Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996
11
Sameinuðu þjóðirnar:
Island í 8. sæti
í velferö
Samkvæmt nýrri rannsókn þró-
unardeildar Sameinuðu þjóðanna
er ísland í 8. sæti á lista yfir vel-
ferð þjðða. Listinn er þyggður upp
á rannsókn á heilsu, menntun og
kaupgetu. Skýrsla þróunardeild-
arinnar, sem miðar að því að sýna
fram á að velferð byggist ekki ein-
göngu á þjóðarframleiðslu, tekur
með i reikninginn lífslikur, læsi
fullorðinna, menntun og einstak-
lingstekjur. í rannsókninni er
Kanada í 1. sæti. Ofar íslandi eru
einnig Bandaríkin, Japan, Hol-
land, Noregur, Finnland og Frakk-
land. Næst á eftir íslandi koma
Svíþjóð og Spánn.
Þegar listinn er athugaður með
tilliti til kvenna eingöngu fer Sví-
þjóð í 1. sæti, ísland í 6. og Japan
fellur í það 12.
Reuter
Vegagerð á Tjörnesi.
DV-mynd Albert
Miklar vegaframkvæmdir
í Þingeyjarsýslu
DV, Húsavík:
Að sögn Svavars Jónssonar hjá
Vegagerðinni verða miklar vega-
framkvæmdir í Þingeyjarsýslu í
sumar. Þær helstu eru framkvæmd-
ir við veginn norðan við Húsavík,
frá Leitinu út að Héðinshöfða.
Byggja á veginn upp, rétta hann af
og hækka á köflum, og síðan að
leggja á hann slitlag. Áætluð verk-
lok eru um mánaða'mótin júli-ágúst.
Kísilvegurinn frá Þverá að Blá-
hvammi verður styrktur og vegur-
inn um Kálfastrandarvoga verður
endurbyggður og slitlag lagt á báða
vegina. Þá verður byrjað á nýjum
vegi frá Jökulsá á Fjöllum og upp í
Víðidal og lagt verður slitlag á
Hvammaveg. Það er veginn frá
Haga að Daufhyl.
Búið er að bjóða út verkið við
vegagerð yfir Fljótsheiði og verður
byrjað á þeim vegi nú í sumar. Það
verk tekur um 3 ár. Einnig er verið
að endumýja bundið slitlag á mörg-
um vegum í sýslunni.
-AGA
Bílaskipti hjá utanríkisráðherra
Samkvæmt upplýsingum frá ut-
anríkisráðuneytinu og Halldóri Ás-
grímssyni utanríkisráðherra hefur
ráðuneytið skipt á bifreið af gerð-
inni Ford Explorer, árgerð 1991, fyr-
ir Cherokee, árgerð 1994. Að hluta
til mun ráðherra hafa þennan bíl til
umráða en að öðm leyti verður
hann notaður á vegum ráðuneytis-
ins. Ráðuneytið skipti á bílunum
hjá Sölunefnd varnarliðseigna.
Milligjöfin var 1,3 milljónir króna.
Ráðherra er nú á bílnum úti á landi.
-ÞK
Fréttir
Hundraömannahellir í Holtum:
Leitað að líkum
frá svartadauða
- verkfræðifyrirtæki býður tækniaðstoð
Verkfræðistofan Línuhönnun hef-
ur ritað Eyjólfi Guðmundssyni,
áhugamanni um manngerða hella,
bréf og boðist til að koma austur í
Holt með jarðsjá, sem fyrirtækið á,
til þess að leita að Hundraðmanna-
helli.
Munnmæli em um aö í svarta-
dauða hafi lík fólks verið flutt í
HundraðmannaheUi, skammt frá
bænum Pulu í Holtum, til þess að
geyma þar til kristUeg greftrun gæti
farið fram en þegar sóttin harðnaði
og mannfeUir var orðinn slíkur að
því varð ekki við komið hafl verið
brugðið á það ráð að loka fyrir heU-
ismunnann. Upp úr þessu mun hafa
komið upp þvílíkur draugagangur
að Pulu að bærinn var fluttur um
rúman kUómetra í burt þar sem
hann nú stendur.
