Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Blaðsíða 2
30 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 3D"V ínlist HLJOMPL uíIöjJjí m Sóldögg - Klám Stutt og laggott ★★★ Sóldögg er skipuð hógværum mönnum. Þeir láta þess ekki getið á upplýsingablaði með plötunni sinni, Klámi, hverjir þeir eru eða hverjir eru höfundar laga og texta á plöt- unni. Þetta er mikil óþarfa hógværð því að Sóldögg er þokkalegasta hljóm- sveit sem hefur innanborðs ágætis söngvara (sem mér finnst ég reyndar kannast við af öðrum vettvangi). Nokkrar hljómsveitir, sem eiga plötur á sumarmarkaðinum í ár, hafa brennt sig á að senda frá sér tvö til þrjú áheyrileg lög og síðan hrað- soðið, ókræsilegt efni sem uppfyllingu. Sóldögg fellur ekki í þessa gryfju. Á Klámi eru aðeins fimm lög. Platan er því stutt og laggóð, ef svo má segja. Fyrsta lagið, Slím, virkar vel og Loft, sem næst kemur, er ágætt, reyndar eitt það skásta sem völ er á á innanlandsmarkaðin- um þetta sumarið. Þá er síðasta lagið, Lísa, einnig vel við unandi. Hljómsveitir sem hafa ekkert sérstaklega mikið fram að færa mættu taka sér Sóldögg til fyrirmyndar og gefa út stutta og snarpa plötu (heildarflutningstíminn er aðeins 17:46 mínútur). Eða bíða eftir því að þær eigi nóg af frambærilegu efni til að senda frá sér plötu í fullri lengd. Ásgeir Tómasson Skítamórall - Súper ★★ Frumsamda efnið er bærilegt Skítamórall er hljómsveit sem sver sig í ætt við ijölmargar aðrar sem skjótast fram á sjónarsviðið þegar fer að vora, senda frá sér plötu og þeytast síðan um landið þvert og endilangt við danskeikjahald og hljómleika- stand. Spilamennskan er svipuð og lagasmíðarnar jafnvel líka þótt hver hljómsveit hafi náttúrlega sín sérein- kenni þegar betur er að gáð. Fi-umsamda tónlistin á Súper er al- veg bærileg. Gunnar Óla, gítarleikari og söngvari, á þrjú lög plötunnar, Addi F. Haraldz, sem sömuleiðis er gítarleikari og söngvari, á eitt og hassaleikarinn Hebbi Viðarz enn eitt. Sigurður Fannar semur flesta textana og er langt frá því að vera sá slakasti sem fæst við þess háttar smíðar um þessar mundir. Um lagasmiðar þremenninganna er ósköp fátt að segja. Þeir kunna að setja saman popplög en vantar herslumuninn sem þarf til að gera þau almennilega eftirtektarverð. Platan Súper skiptist í þrjá kafla; Stjörnupopp, Mónókaflann og Hundrað kalla. Fyrsti kafli er hinn metnaðarfyllsti og sá sem mest vinnan hefur verið lögð í. Hinir eru væntanlega látnir fylgja með til að gefa til kynna það sem áheyrendur mega búast við á dansleikjum Skítamórals. Og af þvi að sá sem þetta ritar hefur séð og heyrt til Skítamórals á tveimur dansleikjum má það vitnast að músíkin á plöt- unni er langt frá því að vera jafnhress og þegar sveitin lætur gamm- inn geisa á hressum böllum. Þeir sem fylgdust til dæmis með því hvernig Skítamórall trekkti upp fjörið á kvöldvöku pæjumótsins í Vestmannaeyjum á dögunum eru sérlega skítlega innréttaðir ef þeir viðurkenna ekki að fimmmenningarnir í hljómsveitinni kunna fylli- lega að byggja upp stemmningu á skömmum tíma. Ásgeir Tómasson ★★★ Ramsey Lewis Between the Keyes Bandariski píanóleikarinn Ramsey Lewis lék á árunum harðbop-djass og soul-djass sem svo var nefndur. Tón- list hans þótti svo lauflétt að harðir djassgeggjarar hristu bara höfuðið ef nafn