Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Page 9
D¥ FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996
Sauðárkrókur er fallegur bær.
Sauðárkrókur:
Upphafshátíð
afmælisárs
Já, það verður hvorki meira né
minna en heilt ár tekið undir af-
mælisveislu Sauðárkróks. Nú í ár
eru liðin 125 ár frá því að byggð fór
að rísa þar og á næsta ári verða lið-
in 140 ár frá því að Krókurinn varð
verslunarstaður, 90 ár frá því hann
varð sérstakt sveitarfélag og 50 ár
frá því hann varð kaupstaður. Upp
á þetta skal haldið.
Fjörið byrjar um helgina þegar
fánar verða dregnir að húni kl. 8.00
í fyrramálið. Eftir það verður stans-
laus dagskrá alla helgina og ýmsir
skemmtikraftar mæta til leiks. Til
dæmis má nefna Karlakórinn
Heimi, Eirík Hauksson, Magnús
Kjartansson, Brúarkvintettinn og
Álftagerðisbræður. Farið verður í
gönguferð, golfmót og héraðsmót í
frjálsum íþróttum verða haldin og
myndlistarsýningar opnaðar. Að
sjálfsögðu verður bryggjuball um
kvöldið þar sem Herramenn munu
leika fyrir dansi.
Á sunnudag verður einnig fjöl-
breytt dagskrá sem' inniheldur til
dæmis Karneval, hópreið hesta-
manna og hátíðarmessu. Auk þess
verður frítt í sund alla helgina, úti-
markaður, leiktæki fyrir yngri kyn-
slóðina og bátar á Áshildarholts-
vatni.
-ilk
Hátíð í Skálholti
Það er ekki bara Þorláksmessa á
jólunum. Á sumrin er líka messa
heilags Þorláks og þá verður að
venju haldin hátíð í Skálholti.
Á morgun kl. 16.00 verða tónleik-
ar í Skálholtskirkju. Þar frumflytur
Skálholtshátíðarkórinn, ásamt ein-
söngvuram og blásarasveit, brot úr
tveimur Skálholtskantötum eftir
Karl O. Runólfsson og Sigurð Þórð-
arson. Þessar tvær kantötur voru
samdar fyrir Skálholtshátíðina árið
1956 þegar ininnst var 9 alda afmæl-
is biskupsstóls í Skálholti. Verk
þessi týndust en fundust síðar við
tiltekt í Þjóðarbókhlöðunni.
Skálholtskórinn er söngfólk úr
öllu hinu foma biskupsstifti Skál-
holtsstóls. Einsöngvarar verða Loft-
ur Erlingsson og Þórunn Guð-
mundsdóttir.
Á sunnudag verður hátíðarmessa
með þátttöku Skálholtshátíðarkórs-
ins í Skálholtskirkju kl. 14.00.
Stjórnandi kórsins er Hilmar Örn
Agnarsson, dómorganisti í Skál-
holti.
-ilk
Eitt sinn skáti, ávallt skáti.
Landsmót skáta
- Á víkingaslóð
Á sunnudaginn verður sett
landsmót skáta að ÚLfljótsvatni.
Yfirskrift mótsins er Á víkinga-
slóð og þátttaka verður meiri en
nokkru sinni fyrr. Búist er við að
um 5 þúsund manns muni sækja
mótið að þessu sinni.
Boðið verður upp á dagskrá fyr-
ir börn og unglinga sem koma til
skammrar dvalar á mótinu og
áætlað er að ríflega helmingur
þjóðarinnar muni fylgjast með
þessu viðamikla og skemmtilega
móti.
Eins og áður sagði verður mótið
sett á sunnudag og mun það
standa til 28. júlí.
-ilk
uui helgina,
Hálandaleikar á Akranesi
Fólk sem langar að sjá sterk-
ustu menn íslands takast á í
skotapilsum ætti að skella sér
upp á Akranes á morgun. Þrátt
fyrir að Akranes verði seint talið
háfjallasvæði verða haldnir þar
hálandaleikar um helgina.
Keppt verður í ýmsum krafta-
greinum eins og steinakasti, lóða-
kasti, sleggjukasti, reiptogi og
staurakasti. Munu þetta vera
íþróttagreinar sem Skotar iðkuðu
af kappi til forna en það er
einmitt ástæðan fyrir klæðaburði
keppenda. Hálandaleikarnir á
Akranesi eru þeir fyrstu í röð sex
leika sem haldnir verða víðsveg-
ar um landið í sumar. Næstu
leikar verða í Hafnarfirði 27. júlí
en einnig verða þeir haldnir á
Akureyri, i Vestmannaeyjum,
Keflavík, Ólafsvík og á Selfossi.
