Dagblaðið Vísir - DV - 15.04.1996, Blaðsíða 2
22
MÁNUDAGUR 15. APRÍL 1996
íþróttir
Ruud Gullit með knöttinn á fleygiferð fyrir Chelsea í leiknum gegn Leeds United á laugardag. Gullit lék vel eins og allir leikmenn Chelsea og liðið átti ekki í
miklum vandræðum með slakt lið Chelsea. Mark Hughes skoraði þrennu fyrir Chelsea í leiknum. Símamynd Reuter
Leikir í ensku knattspyrnunni um helgina:
„Rauðu djöflarnir"
steinlágu á The Dell
- spenna hlaupin í toppbaráttuna á nýjan leik því Newcastle vann
Manchester United fékk
skell á The Dell á laugar-
daginn var. Southampton
var mun ákveðnara í leikn-
um og var sigur liðsins
sanngjarn. Leikur United
olli vonbrigðum og lék liðið
langt undir getu. Sigur
Southampton var gífurlega
mikilvægur í baráttunni
um tilverurétt í úrvals-
deildinni. Framkvæmda-
stjðri liðsins sagði að sínir
menn hefðu leikið sinn
besta leik í vetur.
„Þeir gerðu það sem fyrir
þá var lagt og það var hrein
unun að sjá til þeirra á köfl-
um,“ sagði Merlington,
framkvæmdastjóri Sout-
hampton.
Manchester United, sem
verið hefur á miklu skriði
síðustu vikurnar, beið
þarna sinn fyrsta ósigur í 12
leikjum.
Hughes lék stórvel og
skoraði þrjú mörk
Mark Hughes lék stórvel
fyrir Chelsea gegn slöppu
liði Leeds. Hughes gerði
þrennu í leiknum og var að
sjálfsögðu valinn maður
leiksins. Þetta var sjötti
ósigur Leeds í síðustu 7
leikjum.
Join Jess, sem Coventry
keypti fyrir skemmstu fyrir
260 milljónir, skoraði sitt
fyrsta mark fyrir félagið og
það ekki lítið mikilvægt.
Coventry mætti QPR í hörð-
um botnslag. Leikurinn bar
þess keim að mikið var í
húfi og leikið var fast.
Manchester City vann
einnig mikilvægan sigur á
Sheffield Wednesday á Main
Road. Þjóðverjinn Uwe
Rösler skoraði eina mark
leiksins. Hann hefur ekki
verið í byrjunarliðinu í síð-
ustu leikjum og ekki verið
ánægður með það. Alan Ball
gaf honum tækifæri í þess-
um leik sem Þjóðverjinn
nýtti til fulls.
Blackburn virðist hafa
ógnartak á Nottingham For-
est, hvernig svo sem stend-
ur á því. Blackbum vann
fyrfi leik liðanna í vetur,
7-0, og Blackburn sýndi
enga miskunn á City
Ground á laugardag og
vann, 1-5. Alan Shearer
gerði eitt marka Blackburn
og sitt 35. mark fyrir liðið í
vetur.
Hvorki gengur né rekur
hjá Middlesborough og nú
lék Wimbledon liðið grátt.
Bryan Robson var mjög óá-
nægður með sína menn eft-
ir leikinn.
„Menn eru að leika
langt undir getu“
„Menn eru að leika langt
undir getu. Við verðum að
fara að sýna hvað við í raun
getum. Það er ekki seinna
vænna því það er ekki mjög
mikið eftir af keppnistíma-
bilinu,“ sagði Robson eftir
leikinn.
Tony Cottee tryggði West
Ham öll stigin gegn Guðna
Bergssyni og félögum í
Bolton og vermir Bolton
sem fyrr neðsta sætið.
Newcastle enn á fullri
ferð í toppbaráttunni
Newcastle er enn með á
fullu í toppbaráttu úrvals-
deildarinnar eftir nauman
sigur gegn Aston Villa á
heimavelli sínum í gær, 1-0.
Sigurmarkið lét bíða eftir
sér en það skoraði Les
Ferdinand með góðum
skalla á 65. mínútu. Leikur-
inn var nokkuð fjörugur og
bæði lið fengu marktæki-
færi sem frekar illa tókst að
nýta. Ljóst er að Newcastle
ætlar ekki að láta
meistaratitilinn framhjá sér
fara átakalaust. -JKS/-SK
Daninn Andersen fór
á kostum með Rangers
Daninn Erik Bo Andersen fór á kostum með Glasgow Rangers á Ibrox
gegn Partick Thistle í skosku úrvalsdeildinni. Andersen gerði þrennu en
þetta var hans fjórði íeikur með félaginu.
Titilvonir Celtic eru enn við lýði eftir sigur gegn Hibernian í gær. Hol-
lendingurinn Pierre Van Hooydonk skoraði bæði mörk Celtic og hefur
nú skorað 30 mörk fýrir félagið í vetur. Hibernian komst yfir í leiknum
en Hollendingurinn sá um aö tryggja Celtic sigurinn.
-SK/-JKS
Dortmund að gefa eftir?
Svo virðist sem Dortmund sé að gefa eftir i þýsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Dortmund náði aðeins markalausu jafntefli á heimavelli
um helgina gegn Schalke. Á sama tima sigraði Bayern Munchen lið
Stuttgart á útivelli, 0-1. Bæjarar hafa nú þriggja stiga forystu en Dort-
mund á einn leik inni og getur því náð Bayern að stigum.
