Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Page 7

Dagblaðið Vísir - DV - 01.04.1996, Page 7
MÁNUDAGUR 1. APRÍL 1996 27 DV Þeir „blönku" hóta aftur verkfalli Leikmenn ítölsku 1. deildar liðanna í knattspyrnu hafa enn ekki náð samkomulagi vegna launagreiðslna við eigendur lið- anna. Leikmennirnir voru í verkfalli á dögunum og nú vofir annað verkfall yfir þann 20. apríl. Sex klukkustunda samningafundur um helgina varð árangurslaus og fulltrúi leikmanna sagði eftir fundinn að hann væri ekki bjart- sýnn á lausn málsins. Knattspymuáhugafólk á italíu er óánægt með launakröfur leik- mannanna enda eru þeir ekki með lægstu launin á Ítalíu. Reyndar hafa knattspyrnumenn- irnir svimandi há laun og eiga því ekki samúð margra á Ítalíu. -SK Papin áfram hjá Bayern Franski knattspyrnumaðurinn Jean-Pierre Papin ætlar að vera áfram hjá þýska félaginu Bayern Múnchen. Þegar tekið er mið af síendur- teknum kvörtunum Frakkans í allan vetur kemur það verulega á óvart að hann skuli vilja dvelja áfram hjá Bayem. Sagt er að Manchester United og Borussia Múnchengladbach hafi viljað krækja í Papin en af því verður ekki. „Ég hef komist að því á undanfórnum dögum að stjórn- endur liðsins styðja við bakið á mér,“ sagði Papin um helgina en hann hefur samið við Bayern til júnímánaðar 1997. -SK ÓL í Atlanta: Lagt af stað með eldinn Ólympíuleikarnir í Atlanta verða settir þann 19. júlí í sumar og þeim lýkur 5. ágúst. Allur undirbúningur gengur samkvæmt áætlun og um helgina var lagt af stað með ólympíueld- inn frá Grikklandi. Eldurinn á langa ferð fyrir höndum eða um fjóra mánuði. Hillary Clinton, eiginkona Bills Clintons Bandaríkjaforseta, var í Grikklandi um helgina er lagt var af stað með eldinn. -SK Sá ungverski var rekinn Ungverjar ráku um helgina framkvæmdastjóra ungverska landsliðsins í knattspyrnu. Ungverska knattspyrnusam- bandið ákvað á fundi sínum að Kalman Meszoly skyldi hætta. Sá sem tekur við áf Meszoly er þjálf- ari liðsins en hann heitir Janos Csank. Ungverjum tókst ekki að komast í lokakeppni Evrópu- keppninnar í Englandi I sumar og hafa ekki verið á meðal þátt- takenda í úrslitum HM síðan árið 1986. Síðustu tvö ár hafa ver- ið afar mögur hjá Ungverjum en á þeim tíma hefur liðið meðal annars tapað fyrir Slóveníu og ís- landi. -SK Frábær tími hjá Tergat Paul Tergat frá Kenía náði um helgina besta tima ársins í hálfu- maraþoni karla á móti á Ítalíu. Tergat hljóp á 58,51 mín. og bætti tímann um mínútu. -SK Einstakt golfmót í lok mars á Suöurnesjum: Kylfingarnir eins og beljur að vori - um 200 kylfingar léku golf í sumarveðri á punktamóti DV, Suðurnesjum: Gríðarleg þátttaka var á fyrsta opna golfmóti árs- ins sem fram fór á Hólmsvelli í Leiru á laug- ardag. Alls mættu um 200 kylfingar til leiks og léku 18 holur og var um punktakeppni að ræða. Guðmundur Ragnars- son, GSS, sigraði og fékk 39 punkta. Jens Kr. Guð- mundsson, GR, varð ann- ar með 38 punkta, Hann- es Guðnason, GR, þriðji með 38 punkta, Halldór Kristjánsson, GR, íjórði með 38 punkta og Þor- steinn Geirharðsson, GS, fimmti með 37 punkta. „Mótið tókst stórkost- lega vel. Það hefur ekkert frost verið í jörðu frá ára- mótum. Jarðvegurinn var það vel lagstur að við sáum ekkert því til fyrir- stöðu að hleypa kylfing- unum inn á sumarflatirn- ar,“ sagði Einar Guðberg, framkvæmdastjóri Golf- klúbbs Suðurnesja, í sam- tali við DV eftir mótið. „Þetta mót vakti mikla athygli um allt land og daginn fyrir mótið var orðið uppselt í mótið. Ánægja og leikgleði hefur skinið úr andlitum kylfinganna í allan dag og menn komu til okkar og þökkuðu fyrir þetta skemmtilega framtak," sagði Einar Guðberg enn fremur. Frímann Gunnlaugs- son, framkvæmdastjóri GSÍ, sagði í smtali við DV fyrir mótið að kylfmgar væru mjög spenntir fyrir að byrja golfvertíðina og í raun væru þeir eins og beljurnar á