Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Síða 24
44
MIÐVIKUDAGUK 17. JULI 1996
M
Gagnrýnendur og áhorfendur
eru ekki á einu máli um ágæti
Stone Free.
Hyllingin miss-
ir áhrifa-
máttinn
„Standandi lófaklapp" er mjög
ofnotað eins og margt annað í
eftirhermum manna á útlendum
siðum. Um það fer eins og annað
að það missir áhrifamátt sinn ef
tilefnið stendur ekki undir hyll-
ingunni. Sjaldan hefur mér þótt
tilefnið fjær því en i þetta sinn.“
Gunnar Stetánsson, í leikdómi
um Stone Free, í Tímanum.
Ummæli
Er nýsköpunin
týnd?
„Er viljinn til nýsköpunar
endanlega týndur eða þarf
kreppu til að yfirvöld vakni aft-
ur?“
Gunnlaugur M. Sigmundsson,
ÍDV.
Atómskáldið
Jónas
„Jónas Hallgrímsson var
atómskáld.“
Atli Heimir Sveinsson, í Al-
þýðublaðinu.
Hæpin niðurstaða
„Að líkja öllum aðgerðum sem
ekki hafa heppnast vel við mis-
tök gera fáir aðrir en talsmenn
Lífsvogar."
Ólafur Ólafsson landlæknir,
ÍDV.
Björn Thoroddsen er þekktastur ís-
lenskra listflugmanna.
Listfiug
Listtlug er tilkomumikil sjón
og ekki er hægt að halda flugsýn-
ingu nema listflug sé sýnt. Fyrsta
listflugsatriðið er almennt talið
þegar Célestin-Adolphe Pégoud
stýrði Bleriot-flugvél á hvolfi yfir
Buc í Frakklandi 21. september
1913. Þess ber þó að gæta að Peter
Nikolayevich Nesterov hjá keis-
aralegu rússnesku flugþjónust-
unni fór lykkjur á Nieuport IV
einþekju yfir Kiev 27. ágúst 1913.
Lengsta flug á hvolfi er 4 klst. 9
mín. og 5 sek. Sá sem þetta gerði
var John „Hal“, McCain sem
flaug á Swick Taylorkraft yfir
Houston International Raceway í
Texas 23. ágúst árið 1980.
Blessuð veröldin
Heimsmeistarakeppni
Heimsmeistarakeppni í svif-
flugi hefur verið haldin annað
hvert ár frá 1960 (nema 1974).
Stigagjöf er byggð á kerfi Spán-
verjans José Aresti. Keppendur
verða að sýna tvö skylduatriði og
tvö atriði eftir eigin vali. Sovét-
menn hafa oftast unnið sveita-
keppnina en eini maðurinn sem
hefur orðið heimsmeistari tvisvar
er Petr Jirmus frá Tékkóslóvakíu.
Hann sigraðu 1984 og 1986.
Fer að rigna vestanlands
Yfir Bretlandseyjum er víðáttu-
mikil 1034 millíbara hæð. Við Hvarf
er 1003 millíbara lægð, sem þokast
austnorðaustur og grynnist.
Áfram verður suðlæg átt á land-
Veðrið í dag
inu, víðast aðeins kaldi en stinn-
ingskaldi á stöku stað vestanlands
þegar líður á daginn. Á Suðvestur-
og Vesturlandi má búast við dálítilli
súld í fyrstu en rigningu síðar í dag
en annars staðar verður þurrt og
lengst af bjartviðri. Við suðaustur-
ströndina verður þó þokuslæðingur
í fyrstu. Hiti verður 10 til 16 stig
sunnan- og vestanlands en allt upp í
20 stig norðaustan- og austanlands
yfir hádaginn.
Á höfuðborgarsvæðinu verður
sunnan- og suðaustangola eða kaldi
og úrkomulítið í fyrstu en sunnan-
kaldi og rigning með köflum síðar í
dag. Stinningskaldi og talsverð rign-
ing 1 nótt. Hiti 11 til 14 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 23.18
Sólarupprás á morgun: 3.50
Síðdegisflóð í Reykjavík: 19.40,
stórstreymi.
Árdegisflóð á morgun: 08.00
Veðriö kl. 6 í morgun:
Akureyri
Akurnes
Bergsstaöir
Bolungarvík
Egilsstaöir
Keflavíkurflugv.
