Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.1996, Qupperneq 6
30
MÁNUDAGUR 4. MARS 1996
Iþróttir
S p á n n B e 1 g í a Frakkland H o 1 1 a n d í t a 1 í a
Atletico og Barcelona gerðu
bæði jafhtefli i sínum leikjum.
Öll lið í næstu sætum töpuðu.
Úrslit í 1. deild:
Merida-Real Sociedad ..........1-2
Valladolid-Racing Santander .. 3-1
Athletic Bilbao-Barcelona . .. . 0-0
Espanol-Sevilla................0-1
Real Madrid-Saiamanca........5-0
Rayo Vallecano-Tenerife......2-4
Real Betis-Valencia............3-0
Real Zaragoza-Albacete.......3-1
Oviedo-Compostela..............3-1
Celta-Sporting Gijon...........0-0
Deportivo-Atletico.............2-2
Staða efstu liða:
Atletico 29 20 5 4 54-18 65
Barcelona 29 16 9 4 50-22 57
Composteia 29 16 5 8 41-36 53
Valencia 29 16 4 9 52-38 52
Espanol 29 14 9 6 39-24 51
R. Madrid 29 13 8 8 57-40 47
Club Brugge sleppur ekki svo
glatt efsta sætinu. Liðið gefur
ekkert eftir og vinnur hvern leik-
inn á fætur öðrum.
Úrslit í 1. deild:
Ghent-St. Truiden...........0-1
Lommel-Searing .............0-1
Lierse-Aalast...............3-1
Standard-Ekeren.............0-0
Molenbeek-Waregem...........4-1
Beveren-Anderlecht..........0-2
Antverpen-Club Brugge.......0-3
Harelbeke-Mecheien .........0-0
Cercle Brugge-Charleroi ....0-2
Staða efstu liða:
C. Brugge 25 18 5 2 63-23 59
Anderlecht 25 17 3 5 65-25 54
Lierse 25 11 8 6 41-31 41
Molenbeek 25 10 9 6 31-25 39
Standard 25 9 10 6 35-28 37
Ekeren 25 9 8 8 37-30 35
Mechelen 25 9 8 8 28-35 33
Öll efstu liðin unnu sína leiki
um helgina og breyttist staða
þeirra ekkert. Sama spennan
heldur því áfram.
Úrslit í 1. deild:
Rennes-PS. Germain..........O-l
Auxerre-Martigues ..........4-0
Metz-Nice ..................4-0
Lens-Gueugnon...............2-0
Montpellier-St. Etienne.....1-0
Cannes-Guingamp.............3-0
Strassbourg-Lille...........2-0
Le Havre-Bastia ............1-0
Monaco-Nantes...............4-1
Lyon-Bordeaux...............1-0
Staða efstu liða:
PS Germain30 16 9 5 52-25 57
Auxerre 29 16 4 9 48-25 52
Metz 27 14 9 4 30-16 51
Monaco 29 14 8 7 44-28 50
Lens 30 12 13 5 34-22 49
Montpellier 29 13 8 8 42-33 47
Ajax beið sinn annan ósigur í
gær þegar liðið lék á útivelli
gegn Vitesse. Fyrir vikið tók
PSV Eindhoven forystuna. Eiður
Guðjohnsen lék með PSV síð-
ustu 10 mínúturnar gegn Roda.
Úrslit í 1. deild:
PSV-Roda ...................3-0
Heerenveen-NEC..............4-1
Denveter-Fortuna ...........2-0
Willem II-Volendam .........1-0
Vitesse-Ajax ...............2-1
Sparta-Breda................3-1
Groningen-Feyenoord.........1-0
Utrecht-Waalwijk .. ........0-0
FC Twente-Doietinchem ......1-0
Staða efstu liða:
PSV 23 18 3 2 78-13 57
Ajax 22 18 2 . 2 72-14 56
Feyenoord 24 11 7 6 46-30 40
Sparta 24 10 8 6 37-38 38
Willem II 22 9 9 4 40-27 36
AC Milan jók forystu sína um
helgina því Fiorentina náði
aðeins jöfnu á heimavelli gegn
Sampdoria. Það ætlar fátt að
koma í veg fyrir sigur AC Milan
í deildinni.
