Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Qupperneq 3

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996 23 Valur - KA (12-9) 26-23 1-0, 2-2, 4-2, 5-5, 9-5, 10-7 (12-9), 13-11, 17-12, 13-14, 21-15, 23-16, 25-18, 25-23, 26-23. Mörk Vals: Dagur Sigurðsson 9/4, Valgarð Thoroddsen 4, Ólaf- ur Stefánsson 4/1, Jón Kristjáns- son 2, Sigfús Sigurðsson 1, Skúli Gunnsteinsson 1, Ingi Rafn Jóns- son 1, Davíð Ólafsson 1, Júlíus Gunnarsson 1, Einar Jónsson 1, Ari Allansson 1/1. Varin skot: Guðmundur Hrafnkelsson 20. Mörk KA: Julian Duranona 13/7, Patrekur Jóhannesson 6, Leó Örn Þorleifsson 1, Alfreð Gislason 1, Björgvin Björgvins- son 1, Heiðmar Felixson 1. Varin skot: Guðmundur Arn- ar Jónsson 12, Björn Björnsson 2/2. Brottvísanir: Valur 6 mín., KA 10 mín. Dómarar: Einar Sveinsson og Þorlákur Kjartansson, komust nokkuð vel frá erfiðum leik. Áhorfendur: Um 900 (fullt hús). Maður leiksins: Guðmundur Hrafnkelsson, Val. Góður sigur hjá Mannheim Nokkuð vel gekk hjá íslend- ingaliðunum í þýsku knattspyrn- unni um helgina. Waldhof Mann- heim, lið Bjarka Gunnlaugsson- ar, sigraði Lúbeck, 2-0, en Bjarki var ekki á meðal markaskorara. Þá gerðu Eyjólfur Sverrisson og félagar hans í Herthu Berlín jafntefli við Mainz, 0-0. Bochum-lið Þórðar Guðjóns- sonar leikur í kvöld við Zwickau en liðið er í efsta sætinu með 45 stig. Hertha og Mannheim eru í 11.-12. sæti með 27 stig. -JKS Frankfurt rak þjálfarann Karl Heinz Körbel var um helgina rekinn úr starfi þjálfara hjá þýska úrvalsdeildarliðinu Eintracht Frankfurt. Uppsögnin kom í kjölfar tapsins gegn Múnchengladbach. Dragoslav Stephanovic, sem rekinn var fyrr í vetur frá Bilabao á Spáni, hefur tekið við Frankfurt-liðinu. -JKS Bebeto aftur til Brasilíu Spænsk dagblöð sögðu frá þvi í gær að Deportivo La Coruna væri búið að samþykkja að selja Brasilíumanninn sterka, Bebeto, til Flamengo í Brasilíu. -JKS Romario til Valencia Brasilíski landsliðsmaðurinn Romario er á leiðinni til Val- encia frá Flamengo. Spænskir fjölmiðlar sögðu frá að Romario myndi ganga til liðs við Valencia í sumar og hefði hann skrifað undir eins árs samning og kaup- verðið væri um 450 milljónir króna. -JKS Dahlin til Juventus Juventus og Borussia Múnchengladbach hafa náð sam- komulagi um að Svíinn Martin Dahlin leiki með ítalska liðinu á næstu leiktíö. Verðið er 370 milljónir. -JKS íþróttir Valur - KA 2-0 Jón Kristjánsson, þjálfari og leikmaður Vals, átti góðan ieik gegn KA og hér reynir hann að brjótast t gegnum vörn KA-manna. Jón skoraði 2 mörk í leiknum. DV-Mynd Brynjar Gauti Knattspyrna: Úlfar þjálfar í Ólafsvík Úlfar Daníelsson hefur verið ráðinn þjálfari 4. deildar liðs Víkings, Ólafsvík, í knattspyrnu. Úlfar þjálfaði kvennalið KR á síðasta keppnistímabili og vænta Víkingar tnikils af honum í sumar. Ámi Hermannsson, sem áður lék með KA, er genginn til liðs við Víkinga og einnig þeir Berg- þór Friðriksson, áður f KSB, og Gestur Pálsson, sem lék áður meðKR. Mikill hugur er í Víkingum frá Ólafsvík og verður ýmislegt lagt í sölurnar til að komast upp úr 4. deildinni í sumar. -SK Badminton: A-lið TBR vann 1. deildina A-lið TBR var um helgina sig- urvegari í 1. deild í badminton. Liðið sýndi mikla yfirburði, tap- aði ekki lotu nema í úrslitaleikn- um á móti Skagamönnum. í liö TBR vantaði marga sterka ein- staklinga