Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Page 27
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
31
Fréttir
Ráðstefna í Keflavík um ísland og Schengen:
Ekki rugla saman Schengen
og stækkun á flugstöð
- sagði Hannes Hafstein sendiherra í ræðu sinni
DV; Suðurnesjum:
„Ekki má rugla saman þeim
kostnaði sem leiðir af Schengen-að-
ild og endurbótum eða stækkun á
flugstöðinni sem hvort eð er verður
að leggja í vegna fyrirsjáanlega auk-
ins farþegafjölda og vandkvæða sem
þegar eru komin fram í flugstöð-
inni. Ekki sakar heldur að hugsan-
leg viðbygging verði einföld í formi
og að forðast verði að reisa þar
byggingarsögulegt listaverk," sagði
Hannes Hafstein sendiherra í ræðu
sinni á ráðstefnu íslandsdeildar
Norðurlandaráðs um Island og
Schengen sem haldin var á Flughót-
elinu í Keflavík sl. fóstudag.
Að tilstuðlan utanríkisráðuneyt-
isins hafa verið gerðar frumathug-
anir á nauðsynlegum breytingum á
flugstöð Leifs Eiríkssonar á Kefla-
víkurflugvelli vegna hugsanlegrar
aðildar íslands að Schengen-sam-
starfinu, evrópska vegabréfasam-
bandinu. Annars vegar er um að
ræða athugun húsameistara og hins
vegar framhaldsathugun Leifs Bene-
diktssonar verkfræðings.
Niðurstaða húsameistara er að
•besta leiðin til að tryggja eðlilegan
umferðarstraum farþega og nauð-
synlegan aðskilnað þeirra vegna
Schengen-aðildar sé að reisa 3800
fermetra viðbyggingu við enda nú-
verandi landgangs á tveimur hæð-
um, auk þess að breyta hluta af nú-
verandi landgangi í tveggja hæða
landgang. Þá er gert ráð fyrir
stækkun flughlaða af þessum sök-
um. Áætlaður kostnaður vegna
framkvæmdanna er einn mifljarð-
ur.
I athugun Leifs Benediktssonar
er bent á tvær leiðir. Sú fyrsta er að
flugstöðinni verði fyrst í stað ekki
breytt. Hins vegar verði biðsalir út
frá landgangi við núverandi land-
göngubrýr. í þessum biðsölum færi
fram vegabréfaeftirlit og handfar-
angurseftirlit við komu og brottfór
farþega. Þessi leið er bráðabirgða-
lausn til nokkurra ára en kallar á
frekari framkvæmdir í framtíðinni
til að uppfylla að fullu skilyrði
Schengen-samkomulagsins um full-
kominn aðskilnað farþega. Áætlað-
ur kostnaður er 365 milljónir.
Önnur leiðin er sú er að flugstöð-
inni verði breytt þannig að hún
uppfylli öll skilyrði um fullkominn
aðskilnað farþega. Þessi leið felur í
sér að öll 2. hæð flugstöðvarinnar
verði innréttuð upp á nýtt þar sem
annar hluti verði fyrir Schengen-
farþega en hinn hlutinn fyrir utan
Schengen- farþega. Landgangi verði
skipt eftir miðju með glervegg og út-
skot byggð við landgöngubrýr eða
þá að landgangur verði breikkaður.
Áætlaður kostnaður er 685 milljón-
ir.
í frumathugun ráðuneytisins seg-
ir að óhjákvæmilegt sé vegna auk-
innar umferðar um Keflavíkurflug-
völl að auka verslunar- og biðsala-
rými í flugstöðinni fyrr eða síðar,
hvort sem ísland gerist aðili að
Schengen eða ekki. Því verður að
líta á þessar áætluðu kostnaðartölur
sem óviðkomandi Schengen.
„Hagsmunir Islands í viðræðum
um Schengen-samstarfið byggjast
ekki síst á vilja til að viðhalda og
þróa hið norræna samstarf. Eins og
áður kom fram er ekki útlit fyrir að
hið norræna vegabréfasamband geti
haldist áfram án einhvers konar að-
ildar Norðurlanda að Schengen.
Mín skoðun er sú að verði ísland
eitt utan þessa samstarfs muni það
hafa víðtækari áhrif og víðtækari
Lýst eftir vitnum:
Keyrði yfir hund á
fáfarinni íbúðagötu
„Þetta var hryllilegt að sjá. Höfuð-
ið var allt skaddað og bílstjórinn hef-
ur örugglega fundið fyrir þvi þegar
hann fór yflr hundinn," segir íris
Jónsdóttir, íbúi við Hrísateig, en lýs-
ir eftir vitnum að því þegar ekið var
yfir heimilishundinn fyrir framan
hús hennar í hádeginu í gær.
Dóttir írisar, ellefu ára gömul,
hafði farið út í sjoppu og hundurinn
fylgdi með út eins og hann er vanur.
Hann hafði þó jafnan þá reglu að bíða
fyrir framan húsið þegar einhver fór
út en nú virðist hann hafa brugðið út
af venju sinni og farið út á götuna.
Þar varð hann fyrir bíl.
„Þetta er auðvitað gríðarlegt áfall
fyrir dóttur mína. Það er líka mjög
gróft að skilja hræið eftir á götunni
og aka burt án þess svo mikiö sem að
grennslast fyrir um hver eigi hund-
inn,“ segir íris.
íris sá ekki umræddan bíl en von-
ast til að vegfarendur hafi séð hann.
Hægt er að hafa samband við írisi í
síma 568 67 68. -GK
Frá ráðstefnunni um ísland og Schengen sem haldin var í á Flughótelinu í Keflavík á föstudag.
DV-mynd Ægir Már
pólitískar afleið-
ingar á morrænt
samstarf en marg-
ir gera sér grein
fyrir í dag. Það
gæti orðið til þess
að ísland yrði út
undan í norrænu
samstarfi og veröi
skýringin látin
heita að við höf-
um kosið að
standa utan
Schengen og þar
af leiðandi séum
við ekki þátttak-
endur í norrænu
samstarfi," sagði
Valgerður Sverr-
isdóttir, formaður
íslandsdeildar
Norðurlandaráðs.
-ÆMK
Aukablað um FERÐIR
Mibvíkudaginn 6♦ mars J7* 13 W Wj* W\ W GJ
mun aukablað um ferðir Jo i T MJ1 Cy
erlendis fylgja DV.
Efni blaSsins verður helgað sumarleyfisferð-
um til útlanda í sumar og ýmsum hollráðum
varðandi ferðalög erlendis.
Þeim sem vilja koma á framfæri efni í blaðið
er bent á að hafa samband við Þuríði
Kristjánsdóttur á ritstjórn DV í síma 550-5819.
Þeir auglýsendur, sem hafa áhuga á að
auglýsa í þessu aukablaði, vinsamlega hafi
samband við Ragidieiði Gústafsdóttur, auglýs-
ingadeild DV, hið fyrsta í síma 550-5725.
Vinsamlegast athugib að síðasti skiladagur
auglýsinga er fimmtudagurinn 29. febrúar.
k Auglýsingar
tSími 550 5000. b
Sími 550 5000, bréfasími 550-5727.
HLJÓMTÆKI
///////////////
Blaðið verður fjölbreytt og efnismikið
en f þvf verður fjallað um flest það
er viðkemur hljómtækjum.
16 síðna aukablað um Hljómtæki
fylgir DV á morgun.