Línuhönnun býðst til að leggja
fram mannskap tU leitar með jarð-
sjánni ókeypis en óskar eftir að fá
greiddan kostnað við akstur og úr-
vinnslu gagna sem safnast með jarð-
sjánni. -SÁ
Atvinnuleysi í apríl:
Karlar fleiri en konur
Konur voru 45% af hópi atvinnu-
lausra í aprUmánuði sl. en karlar
55%. Alls voru þá 5.500 manns án
vinnu, samkvæmt vinnumarkaðs-
könnun Hagstofunnar. Karlar voru
3.000 en konur 2.500.
Af þessum hópi voru aUs 3.700
skráðir atvinnulausir, þar af voru
karlar 2.100 en konur 1.600. Aðrir at-
vinnulausir utan atvinnuleysis-
skrár voru 1.900, þar af voru karlar
900 og konur 1000.
í vinnumarkaðskönnun Hagstof-
unnar er fylgt skilgreiningum Al-
þjóða vinnumálastofnunarinnar en
Hi atvinnylaiisra
- eftir kynjum april 1996-
samkvæmt þeim telst fólk vera at-
vinnulaust ef það hefur ekki at-
vinnu og hefur: a) leitað sér að
vinnu undanfamar fjórar vikur, b)
hefur fengið vinnu en ekki hafið
störf, c) bíður eftir að vera kallað til
vinnu, d) hefur gefist upp á að leita
sér að vinnu en er tilbúið að hefja
störf innan tveggja vikna, bjóðist
starf.
Námsmenn, þeirra á meðal iðn-
nemar án námssamnings, teljast því
aðeins atvinnulausir hafi þeir leitað
sér að atvinnu meðfram námi und-
angengnar flórar vikur. -SÁ
Vinnumarkaðskönnun Hagstofunnar:
18% án vinnu skemur en mánuð
- aðeins konur í þeim hópi sem telja vinnuleit vonlausa
Skipting atvinnulausra
Telja enga vlnnu að fá
3%
Leltað 2 ár eða lengur
8%
Leitað 12-23 mánuðl
12%
Leitað 6-11 mánuðl
11%
■ eftir lengd atvinnuleitar í apríl 1996 -
Ekkl tllgreint
Leltað 3-5 mánuðl
27%
DV
62% þeirra 5.500, sem voru atvinnu-
lausir í apríl sl., höfðu þá verið í at-
vinnuleit í allt að hálft ár. 27% hópsins,
eða 1500 manns, höfðu þá verið að leita
sér að vinnu í þrjá til flmm mánuöi.
Alls voru, samkvæmt skilgreining-
um og niðurstöðum vinnumarkaðs-
könnunar Hagstofunnar, 5.500 at-
vinnulausir. Þar af voru konur 2.500
en karlar 3.000. Áætlaður flöldi karla
og kvenna, sem leitað höfðu sér að
vinnu í innan við einn mánuð, var
jafn, eða 500.
Þeir karlar, sem leitað höfðu að
vinnu í 1-2 mánuði, eru taldir hafa
verið 600 en konur 300. Þeir karlar,
sem leitað höfðu að vinnu 3-5 mánuði,
teljast vera 700 en konur 800. Tölurn-
ar snúast við hjá því fólki sem hefur
leitað að vinnu 6-11 mánuði. Þar eru
karlar taldir 400 en konur 200. Karlar,
sem leitað hafa í 12-23 mánuði, teljast
vera 400 en konur 300 og karlar, sem
leitað hafa í tvö ár eða lengur, eru 300
og konur 200.
í þeim hópi, sem virtist hafa lagt
árar í bát og taldi alls enga vinnu að
fá yfirleitt, voru engir karlar en hins
vegar 100 konur.
Tekið skal fram að um áætlaðar töl-
ur er að ræða og frávikshlutfall er
áætlað vera yfir 20%. -SÁ
Tekið er við smáauglysingum
til kl. 22 í kvöld
oVtt Iýlli Nrn/ns
Smáauglýsingar