Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.1996, Side 30
34
ÞRIÐJUDAGUR 27. FEBRÚAR 1996
Afmæli
Ingólfur Albert Guðnason
Ingólfur Albert Guönason,
fyrrv. sparisjóðsstjóri á Hvamm-
stanga, Laugateigi 7, Reykjavík,
er sjötugur í dag.
Starfsferill
Ingólfur fæddist i Vatnadal í
Suðureyrarhreppi og ólst upp í
Vatnadal og á Suðureyri til tíu
ára aldurs en síðan á Ytri-Kára-
stöðum í Kirkjuhvammshreppi.
Hann stundaði nám við Reykja-
skóla í Hrútafirði 1943-45 og við
Samvinnuskólann í Reykjavík
1945-47.
Ingólfur var starfsmaður Kaup-
félags Vestur-Húnvetninga á
Hvammstanga 1947-49, vann við
og starfrækti, í samvinnu við
aðra, bifreiðaverkstæði að Laug-
arbakka í Miðfiröi 1950-59 og var
sparisjóðsstjóri við Sparisjóð
Vestur-Húnavatnssýslu 1959-95.
Þá var hann alþm. Norðurlands-
kjördæmis vestra 1979-83.
Ingólfur var hreppstjóri
Hvammstangahrepps 1960-95, sat í
hreppsnefnd Hvammstangahrepps
1966-70, í skattanefnd Ytri-Torfu-
staðahrepps um árabil, í skatta-
nefnd Hvammstangahrepps frá
1960 og síðan umboösmaður skatt-
stjóra þar, var hann formaður
skólanefndar Reykjaskóla 1971-95
og sat nokkra fundi Evrópuráðs-
ins á vegum Alþingis 1980-83.
Fjölskylda
Ingólfur kvæntist 25.12.1947
Önnu Guðmundsdóttur, f. 12.6.
1926, húsmóður. Hún er dóttir
Guðmundar Guðmundssonar,
bónda á Þorfinnsstöðum í Vestur-
hópi, og k.h., Sigríðar Jónsdóttur
húsfreyju.
Börn Ingólfs og Önnu: óskírður
Ingólfsson, f. 6.9. 1948, d. 7.9. s.á;
Kolbrún Ingólfsdóttir, f. 22.5. 1951,
hárgreiðslumeistari að Ytra-
Skörðugili í Skagafirði, gift Ingi-
mar Ingimarssyni bónda þar og
eiga þau þrjár dætur; Guðmundur
Ingólfsson, f. 21.9. 1953 BA og með-
ferðarfulltrúi í Reykjavík.
Systkini Ingólfs eru Guðni Eg-
ill, f. 28.8. 1923, fyrrv. aðalbókari
hjá Eimskip hf, búsettur í Reykja-
vík; Samúel Kristinn, f. 13.7. 1924,
skipstjóri í Reykjavík; Guðný
Kristín, f. 22.7. 1930, húsmóðir á
Suðureyri.
Foreldrar Ingólfs voru Gúðni
Albert Guðnason glímukóngabani,
f. 17.10. 1895, d. 3.4. 1930, bóndi í
Vatnadal, og k.h., Kristín Jóseps-
dóttir, f. 20.9. 1898, húsfreyja í
Vatnadal og síðar á Suðureyri.
Fósturforeldrar Ingólfs voru
Davíð Þorgrímsson, b. á Ytri-
Kárastöðum í Vestur-Húnavatns-
sýslu, (bróðir Ásdísar á Hvítár-
bakka) og k.h., Þórðveig Jóseps-
dóttir húsfreyja.
Ætt
Guðni var bróðir Jónu Margrét-
ar, ömmu alþm. fyrrv., Kjartans
Ólafssonar og Ólafs Þ. Þórðarson-
ar. Guðni var sonur Guðna, b. í
Kvíanesi Egilssonar, hreppstjóra á
Laugabóli Guðmundssonar, b. þar,
bróður Jóhönnu, langömmu Sól-
veigar, móður Jóns Baldvins
alþm., Ólafs varaþm. og Arnórs
heimspekings Hannibalssona.
Móðir Guðna í Kvíanesi var
Guríður Eiríksdóttir af Arnardal-
sætt.
Móðir Guðna kóngabana var
Guðrún Sigurðardóttir, b. í Botni
Þórarinssonar. Móðir Guðrúnar
var Guðrún en hennar móðir var
Guðný Jónsdóttir, systir Guð-
mundínu, ömmu Gils Guðmunds-
sonar, fyrrv. alþm..
