Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Side 21
MIÐVIKUDAGUR 17. JULI1996
41
Myndasögur
skrökvuðum
að þéf! Við
náðum þeim
ekki! Þau
sluppu frá
okkur fyrir
mðfgum
vikuml
Fréttir
Þeir voru að veiða í Búðardalsá og fékk Guðmundur Smári Gunnarsson
fyrsta flugulaxinn sinn, 10 pund, en Ingi Lárusson maríulaxinn sem var 5
pund. DV-mynd Lárus Karl
Hítará á Mýrum:
50 laxar
komnir
„Veiðin gengur ágætlega í Hítará
þessa dagana enda vanir veiðimenn
að renna fyrir fiskinn. Núna eru
Gulli Bergmann og félagar við veið-
ar,“ sagði Bergur Steingrímsson hjá
Stangaveiðifélagi Reykjavíkur í
gærkvöld.
„Áin hefur gefið 50 laxa og 8 hafa
veiðst síðasta sólahringinn. Laxinn
er að ganga fyrir alvöru núna.
Stóra-Laxá í Hreppum hefur gefið
100 laxa á þessari stundu en svæði
eitt og tvö hefur gefið best, liklega
55 laxa. Veiðimenn voru að koma úr
Miðá með 55 bleikjur. Það hafa
veiðst 255 bleikjur og 8 laxar. Bleikj-
an er að koma en eitthvað hefur sést
af laxi. Laxarnir veiddust ofarlega í
ánni, rétt fyrir neðan Selfossinn,"
sagði Bergur enn fremur.
Norðurá í Borgarfirði á ekki
langt í 1000. laxinn enda gengur
veiðin ágætlega í henni. Spurningin
núna er bara hvort hann veiðist á
aðalsvæðinu eða Munaðamessvæð-
inu, sem hefur gefið vel síðustu
daga. Hver skyldi veiða hann?
Búðardalsá hefur
gefið um 20-laxa
„Núna eru komnir á milli 15 og 20
laxar á land og hann er 12 pund sá
stærsti. Það hefur sést heilmikið af
fiski, sérstaklega í Arnarfossinum,"
sagði Sigurður Sigurjónsson í gær-
kvöld.
„Laxarnir hefðu mátt vera
ákveðnari að taka agn veiðimanna
en þetta kemur allt. Það er stækk-
andi straumur og fleiri fiskar að
koma,“ sagði Sigurður enn fremur.
Korpa blá af laxi
„Við fengum laxa en ekki mikið.
Það var hellingur af fiski í ánni,
mest neðst - þar var blátt af laxi,
mest í Sjávarfossinum," sagði veiði-
maður sem var að koma úr Korpu í
vikunni.
„Ég held að það séu komnir næst-
um 200 laxar á land og sums staðar
í ánni eru margir laxar. Veiðimenn
sem voru daginn á undan okkur
á þurrt
veiddu 16 laxa,“ sagði veiðimaður-
inn enn fremur.
FUSION
LINANER
FRABÆR
NYJUNG
aukaafslátt af
smáauglýsingum
DV
aWt milll hirr)jn<
V.
Smáauglýsingar
Hjúpuö lína, samsett úr 120
microþráöum, miklu sterkari,
hnýtist mjög vel, aflagast ekki,
taerist ekki, þolir núning,
teigist ekki, mun léttari,
höggþolin, endisi lengur og
gefur 20% lengri köst.
Kynntu þér málið á næsta
sölustað.
NÝJA FUSION LÍNAN ER
FRAMTÍÐiN.
Sportvörugerðin
Heildsala-smásala
Mávahlíð 41, Rvík, sími 562-8383