sem voru að keppa á sama tíma á móti í Póllandi en það kom það ekki í veg fyrir sig- ur og þeir yngri skiluöu sínu hlutverki með sóma. Lið TBR var skipað Guðrúnu Júliusdóttur, Áslaugu Jónsdótt- ur, Þórdísi Edwald, Tryggva Nielsen, Guðmundi Adolfssyni, Nirði Ludvigssyni, Sveini Sölva- syni og Indriða Bjömssyni. B-lið TBR sigraði í 2. deild og vann alla sína leiki. Liðið mætti KR í úrslitaleiknum. -JKS Valsmenn eru í góðum málum eft- ir auðveldan sigur á bikarmeistur- um KA, 26-23, í öðrum leik liðanna í úrslitum um íslandsmeistaratitil- inn í handknattleik að Hlíðarenda á laugardag. Valsmenn hafa unnið báða leikina í einvíginu og þurfa nú aðeins einn sigur tU viðbótar tU að tryggja sér titUinn þriðja árið í röð. KÁ-manna bíður hins vegar erfiður róður en þeir þurfa að sigra í þrem- ur leikjum í röð tU að vinna titUinn í fyrsta skipti. Ef það á að gerast má mikið breytast frá leik liðanna á laugardag. Valsmenn voru miklu betri á öU- um sviðum handboltans. 6-0 vöm þeirra og frábær markvarsla Guð- mundar Hrafnkelssonar lögðu grunninn að sigrinum sem var mun öruggari en tölurnar segja til um. Aðeins í byrjun leiksins var jafnt á með liðunum en siðan skUdu leiðir og Valsmenn stungu hreinlega af. Þeir klipptu homamenn KA út og tóku kröftuglega á móti skyttum KA-manna sem komust lítið áleiðis. í sókninni fór Dagur Sigurðsson fyrir Valsmönnum og lék geysivel, sérstaklega í síðari hálfleiknum. KA-menn virkuðu hins vegar ráða- lausir og ragir og það var aðeins í byrjun leiksins og undir lok hans sem liðið sýndi eitthvað. KA-menn voru mjög ósáttir út i dómgæsluna í leiknum en þeir verða að líta í eigin barm vegna úrslitanna. Patrekur og Duranona voru langatkvæðamestir þótt þeir hafi oft leikið betur og Guðmundur Arnar varði ágætlega í markinu en aðrir voru slakir. Hjá Val vom Guðmundur og Dag- ur bestir í mjög góðu liði og Valgarð Thoroddsen og Ólafur Stefánsson áttu góða kafla -RR „Vorum sannfærandi“ „Þetta var virki- lega góður sigur og við lékum mjög sann- færandi. Vörnin vann geysivel með Guðmund frábæran í markinu og það gaf tóninn. Sóknar- leikurinn var einnig nokkuð góður og markviss. Eins og staðan er lítur þetta vissulega vel út og við ætlum að reyna að klára þetta fyrir norðan á þriðjudag," sagði Jón Kristjáns- son, þjálfari og leik- maður Valsmanna, eftir leikinn. Ég veit að gjald- kerinn okkar vonast eftir því að fá fjórða leikinn hingað heim að Hlíðarenda en ég held að til þess komi ekki. Þeir koma grimm- ir í næsta leik enda þeirra síðasta von en við gefum ekkert eft- ir,“ sagði Jón Krist- jánsson. -RR „Óánægður með dómarana" „Ég er mjög óá- nægður með dóm- gæsluna og mér fannst hún ekki sannngjöm. Vals- menn em búnir að vera að væla í allan vetur af þvl þeir hafa ekki unnið neitt og nú er eins og það hafi einhver áhrif á dóm- arana sem gefa þeim vafaatriði. Við vitum að við þurfum að bæta okkar leik en það er ekki nóg því við vinnum ekki með svona dómgæslu,“ sagði Patrekur Jó- hannesson, leikmað- ur KA, eftir leikinn. Nú verða allir Akur- eyringar að mæta og hvetja okkur áfram á þriðjudag. Þetta er alls ekki búið enn og við höfum lent í svona stöðu áður. Það verður hart barist á þriðjudag en það er ekki spuming að við vinnum þá,“ sagöi Patrekur. -RR

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.