Úrslit í 1. deild:
Milan-Viacenza................4-0
Parma-Roma.................. 1-1
Padova-Juventus .............0-5
Cagliari-Bari.................4-2
Atalanta-Cremonese........... 1-1
Lazio-Inter .. —..............0-1
Napoli-Piacenza...............0-0
Fiorentina-Sampdoria ........2-2
Torino-Udinese ..............2-0
Staða efstu liða:
Milan 24 15 8 1 41-16 53
Fiorentina 24 13 7 4 40-22 46
Parma 24 11 10 3 34-20 43
Juventus 24 12 6 6 41-23 42
Lazio 24 11 6 7 45-27 39
Þýska knattspyrnan um helgina:
Fjögur mörk á
innan við hálftíma
- og Bayern komst í toppsætið
Bayern Munchen skaust í efsta
sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í
knattspyrnu um helgina með því
að sigra granna sína í 1860
Munchen á heimavelli sínum, 4-2.
Á sama tíma lék Borussia
Dortmund gegn Borussia
Mönchengladbach og liðin deildu
stigum. Úrslitin um helgina urðu
annars þessi:
Eintracht Frankfurt-Freiburg . 0-1
svöruðu fyrir Dortmund.
Jöfnunarmark Kohlers kom
reyndar á næstsíðustu mínútu
leiksins.
Stuttgart skaust í þriðja sæti
úrvalsdeildarinnar með sigrinum
gegn Kaiserslautern og það voru
þeir Elber og Haber sem tryggðu
Stuttgart sigurinn.
Staðan eftir leiki helgarinnar er
Sænski landsliðsmaðurinn Martin Dahlin hjá Borussia Mönchengladbach hafði ástæðu til að fagna um helgina. Þá
skoraði Dahlin bæði mörk Gladbach gegn Dortmund og hér fagnar hann öðru þeirra. Símamynd Reuter
Bayem Munchen-1860 Munchen 4-2 Köln-Karlsruhe 0-1 þessi: Bayern 21 14 2 5 48-27 44
Schalke-Hamburg 3-0 Dortmund 20 12 6 2 48-25 42
Gladbach-Dortmund 2-2 Stuttgart 20 8 7 5 43-36 31
Stuttgart-Kaiserslautern 2-0 Gladbach 20 9 4 7 30-33 31
Werder Bremen-Uerdingen ... 1-0 Hamburg 19 7 8 4 31-27 29
Jurgen Klinsmann reyndist Rostock 18 7 7 4 30-23 28
Bayern Munchen dýrmætur í Schalke 19 7 7 5 24-25 28
leiknum gegn 1860 Munchen og 1860 Munc. 21 7 6 8 32-33 27
hann skoraði tvö marka liðsins. Leverkusen 18 6 8 4 22-15 26
Hin tvö mörkin skoraði Alexander Karlsruhe 21 6 8 7 30-32 26
Zickler. Öll mörkin skoruðu þeir Frankfurt 21 6 6 9 32-38 24
Klinsmann og Alexander á aðeins Freiburg 20 6 5 9 15-24 23
26 mínútum. Staðan var orðin 2-0 St. Pauli 19 5 6 8 27-31 21
eftir 9 minútur og 63 þúsund Bremen 19 4 9 6 19-24 21
áhorfendur kunnu vel að meta góð K.Iautern 20 3 10 7 19-27 19
úrslit og efsta sætið í deildinni. Köln 19 3 9 7 18-23 18
Svíinn Martin Dahlin skoraði Dusseldorf 19 3 8 8 18-29 17
bæði mörk Gladbach gegn Uerdingen 20 2 8 10 16-30 14
Dortmund en þeir Riedle og Kholer -SK
Þróttur, Reykjavík, og ÍS bikarmeistarar í blaki karla og kvenna um helgina:
99
Aldrei hræddur
99
sagði Leifur Harðarson, þjálfari Þróttar, eftir öruggan sigur. Líka öruggt hjá ÍS
„Þetta var mjög svipaður leikur
og ég átti von á. Ég bjóst við þessu
svona og úrslitin komu mér alls
ekki á óvart,” sagði Leifur Harðar-
son, þjálfari Þróttar úr Reykjavík,
eftir að Þróttur hafði sigrað lið HK
með miklum yfirburðum í úrslita-
leik bikarkeppninnar í blaki karla
um helgina.
