Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Page 8

Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Page 8
8 MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996 Utlönd dv Netanyahu hitti for- sætisráðherra Jórdana Benjamin Netanya- hu, forsætisráðherra ísraels, átti óvæntan fund með forsætisráð- herra Jórdaníu í Tel Aviv í gær. Er það fyrsti fundur Net- anyahus með arabaleiðtoga frá því hann tók við sem for- sætisráðherra. En Netanyahu skildi Palestínumenn eftir úti i kuldanum, sendi einungis aðstoðar- menn til viðræðna við þá. Al-Kabariti, forsætisráðherra Jórdaníu, sagði að áhyggjur hans af friðarferlinu í Miðausturlöndum hefðu rekið hann til að heimsækja Netanyahu í Tel Aviv. Kemur sú heimsókn í kjölfar fundar hans með forseta Egyptalands og utan- ríkisráðherra Sýrlands í Kaíró. Al- Kabariti sagði að sér fyndist Netanyahu hafa mikinn áhuga á friðarferlinu. En Jórdanir hafa orðið fyrir gagnrýni margra araba fyrir undanlátssemi viö ísraela. Arabaríkin og Palestinumenn hafa reiðst mjög vegna þess að Netanyahu hefur ekki viljað semja á grundvelli lands fyrir frið eins og gert hefur verið síðastliöin fimm ár. Netanyahu heimsækir Mubarak Egyptalandsforseta á fimmtudag og er það fyrsta heimsókn hans til arabaríkis sem forsætisráðherra. Netanyahu neitar enn að hitta Yasser Arafat, forseta Palestínu. Reuter Benjamin Netanyahu. 9 0 4 * 5 0 0 0 Verð aðeins 39,90 mín. Þú þarft aðeins eitt símtal í Lottósíma DV til að fá nýjustu tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó og Kínó ♦ 9 0 4 . 5 0 0 0 Deilurnar um Kúbulögin: Kúbumenn gera lítið úr ákvörðun Clintons Kúhumenn gerðu í gærkvöldi lít- ið úr þeirri ákvörðun Bills Clintons Bandaríkjaforseta að fresta um- deildu ákvæði i lögum um refsiað- gerðir gegn Kúbu. Lagaákvæðið, sem leyfir að höfðað sé mál gegn hverjum þeim er fiárfest- ir í eignum sem voru í eigu Banda- rískra þegna eða fyrirtækja fyrir byltinguna árið 1959, tekur eftir sem áður gildi 1. ágúst. Aftur á móti verð- ur ekki hægt að höfða mál byggt á þvi næstu sex mánuði þar á eftir. Utanríkisráðherra Kúbu, Roberto Robina, sagði í gær að Clinton væri að reyna að þóknast bæði erlendum viðskiptalöndum og bandarískum Kúbumönnum. „Hann reynir að þóknast bæði guði og djöflinum með ákvörðun sinni. Þetta breytir á engan hátt því að lögin byggjast á afskiptasemi og lagabroti,“ sagði Robina. Clinton var undir miklum þrýst- ingi frá mörgum löndum að beita neitunarvaldi gegn lögunum. Evr- ópusambandið hafði til dæmis til- kynnt um gagnaðgerðir yrði af gild- istöku laganna. Eftir tilkynningu forsetans í gær sögðu talsmenn Evr- ópubandalagsins að ákvörðunin gengi ekki nógu langt og haldið yrði áfram að undirbúa hefndaraðgerðir. Einstök ríki EB hafa aftur á móti tekið heldur betur í ákvörðun Clint- ons og Abel Matutas, utanríkisráð- herra Spánar, fagnaði henni í gær: „Núna höfum við sex mánuði til stefnu og það eru góðar fréttir," sagði hann við blaðamenn. Talsmaður Bandaríkjastjórnar sagði í gær að hann vonaðist til að beðið yrði með gagnaðgerðir nú þegar forsetinn hefði frestað gildis- töku laganna. Al Gore heilsar Boris Jeltsín á heilsuhæli viö Moskvu í gærmorgun. Símamynd Reuter Gore hitti loks Jeltsín: Þótti stífur og líta mjög illa út Blaðamenn, sem hittu Boris Jeltsín á heilsuhæli í útjaðri Moskvu í gær, fyrir fund hans við A1 Gore, varaforseta Bandaríkj- anna, urðu steini lostnir að sjá þá breytingu sem orðið hafði á forset- anum frá því í apríl. Lýsir einn þeirra því svo að maðurinn, sem hafi verið fullur af tjöri i