Kirkjubkl.
Raufarhöfn
Reykjavik
Stórhöföi
Helsinki
Kaupmannah.
Ósló
Stokkhólmur
Þórshöfn
Amsterdam
Barcelona
Chicago
Frankfurt
Glasgow
Hamborg
London
Los Angeles
Lúxemborg
Madríd
Mallorca
París
Róm
Valencia
New York
Nuuk
Vín
Washington
Winnipeg
skýjað 16
þoka 10
skýjaö 16
léttskýjaö 12
léttskýjaö 14
súld 11
alskýjaö 13
skýjaó 14
rigning 13
súld 10
skýjaó 13
skýjað 13
skýjað 15
hálfskýjað 14
skýjaö 11
skýjaö 13
mistur 22
skýjað 24
léttskýjaö 12
heiöskírt 9
skýjaö 12
léttskýjaö 12
alskýjaö 19
léttskýjaö 11
heiðskírt 17
hálfskýjaö 20
léttskýjaö 14
þokumóða 21
léttskýjaö 20
heióskírt 27
skýjaö 7
léttskýjaö 15
léttskýjaö 24
þrumuveður 20
Ágúst H. Bjarnason, grasafræðingur og ritstjóri Stóru garðbókarinnar:
Frá stofunni í sumarbústaðalandið
„Það var Jóhann Páll Valdi-
marsson hjá Forlaginu sem réðst í
þetta mikla verk og fékk mig til að
ritstýra útgáfunni. Það var strax
ljóst að ekki þýddi að þýða útlenda
garðyrkjubök því aðstæður hér á
landi eru svo ólíkar því sem er
annars staðar. Það var fengiö leyfi
til að nota breska garðyrkjubók að
fyrirmynd í sambandi við efnis-
röðun og efnistök. Þegar þetta
leyfi var fengið var fyrst hægt að
fara að semja bókina," segir Ágúst
H. Bjamason, grasafræðingur og
aðalritstjóri Stóra garðbókarinn-
ar, sem nýkomin er út.
Ágúst byrjaði á verkinu fyrir
þremur árum. „Ég var alveg einn
Maður dagsins
vetrn- við bókina en kenndi annars
með vinnu við bókina. Ég hef
einnig haft góða aðstoðarmenn
með mér, þá Þorvald Kristinsson,
sem sá um samræmingu, uppröð-
un og útlit, og Óla Val Hansson,
sem las yfir með tilliti til íslenskra
aðstæðna. Það var mikil ná-
kvæmnisvinna að setja saman
þessa bók; það var margfarið yfir
kaflana og þeir bornir undir sér-
Agust H. Bjarnason.
fræðinga áður en fullklárað var.“
Ágúst segir það mikinn léttir að
verkinu sé lokið og að hann sé
ákaflega sáttur við útkomuna. „Ég
verð nú að segja að prentun of allt
útlit er framar öllum vonum og
hafa þeir leyst vel af hendi verk
sitt í prentsmiðjunni Odda.“
Aðspurður hvort vöntun hafi
verið á riti sem þessu sagði Ágúst:
„Það hafa verið gefnar út tvær al-
hliða bækur um sama efni, Garðar
og gróður, eftir Ingólf Daviðsson
og Ingimar Óskarsson og Skrúð-
garðabókin, sem Óli Valur Hans-
son ritstýrði, en það eru tveir til
þrír áratugir síðan þessar bækur
komu út og því var orðin vöntun á
bók sem fylgdi tímanum. Að vísu
hafa verið gefnar út á síðari árum
bækur um þetta efni en þær hafa
allar verið sérhæfðar. Stóra garð-
bókin spannar aftur á móti allt frá
stofunni til sumarbústaðalands-
ins, það er að segja stofuplöntur,
garðskálaplöntur, gróðurhús,
garðplöntur, matjurtir og krydd-
jurtir. Þá er fjallaö um jarðveginn
hér á landi, áhrif veðráttunnar á
plöntur og mannvirki í garðinum,
svo eitthvað sé tint til.“
Ágúst sagði að bókin væri fyrst
og fremst hugsuð sem rit fyrir al-
menning: „Hún er alveg jafnt fyrir
þá sem eru að stiga sín fyrstu
skref í garðyrkjunni og þá sem eru
komnir lengra og fræði er það
mikil í bókinni að hún getur alveg
nýst sem kennslubók."
