Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Side 5

Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Side 5
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 1996 23 Iþróttir Brassar bestir i strandblakinu Brasilia átti fyrstu Ólympíumeistarana í strandblaki kvenna. Þær Sandra Pires og Jackie Silva uröu meistarar eftir sigur á löndum sínum í úrslitaleik. Þetta er í fyrsta sinn sem keppt er í strandblaki á Ólympíuleikum. Vel þótti takast til og áhorfendur streymdu á leikana til að berja léttklæddu leikmennina augum. Símamynd Reuter Bandarískur sundþjálfari: _ Sundmenn ekk' lyfjaprófaðir nægilega vel Sundmenn á ólymp- íuleikunum í Atlanta hafa ekki verið lyfja- prófaðir nægjlega vel og þvi hefur veriö góður möguleiki fyrir þá að hafa rangt við. Þetta segir bandaríski sundþjálfarinn Ric- hard Quick. „Ég held að enginn sundmaður á þessum leikum hafi verið próf- aður nægilega. Svo framarlega sem einn íþróttamaður reynir að svindla á svona stórmóti er mjög mik- ilvægt að gripið sé í taumana strax,“ sagði Quick við fréttamenn eftir að sundkeppn- inni á ólympíuleikun- um lauk. Sögusagnir hafa verið í gangi um að einhveijir sundmenn væru með óhreint mjöl í pokahominu en enginn hefiir fallið á lyfjaprófi. Breytaþarf framkvæmd lyfjaprófa Quick segir að breyta þurfti fram- kvæmd lyfjaprófa. íþróttafólk viti hvenær framkvæma eigi prófin og því þurfi að beita þeim með öðr- um hætti, taka óvænt- ar prufur af íþrótta- mönnunum ekki bara meðan á keppninni stendur heldur líka á æfingum. „Fyrir 25 árum fengum við ekki já- kvæðar niðurstöður úr lyfiaprófum en í dag vitum við að svindl er í gangi og því verður Alþjóða sund- sambandið að gera fleiri prufur. Kínverskt íþrótta- fólk hefur lengi verið grunað um lyfianotk- un og ekki síst sund- mennimir. Á þessum leikum hafa þeir ekki gert neinar rósir og hvort skýringin er að þeir hafi sagt skilið við lyf- in er ekki gott að segja. -GH — Susan O Neill frá Ástralíu og írska stúlkan Michelle Smith gengust báð- ar undir lyfjapróf eftir sigra sína og þar fannst ekkert athugavert. Amy van Dyken vann fjóra af 13 gullverðlaunapeningum Bandaríkjamanna í sundinu. Bandaríkin með flest gullin í sundkeppninni Fjögur heimsmet féllu á sund- keppni Ólympíuleikanna á móti 9 á leikunum i Barcelona fyrir fiórum árum. Belginn Frederek Deburgh- graeve sló heimsmetið í 100 metra bringusundi karla og Penny Heyns bætti heimsmetið í 100 metra bringusundi kvenna. Þá bætti Rússinn Denis Pan- kratov eigið heimsmet í 100 baksundi og bandaríska boð- sundssveitin í karlaflokki bætti heimsmetið í 4x100 metra fiór- sundinu. Rússinn Aleksander Popov skráði nafh sitt í sögu leikanna þegar honum tókst að sigra í 50 og 100 metra skriðsundi á tvennum Ólympíuleikum í röð en það hafði engum tekst áður. Ungverska stúlkan Krisztina Egerszegi vann afrek sem engum hefur tekist hingað til en hún vann sigur í 200 metra baksundi á þriðju Ólympíuleikunum í röð. Fyrsti sigur hennar i greininni var í Seúl árið 1988 en þá var hún aöeins 14 ára gömul. Bandaríkjamenn unnu til flestra gullverðlauna í sundkeppninni, alls 13 talsins. Sex þeirra komu úr boðsundi en þar voru þeir ósigrað- ir. Bandaríkjamenn geta verið bjartsýnir fyrir leikana í Sydney árið 2000 en Beth Botsford, 15 ára, sem vann gull og Amanda Beard, 14 ára, sem vann siifúr, eiga örugg- lega eftir að láta að sér kveða á þeim leikum. -GH Kúluvarp: Barnes fékk uppreisn æru Bandaríski heimsmethafinn Randy Barnes tryggði sér Ólympíumeistaratitilinn í kúlu- varpi karla með því áö varpa kúl- unni 21,62 metra. Landi hans, John Godina, varð í öðru sæti með 20,79 metra, Oleksandr Begach frá Úkraínu þriðji með 20,75 metrarítalinn Pa- olo Dal Soglio fiórði með 20,74 metra og Þjóðverjinn Oliver-Sven Buder fimmti með 20,51 metra kasti. Tryggði sér sigurinn í síöustu umferðinni Barnes tryggði sér sigurinn í sjötta og síðasta kasti sínu og fékk uppreisn æru þvi fyrir 8 árum, á Ólympíuleikunum í Seúl tapaði hann gullinu þegar Þjóðverjinn Ulf Timmerman skaust fram úr honum í síðustu umferð kúlu- varpskeppninnar. Bames, sem átti sjötta lengsta kastið eftir undankeppnina, fagn- aði gífurlega þegar hann tryggði sér sigurinn með því að skjótast fram úr heimsmeistaranum, John Godina. Godina trúði vart eigin augum og fýlan lak af honum þegar landi hans fagnaði gullinu. -GH

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.