Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Side 12

Dagblaðið Vísir - DV - 19.07.1996, Side 12
26 FÖSTUDAGUR 19. JÚLÍ 1996 myndbönd MYNDBWM tmm'jj Risaormar í Mexíkó Það virðist vera eitthvert verðbólgulögmál ríkjandi í framhaldsmyndum þar sem barátta manna við einhver óhugnanleg skrímsli eru þemað. Sem dæmi má taka muninn á Alien og Aliens og þótt hér sé um minni spámenn að ræða þá virðist sama lögmál gilda. Ef ég man rétt voru risavöxnu neðanjarð- arormarnir einungis þrír eða fjórir í fyrri myndinni en í Tremors 2 er búið að drepa svona eins og tylft af þeim eftir kortér. Alls ná þeir að drepa 28 orma áður en þeir sem eftir eru skipta sér niður í urmul af litlum illfyglum með lappir og eru þau enn illyrmislegri ef eitthvað er, þótt af viðráðanlegri stærð séu. Fyrri myndin náði að verða hálfgerður cult- smellur með því að taka sig ekki alvarlega og bjóða upp á hressi- legan hasar og ferskan gráglettnishúmor. Númer tvö reynir að leita á sömu mið en nær ekki alveg upp sömu stemningu. Meifa að segja Fred Ward virkar fremur klunnalegur þegar hann reynir að endurvinna per- sónu Earl Basset úr fyrri myndinni. Það má þó oft hafa gaman af mynd- inni þegar hún er komin á skrið. -pj TREMORS 2 AFTERSHOCKS. Útgefandi: ClC-myndbönd. Lelkstjóri: S. S. Wllson. Aöal- hlutverk: Fred Ward, Michael Gross og Helen Shaver. Bandarisk, 1996. Sýnlngartími: 95 mín. Bönnuö börnum Innan 16 ára. Kynþáttafordómar Travis er liðþjálfi i herflokki bandarískra blökku- manna og er staddur í herhúðum í Englandi í seinni heimsstyrjöldinni meðan beðið er eftir innrásinni í meginland Evrópu. Hann kemst í kynni við Maggie, eiginkonu hermanns í breska flotanum, og þau hefja leynilegt ástarsamband. Þegar eiginmaður hennar kemur svo heim og kemst á snoðir um samband þeirra fer í gang atburðarás sem opinberar kyn- þáttafordóma samfélagsins og ósveigjanlegt órétt- læti heragans. Um leið uppgötvar Maggie veikleika sína og hræðslu við fordæmingu samfélagsins. Vel er vandað til vinnubragða í myndinni án þess að verið sé að reyna að sýna nein tilþrif og leikaramir standa sig vel í nokkuð vel skrifuðum og bitastæðum hlutverkum. Þá gengur sagan vel upp og hefur sjálfsagt mikinn og þarfan boðskap fram aö færa. Myndin er afar þunglyndisleg og grimm sem einhvern veginn virkar afar fráhrindandi á sólríkum sumardögum. Þegar skammdegisþunglyndið er farið að leggjast á land- ann er ágætt að leigja svona myndir og fella tár af samúð með ógæfu- sömu fólki sem bíða hræðileg örlög. Ætli myndin hífist ekki upp um svona hálfa til eina stjörnu á veturna. -PJ THE AFFAIR. Útgefandi: Bergvík. Lelkstjóri: Paul Seed. Aöalhlutverk: Courtney B. Vance og Kerry Fox. Ensk, 1996. Sýnlngartími: 100 mín. Bönnuö bömum innan 16 ára. w ★tk Unglingahryllingur Sjö framhaldsskólanemar eru kallaðir á fund i skólastofunni þegar kennslu er lokið á föstudegi án þess að þeir fái neinar útskýringar á því. Skólastof- an reynist auð og fljótlega komast þau að því að þau eru lokuð inni. Þá finna þau illa útleikið lík þar og sjá í sjónvarpi að verið er að senda beint út frá skól- anum í vinsælum sjónvarpsþætti og er þar sagt að eitt þeirra sé morðinginn. Upphefst þá mikil hringa- vitleysa þar sem krakkarnir hlaupa um húsið og eru drepnir á hroðalegan hátt, einn af öðrum, þang- að til aðeins ein súlka er eftir. Kemst hún nokkuð áleiðis í að leysa morðgátuna og fljúgast