Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Blaðsíða 29
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
33
Afmæli
Friðþjófur Ó. Johnson
Friðþjófur Ó. Johnson, forstjóri
0. Johnson og Kaaber, Hörgshlíð
2, Reykjavík, er fertugur í dag.
Starfsferill
Friðþjófur fæddist í Reykjavík
og ólst þar upp í vesturbænum og
í Hlíðunum. Hann lauk stúdents-
prófi frá VÍ 1976, lauk prófl í við-
skiptafræði frá HÍ 1980 og MBA-
prófi sem rekstrarhagfræðingur
frá Babson College í Wellesley í
Massachusets 1983.
Friðþjófur var sölufulltrúi hjá
Hewlett Packard í Danmörku
1983- 84, sölu- og markaðsstjóri
Hewlett Packard á íslandi
1984- 88, framkvæmdastjóri tækni-
deildar Ó. Johnson og Kaaber
1988-92 og er forstjóri Ó. Johnson
og Kaaber frá 1992.
Friðþjófur situr í stjórn Versl-
unarráðs íslands frá 1993 og er
framkvæmdastjóri þess frá 1996, í
stjóm Stjórnunarfélags íslands
frá 1991, formaður IMARK
1988-90, varaformaður
körfuknattleiksdeildar KR
1993-95, í stjórn íslenska lífeyris-
sjóðsins frá 1992, í trúnaðarmann-
aráði VSt 1994-95, í stjórn ís-
lenska-kínverska viðskiptaráðsins
frá 1995 og í ímyndamefnd ÍSÍ frá
1993.
Fjölskylda
Kona Friðþjófs er Kristín Helga
Ámundadóttir, f. 26.1. 1957. Hún
er dóttir Ámunda Óskars Sig-
urðssonar framkvæmdastjóra
sem lést 1994, og Kristínar Helgu
Hjálmarsdóttur húsmóður.
Sonur Friðþjófs og Kristínar
Helgu er Ólafur Örn Johnson, f.
3.2. 1994.
Systkini Friðþjófs em Gunn-
laugur Ó. Johnson, f. 8.6. 1957,
arkitekt; Ólafur Ó. Johnson
yngri, f. 15.5. 1962, viðskiptafræð-
ingur og markaðsstjóri; Helga
Guðrún Ó. Johnson, f. 27.8. 1963,
fréttamaður.
Friðþjófur Ó. Johnson.
Foreldrar Friðþjófs em Ólafur
Ó. Johnson, f. 19.4.1931, stjómar-
formaður Ó. Johnson og Kaaber,
og Guðrún G. Johnson, f. 21.3.
1933, húsmóðir.
Pétur Filipp Jorundsson
Pétur Filipp Jorundsson sjó-
maður, Kárastig 14, Reykjavik, er
fertugur í dag.
Starfsferill
Pétim fæddist í Reykjavík og
ólst þar upp við Leifsgötuna.
Hann gekk í Austurbæjarbarna-
skólann og lauk síðan gagnfræða-
prófi frá Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar 1972.
Pétur stundaði sjómennsku til
1984 er hann lenti í vinnuslysi er
varð þess valdandi að hann varð
að hætta sjómennsku.
Pétur hefur verið búsettur í
Færeyjum og í Danmörku. Hann
hefur nokkuð fengist við að yrkja
og teikna.
Fjölskylda
Sonur Péturs er Óttar Filipp, f.
16.7.1989, sem er hjá móður
sinni, Þórdisi Baldursdóttur, f.
27.1. 1962, starfsmanni við Hótel
Sögu.
Albræðúr Péturs em Daníel
Magnús, f. 2.2.1952, mælingamað-
ur hjá Reykjavíkurborg, búsettur
í Hafnarfirði; Gunnar Hákon, f.
9.9. 1954, bílaviðgerðarmaður i
Reykjavík.
Hálfsystur Péturs, samfeðra,
eru Margrét Jorundsdóttir og Sig-
ríður Jorundsdóttir.
Foreldrar Péturs: Jorundur
Þorsteinsson, f. 13.3. 1924, fyrrv.
fulltrúi, og Svanhildur Daníels-
dóttir, f. 5.7. 1927, d. 8.3. 1992, hús-
móðir.
Pétur veröur heima á afmælis-
daginn.
Pétur Filipp Jorundsson.
Mackintosh-konan Dagbjört Traustadóttir og starfsmaður Fríhafnarinnar í
Leifsstöð, Guðmundur Ingi Hildisson.
