir á mótinu var Magnús Scheving og skapaði hann mikla og skemmtilega stemningu. -HK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.