Kristín var systir Jónínu, móð-
ur Leifs Blumenstein bygginga-
fræðings. Kristín var dóttir Jós-
efs, b. í Lambadal Jesperssonar, b.
og formanns í Hólsbúð Jónssonar,
verslunarmanns á Vatneyri Ólafs-
sonar, lögs. í Hjarðardal Erlends-
sonar, sýslumanns í Hjarðardal
Ólafssonar, bróður Jóns frá
Grunnavík, fornritafræðings í
Kaupmannahöfn. Móðir Jósefs
var Kristín Önundardóttir, hrepp-
stjóra á Brimilsvöllum Jónssonar
og Guðrúnar Jónsdóttur. Móðir
Guðrúnar var Kristín Guðmunds-
dóttir, b. á Svarthamri í Álfta-
firöi, bróður Efemíu, langömmu
Óskars Vigfússonar, fyrrv. for-
manns Sjómannasambands ís-
lands. Guðmundur var sonur Jó-
hannesar, b. á Folafæti í Seyðis-
firði Jónssonar. Móðir Jóhannes-
Ingólfur Albert Guðnason.
ar var Guðrún Sigurðardóttir,
systir Þorláks, langafa Guðmund-
ar, afa Guðmundar Inga skálds,
Halldórs rithöfundar, Jóhönnu
Þórðardóttur og Ólafs Þ. skóla-
stjóra, afa Ólafs Harðarsonar
stjómmálafræðings.
Ingólfur er að heiman.
Hulda B. Nóadóttir
Hulda B. Nóadóttir, Álfhólsvegi
10A í Kópavogi, er fertug í dag.
Starfsferill
Hulda fæddist í Reykjavík en
ólst upp á Sandhólaferju í Rangár-
vallasýslu og á Selfossi. Hún lauk
gagnfræðaprófi á Selfossi.
Hulda vinnur nú í heimilisþjón-
ustu hjá Félagsmálastofnun Kópa-
vogsbæjar.
Fjölskylda
Hulda giftist 30.12. 1976 Eiríki
Jónssyni, f. 8.10.1953, safnstjóra á
DV. Hann er sonur Jóns Eiríks-
sonar, fyrrv. bónda og oddvita í
Vorsabæ II á Skeiðum, og Emelíu
Kristbjörnsdóttur húsfreyju.
Börn Huldu og Eiríks eru Emel-
ía Guðrún, f. 17.7. 1976, nemi við
MK; Haukur Brynjar, f. 22.5. 1980,
nemi í Grunnskóla Kópavogs.
Alsystkini Huldu eru Þorvald-
ur, f. 7.11. 1947, tæknifræðingur í
Noregi, kvæntur Anne Ström
kennara og eru börn þeirra Mar-
grét, f. 9.5. 1971, Ame Jakob, f. 2.3.
1974, og Ragnhild, f. 4.12. 1980; Jón
Sólberg, f. 30.6. 1953, prentari og
smiður, búsettur í Garðabæ,
kvæntur Steinunni Geirmunds-
dóttur lyfjatækni og eru börn
þeirra Nói, f. 20.3. 1977, Ásta Rún,
f. 24.10. 1980, og Finnur, f. 16.7.
1992.
Systkini Huldu, sammæðra, eru
Katrín Sigmarsdóttir, f. 13.10.
1958, lyfjatæknir, búsett í Hafnar-
firði, en sambýlismaður hennar
er Örn Tryggvi Gíslason vélvirki
og eru börn þeirra Sigmar Örn, f.
9.10. 1981, Berglind, f. 16.10. 1987,
og Gísli, f. 27.6. 1989; Sólveig Sig-
marsdóttir, f. 13.1. 1961, nemi á
Selfossi, en sambýlismaður henn-
ar er Kristján Már Gunnarsson
skrifstofustjóri og eru börn þeirra
Andri Már, f. 6.1. 1987, Karen, f.
13.6. 1989, og Aníta, f. 19.5. 1992;
Anna Snædís, f. 12.2. 1962, kenn-
ari í Reykjavík, en sambýlismað-
ur hennar er Snorri Þórisson mat-
vælafræðingur og er dóttir þeirra
Anna Sólveig, f. 20.5. 1995.
Foreldar Huldu eru Nói Jóns-
son, f. að Árbæ í Holta- og Land-
sveit 15.1.1915, d. 8.3. 1956, skip-
stjóri, og Ingimunda Guðrún Þor-
valdsdóttir, f. á Hellu í Stein-
grímsfirði 10.9. 1929, ræstitæknir
og saumakona.
Stjúpfaðir Huldu er Sigmar
Karl Óskarsson, f. í Dísukoti í
Þykkvabæ 1.7. 1932, starfsmaður
Hitaveitu Selfoss.
Ætt
Nói var sonur hjónanna Guð-
laugar Jónsdóttur og Jóns Jóns-
sonar í Árbæ i Holta- og Land-
sveit en Ingimunda Guðrún er
dóttir hjónanna Þorvalds Gests-
sonar frá Hafnarhólmi í Stein-
grímsfirði og Sólveigar Jónsdóttur
frá Stöðvarfirði.
Foreldrar Sigmars Karls eru
Anna Markúsdóttir í Vesturholt-
Hulda B. Nóadóttir.
um í Þykkvabæ og Óskar Gunn-
laugsson.
Tll hamingju með
afmælið 27. febrúar
80 ára
50 ára
Ingrid Agathe Björnsson,
Bólstaðarhlíð 41, Reykjavík.
Axel Jóhannesson,
Ægisgötu 15, Akureyri.
75 ára
Jón Guðmundsson,
Litlu-Hámundarstöðum, Árskógs-
hreppi.