Vinningshafi í Mackintosh
happdrætti
í janúar 1996 var dregið í Mackin-
tosh Quality Street happdrætti
Danól, Fríhafnarinnar og Atlantica.
Vinningshafi var Dagbjört Trausta-
dóttir og hlaut hún helgarferð fyrir
tvo með Flugleiðum og Mackintosh
afmælisdós.
Passamyndir á
60 sekúndum
Fullkomnar passamyndavélar
hafa verið teknar í notkun á Um-
ferðarmiðstöðinni i Reykjavík og á
Reykjavíkurflugvelli. Hér er um
umhverfisvænar myndavélar að
ræða. Það eru Express-litmyndir,
sem eru í húsi Hótel Esju, sem bjóða
upp á þessa þjónustu.
Safnaðarstarf
Þriðjudagiu- 27. febrúar
Áskirkja: Opið hús fyrir alla ald-
urshópa kl. 14-17.
Breiðholtskirkja: Bænaguðs-
þjónusta í dag kl. 18.30. Bænaefnum
má koma til sóknarprests á viðtals-
tímum hans.
Dómkirkjan: Mæðrafundur í
safnaðarheimilinu Lækjargötu 14a
kl. 14-16. Fundur 10-12 ára barna kl.
17.00 í umsjá Maríu Ágústsdóttur.
Elliheimilið Grund: Föstuguðs-
þjónusta kl. 18.30. Þorgils Þorbergs-
son, guðfræðinemi.
Fella- og Hólakirkja: Starf 9-10
ára barna kl. 17. Mömmumorgunn
miðvikudag kl. 10.
Grafarvogskirkja: „Opið hús“
fyrir eldri borgara í dag kl. 13.30.
Helgistund, fóndur o.fl. Fundur
KFUM í dag kl. 17.30. Foreldramorg-
unn fimmtudaga kl. 10-12.
Hallgrímskirkja: Fyrirbæna-
guðsþjónusta kl. 10.30. Beðið fyrir
sjúkum. Kyrrðarstund með lestri
Passíusálma kl. 12.15.
Hjallakirkja: Mömmumorgunn
miðvikudag ld. 10-12.
Kópavogskirkja: Mömmumorg-
unn í dag í safnaðarheimilinu Borg-
um kl. 10-12.
Langholtskirkja: Aftansöngur
kl. 18.00. Lestur Passíusálma fram
að páskum.
Neskirkja: Biblíulestur kl. 15.30.
Lesnir eru valdir kaflar úr Jóhann-
esarguðspjalli.
Óháði söfnuðurinn: Föstumessa
kl. 20.30. Þorgils Þorbergsson guð-
fræðinemi prédikar. Biblíulestur út
frá 16. Passíusálmi.
Seljakirkja: Mömmumorgunn,
opið hús í dag kl. 10-12.
Seltjarnarneskirkja: For-
eldramorgunn kl. 10-12.
Leikhús
LEIKFÉLAG
REYKJAVÍKUR
SÍMI 568-8000
STÓRA SVIÖ KL. 20.00:
ÍSLENSKA MAFÍAN
eftir Einar Kárason og Kjartan
Ragnarsson
Lau. 2/3, fáein sæti laus, föd. 8/3, fáein
sæti laus, föd. 15/3.
LÍNA LANGSOKKUR
eftir Astrid Lindgren
Sud. 10/3, fáein sæti laus, sud. 17/3,
sud. 24/3. Sýningum fer fækkandi.
STÓRA SVIÖ KL. 20:
VIÐ BORGUM EKKI,
VIÐ BORGUM EKKI
eftir Dario Fo
Fös. 1/3, uppselt, sud. 10/3, fáein sæti
laus, laud. 16/3, fáein sæti laus.
Pú kaupir einn miða, færð tvo!
Samstarfsverkefni
við Leikfélag Reykjavikur:
Alheimsleikhúsið sýnir á
Litla svlðl kl. 20.00:
KONUR SKELFA
toilet-drama eftir Hlín
Agnarsdóttur.
Aukasýning miðd. 28/2, fáein sæti
laus, fid. 29/2, uppselt, föd. 1/3,
uppselt, laud. 2/3, uppselt, sud. 3/3,
uppselt, mid. 6/3, fid. 7/3, uppselt, föd.
8/3, uppselt, sud. 10/3, fáein sæti laus.
