Dagblaðið Vísir - DV - 17.07.1996, Side 28
L
TT«
tii «?!*#? að vinO°
Vinningstölur
15.7/96
KIN
FRÉTTASKOTIÐ
SI'MINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast.7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Frjálst,óháö dagblaö
MIÐVIKUDAGUR 17. JÚLÍ1996
Kajakræðarinn:
Ótrúleg
heppni að
sjá hann
- segir skipstjórinn
„Þetta var ótrúleg heppni því það
er ekkert grín að sjá svona lítið fley
úti á rúmsjó. Hann skaut upp tveim-
ur flugeldum og ég sá bara þann
seinni. Þá var strikið tekið á vininn
og hann hífður um borð,“ sagði
Halldór Steinþórsson, skipstjóri á
flutningaskipinu Daníel D., við DV í
gærkvöldi.
Skipverjar á flutningaskipinu
björguðu norska kajakræðaranum
Jan Fasting um borð í gærmorgun
um 43 sjómílur suðaustur af Kam-
banesi eftir að hann hafði sent út
neyðarkall. Fasting fór frá Seyðis-
firði á sunnudagsmorgun á leið til
Færeyja.
„Okkur finnst alveg stórfurðulegt
að menn skuli gera þetta og segir að
mínu mati mest um það hversu litla
grein þeir gera sér fyrir þeim veðr-
um sem geta orðið hér,“ sagði Hall-
dór.
Þetta er í annað sinn sem Norð-
manninum er bjargað á kajaknum
en Landhelgisgæslan sótti hann á
ísjaka við Grænland síðastliðið
sumar eftir að hann hafði lent í
hrakningum og varð næstum ís-
björnum að hráð. -sv
Anna
vélstjóri
fékk loks
vinnu
DV, Eskifirði:
„ Ég hef orðið vör við ákveðna
hræðslu hjá íslendingum, það á
ekki skylt við fordóma, held ég,
miklu frekar eins og frumbyggjar
væru að mæta hvítum manni í
fyrsta sinn. Ég hef sent inn 65 um-
sóknir um störf síðan ég kom heim
frá Svíþjóð en viðbrögðin hafa verið
engin. Mér fmnst notalegt að hér á
Eskifirði er ég velkomin til starfa,"
sagði Anna Kristjánsdóttir, sem fyr-
ir liðlega ári lét breyta sér úr karl-
manni í konu.
Hún hefur nú verið ráðin afleys-
ingavélstjóri á skuttogarann Hólma-
tind SU en hann lét úr höfn frá
Eskifirði í gærkvöldi. Anna, sem
hét áður Kristján Gunnar Kristjáns-
son, er með ótakmörkuð réttindi
sem yfirvélstjóri og hefur áralanga
reynslu að baki í því starfí. Það var
einmitt vegna umfjöllunar DV að út-
gerðarstjóra togarans fannst tilvalið
að leita til Önnu. -ET/RR
Veiöieftirlitsmenn á Flæmska hattinum:
Eftirlitsmaðurinn
skráður vélavörður
- Fiskistofa segir hann launalausan hjá útgerðinni
Athæfl veiðieftirlitsmanns
Fiskistofu, þegar veiðieftirlits-
maður var i fullu starfi á togaran-
um Kolbeinsey samtímis því sem
hann var um borð sem veiðieftir-
litsmaður, virðist ekki vera eins-
dæmi því að annar veiðieftirlits-
maður, sem var um borð í einum
Vestfjarðatogaranna sem var að
rækjuveiðum á Flæmska hattin-
um í maímánuði í vor, var jafn-
framt lögskráður á togarann sem
vélavörður í þá 18 daga sem veiði-
ferðin stóð, eða frá 8. maí til 26.
maí sl.
„Hann var hálfpartinn vélaður
til að vinna ákveðin störf um borð
en það voru engin laun inni í því
dærni," segir Hilmar Baldursson,
lögmaður Fiskistofu. Hann segir
að útgerðinni og manninum hafi
verið veitt tiltal vegna þessa máls,
sem hafi komið upp vegna þess að
réttindamann hafí á síðustu
stundu vantað um borð, að því er
sagt sé.
Starfsemi veiðieftirlitsmann-
anna byggist á samþykkt N-Atl-
antshafsveiðinefndarinnar frá þvl
í september 1995 um veiðar á
Flæmska hattinum en allar þjóð-
ir, sem þar veiða, samþykktu jafn-
framt að kosta þetta eftirlit sjálf-
ar.
