Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Qupperneq 3
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 1996
21
I>V
íþróttir
Handbolti:
Svíarnir
skelltu
Rússum
- Þjóðverjar úr leik eftir tap gegn Egyptum
Svíar standa vel að
vígi í handbolta-
keppni Ólympíuleik-
anna eftir að hafa
unnið sigur á erki-
fjendum sínum, Rúss-
um, 22-20, í fyrrinótt.
Leikurinn var jafn
og spennandi og í
hálfleik var staðan
jöfn, 11-11.
í stöðunni 20-20
skellti sænska vörnin
í lás, Magnus Wis-
lander kom Svíum í
21-20 og Stefan
Lövgren innsiglaði
sigur Svía með marki
á lokasekúndunum.
Magnus Anderson
var markahæstur
Svía með 5 mörk og
þeir Valery Gopin og
Dmitri Torgavanov
voru með 5 mörk
hvor fyrir Rússa.
Svíar og Króatar
eru efstir og jafnir í
A-riðlinum með 6
stig en Rússar eru
með 4 stig eftir ósig-
urinn gegn Svíum.
Þessar þijár þjóðir
berjast um tvö efstu
sætin í riðlinum en
Svisslendingar, sem
tapað hafa tveimur
leikjum, eiga lítinn
möguleika á að kom-
ast áfram.
í B-riðlinum er
ljóst að Þjóðverjar,
silfurverðlaunahafar
á heimsmeistaramót-
inu hér á íslandi í
fyrra, eru úr leik í
keppninni eftir að
hafa beðið lægri hlut
fyrir Egyptum, 22-24.
Egyptar náðu mest 6
marka forskoti í síð-
ari hálfleik. Þjóðverj-
ar gripu til þess ráðs
að leika vömina
framar, tóku tvo leik-
menn Egypta úr um-
ferð og þetta her-
bragð virtist ætla að
ganga upp. Þjóðverj-
ar söxuðu smátt og
smátt á forskotið,
minnkuðu muninn í
eitt mark og fengu
tækifæri til að jafna
en markvörður Eg-
ypta sá til þess að svo
yrði ekki. Egyptar og
heimsmeistarar
Frakka standa best
að vígi í B-riðlinum
en Spánverjar eru
einnig inni í mynd-
inni í annað af tveim-
ur efstu sætunum.
Tvær efstu þjóðirn-
ar í riðlunum komast
áfram og spilað verð-
ur í kross. -GH
Línumaður Rússa, Dmiti Torgavanov, gengur hér hreinlega yfir sænska
fyrirliöann, Magnus Wislander, og skorar. Símamynd Reuter
Handbolti karla:
A-riðill:
Sviss-Kuveit .. . 33-16
Svíþjóð-Rússland . .. . . . . 22-20
Króatía-Bandaríkin . . . . . 35-27
Króatía 3 3 0 0 89-71 6
Svíþjóð 3 3 0 0 71-58 6
Rússland 3 2 0 1 83-58 4
Sviss 3 10 2 74-65 2
Bandarikin 3 0 0 3 62-89 0
Kúveit 3 0 0 3 58-96 0
B-riðill:
Spánn-Alsír . . . 20-14
Þýskaland-Egyptaland . . . 22-24
Frakkland-Brasilia . .. . . . 37-23
Frakkland 3 3 0 0 97-70 6
Egyptaland 3 3 0 0 74-58 6
Spánn 3 2 0 1 67-61 4
Þýskaland 3 1 0 2 72-66 2
Alsír 3 0 0 3 52-72 0
Brasilía 3 0 0 3 63-98 0
Þrístökk karla:
Harrison kom,
sá og sigraði
- varö annar í sögunni til að stökkva yfir 18 metra
Kenny Harrison frá
Bandaríkjunum kom, sá
og sigraði í þrístökks-
keppninni. Harrison
tryggði sér Ólympíumeist-
aratitilinn með því að
stökkva 18,09 metra. Bret-
inn Jonathan Edwards,
heimsmeistari og heims-
methafi, kom næstur með
17,88 metra og Kúbumað-
urinn Yoelbi Quesada
vann bronsverðlaunin
með 17,44 metra stökki.
Ólympíumeistarinn frá
því i Barcelona fyrir fjór-
um árum, Bandaríkja-
maðurinn Mike Conley,
varð að gera sér fjórða
sætið að góðu en hann
stökk 17,40 metra.
Sigurstökk Harrisons
var nýtt Ólympíumet og
hann er aðeins annar
þrístökkvarinn í heimin-
um sem á stökk yfir 18
metra. Þetta var kærkom-
inn sigur fyrir hinn 31 árs
gamla Harrison en hann
hafði ekki sigraði í grein-
inni síðan árið 1991.
Jonathan Edwards átti
í töluverðum vandræðum.
Fyrstu tvö stökk hans
voru dæmd ógild og því
var mikil pressa á honum
í þriðja stökkinu því ef
það hefði verið dæmt ógilt
hefði hann verið úr leik.
Edwards átti aðeins tvö
stökk gild í keppninni en
hann var óheppinn því
tvö af stökkunum sem
voru ógild voru yfir 18
metra.
Harrison átti
sigurinn skilinn
Edwards tók ósigrinum
mjög vel sem var hans
fyrsti í tæp tvö ár. „Það
var mikil pressa á mér
eftir þessi tvö ógildu
stökk í fyrstu umferðun-
um. En mér tókst að ná
silfrinu og er fyllilega
sáttur viö það. Ég held að
Harrison sé vel að gull-
verölaununum kominn og
hann á þau skilið,“ sagði
Edwards þegar úrslitin
voru Ijós.