vorin. „Þetta var mjög óvænt og skemmtilegt og gaman að geta byrjað á þessum árstíma. Það er enn frost í jörðu hjá okkur fyrir norðan þannig að þetta var frábært. Og sigurinn kom mér mjög á óvart,“ sagði Guðmundur Ragn- arsson, GSS, sem varð sig- urvegari mótsins og hann bætti við: „Maður er venjulega á skíðum á þessum árstíma." Algert einsdæmi Það mun aldrei hafa gerst hér á landi áður að opið golfmót hafi verið haldið á þessum árstíma enda hefur veðurblíðan verið einstök. Vonandi verður framhald þar á og þá má búast við að fleiri golfmót verði haldin á næstu vikum. -SK/-ÆMK Guðmundur Ragnarsson, GSS, kom akandi frá Sauðárkróki og sigraði á opna golfmótinu í Leirunni um helgina. Hann sagðist venjulega vera á skíðum á þessum árstíma en ekki að leika golf. DV-mynd ÆMK Hættir Birgir? „Ég á frekar von á því aö ég haidi áfram að leika með Vík- ingi en það er þó ekki öruggt. Ég hef átt við þrálát meiðsl að stríða í svo til allan vetur og ég nenni ekki að skrölta svona lengur ef þetta lagast ekki,“ sagði handknattleiksmaðurinn Birgir Sigurðsson í samtali við DV um helgina. Birgir hefúr aftur og aftur bólgnað á úlnlið og hefur ekki enn fengið skýringar á meiðslunum og veit ekki hversu al- varleg þau eru: „Maður er að verða ónýtur í þessu. Ég hef aldrei jafnað mig í hnénu eftir að ég sleit krossband og þau meiðsli hafa vissulega háð mér í allan vetur. Vonandi lagast ég af meiðslunum í úlnliðnum í sumar og þá verð ég með Vík- ingum næsta vetur í 2. deildinni ----------------------- en annars ekki,“ sagði Birgir Sig- Birgir Sigurðsson segist ekki enn hafa sett urðsson. -SK handboltaskóna upp á hillu. íþróttir Badminton: Broddi og Árni í undanúrslit Broddi Kristjánsson og Árni Þór Hallgrímsson náðu mjög góðum árangri á alþjóðlegu móti í badminton sem lauk um helgina í Póllandi. Þeir Broddi og Árni Þór komust alla leið í undanúrslitin í tvíliðaleik karla en töpuðu þar fyrir Englendingum. Þeir Broddi og Árni Þór berjast við að ná sæti á ólympíuleikunum í Atlanta í sumar og víst er að þessi árangur þeirra hjálpar til við að ná því marki. -SK Handbolti: Fram og HK komin í 1. deild Fram og HK tryggðu sér um helgina réttinn til að leika í 1. deild á næsta leiktímabili handknattleiksmanna. Fram lék gegn Þór frá Akureyri og vann stóran og auðveldan sigur, 35-18. HK lék gegn Breiðabliki og sigraði 22-36. Loks sigraði Fylkir lið ÍH í Hafnarfirði, 19-20. Staðan er þannig eftir leiki helgarinnar: HK 8 7 0 1 245-174 16 Fram 8 5 2 1 235-162 16 Fylkir 8 4 2 2 190-180 10 Þór A. 9 2 2 5 199-237 7 Breiðablik 9 1 2 6 190-242 4 ÍH 8206 160-212 4 Næstu leikir leikir í úrslitakeppninni fara fram á miðvikudag. Þá leika Fylkir og Fram í Árbænum, Þór og HK á Akureyri og ÍH og Breiðablik í Hafnarfirði. Ailir leikirnir hefjast kl. 20.00. -SK Seinkaði vegna elds Leik NACBreda og Heeren- veen í hollensku 1. deildinni í knattspyrnu um helgina seink- aði um 45 mínútur frá upphaf- lega tímaplani. Ástæðan var sú að eldur kviknaði á áhorfendastæðum og það tók slökkvilið rúmar tuttugu minútur að ráöa niðurlögum hans. Hluti áhorfenda þurfti að yfirgefa leikvanginn á meðan á slökkvistarfi stóö en enginn slas- aðist. -SK Þorbjörn skor- aði gegn Sviss íslenska unglingalandsliðið í knattspyrnu, skipað leikmönn- um 18 ára og yngri, tapaði fyrir liði Sviss í fyrsta leik sínum á móti á Italíu um helgina. Svisslendingar sigruðu 2-1 og það var Þorbjörn Atli Sveinsson sem skoraði mark íslands. -SK ) Ljótar skýrslur Mikið hefur borið á því að leikskýrslur á leikjum í Deilda- bikarnum í knattspyrnu hafi verið svo illa skrifaðar að ekki hefur verið hægt að lesa nöfn leikmanna. Gera verður þær kröfur til þeirra sem skrifa skýrslurnar að þeir sem þurfa á upplýsingum að halda úr þeim geti fengið þær án mikilla vandræða. -SK

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.