Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Qupperneq 5
MIÐVIKUDAGUR 17. JULI 1996
5
DV
Fréttir
Móðir ósátt við þátttöku sonar í trúfélaginu Frelsinu:
Söfnuðurinn hefur brotið
niður öll fjölskyldutengsl
Móðir segist ekki geta tekist lengur á við það að trúflokkurinn Frelsið hafi
snúið syni hennar gegn fjölskyldunni. Hún segir að enginn sé tilbúinn til að
hjálpa henni eftir að sonur hennar gekk í trúfélagiö. Hún álítur að hann hafi
verið sviptur allri sjálfstæöri hugsun auk þess sem honum hafi verið snúið
gegn fjölskyldu sinni. Forstööumaöur Frelsisins segir þetta vera vitleysu,
hér sé um fjölskylduerjur aö ræöa sem ekki komi söfnuðinum við auk þess
sem á íslandi ríki trúfrelsi. Tekið skal fram að myndin tengist ekki málinu aö
öðru leyti en því að um er að ræða höfuöstöðvar Frelsisins. DV-mynd JAK
„Söfnuðurinn hefur hrotið niður
öll fjölskyldutengsl og kemur það
fram í lítilsvirðingu í garð okkar.
Við gátum alltaf rætt saman en það
er útilokað í dag enda er hann flutt-
ur að heiman, annað kom ekki til
greina til að vernda hin börnin.
Fulltrúinn hjá Vímulausri æsku
sagði að fullt af fólki hefði hringt út
af svipuðum vanda,“ segir móðir
di-engs sem er í trúfélaginu Frels-
inu.
Trúfélögum hefur fjölgað mikið
hér á landi á undanförnum árum.
Samkvæmt tölum frá Hagstofunni 1.
desember voru trúfélög utan Þjóð-
kirkjunnar orðin 17 að tölu og hafði
þá fækkað innan Þjóðkirkjunnar
um 2%.
Fólk er misjafnlega hrifið af ýms-
um þáttum í starfsemi sumra minni
safnaða á meðan aðrir tala um heil-
brigða samkeppni við Þjóðkirkjuna.
Móðir drengsins segist vera að
gefast upp og finnst rétt að sagan
komi fram til að vekja fólk til vit-
undar um málið.
„Ég átti heilbrigt barn sem aldrei
hefur verið til vandræða fyrr en
núna eftir að hann komst í kynni
við þetta fólk. Áður fyrr var hann í
alls kyns æskulýðsstarfi á vegum
Þjóðkirkjunnar. Nú er engu tauti
við hann komið. Hann kláraði iðn-
nám, fékk vinnu og ég bað hann um
að borga smáræði heim. Hann
hvorki vildi það né gat því hann
borgar tíund í söfnuðinn og allt það
fé sem hann hefur unnið sér inn
með skólanum er farið í þetta. Ég
fór nýlega á fund hjá þessum manni
til að líta á þetta og hringdi síðan í
hann. Hann vildi ekkert við mig
tala.“
„En síðan kom mesta sjokkið því
nú vill drengurinn fara í biblíu-
skóla til Bandaríkjanna en það kost-
ar hann 300 þúsund og hann fær
engin réttindi til eins eða neins þar.
Við sögðumst ekki hafa fé í slikt en
hann festi sér farmiða og einn góð-
an veðurdag kom bara farseðill i
pósti, alveg ómerktur. Yngra barn-
inu mínu, sem er táningur, fannst
þetta svakalega spennandi og sagð-
ist endilega líka vilja ganga í Frels-
ið því þá fengi maður að fara ókeyp-
is til Ameríku. Ég varð verulega
hrædd enda vil ég þetta ekki inni á
heimilinu. Síðan komu 600 dollarar
í pósti, nafnlausir.
Enginn getur hjálpaö
„Ég hef leitað til fjölda aðila og
alls staðar komið að lokuðum dyr-
um. Ég hef talað við RLR, prestinn
minn, Vímulausa æsku og forsvars-
mann þessa safnaðar. En allir segja
að ég geti ekkert gert þar sem hann
er orðinn lögráða. Hilmar (forstöðu-
maður Frelsisins, innsk. blm.) sagði
við mig þegar ég hringdi að ég
mundi aldrei uppskera eins og ég
sáði án þess að greiða honum tíund.
Þá spurði ég hann hvort hann væri
ekki vel launaður, hann sagði svo
ekki vera þar sem kirkjan ætti pen-
ingana. Þá benti ég honum á að
hann væri kirkjan og því játaði
hann.“ .
„Þetta er eins og missir, ég hef
misst son minn. Hann hringdi alltaf
í mig ef honum seinkaði og var
mjög tillitssamur en svo fór hann
bara að hverfa. Ég get ekki sætt
mig við þetta, ég vona að ég nái til
hans en enginn virðist geta hjálpað.