Það var Jurgen Klinsmann sem skoraði eina mark leiksins gegn Stutt-
gart í upphafi síðari hálfleiks. Úrslit í öðrum leikjum urðu þau að
Mönchengladbach vann Köln, 2-1, Freiburg-Karlsruhe, 0-3,
Kaiserslautern-Hamburg, 1-2, St. Pauli-Werder Bremen, 1-2
Bayern hefur 57 stig í efsta sætinu með 57 stig, Dortmund hefur 54
stig og Borussia Mönchengladbach 47 stig. -JKS
Úrslit í ensku
knattspyrnunni
Úrvalsdeild:
Chelsea-Leeds ..........4-1
1-0 Hughes (19.), 2-0 Spencer (20.),
3- 0 Hughes (35.), 4-0 Hughes (48. viti),
4- 1 McAllister (66.) 22.131
Coventry-Q.P.R..........1-0
1-0 Jess (69.) 22.910
Manch. City-Sheff. Wed .... 1-0
1-0 Rösler (65.) 30.898
Middlesbro-Wimbledon .... 1-2
O-l Earle (12.), 1-1 Fleming (23.), 1-2
Ekoku (64.) 29.192
Nott. Forest-Blackburn .... 1-5
0-1 Shearer (27.), 0-2 McKinlay (31.),
1-2 Woan (41.), 1-3 Wilcox (45.), 1-4
Wilcox (68.), 1-5 Fenton (83.) 25.273
Southampton-Manch. Utd . . 3-1
1-0 Monkou (11.), 2-0 Shipperley
(23.), 3-0 Le Tissier (43.), 3-1 Giggs
(89.) 15.262
West Ham-Bolton ........ . 1-0
1-0 Cottee (28.) 23.086
Newcastle-Aston ViUa....1-0
1-0 Ferdinand (65.).
Staðan:
Manch Utd 35 22 7 6 64-35 73
Newcastle 34 22 4 8 62-35 70
Liverpool 34 19 8 7 66-31 65
Aston Villa 35 18 8 9 51-32 62
Arsenal 34 16 9 9 46-30 57
Tottenham 34 15 10 9 45-35 55
Everton 35 15 9 .11 57-41 54
Blackbum 35 16 6 13 54-42 54
Nott. Forpst 34 14 11 9 4548 53
West Ham 35 14 7 14 41-47 49
Chelsea 35 12 12 11 43-40 48
Middlesbro 36 11 10 15 3546 43
Leeds 34 12 6 16 39-52 42
Wimbledon 35 10 10 15 53-65 40
Sheff. Wed 35 10 8 17 45-55 38
S’hampton 35 8 10 17 33-51 34
Man. City 36 8 10 18 30-56 34
Coventry 35 7 12 16 40-60 33
Q.P.R. 36 8 6 22 35-54 30
Bolton 36 8 5 23 38-68 29
1. deild:
Barnsley-Reading ...........0-1
Birmingham-Luton.............4-0
Crystal Palace-Southend......2-0
Huddersfield-MiUwall.........3-0
Oldham-Wolves................0-0
Sheff. Utd-Sunderland .......0-0
Stoke-Portsmouth.............2-1
Tranmere-Leicester...........1-1
Watford-Port Vale...........5-1
W.B.A.-Grimsby .............3-1
Charlton-Derby ..............0-0
Ipswich-Norwich.............2-1
Staðan: .
Sunderland 42 21 15 6 56-31 78
Derby 43 20 15 8 66-46 75
Crystal P. 43 19 15 9 64-45 72
Charlton 41 16 17 8 53-42 65
Stoke 41 17 12 12 55-45 63
Huddersf. 42 17 11 14 59-53 62
Ipswich 41 17 11 13 73-61 62
Leicester 42 15 14 13 58-59 59
Birmingh. 42 15 12 15 59-55 57
Sheff. Utd 43 14 13 16 51-53 55
Southend 43 14 13 16 49-58 55
Barnsley 42 13 15 14 55-63 54
W.B.A. 42 15 9 18 54-63 54
Grimsby 41 14 12 15 50-58 54
Wolves 42 13 14 15 55-56 53
Norwich 43 13 14 16 55-51 53
Port Vale 40 13 13 14 52-58 52
MUlwall 43 13 12 18 41-59 51
Tranmere 41 12 14 15 55-56 50
Reading 41 11 16 14 47-55 49
Portsmouth 43 12 12 19 60-68 48
Oldham 41 11 13 17 49-47 46
Luton 41 10 11 20 36-57 41
Watford 41 7 17 17 50-63 38
Skotland:
Aberdeen-Motherwell .........2-1
Kilmarnock-Falkirk ..........1-0
Raith-Hearts.................1-3
Rangers-Partick .............5-0
Hibernian-Celtic.............1-2
Staðan:
Rangers 33 24 6 3 76-23 78
Celtic 33 21 11 1 62-22 74
Aberdeen 32 15 5 12 47-39 50
Hearts 33 15 5 13 52-51 50
Raith 33 11 6 16 37-52 39
Motherw. 33 9 11 13 26-33 38
Kilmarnok. 33 10 8 15 37-49 38
Hibernian 33 10 8 15 40-55 38
Partick 32 8 5 19 25-54 29
Falkirk 33 6 5 22 29-53 23