Nú um helgina keppa þeir
Hjalti „Úrsus“ Árnason, Auðunn
Jónsson, Unnar Garðarsson,
Sölvi Fannar Viðarsson, Bjarki
Viðarsson og Sigurður Matthías-
son.
Hálandaleikarnir hefjast við
Skógræktina á Akranesi kl. 13 á
morgun. Þetta verður eflaust frá-
bær skemmtun fyrir alla fjöl-
skylduna og í þokkabót er frítt
inn á svæðið.
-ilk
Þeir eru bara
sætir í pilsum.
Húsavíkurdagar:
Líf og fjör um
Húsvíkingar ætla að skemmta sér
ærlega um helgina og þeir eru bún-
ir að setja niður einkar fjölbreytta
dagskrá af því tilefni. Nefha þeir
dagskrána Húsavíkurdaga og eru
herlegheitin þegar hafin.
Fílefldir aflraunamenn munu
reyna á vöðvana og heyrst hefur að
hvergi bangnirofurhugar hafl boðið
þeim byrginn. Búist er við athyglis-
verðum úrslitum. Smáhýsi Ómars
verða vígð, en það eru náðhús, og
mun heilbrigðisfullrúi verða við-
staddur. Björgunarsveitin mun
sýna klifur á kaupfélagshúsinu og
slökkviliðið kynnir nýja íþrótt-
grein, vatnsknattleik. Fyrirtæki
munu kynna framleiðslu sína og
farið verður í lunda- og hvalaskoð-
unarferðir auk þess sem haldið
verður sjóstangaveiðimót.
í kvöld og annað kvöld verða svo
skemmtanir í HlöðufellTi
um þar sem fram koma, meðá
arra, hinir sívinsælu Húsavíkur-
Greifar.
Á sunnudagsmorgun kl. 11.00
verður messa við Botnsvatn en dag-
skránni lýkur með gróðursetningu í
hrauninu og þá er ætlunin að bjóða
upp á grillaðar pylsur.
-ilk
Góð ganga
íViðey
Farið verður í gönguferð um Við-
ey eftir hádegið á morgun, laugar-
dag, og verður lagt af stað þegar
ferjan kemur til Viðeyjar klukkan
rúmlega tvö. Núna er hafin önnur
umferð í raðgöngu sumarsins og
verður að þessu sinni gengið um
Austureyna norðanverða. Skoðaðar
verða mannvistarleifar og ýmis
ummerki.
-ilk
Þær Hildigunnur Halldórsdóttir
fiðluleikari og Sólveig Anna Jóns-
dóttir píanóleikari verða með tón-
leika á sunnudaginn í Deiglunni á
Akureyri.
Hildigunnur lauk einleikara-
prófi frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík haustið 1987. Hún
stundaði svo framhaldsnám í East-
man tónlistarskólanum í Banda-
ríkjunum og lauk þaðan meistara-
gráðu árið 1992. Þá var hún ráðin
sem uppfærslumaður í Sinfóníu-
hljómsveit íslands en hún starfar
einnig með Caput-hópnum og
Camerarctica.
Sólveig, sem er Akureyringur,
lauk framhaldsnámi í Texas í
Bandaríkjunum. Hún starfar við
tónlistarkennslu og píanóleik í
Reykjavík og Garðabæ og hefur
meðal annars leikið með Sinfóníu-
hljómsveit íslands og Kammer-
sveit Reykjavíkur.
Tónleikar þeirra í Deiglunni
hefjast kl. 20.30. -ilk
um
Þingvelli
Um helgina verður boðið upp á
fjölbreytta fræðsludagskrá á Þing-
völlum. Á morgun verður farið í
labbitúr meðfram vatninu kl. 13.30
og kl. 16 verður gengið um hinn
forna þingstað og hugað að minjum
og sögu.
Á sunnudag verður barnastund í
Hvannagjá kl. 13 og svo verður
gengið að eyðibýlinu Skógarkoti.
Klukkan 14 verður guðsþjónusta í
Þingvallakirkju.
Fræðsludagskráin er ókeypis og
öllum opin.
-ilk
Hildigunnur og Sólveig.