april, þeg- ar hann tók á móti Bill Clinton for- seta, hafi verið stífur, fölur og átt erfitt með gang í gær. Skyndileg ákvörðun Jeltsíns í fyrradag um að hitta ekki A1 Gore á fyrirhuguðum fundi þeirra vegna þess að hann væri farinn í frí vakti áleitnar og endurteknar spurningar um heilsufar hans og meinta of- drykkju. Þegar blaðamenn komu inn í her- bergið þar sem Jeltsín beið Gores stóð hann þar teinréttur eins og á hersýningu, með handleggina fast að líkamanum og horfði beint fram. Var hann svipbrigðalaus og virtist ekki taka eftir nærveru blaðamann- anna. Eftir nokkrar mínútur í þögn og kyrrstöðu sneri forsetinn sér Ungversk Lögregla í Ungverjalandi rann- sakar nú hvort bandarísk kona, Marianne Gati að nafni, hafi staðið fyrir skipulegum ferðum ófrískra ungverskra kvenna til Bandaríkj- anna. Þar eiga þær að hafa fætt böm sín og selt fyrir peninga. í seinasta mánuði voru Gati og starfsfélagar hennar í Ungverja- landi kærðir í Bandaríkjunum. í skyndilega, gekk nokkur skref áfram og sömu leið aftur á bak. Virtist hann þurfa að einbeita sér af krafti að göngunni og starði í gólfið. Þegar A1 Gore kom inn í herberg- ið gekk hann rakleiðis að Jeltsín, eins og til að sá síðarnefndi þyrfti ekki að hreyfa sig, og heilsaði hon- um. Settust þeir ásamt Viktor Tsjernomirdín forsætisráðherra og um stund reyndi Jeltsín að virðast hress, rétt á meðan myndavélarnar suðuðu. Gore óskaði Jeltsín til ham- ingu með kosninguna á dögunum og sagðist hafa hrifist af tilburðum hans í dansi. Þá brosti Jeltsín í eina skiptið. Eftir fundinn vildi A1 Gore ekki gera neitt úr útliti og framkomu Jeltsíns, sagði hann líta vel út, vera heilsuhraustan og afslappaðan. Á fundinum, sem stóð í þrjá stundarfjórðunga, ræddu Jeltsín og Gore ýmis mál, þar á meðal stríðið í Tsjetsjeníu. Sagði Gore að Jeltsín tryði á samningaleiðina til lausnar átökunum og vildi að þeim lyki sem fyrst. Reuter börn seld kærunni kemur fram að Gati hafi staðið fyrir ferðum 30 ungverskra kvenna til Bandaríkjanna, bæði giftra og ógiftra, þar sem þær seldu börn sín eftir fæðingu. Konumar fengu borgað um sextíu þúsund krónur fyrir dökk börn en allt að sjö hundruð þúsund fyrir börn sem voru ljós á lit. Stuttar fréttir Verkfall í ísrael Hundruð þúsunda ríkisstarfs- manna í ísrael hófu eins dags verkfall í morgun til að mót- mæla tillögum Benjamins Net- anyahu um niðurskurð á fjár- lögum. Andstæðingar niður- skurðarins segja að hann komi sér einkum illa fyrir fátæklinga. Gore heimsækir Kovalyev A1 Gore, varaforseti Banda- ríkjanna, sem nú er í heimsókn í Rússlandi, hitti mannréttinda- frömuðinn Sergei Kovalyev í gær. Kovalyev þessi er einn helsti baráttumaður fyrir mann- réttindum í Rússlandi og hefur meðal annars gagnrýnt stríðið í Tsjetsjeníu harðlega. Douglas í steininn Eric Douglas, yngsti sonur leikarans Kirk Douglas, var í gær dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að trufla flug frá Kalifomíu til New Jersey fyrr á árinu. Eric mun víst hafa hleypt hundi sín- um út úr búri á meðan á fluginu stóö og einnig henti hann ábreið- um að flugfreyjunum. Listamaður handtekinn Tuttugu og sex ára gamall listamaður var handtekinn í Seattle í Bandaríkjunum í gær eftir að listaverk hans vakti litla hrifningu lögreglunnar. „Listaverkið“ fólst í því að mað- urinn ók sendibifreið sinni í miðborg Seattle, hleypti úr dekkjunum og málaði orðið sprengja á hliðina. Þegar lög- regla sá bílinn var allri mið- borginni lokað þar til hann hafði verið rannsakaður til hlít- ar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.