Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Blaðsíða 25
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ 1996
45
*
DV
Hús og rústir frá Miðjaröarhafs-
svæöinu eru viöfangsefni Gun-
illu á sýningunni í Mokka.
Hús
Um síðustu helgi var opnuð
sýning á verkum eftir Gunnillu
Möller á Mokka. Sýningin ber
heitið Hús og er kveikjan hús og
rústir frá Miðjarðarhafssvæð-
inu. Gunnilla er fædd í Sviþjóð,
þar sem hún ólst upp. Árið 1960
giftist hún Birgi Möller, sendi-
fulltrúa í íslensku utanríkis-
þjónustunni, og hefúr síðan ver-
ið búsett í París og Kaupmanna-
höfn en er nú búsett í Reykja-
vík. Hún stundaði nám í mynd-
list í Kaupmannahöfn og grafík
í Myndlistaskóla Reykjavíkur.
Gunnilla hefur haldið einkasýn-
ingar og tekið þátt i samsýning-
um í Danmörku en sýningin á
Mokka er fyrsta einkasýning
hennar á íslandi.
Sýningar
í sýningarskrá segir Gunnilla
um verk sín: „Húsin sem ég
mála eru minningar liðinnar
menningar og endurminningar
ferðalaga i Miðjarðarhafslönd-
um. Minning um ilm af krydd-
jurtum, olíu og sólheitri mold.
Sterk birta og flauelsblár nátt-
himinn með blikandi stjörnum.
Heitir vindar sem fara blíðlega
um líkamann. Tíminn stendur
kyrr. Að baða sig í Miðjarðar-
hafinu er eins og að hvíla í fóst-
urvatni menningar okkar.“
Almenn
skyndihjálp
Reykjavíkurdeild Rauða
kross íslands gengst fyrir nám-
skeiði í almennri skyndihjálp.
Það hefst á morgun kl. 20 og
verður kennt til 23. júlí. Þetta
námskeið gæti hentað mörgum
sem hafa í hyggju að fara í
ferðalög um verslunarmanna-
helgina. Námskeiöið er haldið í
Fákafeni 11, 2. hæð. Þátttaka er
heimil öllum 15 ára og eldri.
Samkomur
Sóldögg á Gauk á
Stöng
Hljómsveitin Sóldögg leikur á
Gauk á Stöng í kvöld. Mun hún
meðal annars kynna efni af
nýrri plötu sem hljómsveitin
hefur sent frá sér.
Orgeltónleikar
AUa fimmtudag eru hád,egis-
tónleikar í Hallgrímskirkju frá
kl. 12-12.30 og er ókeypis á tón-
leikana. Það eru félagar úr Fé-
lagi íslenskra orgelleikara sem
leika.
Brúðubíllinn
Brúðubillinn verður með
skemmtun fyrir börn að Leið-
hömrum kl. '14 í dag.
Djass í Djúpinu:
Talið í nokkra gamla hunda
með nýjar hálsólar ___________________
Djúpið, sem er til staðar í kjallara veit-
ingastaðarins Homsins í Hafnarstræti, er
oft vettvangur djasstónleika og í kvöld
heldur Kristján Eldjárn gítarmaður tón-
leika á þessum litla en vinalega stað. Með
honum leika þeir Tómas R. Einarsson
kontrabassaleikari og Einar Scheving,
sem leikur á trommur, en hann og Krist-
ján hafa um árabil starfað saman sem
dúettinn Elding. Sérstök boðflenna
Skemmtanir
kvöldsins verður Óskar Guðjónsson ten-
órsaxófónleikari.
Á efhisskrá þeirra félaga er jafnt
basískur sem og ísúr djass en auk verka
eftir Kristján sjálfan verða fluttar tón-
smíðar manna eins og Wayne Shorter,
John Coltrane, Joe Henderson og Sting
svo einhverjir séu nefndir. Einnig verður
talið í nokkra gamla hunda með nýjar
hálsólar. Tónleikamir hefjast laust eftir
klukkan níu og er aðgangseyrir 300 kr.
Kristján Eldjárn leikur meðal annars frumsamiö efni í Djúpinu í
kvöld.
Greiðfært á
öllu landinu
Færð á helstu þjóðvegum landsins
er góð. Taka verður þó tillit til þess
að vegavinnuflokkar eru víða að lag-
færa vegi, sem dæmi má nefha leið-
irnar á Norðurlandi, Varma-
hlíð-Sauðárkrókur, Hofsós-Siglu-
fjörður og Lágheiði og þegar austar
dregur, Kelduhverfi-Kópasker og
Raufarhöfn-Þórshöfn.
Færð á vegum
Ný klæðing er víða, til dæmis á
Holtavörðuheiðinni, Þrastalundur-
Þingvellir og Raufarhöfn-Þórshöfn.