hans bar á góma. Enginn efaðist þó um hæfni hans á hljóðfærið. Ramsey var einn af frumkvöðlum djass- og rokksamrunans sem fyrir aldaríjórðungi gat af sér þá tónlist sem alla jafna er nefnd bræðingur (fusion eða djassfönk). Hlaut hann fyrir það nokkra uppreisn æru. Alla tíð síðan hefur hann haldið sig á þeim nótum. Segir hann um tónlist sína að hún sé nokkurs konar þjóðlagapopp stórborga Banda- ríkjanna. Víst er að sérlegt einkenni tónlistar blökkumanna í borgum þar vestra, fönkið, er mjög ríkjandi í tónlist hans. Ljúfar laglínur og djassblúsuð píanósóló fljóta svo ofan á taktfastri hrynjandi. Tvö lög á þessum nýja geisladiski eru beinlinis popplög af ryþma- blúsætt og bæði sungin. Með þeim er augsjáanlega verið að stíla upp á spilun í útvarpi og litið um það aö segja. Eitt lag annað, Les Fleurs, er varla nógu gott til að eiga heima á diskinum og ekki hjálpar þar óvenju slappt píanósóló foringjans. Annað efni er alveg prýðilegt. Til aðstoðar ágætri hljómsveit Ramseys koma þeir píanóleikarinn Joe Sample og saxófónleikarinn Grover Washington jr. Sá síðarnefndi leikur í upphaf- slagi disksins Sun Goddess 2000. Það kom út fyrir rúmlega tuttugu árum en þá starfaði höfundur þess, Maurice White, með Ramsey og stofnaði rétt eftir það hina frægu hljómsveit Earth, Wind and Fire. Sól- argyðjan stendur enn fyrir sínu og í útsetningu sonarins, Frayn Lew- is, eitt af betri lögunum hér. Útsetningar era smartar (sic) og hljóm- burður i besta gæðaflokki. Bassatónar þó í dýpsta lagi fyrir sumarhá- talara. -Ingvi Þór Kormáksson Pönkkóngamir lifa enn - Sex Pistols senda frá sér hljómleikaplötu Æðstu prestar pönkrokks áttunda áratugarins lifa auðsjáanlega góðu lífi ennþá. Fjórmenningarnir í Sex Pistols hafa verið á hljómleikaferð um Evrópu í sumar og á mánudag- inn var sendu þeir frá sér nýja hljómplötu, Filthy Lucre Live. Þetta er hljómleikaplata eins og nafnið ber með sér, hljóðrituð á tónleikum í Finsbury Park í Lundúnum í síð- asta mánuði. Áður hafði hljómsveit- in reyndar sent frá sér smáskífu með laginu Pretty Vacant sem var tekin upp á sömu tónleikum. Finsbury-tónleikarnir voru hinir þriðju sem Sex Pistols léku á frá því að upp úr samstarfinu slitnaði í jan- úarmánuði 1978 - hinir voru í Finn- landi og Þýskalandi. í frétt frá Virg- in-hljómplötuútgáfunni segir að fjöl- mennt hafi verið á tónleikunum. Þangað hafi komið pönkarar, pönk- eftirlíkingar, ijölskyldufólk, popp- stjörnur, kvikmyndastjörnur og jafnvel einstaka ofurfyrirsætur, fólk sem vildi verða viðstatt aðalvið- burðinn í bresku rokktónlistinni á þessu ári. Hljómsveitin spilaði þarna öll sín þekktustu lög og stöku sinnum mátti heyra söngrödd Johnnys Rottens þegar honum tókst að yfirgnæfa háværan kór áheyr- endanna sem voru vel með á nótun- um þegar gamla, kröftuga pönk- rokkið hljómaði. Tónleikarnir í Finsbury Park voru sem sagt hljóðritaðir og hafði Chris Thomas yfirumsjón með því verki. Thomas er íslenskum rokkur- um að góðu kunnur. Hann hefur lagt gjörva hönd á nokkrar plötur með Nýdanskri og fleiri hljómsveit- um. Á nýju plötunni eru fimmtán lög, þeirra á meðai Pretty Vacant, sem fyrr var nefnt, og sömuleiðis God Save the Queen, Anarchy in the UK og fleiri. Meira gefið út Hin margumrædda, lofaða og lastaða LP plata Sex Pistols, Never Mind the