Norðmenn fóru þá leið að ráða
kanadískt einkafyrirtæki til að
annast eftirlitið á þeirra vegum
en íslendingar að gera það sjálfir
og var Fiskistofu falið að ráða eft-
irlitsmenn með veiðunum. Að
sögn Hilmars Baldurssonar, lög-
manns Fiskistofu, kom í ljós að
kostnaður af því að hafa íslenska
eftirlitsmenn um borð í íslensku
skipunum reyndist svipaður og ef
farin hefði verið sama leið og
Norðmenn fóru.
Eftirlitsmennimir um borð í
skipunum á Flæmska hattinum
em nokkurs konar lögreglumenn
sem gæta að því að afli sé rétt
skráöur og veiddur með löglegum
veiðarfærum. Hilmar Baldursson,
lögmaður Fiskistofu, segir að það
geti á engan hátt farið saman að
eftirlitsmenn þessir séu samtímis
á launum hjá viðkomandi útgerð-
um eða í starfl um leið. Hilmar
segist ekki hafa haft spumfr af
öðram dæmum sama eðlis og af
eftirlitsmanninum sem var um
borð í Kolbeinseynni. Hins vegar
hafi komið upp nokkur dæmi um
einhverja svona leiki í sambandi
við þá eftirlitsmenn sem eru ein-
hvers konar réttindamenn. -SÁ
Anna Kristjánsdóttir komin í vélstjóragallann og í góðum félagsskap á milli yfirvélstjórans, Björgólfs Lárussonar (til
vinstri), og skipstjórans, Steingríms Jóhannssonar, stuttu áður en togarinn Hólmatindur lét úr höfn.
DV-mynd Emil
Húsráöanda
ógnað
meö hnífi
Manni var ógnað með hnífl þegar
hann kom heim til sín um hálfátta-
leytið i morgun. Maðurinn hafði
verið flarverandi frá heimili sínu í
rúman sólarhring en þegar hann
kom heim til sín voru ókunnugir
menn í íbúð hans í Unufelli. Hann
reyndi að fá mennina til að fara út
en þeir ógnuðu honum með hnífi.
Húsráðandi hljóp þá út og hringdi
í lögregluna úr nágrannahúsi. Þeg-
ar lögregla kom á vettvang vora
mennimir horfnir. Töluverðar
skemmdir voru unnar á íbúðinni en
ekki var vitað í morgun hvort ein-
hverju hafði verið stolið. Lögregla
leitaði mannanna í morgun. -RR
Hvalflarðargöngin:
Samningar
í uppnámi
„Þær launatölur sem verið var
að ræða um í gær era fullkomlega
óviðunandi fyrir iðnaðarmennina.
Þau laun eru undir meðallaunum
sem greidd eru á markaðnum í dag.
Þess vegna slitnaði upp úr viðræð-
um og við gengum út,“ sagði Helgi
R. Gunnarsson, skrifstofustjóri Raf-
iðnaðarsambandsins, í samtali við
DV í morgun.
„Við getum sætt okkur við þær
launatölur sem þama er verið að
ræða um. Við höfum skýrt Vinnu-
veitendasambandinu frá því að við
séum tilbúnir til að halda viðræðun-
um áfram en höfum ekki fengið
svar við því,“ sagði Snær Karlsson
hjá Verkamannasambandinu.
„Við lögðum upp í þetta verkefni
með það fyrir augum að gera einn
vinnustaðasamning, sem tæki til
allra starfsmanna. Með því töldum
við okkur vera að tryggja öryggi um
verkframkvæmdina. Það tekst ekki
ef iðnaðarmennimir hlaupa burtu
eins og þeir virðast hafa gert. Um
framhaldið vil ég ekkert segja. Við
munum ræða það í dag og svara síð-
an Verkamannasambandinu," sagði
Þórarinn V. Þórarinsson, fram-
kvæmdasdtjóri Vinnuveitendasam-
bandsins, -S.dór
Siysí
togara
Þyrla Landhelgisgæslunnar sótti
í gær sjómann sem slasast hafði um
borð í spænskum togara um 210 míl-
ur suðaustur af Reykjanesi. Hann
var í lífshættu þegar komið var á
Sjúkrahús Reykjavíkur i gærkvöldi
og gekkst þegar imdir aðgerð. Hann
var á gjörgæslu í morgun. -sv
HANN HEFUR VERIÐ
VÉLAÐUR TIL AÐ VINNA!
Veðrið á morgun:
Stinnings-
kaldi
Á morgun verður suðvestan
kaldi eða stinningskaldi á land-
inu. Súld eða rigning verður
sunnan- og vestanlands en
þurrt og sums staðar bjart veð-
ur á Norðaustur- og Austur-
landi. Hiti verður á bilinu 10 til
20 stig, hlýjast á Norður- og
Austurlandi.
Veðrið i dag er á bls. 44
Ertu búinn að panta?
JS ÍS/S
dagar
til Þjóðhátíðar
FLUGLEIDIR
Innanlandssími 50 - 50 - 200