á við morðingjann en er svo skorin á háls um leið og hún fattar hver stendur að baki hryllingnum í heimskasta lokaatriði sem ég man eftir að hafa séð. Reyndar er allur söguþráðurinn ótrúlega bjánalegur og leikararnir ömurlegir fyrir utan aðalleikonuna Lene Laub Oksen, sem er skítsæmileg. Myndin bjargar sér fyrir horn með nokkrum verulega óhugnanlegum og jafnvel nokk- uð spennandi hryllingsatriðum. Það er hægt að hafa gaman af henni með því að slökkva á heilanum. -pj LOKASTUNDIN. Útgefandi: Háskólabíó. Lelkstjórí: Martin Schmidt. Aöalhlutverk: Lene Laub Oksen og Thomas Villum Jensen. Dönsk, 1995. Sýningartíml 83 mín. Bönnuö börnum yngrí en 16 ára. ■ ■ Oskubuska og tveir prinsar ★★ Þessi mynd segir frá bræðrunum Linusi og David Larrabee. Linus er þurrprumpulegur kall sem rekur fjölskyldufyrirtækið en David er ábyrgðarlaus glaum- gosi, sem þó er við það að bæta nokkrum milljörðum i búið með því að giftast dóttur auðkýfings nokkurs. Þá kemur Sabrina heim frá París og heillar fyrst David og slðan Linus upp úr skónum. Eftir soldið grín og rómans og tár og ástarsorg leysist úr málunum og per- sónumar raða sér niður á rétta lífsforunauta, ásamt því að læra mikilvægar lexíur um það hvemig haga skuli lífí sinu, þ.e. Linus slappar aðeins af og David tekur á sig meiri ábyrgð. Söguþráðurinn er endurunninn upp úr mynd frá 1954 og er ekki ýkja merkilegur en myndin hefur hlotið allmikiö lof og verið kölluð nú- tímaævintýri. Myndin er klisja út í gegn en þessi klisja er svosum sigild svo sjálfsagt hafa margir gaman af henni. Harrison Ford er ljósi punkt- urinn í myndinni, enda er hann góður leikari og er í eina hlutverkinu sem vit er í. I ljósi persónunnar er hálfneyðarlegt að maður skuli varla taka eftir Juliu Ormond þegar hún er í mynd en hún var eiginlega áhuga- verðari sem ljóti andarunginn áður en hún fer til Parísar (Ormond með gleraugu, nördalegt hár og minni farða). -pj SABRINA. Útgefandl: CIC myndbönd. Lelkstjóri: Sldney Pollack. Aöalhlutverk: Harrison Förd, Julia Ormond og Greg Kinnear. Bandarisk, 1995. Sýningartiml: 122 mín. Leyfö ölt um aldurshópum. ndalisti vikunnar ------ 9. júlí til 15. júlí SÆTI FYRRI VIKA VIKUR Á LISTA TITILL ÚTGEF. j J TEG. 1 2 2 Ace Ventura when Nature Calls Warner -myndir j Gaman 2 Ný i ! Seven i J Myndform j j Spenna 3 1 4 ! Assassins Warner -myndir Spenna 4 3 5 "j Dangerous Minds £1 Sam-myndbönd Spenna 5 5 3 j American President j ClC-myndir j Gaman 6 4 5 J Goldeneye J Warner -myndir Spenna 7 6 7 ) The Net Skífan J Spenna 8 7 8 Usual Suspect J Sam-myndbönd í *•? 3$■ j Spenna 9 8 4 J A Walk in the Clouds J Skrfan Drama 10 9 • ' ;j 2 To Die for J J Sam-myndbönd j Spenna 11 11 j 3 ! The Scarlett Letter j Skífan Drama 12 10 3 Nixon Myndform Drama 13 13 ; io ! Nine Months j Skrfan j Gaman 14 is Ný j J 1 I .. - .; • •;;;•■•' ; ' J Losing Isaiah ClC-myndir Drama 15 15 ! 6 Hideaway Skffan 1 Spenna 16 12 j 9 { j Crimson Tide J Sam-myndbönd J Spenna 17 Ný i ; Dr. Jekyll & Ms. Hyde j Sam-myndbönd Gaman 18 ! 16 ! 7 ! Silent Fall Warner -myndir Spenna Í9 Ný ; i ! Operation Dumbo Drop ! Sam-myndbönd j Gaman 20 17 ! 