Bollocks, var nýlega end- urútgefin í tilefni þess að Johnny Rotten, Steve Jones, Paul Cook og Glen Matlock eru byrjaðir að spila aftur saman. Endurútgáfan er sér- lega glæsileg því að gömlu plötunni fylgir platan Spunk sem mörgum gömlum Sex Pistols-aðdáendum ætti að vera að góðu kunn því að hún var ein helsta „bootleg“ platan sem dreift var með ólöglega fengnum upptökum af tónlist hljómsveitar- innar. Nú er Spunk sern sagt orðin lögleg, um það bil tuttugu árum eft- ir að hún var fyrst gefin út, ef svo má segja. Lagalisti Never Mind the Bollocks er hinn sami og í gamla daga. Hins vegar er búið að skipta út nokkrum lögum á Spunk og setja inn aðrar útgáfur sem hljóma betur en á upprunalegu plöt- unni. Þá hefur verið bætt við þremur hljóðblönd- unum Chris Speddings sem hingað til hafa ófáanlegar. Það eru út- gáfur af lögunum Probl- ems, Pretty Vacant og Feelings. Og af því að standa vart undir nafni lengur er rétt að þess að Pretty Vacant, sem gefið var út fimmt- ánda júlí, fylgja nokkur aukalög. Þau eru Bodies (sem núna heitir reynd- ar Buddies), No Fun og Chris Spedding útgáfan af Problems. Þrjú fyrst- Sex Pistols: Saman á ný eftir að hafa töldu lögin voru öll hljóðrituð á Finsbury-tónleikunum. Peningaplokk? Fjórmenningarnir í Sex Pistols tilkynntu snemma á þessu ári að þeir hefðu ákveðið að endurreisa hljómsveitina í stuttan tíma. „Ástæðan er gamalkunn," sagði Johnny Rotten við það tækifæri. „Hún er peningarnir ykkar!“ Hljómsveitin hóf eins mánaðar ferð sina um Evrópu í Finnlandi 21. júní, fór til Þýskalands daginn eftir og lék síðan 1 Finsbury Park hinn tuttugasta og þriðja. Það voru einu tónleikar Sex Pistols í heimaland- inu. Hljómsveitin er nú komin til Ameríku og verður þar í sumar auk þess sem hún skýst til Ástralíu, Japans og nokkurra annarra landa í Austurlöndum fjær. Liðsskipanin núna er hin sama og þegar Sex Pistols var stofnuð fyr- ir tuttugu árum. Glen Matlock lék hins vegar aðeins með í eitt ár. Hann var rekinn og Sid Vicious var ráðinn í hans stað. Sid lést af of- legið í dvala í átján ár. neyslu eiturlyfla árið 1979, rúmu ári eftir að hljómsveitin var leyst upp. Þótt John Lydon/Johnny Rotten og félagar hans leyni því ekki að eina ástæðan fyrir því að þeir vinna nú saman á ný sé peningar vilja þeir ekki gefa upp hve mikið þeir fá fyrir hljómleikaferðina. „Meira en Bítlarnir," sagði Rotten þegar hann var inntur eftir upp- hæðinni á sínum tíma. „Últramillj- ónir,“ bætti hann síðan við eftir dá- litla umhugsun. Ýmsum þykir það hallærislegt að gömul pönkhljómsveit, boðberar stjórnleysis og annarrar samfélags- legrar upplausnar, láti freistast af peningum til að koma saman í til- efni þess að tuttugu ár eru liðin síö- an hún var stofnuð. Fjórmenning- arnir láta það hins vegar ekki á sig fá. „Það vorum við sem skópum pönkið og við sömdum reglurnar. Það er í gamla pönkandanum að maður geri það sem honum sýnist og þess vegna komum við saman að nýju hvað sem öllum finnst um það,“ segja þeir. Og skyldu þeir enn hata hver annan eins og í gamla daga? „Já,“ svarar Johnny Rotten, „en við eigum sameiginlegt áhugamál núna - pening- ana ykkar.“ Samantekt: ÁT John Lydon/Johnny Rotten: Vib eigum okkur sameigin- legt áhugamál, peningana ykkar.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.