Dagblaðið Vísir - DV - 29.07.1996, Side 10
28
MÁNUDAGUR 29. JÚLÍ 1996
Úrslitin á
Landsmótinu
Meistaraflokkur karla:
Birgir L. Hafþórsson, GL ......283
Þorsteinn Hallgrimss, GV .... 290
Björgvin Þorsteinsson, GA .... 292
Kristinn G. Bjarnason, GL .... 292
Þórður E. Ólafsson, GL ........294
Hjalti Pálmason, GR ...........295
Öm Æ. Hjartarson, GS ..........296
Sigurpáll G. Sveinsson, GA . . . 297
Friðbjöm Oddsson, GK ..........300
Bjöm Knútsson, GK..............300
Björgvin Sigurbergs, GK.......300
Guðm. R. Hallgrims, GS.........301
Viggó H. Viggósson, GR.........304
Sveinn Sigurbergsson, GK .... 304
Jón H. Guðlaugsson, GKJ .... 305
Þorkell S. Sigurðarson, GR . . . 305
Ásgeir J. Guðbjartsson, GK . . . 305
Örn Amarsson, GL...............306
Haraldur Júlíusson, GV.........306
Gunnlaugur Sævarss, GG .... 306
ívar Hauksson, GKG.............308
Styrmir Guðmunds, NK..........308
Siguröur Hafsteinsson, GR .... 309
Júlíus Hailgrimsson, GV.......309
Helgi B. Þórisson, GS ........311
Hjalti Atlason, GR.............311
Einar B. Jónsson, GKJ..........312
Tryggvi Pétursson, GR..........312
Eiríkur Guðmundsson, GR ... 313
Ingi R. Gíslason, GKG..........314
Hannes Eyvindsson, GR..........314
Þröstur Ástþórsson, GS.........315
Davíð Jónsson, GS..............316
Gunnsteinn Jónsson, GK.........317
Halldór S. Birgisson, GHH .... 317
Gunnar Þ. Halldórsson, GK . .. 319
Helgi D. Steinsson, GL.........320
Viðar Þorsteinsson, GA.........321
Ragnar Ólafsson, GR . ........321
Kristján R. Hansson, GK........326
Jens Sigurðsson, GR ..........327
Kristinn Óskarsson, GS.........337
Meistaraflokkur kvenna:
Karen Sævarsdóttir, GS.........305
Herborg Arnarsdóttir, GR .... 320
Ólöf M. Jónsdóttir, GK.........322
Ragnhildur Sigurðard., GR ... 327
Þórdís Geirsdóttir, GK.........327
1. flokkur karla:
Magnús Jónsson, GS.............300
Hörður M. Gylfason, GK .......303
Kári Jóhannsson, GKJ...........304
Sigþór Óskarsson, GV...........304
Ingólfur Pálsson, NK...........306
Ólafur M. Sigurðsson, GK .... 307
Ólafur H. Jóhannesson, GSE . . 309
Högni R. Þórðarson, GS.........311
Kristján Kristjánsson, GSE ... 311
Kristvin Bjarnason, GL.........311
Skúli Ágústsson, GA ...........312
Davíð M. Vilhjálmsson, GKJ . . 312
Sverrir Þorvaldsson, GA........312
Kári Emilsson, GKJ.............313
Sváfnir Hreiðarsson, GK........313
Brynjar Geirsson, GK ..........314
Nökkvi Gunnarsson, NK..........316
Guðjón R. Emilsson, GR ........316
tvar ö. Arnarson, GK ..........316
Steindór I. Hall, NK...........317
Júlíus Júlíusson, GR...........318
Albert B. Ellsson, GK .........319
Magnús Þórarinsson, GV ........320
örlygur H. Grímsson, GV .... 320
Hermann Baldursson, GK .... 321
Atli Aðalsteinsson, GV ........321
Jóhann Kristinsson, GR.........322
Sigurður R. Samúelss, Gt.......322
Rúnar S. Gíslason, GR..........322
Ásbjöm Garðarsson, GV .........324
Haraldur Ringsted, GA .........324
Pétur Þ. Grétarsson, GR .......324
Sigþór Sævarsson, GS ..........324
Ragnar Guðmundsson, GV .... 325
Júlíus J. Jónsson, GS .........325
Jón G. Pétursson, GG ..........326
Ingi Árnason, GB...............327
Óskar B. Ingason, GO ..........327
Magnús Guölaugsson, GJÓ ... 329
Peter Joseph, GR...............329
Gylfi Kristinsson, GS..........329
Sigurður Þ. Gunnarsson ........329
Böðvar Berþórsson, GV..........330
Jón Jóhannsson, GS ............331
Hafliði Ingason, GV............331
Ársæll Sveinsson, GV ..........331
Sigurður Sveinsson, GV.........332
Eyþór Harðarson, GV ...........333
Skarphéðinn Birkisson, GA . .. 334
Þorsteinn Þorsteinsson, GR . . . 334
1. flokkur kvenna:
Lilja G. Karlsdóttir, GK.......335
Jakobína Guðlaugsd, GV.........346
Erla Adolfsdóttir, GA..........354
Halldóra Halldórsdóttir, GF . . . 355
Magdalena Þórisdóttir, GS .... 362
Guðfinna Sigurþórsd, GS........385
DV
Iþróttir
„Gekk rosalega vel“
„Ég get ekki sagt annað en að þetta hafi gengið
rosalega vel. Það kom nánast ekkert upp á sem setti
strik í reikninginn,“ sagði Bergur Sigmundsson, for-
maður Golfklúbbs Vestmannaeyja, eftir Landsmótið.