6 { Suite 16 .. • ív‘J/ Háskólabíó Spenna Jim Carrey á toppnum^ flce Ventura: When Nature Calls Jim Carrey Ace er truflað- ur við hugleiðslu í afskekktu Búdd- haklaustri þar sem hann hefur leitað sáluhjálpar og huggunar eftir að hafa mistekist að bjarga lífi þvottabjamar. Sá sem truflar hann er breskur konsúll í afrísku smáríki og erindið er að fá Ace til að hafa uppi á horfinni leðurblöku sem er heilagt dýr í augum eigenda sinna, hins friðsama Wachati ættbálks. Finnist leðurblakan hins vegar ekki fljótlega þá er örlögunum storkað og stórhætta á að ættflokkastríð brjót- ist út. En til að Ace takist þetta verð- ur hann að snúa á hættulega óvini. Seven Brad Pitt, Morgan Freeman, Kevin Spacey og Gwy- neth Paltrow Lögreglumað- urinn Sommer- set, sem er um það bil að fara á eftirlaun, og eftir- maður hans hinn ungi Mills fara saman í útkall þar sem komið hefúr verið að manni einum látnum við hroðalegar að- stæður. Þrátt fyrir langa reynslu hefur Sommerset aldrei upplifað neitt í líkingu við þetta morð. Hann fer samstundis að grana að hér búi eitthvað meira að baki en í fyrstu sýnist og uppgötvar eftir aðra heim- sókn sína á morðstaðinn að hér er um að ræða aftöku sem tengist höf- uðsyndunum sjö. Granurinn verður að vissu þegar tilkynnt er um aðra aftöku og orðið „græðgi“ er málað á vegg með blóði hins myrta. Nú vita þeir að þeir geta átt von á fimm af- tökum til viðbótar og hefst nú æsispennandi leit að hinum djöful- lega morðingja sem virðist ætíð vera skrefi á undan. flssassins Sylvester Stallone og Antonlo Band- eras Robert er leigu- morðingi sem lengi hefur verið talinn sá besti. Samt sem áður hefúr hann lengi reynt að finna leiðir til að hætta. Hann verður því að taka á öllu sem hann á þegar hann verður sjálfúr skotmark leigumorðingja sem heitir Miguel. Sá býr yflr brjálæðislegum metnaði og hefur hugsað sér að verða sá eftirsóttasti en til að svo megi verða verður harrn að ryðja Robert úr vegi. Það á því mikið eftir að ganga á þegar þessir tveir fá sama verkeftiið. Þeim er báðum falið að myrða konu að nafni Electra. Robert ákveður að nota þetta tækifæri til að losna úr bransanum og ásamt Electru reynir hann að bijóta sér leið til frelsis. En fyrst þurfa þau að losna við hinn kappsama Miguel. Dangerous Minds Michelle Pfeiffer Johnson hafði lengi dreymt um að fá tækifæri til að kenna. Og þrátt fyrir að 1 I eiga fyrir höndum stöðuhækkun innan hersins eftir níu ára störf þar greip hún umsvifalaust tæki- færið þegar það gafst og gerðist kennari krakka sem kerfið skil- greindi sem vandræðabörn. Þetta voru unglingar sem lent höfðu í miklum mótbyr í lífinu, voru fyrir löngu búnir að missa trúna á fram- tíðina og treystu engum. En eftir að Johnson kom til sögunnar breyttist líf þeirra svo að um mun- aði. Henni tókst með ötulli baráttu og ótrúlegri þrautseigju að hleypa vonarneista inn í líf þeirra og blása þeim í brjóst lönguninni til að takast á við andstreymið og sigra. American President Michael Douglas og Annette Benn- ing Forseti Bandaríkjanna, Andrew Shephard, sinn- ir sínum veigamiklu störfum af kostgæfni og nýtur mikilla vin- sælda meðal fólksins í landinu. Kosningar eru í nánd og því reyn- ir enn meira á kænsku hans en venjulega því að andstæðingarnir bíða færis. Forsetinn er ekkill en þegar hin heillandi Syndey Wade kemur inn í líf hans verður hann yfir sig ástfanginn. Wade er um- hverfisvemdarsiúni sem reynir að koma góðum málefnum sínum áleiðis og þvi verður samband þeirra vatn á millu andstæðinga forsetans. Ofan á þetta bætast önn- ur erfið mál og fara skoðanakann- anir að sýna minnkandi fylgi.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.