Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1996, Side 3

Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1996, Side 3
MÁNUDAGUR 4. MARS 1996 27 DV íþróttir Landsflokkaglíman fór fram í Grafarvogi um helgina: Harðasta rimma í mörg ár Landsflokkaglíma íslands var háö rnn helgina í íþróttahús- inu í Grafarvogi. Menn voru á einu máli um aö sjaldan hefði glíman verið jafn hörð í meistara- flokki. í 90 kg var keppni engu lík. Þurftu þrír glímu- menn að heyja keppni um sigurinn og gekk það ekki þrautalaust fyrir sig. Orri vann eftir langan bardaga Að lokinni venju- legulegri keppni stóðu Orrri Bjömsson, KR, Sigurður Kjartansson, HSÞ, og Helgi Bjama- son, KR, jafnir að vígi og þurfti því að blása til úrslitaglímu. Eftir hana stóðu leikar enn jafnir og þurfti enn aðra umferð til að knýja fram úrslit. Að henni lokinni var loksins ljóst hver hafði hreppt gullið að þessu sinni. Það var Orri Bjömsson sem stóð uppi sem sigur- vegari, Helgi varð annar og Sigurður þriðji. f yfír 90 kg þyngdar- flokki sigraði Jóhann- es Sveinbjörnsson, Hvöt, Jón Birgir Vals- son, KR, varð annar og í þriðja sæti kom Pétur Yngvason, HSÞ. Undir 81 kg flokki bai- Amgeir Friðriks- son, HSÞ, sigur úr být- um, Helgi Kjartans- son, HSK, varð annar og Fjölnir Elvarsson, KR, í þriðja sæti. í undir 74 kg flokki varð Róbert Sigurðs- son, UÍA, sigurvegari, Sigurður Nikulásson, Ármanni, varð annar og Oddbjöm Magnús- son, Þrym, þriðji. Keppendur voru 150 í öllum flokkum og var eftir því tekið hvað gott unglinga- starf á Austfjörðum, sérstaklega á Reyðar- firði, er farið að skila sér en þangað fóru þrír titlar. Glíman í sókn um allt land Glímt var af hörku á mótinu og shmdum á kostnað gæðanna. Glíman er sókn og margir ungir og efni- legir glímumenn að koma fram í sviðsljós- ið. -JKS í 90 kg flokki sigraði Jóhannes Sveinbjörnsson, Hvöt, en hann er lengst til vinstri á myndinni. í miðið er Jón Birgir Valsson, KR, sem varð annar og Pétur Yngvason sem lenti í þriðja sætinu. DV- mynd Sveinn Grettisbeltið metið á um sjö milljónir Grettisbeltið. DV-mynd Sveinn Grettisbeltið, verðlauna- gripur sem keppt er um ár hvert á Íslandsglímunni, er án efa merkilegast og verðmætast allra verð- launagripa sem um er keppt í íþróttum hérlendis og þótt víðar væri leitað. Samkvæmt heimildum DV er Grettisbeltið, sem keppt verður um í 90. skipti í vor, metið á um sjö milljónir króna. Mikill fjöldi lítilla silfur- skjalda er á beltinu og á þá eru grafm nöfn sigur- vegara hverju sinni. Vitan- lega rúmar beltið ekki 90 skildi en Glímusambandið hefur jafnan þann háttinn á að í hvert sinn sem nýr skjöldur er settur á beltið þá er einn tekinn af. Nýr geymslustaður? Oft hefur verið rætt um að koma beltinu fyrir í ör- uggri geymslu, bankahólfi eða einhverju álíka. Beltið er jafnan í vörslu sigurveg- ara en það kann að verða breyting á því fljótlega. Grettisbeltið er þaö dýr- mætt orðið að þeim sem vilja varðveita það á örugg- um stað fer mjög fjölgandi. Samkvæmt heimildum DV hafa menn innan Glímu- sambandsins rætt það sín í miili að breyta geymslu- stað beltsins. Myndi þá beltishafi varðveita beltið í tvo mánuði en síðan yrði því komið fyrir á öruggum stað. Óvíst er hvort af þessu verður en mikill yrði skaðinn ef beltið hyrfi einn góðan