Barflugurnar sýna á
Leynibarnum kl. 20.30:
BAR PAR
eftir Jim Cartwright
Föd. 1/3, uppselt, laud. 2/3 kl. 23.00,
föd. 8/3 kl. 23.00, fáein sæti laus, föd.
15/3, kl. 23.00., 40 sýn. laud. 16/3,
uppselt.
Tónleikaröð L.R.
Á STÓRA SVIÖI KL. 20.30.
Prd. 27/2 Björk Jónsdóttir og Signý
Sæmundsdóttir. Miðaverð 1.000. kr.
ÞJÓDLEIKHÚSID
STÓRA SVIÖIÖ KL. 20.00:
TRÖLLAKIRKiA
leikverk eftir Þórunni
Sigurðardóttur, byggt á bók Olafs
Gunnarssonar.
Frumsýnlng föd. 1/3, 2. sýn. sud. 3/3,
3. sýn. föd. 8/3, 4. sýn. fid. 14/3, 5. sýn.
Id. 16/3.
PREK OG TÁR
eftir Ólaf Hauk Símonarson
Fid. 29/2, uppselt., Id. 2/3, uppselt, Id.
9/3, uppselt, föd. 15/3.
KARDEMOMMUBÆRINN
eftir Thorbjörn Egner
Ld. 2/3 kl. 14, uppselt, sud. 3/3 kl. 14,
uppselt, Id. 9/3 kl. 14, uppselt, sud.
10/3 kl. 14, uppselt, sud. 10/3 kl. 17,
uppselt, laud. 16/3, kl. 14.00, sud. 17/3
kl. 14.00.
KIRKJUGARÐSKLÚBBURINN
eftir ívan Menchell
Sala á sýnlngar í mars hefst föd. 1/3.
SMÍÖAVERKSTÆÖIÖ KL. 20.00:
Leigjandfnn
eftir Simon Burke
Föd. 1/3, sud. 3/3, föd. 8/3.
Sýningin er ekki við hæfi barna.
Ekki er hægt að hleypa gestum inn í
salinn eftir að sýning hefst.
Cjafakort í leikhús -
sígild og skemmtileg gjöf!
Miðasalan er opin alla daga nema
mánudaga frá kl. 13.00-18.00 og
fram að sýningu sýningardaga.
Einnig símaþjónusta frá kl. 10.00
virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Fax: 561 1200
Fyrir börnin: Línu-ópal, Línu-bolir og
Linu-púsluspil.
Miðasalan er opin alla daga frá
kl. 13-20, nema mánudaga frá
kl. 13-17, auk þess er tekið á
móti miðapöntunum í sima
568-8000 alla virka daga.
Greiðslukortaþjónusta.
Gjafakortin okkar
- frábær tækifærisgjöf.
Leikfélag Reykjavíkur -
Borgarleikhús
Faxnúmer 568-0383.
Safnaðarstarf
Aðalfundur Kvenfélags
Óháða safnaðarins
verður 7. mars 1996 kl. 20.30 í
Kirkjubæ. Munið umslögin.
Tapað fundið
Citizen gullúr tapaðist á fóstu-
dagskvöld. Fundarlaun. Uppl. í síma
567 2912 á kvöldin eða boötæki 845
5581.
Félagslíf
íslenska málfræðifélagið
Dr. Mathew Whelpton, lektor í
ensku við Háskóla íslands, flytur
opinberan fyrirlestur á vegum ís-
lenska málfræðifélagsins í stofu 423
1 Árnagarði þriðjudaginn 27.2 nk.
kl. 17.15. Fyrirlesturinn nefnist:
Heading for an Argument: Purpose
Clauses and Predication in English.
Tilkynningar
Nýir tímar
Tímaritiö Nýir tímar hefur
stækkað mikið frá þvi að það kom
fyrst út 1993. Blaðið er gefið út á
eins til eins og hálfs mánaðar fresti
og þar er fjallað um allt yfimáttúru-
legt og nýjungar hvers konar, grasa-
lækningar, spíritisma, náttúrleg lyf
og margt fleira.
SÍMI MIÖASÖLU: 551 1200
SÍMI SKRIFSTOFU: 551 1204
VELKOMIN í ÞJÓÐLEIKHÚSID!
Brúðkaup
Höfum sali
fyrri minni
og stærri
brúðkaup
Látið okkur sjá um
brúðkaupsveisluna.
HÓTEL l£LÁND
5687111
e/Yu/Ju/aj'-
UÓSMYNDASOTA REYKlAVÍKLiR
Hverfitgötu 105,2. hað, sími 562 1166