Ágúst H. Bjarnason er kennari
við Menntaskólann við Sund. Eig-
inkona hans er Sólveig Sveinsdótt-
ir og eiga þau tvo drengi.
-HK
Myndgátan
Vel á vegi staddur
Myndgátan hér að ofan lýsir orðasambandi
A hefur sýnt það í Evrópukeppnum
að liðið á fullt erindi í þær.
ÍA mætir
Sileks
Tvö íslensk knattspyrnulið
verða í sviðsljósinu í kvöld, en þá
fara fram fyrstu leikimir í þeim
Evrópukeppnum sem íslendingar
taka þátt í. Á Akranesi leika
heimamenn í ÍA gegn Sileks frá
Makedóníu. Lið þetta er óþekkt
stærð en er örugglega sterkt þar
sem Makedóniumenn eiga á að
skipa ágætu landsliði eins og ís-
lendingar hafa fengið að kynnast.
ÍA, sem hefur verið íslandsmeist-
ari undanfarin ár, er heldur ekk-
íþróttir
ert smálið og sýndi heldur betur
klærnar um síðustu helgi þegar
það vann Fylki 9-2. Mótherjarnir
verða erfiðari í kvöld, en víst er að
sigurlíkur Skagamanna eru góðar
hér heima, en róðurinn gæti orðið
erfiður i útileiknum.
Leikur ÍA og Sileks hefst kl.
20.00 í kvöld, en kl. 15.00 að okkar
tíma leika Vestmannaeyingar í
Eistlandi gegn Lantana. Eyjapeyj-
arnir hafa verið misgóðir það sem
af er sumri, en vonandi hitta þeir
á góðan dag og þá eru þeir til alls
vísir. Hér heima er einnig leikið í
3. og 4. deild í kvöld. Á Kópavogs-
velli kl. 20.00 leika HK og Grótta í
3. deild og iH mætir Létti á Ásvelli
kl. 19.00 í 4. deild.
Bridge
Góðir varnarspilarar reyna sifellt
að villa um fyrir sagnhafa og nota til
þess hvert tækifæri. Stöður sem koma
upp í vörninni, þar sem hægt er að
leiða sagnhafa á villigötur, eru ótal-
margar og oft erfitt fyrir varnarspilar-
ann að koma auga á þær allar. Aðrar
stöður eru augljósari og sáraeinfalt
mál að beita þeim við borðið. Hér er
ein af þessum einföldu stöðum, sem
flestir þekkja. Hún felst í því að varn-
arspilari reynir að losa sig sem fyrst
við þau spil sem sagnhafi veit að hann
á. Sagnir ganga þannig, suður gjafari
og NS á hættu:
* G953
44 86
D106
* KG97
4 107
«4 K542
KG2
* 6542
N
V A
S
4 AKD
4* Á93
♦ Á953
* D103
4 8642
44 DG107
♦ 874
* Á8
Suður Vestur Norður Austur
14 pass 1* pass
2 grönd pass 3 grönd p/h
Tveggja granda stökk suðurs lofar
18-19 punkta jafnskiptri hendi og
norður lyftir í þrjú grönd. Vestur
byrjar vel þegar hann ákveður að
spila frá háspilum sínum í laufi. Fjór-
um slögum síðar er vörnin búin að
hreinsa upp litinn og vestur kýs að
spila sig út á hjarta. Eina von sagn-
hafa nú er sú að tígullinn gefi 4 slagi.
Það virðist vera einfalt mál, því
drottningin liggur fyrir svíningu. En
vestur á þennan klassíska möguleika
að villa um fyrir sagnhafa. Suður
svínar strax tígulgosanum og tekur
síðan kónginn. Vestur þekkir þessa
stöðu og hendir drottningunni í kóng-
inn. Nú eru góðar líkur til að suður
svíni tíguhiíunni, enda austur líklegri
til að vera lengri í tígli, heldur en
vestur (vestur átti 4 lauf en austur að-
eins tvö). Ef vestur setur hins vegar
tígultíuna í kónginn, getur sagnhafi
ekki farið vitlaust í spilið.
ísák Örn Sigurðsson