Þórður M. Kristensen,
Bogahlíð 22, Reykjavík.
Helga Lund,
Miðtúni, Öxarfjarðarhreppi.
Rósa Jóakimsdóttir,
Bárðartjörn, Grýtubakkahreppi.
Ámi Oddsteinsson,
Mánabraut 14, Mýrdalshreppi. ,
Gísh Valtýsson,
Höfðavegi 42, Vestmannaeyjum.
Anna Magnea Charlesdóttir,
Dvergholti 3, Mosfellsbæ.
Guðrún Eyja Erlingsdóttir,
Hlíðarvegi 12, Hvammstanga.
40 ára
70 ára
Hermann Þorgilsson,
Neðri-Hrísum, Snæfellsbæ.
Ingibjörg Betúelsdóttir,
Heiðargerði 47, Reykjavík.
Sigurborg Hjaltadóttir,
Espigerði 4, Reykjavík.
60 ára
Ámi Vignisson,
Hafnarbraut 22, Höfn í Hornafirði.
Jakob Jónsson,
Norðurgötu 47, Akureyri.
Jón Helgason,
Holtagerði 5, Húsavík.
Anna Dís Björgvinsdóttir,
Efstalandi 6, Reykjavík.
Magnús Birgisson,
Þórufelli 6, Reykjavík.
Dóra Sigrún Gunnarsdóttir,
Lækjarhjalla 38, Kópavogi.
Jónína Halla Sigmarsdóttir,
Nónhæð 3, Garðabæ.
Þorleifur Sívertsen,
Sólheimum, Grímsneshreppi.
Benedikt Egilsson,
Urðarhæð 10, Garðabæ.
Fríða Björk Gunnarsdóttir,
Norðurtúni 19, Bessastaðahreppi.
Sigurleifur Kristjánsson,
Miðvangi 155, Hafnarfirði.
Harpa Vilbergsdóttir,
Laufskógum 4, Egilsstöðum.
Kristján H. Erlendsson,
Sólvallagötu 24, Keflavík.
Guðfinna Inga
Guðfinna Inga Eydal, sérfræð-
ingur i klínískri sálfræði, Garða-
stræti 25, Reykjavík, er fimmtug í
dag.
Starfsferill
Guðfinna fæddist á Akureyri og
ólst þar upp. Hún lauk stúdents-
prófi frá MA 1966, embættisprófi í
sálfræði frá Kaupmannahafnarhá-
skóla 1975 og er sérfræðingur í
klínískri sálfræði frá 1993.
Guðfinna var sálfræðingur við
sálfræðideild skóla 1976-78,
stundakennari við KHÍ og HÍ
1978-80, stundaði rannsóknir við
Heilsuverndarstöð Reykjavíkur
1981-82, vann viö Foreldraráðgjöf-
ina 1979-83 og hefur starfrækt eig-
in stofnun, Sálfræðistöðina, ásamt
Áliheiði Steinþórsdóttur frá 1983.
Guðfinna hefur átt sæti í Barna-
verndarráði í mörg ár. Rit Guð-
finnu: Adfærdsvanskelige born í
privat pleje, ásamt Emmy Glud;
Nútímafólk í einkalífi og starfi,
ásamt Álfheiði Steinþórsdóttur;
meðhöfundur að Sálfræðibókinni,
útg. 1993; Bamasálfræði, ásamt
Álfheiði Steinþórsdóttur, útg. 1995.
Eydal
Auk þess hefur hún þýtt sálfræði-
legt efni og samið greinar um sál-
fræði í blöð og tímarit.
Fjölskylda
Guðfmna giftist 29.12. 1967 Agli
Egilssyni, f. 25.10.1942, eðlisfræð-
ingi og rithöfundi. Hann er sonur
Egils Áskelssonar, lengst af bónda
í Hléskógum I Suður-Þingeyjar-
sýslu, og Sigurbjargar Guðmunds-
dóttur húsfreyju.
Börn Guðfinnu og Egils eru
Hildur Björg Eydal, f. 26.3.1976,
nemi við Kvennaskólann í Reykja-
vík; Ari Eydal Egilsson, f. 28.11.
1980, nemi við Hagaskóla; Bessi
Eydal Egilsson, f. 28.11. 1980, nemi
við Hagaskóla.
Alsystkini Guðfinnu eru Anna
Inger Eydal, f. 13.3.1942, sérfræð-
ingiu- í kvensjúkdómum, búsett í
Lundi í Svíþjóð; Matthías Eydal, f.
24.5. 1952, líffræðingur í Reykja-
vík; Margrét Hlíf Eydal, f. 8.7.
1958, félagsráðgjafi í Reykjavík.
Hálfsystir Guðfinnu, samfeðra,
er Helena Brynjarsdóttir, f. 10.5.
1938, húsmóðir.
Foreldrar Guðfinnu: Brynjar
Guðfinna Inga Eydal.
Eydal, f. 22.10. 1912, d. 9.10. 1995,
iðnverkamaður á Akureyri, og
Brynhildur Eydal, f. 7.10. 1919,
húsmóðir.