veðurdag. -SK Ollum skóm stolið frá leikmönnum Lincoln Erfiðleikar enska 3. deildarliðsins Lincoln í knattspymu ríða ekki við einteyming. Ekki er nóg með að liðinu gangi illa í leikjum sínum. Liðið er nú í neðsta sæti 3. deildar og allt útlit fyrir að liðið verði utan deilda á næsta tímabili. Fjárhagsstaða liðs- ins er afar slæm og því má félagið ekki við miklum skakka- föllum. Um helgina átti Lincoln að leika gegn Fulham í botnbar- áttuslag 3. deildar. Skömmu fyrir leikinn kom í ljós að öllum skóm leikmanna Lincoln hafði verið stolið, samtals 24 pör- um. Þetta var annað innbrotið í höfuð- stöðvar liðsins á þremur dögum. „Þrátt fyrir þjófn- aðinn erum við lukkulegir yfir því að þjófúrinn eða þjófam- ir létu búningana í friði,” sagði stjórnar- formaður Lincoln í gær. -SK Loftur í Fjölni - ásamt sex öðrum leikmönnum Loftiu- Ólafsson, sem lengst af lék með Fylki í knattspyrnunni, hefur ákveðið að ganga til liðs við 3. deildar lið Fjölnis í Grafarvogi og mim styrkja liðið mikið. Loftur er ekki eini nýi leikmaðurinn sem gengið hefur til liðs við Fjölni. Þrír aðrir Fylkismenn, Jón Þór Grímsson, Júlíus Atlason og Runólfúr Sveinbjömsson hafa gengið í Fjölni. Þá hefur Bjami Gunnarsson markvörður komið í Fjölni úr ÍR og þeir Magnús Gísla- son og Kristinn Sæmundsson úr Fram. Loftur Ólafsson. -SK Kjaftshögg kostaði 6 milljónir J.R. Reed, leikmaður New York Knicks í NBA-deildinni í körfuknattleik, mun væntanlega hugsa sig um tvisvar áður en hann slær andstæðing sinn aft- ur. Reed gaf A.C. Green, leik- manni Phoenix Suns, myndar- legt kjaftshögg á dögunum og fuku við það tvær tennur úr munni Green. Reed var dæmdur til að greiða rúmai- 6 milljónir í sekt og má því segja að kjaftshöggið hafi verið dýrt. -SK Drexler og Kemp meiddir Clyde Drexler í Houston og Shawn Kemp í Seattle eru báðir meiddir og geta ekki leikið með liðum sínum í NBA-deildinni á næstimni. Ástandið er þó verra hjá Drexler sem verður frá vegna meiðslanna í 5-6 vikur en hann er meiddur á hné og þarf að fara í aðgerð. Kemp er tognaður á ökkla. -SK Skoska knattspyrnan um hel Einvígi Rangers Celtic heldur áf Glasgow Rangers og Celtic unnu bæði leiki sína um helgina í skosku knattspymunni og einvígi liðanna um meistaratitilinn verður æsilegra með hverri umferð. Celtic lék stórkostlega knatt- spymu gegn Hearts sem átti aldrei möguleika. Celtic virðist ekkert gefa eftir í baráttunni við Rangers um meistaratitilinn. Úrslit um helgina: Aberdeen-Kilmamock ..............3-0 Celtic-Hearts ...................4-0 Motherwell-Falkirk ..............1-0 Partick-Raith....................0-3 Hibemian-Rangers.................0-2 Partick-Raith...................0-3 Hibemian-Rangers................0-2 Staðan í deildinni er þessi: Rangers 27 20 5 2 61-16 65 Celtic 28 19 8 1 53-19 65 Aberdeen 28 13 4 11 41-30 43 Hearts 28 12 4 12 42-44 40 Hibemian 27 10 6 11 36-44 36 Raith 28 10 5 13 29-39 35 Kilmamock 28 8 6 14 32-46 30 Motherwell 28 6 10 12 19-31 28 Falkirk 28 6 5 17 2442 23 Partick 28 6 5 17 18-44 23 -SK Paul Gascoigne og félagar í Glasgow Rangers unnu Hibernian í gær og hald enn naumri forystu í skosku úrvalsdeildinni. Gassi var kosinn leikmaður febrúarmánaðar í skoska boltanum. Símamynd Reuter

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.