Fyrir mótið var besti
árangur Harrisons 17,93
metrar. Hann varð heims-
meistari í greininni árið
1991 og samveldismeistari
1990 og 1994. -GH
Blak karla :
Holland-Júgóslavía . . . .:....3-6
Ítalía-Rússland ...............3-6
Kúba-Argentína ................3-6
Pólland-Búlgaría...............0-3
Bandaríkin-Brasilía ...........0-3
Suður-Kórea-Túnis .............3-0
Friálsar íbróttir:
Þrístökk karla:
Kenny Harrison, Bandar.......18,09
Jonathan Edwards, Bretl......17,88
Yoelbi Quesada, Kúbu.........17,44
Spjótkast kvenna:
Heli Rantanen, Finnlandi .... 67,94
Louise McPaul, Ástralíu......65,54
Trine Hattestad, Noregi......64,98
Fýrsta gull Finna
- Rantanen sigraöi í spjótkasti
Finnar hlutu fyrstu gullverðlaun sín á leikunum þegar hin 26 ára
gamla Heli Rantanen tryggði sér sigur í spjótkastskeppninni. Sigurkast
Rantanen mældist 67,94 metrar og náði hún því strax í fyrstu umferðinni.
Lousie McPaul frá Ástralía náði öðru sætinu með því að kasta 65,54 í síð-
ustu umferðinni og hún skaust þar með fram úr norsku stúlkunni Trinu
Hattestad sem þeytti spjótinu 64,98 metra.
Finnar hafa átt góðu gengi að fagna í spjótkasti karla í gegnum tíðina
og hafa unnið til sjö gullverðlauna á Ólympiuleikum en gullverðlaun
Rantanen voru þau fyrstu sem Finnar vinna í kvennaflokki frá upphafi.
Þótti góð í skíðagöngu
Rantanen varð i 6. sæti á Ólympíuleikunum í Barcelona fyrir fjórum
árum og varð í í 4. sæti á heimsmeistaramótinu árið 1993. Áður en hún
tók spjótkastið alvarlega stundaði hún skíðagöngu og þótti mjög efnileg á
þeim vettvangi. -GH
Rantanen með bros á vör eftir sig-
urinn í spjótkastinu.
Stelpan sló í gegn
í júdókeppninni
Sextán ára stúlka frá Suður-
Kóreu, Kye Sun, sló í gegn í
júdökeppninni aðfaranótt laug-
ardagsins. Hún var óþekkt fyrir
leikana en stóð uppi sem sigur-
vegari í léttasta flokki kvenna.
Þar vann hún Ryoko Tamura frá
Japan í úrslitaviöureign en Ta-
mura hafði unnið 84 glímur i röö
og tapaði siðast árið 1992.
Dómararnir í
beinu sambandi
Nýrri tækni er beitt í dóm-
gæslu í knattspyrnu í fyrsta
skipti á leikunum. Dómarinn og
aðstoðardómaramir eru í þráð-
lausu sambandi og geta því rætt
saman á meðan leikurinn stend-
ur yfir.
Schmidt óstöðvandi
í körfuboltanum
Oscar Schmidt, körfuknatt-
leiksmaður frá Brasilíu, er að
keppa á sínum fimmtu Ólympíu-
leikum. Schmidt er orðinn 38 ára
gamall en samt bendir margt til
þess aö hann verði stigakóngur
leikanna í þriðja skiptiö í röð.
Schmidt varö stigahæstur í Seúl
1988 og Barcelona 1992 og hann
er efstur á listanum í Atlanta
með 33,7 stig að meðaltali í leik.
Sambýlismaðurinn
fékk líka gull
Þau hafa ömgglega sofiö vel
saman, þau Kenny Harrison,
Ólympiumeistari í þrístökki
karla, og Gail Devers, Ólympíu-
meistari í 100 metra hlaupi
kvenna, í fyrrinótt. Harrison er
sambýlismaður Devers og þau
tryggðu sér Ólympiugullin tvö
nánast á sama tima á laugar-
dagskvöldið.
Hvað gerir Garcia
með Egyptana?
Egyptar hafa sýnt og sannað i
handboltakeppninni að þeir eru
til alls líklegir og margir em
farnir að spá þeim verðlauna-
sæti i keppninni. Þjálfari Egypta
er Spánverjinn Javier Garcia
Cuesta en hann þjálfaði áður
landslið Bandaríkjamanna og
stýrði liðinu í heimsmeistara-
keppninni hér á landi í fyrra.
Verður keppt í golfi
í Sydney árið 2000?
Svo gæti farið að golf yrði
keppnisgrein á Ólympíuleikun-
um sem fram eiga aö fara í Sydn-
ey árið 2000. Margir kylfingar
hafa lýst yfir þeirri skoðun sinni
að hafa golfið með á leikunum og
einn þeirra em Ástralinn Greg
Norman.
Egyptar fá
HM árið 1999
Heimsmeistarakeppnin í
handknattleik karla verður
haldin í Egyptalandi árið 1999.
Ásamt Egyptum sóttu Frakkar
um að halda keppnina og
Þjóðverjar og Svisslendingar
sendu sameiginlega umsókn.
Næsta heimsmeistarakeppni fer
fram í Kumamoto í Japan á
næsta ári.
-GH