„Hér hafa allir lagst á eitt, starfsfólkið, sjálfboða-
liðar í skálanum og úti á velli stóðu sig frábærlega.
Við í mótsnefndinni viljum þakka öllum þeim sem
lagt hafa hönd á plóginn fyrir vel unnin störf. Þá vil
ég þakka keppendum fyrir drengilegan leik og veð-
urguðunum fyrir gott samstarf," sagði Bergur Sig-
mundsson við DV eftir Landsmótið.
Sigldi á trillu sinni á
Landsmótið í Eyjum
- Magnús Jónsson, GS, sigurvegari í 1. flokki karla
Karen Sævarsdóttir, GS, varö Islandsmeistari í golfi í 8. sinn i röð um helgina í Vestmannaeyjum. Einstakur árangur
hjá þessum snjalla kylfingi sem hér fagnar sigrinum.
Áttundi meistaratitill
Karenar á átta árum
Karen Sævarsdóttir,
GS, gerði sér lítið fyrir og
varð íslandsmeistari í
meistaraflokki kvenna
áttunda árið í röð.
Þetta hefur enginn ann-
ar kylfingur leikið eftir.
Karen var í sérflokki, lék
á 305 höggum, 15 höggum
betur en Herborg Arnars-
dóttir, GR, sem varð í
öðru sæti
„Ég lék bara mitt golf,
þetta var ekkert flóknara
en það. Ég átti satt best að
segja von á mun harðari
keppni að þessu sinni því
hinar stelpurnar hafa ver-
ið að spila vel í sumar.
Þess vegna komu þessi úr-
slit mér nokkuð mikið á
óvart,“ sagði Karen i sam-
tali við DV eftir Lands-
mótið.
„Það eina sem liggur
fyrir hjá mér er að halda
áfram og sjá hvort ég fæ
ekki meiri keppni á næsta
Landsmóti. Þetta var
skemmtilegasta Landsmót
sem ég hef tekið þátt í og
vonandi verður það hald-
ið sem fyrst aftur í Vest-
mannaeyjum," sagði
Karen ennfremur.
Aðeins fimm konur
tóku þátt í meistaraflokki
kvenna og er það með
hreinum ólíkindum þegar
vinsældir golfiþróttarinn-
ar eru hafðar 1 huga. Von-
andi verða þær fleiri kon-
urnar í meistaraflokki á
næsta Landsmóti.
Magnús Jónsson, GS, kom sá og
sigraði í 1. flokki karla á Landsmót-
inu í Eyjum.
Magnús, sem er trillukarl að at-
vinnu, kom siglandi á trillu sinni til
Eyja. Hann lék frábært golf sem
hefði dugað honum til 10. sætis i
meistaraflokki karla. Magnús lék
holumar 72 á 300 höggum.
Að móti loknu sigldi hann aftur
til Keflavíkur með gullverðlaun sín
og Lundabikarinn innanborðs.
„Ég hef voðalega lítið getað æft.
Ég hef verið trillukarl undanfarin
13 ár en reyni að fara í golf þegar
færi gefst. Ég ákvað að skella mér á
Landsmótið þar sem það var bann-
helgi en ég er á aflamarki og það
gengur bara vel. Það er óhætt að
segja að vel hafi fiskast um þessa
helgi þótt með öðru móti sé en
venjulega hjá mér,“ sagði Magnús í
samtali við DV eftir mótið.
„Mótið var frábært í alla staði og
viðurgjömingur, umgjörð og völlur-
inn til hreinnar fyrirmyndar," sagði verðlaun sín afhent um borð í Herj-
Magnús ennfremur en hann fékk ólfí. Magnús lék fyrsta hringinn á 78
frábærar viðtökur þegar hann fékk höggum en þrjá næstu á 74 höggum.