Lokatölur urðu 3-0 og má segja
að HK-menn hafi aldrei séð til sól-
ar í þessum leik. Þróttarar unnu
fyrstu hrinuna 15-11 og það var
einungis í annarri hrinu sem HK
veitti Þrótti einhverja mótspymu
en hrinuna vann Þróttur, 16-14.
Lokahrinan var síðan eign Þróttar
frá upphafi til enda og lauk með 15
stigum gegn 3.
„Auðvitað var smástress í þessu
en ég var aldrei hræddur um að við
myndum ekki sigra. Það er of mik-
ill munur á liðunum til að þetta sé
spennandi. HK er með mjög slaka
hávörn og við gátum smassað í
gegnum hana að vild. Okkar aðal-
styrkur var í sterkri hávöm og
góöri sókn,” sagði Leifúr ennfrem-
ur.
„Það-eru mikil meiðsli hjá okkur
og vissulega hafði það áhrif í þess-
um leik. Við erum mun betri en
þessi úrslit bera með sér,” sagði
Guðbergur Egill Eyjólfsson, fyrir-
liði HK, eftir leikinn.
„Þetta þróaðist á svipaða vegu og
ég átti von á. Eins og þetta hefur
verið að ganga í vetur þá er ljóst að
við erum með mun sterkara lið en
HK. Hins vegar var mér ekki farið
að standa á sama er þeir komust
yfir í annarri hrinunni en þetta fór
allt vel að lokum,” sagði Ólafur
Heimir Guðmundsson, fyrirliði
Þróttar, en hann var langbestur
þróttara í leiknum og öðrum frem-
ur maðurinn á bak við sigurinn.
Þróttur veitti mótspyrnu í
fyrsta alvöruleiknum
ÍS og Þróttur frá Neskaupsstað
léku til úrslita í kvennaflokki. ÍS
sigraði, 3-1, en þetta var fyrsti úr-
slitaleikur Þróttar í stóru móti og
reyndar í fyrsta skipti sem meist-
araflokkslið Þróttar kemst í úrslit í
bikarkeppni í íþróttum.
Stúdínur unnu tvær fyrstu hrin-
umar, 15-10 og 15-10. Þróttur vann
þriðju hrinuna, 9-15, og fjórða
hrinan var mjög spennandi undir
lokin. ÍS komst í 3-9 en Þróttur
jafnaði 11-11. Aftur var staðan jöfn,
14-14, en tvö síðustu stigin skoruðu
Stúdínur.
„Við vorum með þetta í höndun-
um eftir sigur í fyrstu tveimur
hrinunum. En eins og svo oft er lið
kemst tveimur hrinum yfir þá tap-
ar það þeirri þriðju og það var ekki
að gerast í fyrsta skipti hjá okkur í
vetur í þessum leik. En við tókum
okkur saman í andlitinu og fórum
að berjast aftur og uppskárum
sanngjarnan sigur,” sagði Jóna
Harpa Viggósdóttir, fyrirliði ÍS, eft-
ir sigurinn gegn Þrótti.
„Svona úrslitaleikir eru alltaf
erfiðir og ég get ekki neitað því að
ég var orðinn smeykur undir lokin
i fjórðu hrinunni. En það sannaöist
enn einu sinni í þessari hrinu að
leik er ekki lokið fyrr en honum er
lokið,” sagði Zdravho Demirev,
þjálfari ÍS, eftir að bikarinn var í
höfn.
„Reynsluleysið varð okkur
að falli”
„Það sem varð okkur fyrst og
fremst að falli í þessum leik var
reynsluleysi enda höfum við ekki
leikið svona leik áður. Reynsla
skiptir ótrúlega miklu máli í svona
úrslitaleikjum. En við erum mun
sterkari en við sýndum í þessum
leik og ætlum okkur stóra hluti í
framtíðinni,” sagði Petrún Jóns-
dóttir, fyrirliði liðs Þróttar frá Nes-
kaupstað. -SK/-ih