Þetta virkar eins og fjarstæða, mað-
ur er búinn undir að bömin manns
fari að drekka og þvíumlíkt en mað-
ur er engan veginn tilbúinn að
kljást við algjört rugl. Maður mátti
ekki opna munninn lengur, allt sem
maður sagði var túlkað sem guðlast
á einn eða annan hátt. Öll sjálfstæð
hugsun er löngu farin, það er flett
upp í biblíunni við öllu.“
Líf fjölskyldunnar í rúst
„Þessi drengur var óskabarn allra
foreldra," sagði náinn fjölskylduvin-
ur. „Hann var aldrei að þvælast úti
í vitleysu og þau þurftu aldrei að
hafa áhyggjur af honum. Það var
fyrir rúmlega ári að hann fór að
breytast og verða upptekinn af trú-
málum. Fyrst var þetta heilbrigt en
siðan kúventist hann á þessu ári. Þá
komst hann í kynni við þennan
söfnuð og nú telur hann sig eiga að
boða .guðs orð til að allir frelsist en
það er vist ekki hægt nema við
borgum guði tíund af öllum okkar
eigum. Ég spurði hann hvort það
nægði ekki að borga tæplega helm-
ing af öllum sínum tekjum til sam-
félagsins en svo er ekki. Þar sem ég
hef ekki greitt guði tíund er mér
refsað með því að vera einstæð móð-
ir, eða svo segir hann. Þetta er
óhugnanlegt og er að leggja líf fjöl-
skyldunnar í rúst.“
Systkinum afneitaö
„Hann hefur snúist gegn öllum
og kallar hálfsystkini sín hóruunga
þar sem þau eru fædd í sambúð en
ekki hjónabandi. Þetta er sjúklegur
heilaþvottur því drengurinn er
blindur á allt sem viðkemur heil-
brigðu lífi. Þetta er peningaplokk
og ekkert annað,“ sagði hún að lok-
um.
-ggá/-SF
Séra Baldur Rafn Sigurösson:
Ná algjöru tangarhaldi á einstaklingum
- trúfrelsi á íslandi, segir forstööumaöur Frelsisins
Séra Baldur Rafn Sigurðsson seg-
ir svona mál sem betur fer ekki al-
geng.
„Þetta gerist þegar börn eru mjög
leitandi en sem betur fer er þetta
mjög sjaldgæft. Það er oft með
svona litla hópa að forystumennirn-
ir ná algjöru tangarhaldi á einstak-
lingunum í söfnuðinum. Það sést á
atburðunum í Wacho og nú í Frakk-
landi. Þetta er því miður alltaf hætt-
an með svona litla hópa því þeir
samlagast ekki heiminum og því
þjóðfélagi sem þeir lifa í.“
„Það getur hver sem er stofnað
svona hópa og er hættan mest í
þeim minnstu. Hún er til staðar og
neikvæð umræða um móðurkirkju
getur haft áhrif. Þó hafa sárafáir af
þeim sem sagt hafa sig úr Þjóðkirkj-
unni upp á síðkastiö farið í þessa
litlu hópa.“
Séra Baldur segir afskaplega lítið
fylgst með þessu.
„Lögreglan og aðrir slikir aðilar
vita ekkert. Við höfum ekki setið
uppi með svona lagað í minni sókn
en auðvitað gæti það gerst hérna
eins og annars staðar."
„Mesta hættan er þegar leiðtog-
arnir verða númer 1 og átrúnaður-
inn beinist að þeim i stað guðs, það
er ekki guð sem er tilbeðinn heldur
leiötoginn," sagði Baldur.
Fjölskyldudeilur
Hilmar Kristinsson, forstöðumað-
ur Frelsisins, sagði að í umræddu
máli væri um fjölskyldudeilur að
ræða og verið væri að draga óvið-
komandi inn í málið. „Það er enginn
fótur fyrir þessu og það er varla
ástæða til að svara þessu. Hér er ekki
um neitt barn að ræða heldur fullorð-
inn einstakling auk þess sem trú-
frelsi er á íslandi. Við hittumst mán-
aðarlega með öðrum forstöðumönn-
um hér á Reykjavíkursvæðinu,“
sagði Hilmar, „meðal annars for-
svarsmönnum í Þjóðkirkjunni. Það
er verið að reyna að segja að við
séum einhver sérfyrirbrigði og
óskaplega furðuleg en það getur
varla verið þegar við erum að hitta
forsvarsmenn annarra kristinna
samfélaga í landinu okkar. Hvað pen-
ingana varðar er það ekkert leyndar-
mál að fríkirkjusöfnuðir eru reknir
fyrir frjáls framlög. Það er enginn
feluleikur enda er enginn skikkaður
hér, þetta er frjálst val. Fólk gagnrýn-
ir það sem það skilur ekki, ég veit ná-
kvæmlega hvaða mál hér er verið að
ræða um og það er verið að draga
okkur inn í fjölskylduerjur og blása
það upp. Fólk talar út frá særindum."
Hilmar sagði það persónulegt atriði
hvers og eins hvort hann blessaði
aðra með flugmiðum en slíkar ferðir
væru ekki á vegum trúfélagsins
sjálfs. „Við stundum ekki heilaþvott
en kannski þvoum við heila af slæm-
um hugsunum. Við hvetjum fólk til
að stuðla að friði," sagði Hilmar að
lokum. -ggá/SF
S marmarkaður
í fuilum gangi ó Jjn hæð í Kringlunni
Mikið úrval af geislaplötum frá 199 kr. • kassettum frá 99 kr.
myndböndum frá 299 kr. • tölvuleikjum frá 599 kr.