Trillukarlinn Magnús Jónsson, GS, tekur við verðlaunum sínum úr hendi
Hannesar Guðmundssonar, forseta Golfsambands íslands.
Fjórum sinnum
hola í höggi
Ejórir kylfmgar fóra holu í
höggi á Landsinótinu, tvívegis í
æfingahringjum og tvívegis í
keppninni sjálfri.
Þeir sem náðu draumahögg-
inu voru Jónas H. Baldursson,
GR, í 2. flokki, Hafliði Ingason,
GV, í 1. flokki, Ragnar Ólafsson,
GR, i æflngahring og einnig Sig-
urður Gunnarsson, GJÓ.
Notaöi 15 högg
á skrímslinu
13. brautin á vellinum í Eyjum
reyndist mörgum erfið á Lands-
mótinu en sá sem fór einna verst
út úr henni var Sigurður Þór
Sveinsson, GV.
Brautina, sem af mörgum er
kölluð Skrimslið, lék Siguröur á
15 höggum. Brautin refsar
kylfmgum illilega verði þeim á í
messunni.
Og enn á teig
eftir fimm högg
Einn keppandi í 3. flokki lenti
heldur betur í vandræöum einn
daginn á 1. teignum.
Upphafshögg hans fór um þrjá
metra frá teignum. Þá reyndi
hann aö slá boltann úr slæmri
legu með járni og eftir þrjú vind-
högg skaust kúlan aftur upp á
teiginn. Þá voru höggin orðin
fimm og kappinn enn á teig.
Varasamt að blóta
með sjálfum sér
Stöð 2 hafði einkarétt á sýn-
ingum frá Landsmótinu.
Eitt kvöldið, þegar sýnt var
frá mótinu, sást kylflngur frá
Eyjum í nærmynd og var greini-
legt að hann var ekki alls kostar
ánægður með höggið skömmu
áður. Eitthvað tuldraði hann
með sjálfum sér. Þrátt fyrir að
ekkert heyrðist í kylflngnum var
ljóst að þar var ekki farið með
guðsorð.
Daginn eftir var þessum sama
kylflngi sagt að hringt hefði ver-
ið í Stöð 2 frá Félagi heyrnar-
daufra og kvartað yflr ljótum
munnsöfnuði í útsendingum
stöðvarinnar frá mótinu.
1. flokkur kvenna:
„Sá völlinn
mjög vel í
þetta sinn“
Lilja Guðríður Karlsdóttir,
Golfklúbbnum Keili, varð ís-
landsmeistari í 1. flokki kvenna.
Lilja Guðríöur lék á 335 högg-
um og hafði mikla yflrburði.
Jakobína Guðlaugsdóttir, GV,
kom næst og var hún 11 höggum
á eftir Lilju Guðrúnu. Hún sigr-
aði I 2. flokki kvenna á Lands-
mótinu á Hellu í fyrra þannig að
segja má að hún sé á hraðri upp-
leið í golfinu.
„Ég er þokkalega ánægð með
hvernig ég spilaði. Ég átti reynd-
ar ótrúleg klaufahögg inni á
milli. En mér tókst að lækka mig
í 'forgjöf. Að því stefndi ég þvf
það hefur verið óttalegt gauf á
mér upp á síðkastið. Ég tók
þessu bara létt og var ekkert að
láta þetta pirra mig þótt illa
gengi um tíma. Auðvitað stefhdi
ég að því að vinna og spila mitt
golf, eins og sagt er,“ sagði Lilja
Guðrún sem er aðeins 21 árs.
„Ég spilaði hérna í Eyjum í
fyrra. Þá sá ég eklært fyrir
svartaþoku. Það var því gaman
að sjá völlinn vel núna. Ég verð
að segja að umhverfíð og völlur-
inn eru alveg meiri háttar."
Inn á bílastæðið
Yfirdómarar Landsmótsins voru Rósmundur Jóns-
son og Frimann Gunnlaugsson. Þeir höfðu í nógu að
snúast frá morgni til kvölds en Frímann sagði að
engin meiri háttar mál hefðu litið dagsins ljós.
„Við vorum kallaðir út af minni háttar úrskurð-
um. Einu skondnu atriði man ég eftir. Á12. braut sló
keppandi út á veg. Kúlan rúllaði niður götuna og i
bíl. Þaðan fór hún inn á innkeyrslu. Ég úrskurðaði
aö boltinn væri innan svæðis og viðkomandi fengi
fría lausn. Kylfingurinn sagði að þetta hefði verið
besti úrskurður sem hann hefði orðiö vitni að.“