Ný klæðing getur valdið steinkasti ef
hratt er farið og ber því að aka var-
lega, það á einnig við um þar sem ver-
ið er að vinna við vegi, en þar em yf-
irleitt umferðartakmarkanir.
Ástand vega
m Hálka og snjór
án fyrirstööu
Lokaö
s Vegavinna-aögát
ra Þungfært
0 Öxulþungatakmarkanir
<E> Fært fjallabílum
Sonur Heiðar
og ísleifs
Myndarlegi drengurinn á mynd-
inni fæddist á fæðingardeild Land-
spítalans 12. júlí kl. 23.07. Þegar
Barn dagsins
hann var vigtaður reyndist hann
vera 4625 grömm að þyngd og 56
sentímetra langur. Foreldrar hans
em Heiður Hjaltadóttir og íslefur
Heiðar Karlsson og er hann fyrsta
bam þeirra.
Steve Martin leikur Bilko meö
miklum tilþrifum.
Bilko liðþjálfi
Steve Martin er meðal vinsæl-
ustu gamanleikara vestanhafs og
er Bilko liðþjálfi (Sgt. Bilko),
sem Háskólabió sýnir, nýjasta
kvikmynd hans. Mynd þessi er
endurgerð eftir vinsælli sjón-
varpsseríu sem gekk á árdögum
sjónvarps. Segir á gamansaman
hátt frá bíræfnum liðþjálfa í
landhemum sem hefur stofhað
sinn eigin her innan hersins og
þar er allt annað í fyrirrúmi en
hernaður. Fjárhættuspil, veðmál
og svartamarkaðsverslun er
stunduð undir stjórn Bilkos af
miklum móði. Gamanið kámar
þegar nýr foringi kemur í her-
stöðina, en Bilko hafði verið
valdur að því að sá foringi var
sendur til Grænlands.
Kvikmyndir
Aðrir leikarar í myndinni eru
Dan Aykroyd, Glenne Headley,
Phil Hartman og Austin Pend-
leton. Leikstjóri er Bretinn Jon-
athan Lynn. Eftir hann liggja
gamanmyndimar Nuns on the
Run, My Cousin Vinny, The
Distinguished Gentleman, Clue
og Greedy. Þekktustu verk hans
hér á landi eru þó tvímælalaust
sjónvarpsseríurnar, Já, ráðherra
og Já, forsætisráðherra.
Nýjar myndir
Háskólabíó: Bilko liðþjálfi...
Laugarásbíó: Persónur í nær-
mynd
Saga-bíó: í hæpnasta svaði
Bióhöllin: Algjör plága
Bíóborgin: Kletturinn
Regnboginn: Nú er það svart
Stjörnubíó: Algjör plága
Krossgátan
Lárétt: 1 sköss, 8 strik, 9 þjóta, 10
guð, 12 tvíhljóði, 13 úthverfan, 16
skelfing, 17 dæld, 19 málar, 20 stöng,
22 fugl, 23 gálgi.
Lóðrétt: 1 hangs, 2 rúm, 3 flas, 4
ráfa, 5 bátur, 6 skel, 7 rödd, 11
spurði, 14 siðir, 15 níska, 16 reima,
18 ónæði, 21 afa.
Lausn á síðustu krossgátu.
Lárétt: 1 písl, 5 fló, 8 óma, 9 élið, 10
lykta, 11 sa, 12 unnusta, 14 dilkur, 16
auk, 18 eima, 19 negrar.
Lóðrétt: 1 pól, 2 ímyndun, 3 sakni,
4 létu, 5 flaskir, 6 listum, 7 óða, 12
unað, 13 arar, 15 leg, 17 Ke.
Gengið
Almennt gengi LÍ nr. 146
17.07.1996 kl. 9.15
Eininq Kaup Sala Tollgenqi
Dollar 66,270 66,610 67,300
Pund 102,870 103,390 104,220
Kan. dollar 48,380 48,680 49,330
Dönsk kr. 11,5380 11,6000 11,4770
Norsk kr 10,3430 10,4000 10,3630
Sænsk kr. 9,9310 9,9850 10,1240
Fi. mark 14,5990 14,6850 14,4950
Fra. franki 13,1270 13,2020 13,0780
Belg. franki 2,1591 2,1721 2,1504
Sviss. franki 54,1900 54,4900 53,7900
Holl. gyllini 39,6200 39,8500 39,4500
Þýskt mark 44,5000 44,7300 44,2300
ít. lira 0,04356 0,04384 0,04391
Aust. sch. 6,3250 6,3640 6,2890
Port. escudo 0,4323 0,4349 0,4299
Spá. peseti 0,5261 0,5293 0,5254
Jap. yen 0,60510 0,60870 0,61380
írskt pund 106,040 106,690 107,260
SDR 96,13000 96,71000 97,19000
ECU 83,8700 84,3800 83,89000
Simsvari vegna gengisskráningar 5623270