Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Blaðsíða 11
FOSTUDAGUR 2. AGUST 1996
iyndbönd
43
Jefferson in Paris
Mannlega hliðin á
þjóisagnakenndri persónu
Félagamir James Ivory og Ismail
Merchant hafa unnið saman að gerð
kvikmynda undir merki Merchant
Ivory Productions um langa hríð,
Ivory sem leikstjóri og Merchant
sem framleiðandi en Ruth Prawer
Jhabvala er iðulega þriðja hjólið
undir þeim vagni sem handritshöf-
undur þeirra. Samstarf þetta byrj-
aði á Indlandi og voru fyrstu mynd-
ir þeirra indverskar, þ.á m.
Shakespeare Wallah, sem hefur öðl-
ast viðurkenningu sem klassískt
verk, en þekktustu myndir þeirra
em nýlegri, óskarsverðlaunamynd-
irnar A Room with a View,
Howards End og Remains of the
Day. Jefferson in Paris er átjánda
mynd þeirra.
Mótsagnakennd sögupersóna
Eins og nafn myndarinnar gefur
til kynna fjallar Jefferson in Paris
um fimm ára timabil í ævi Thomas
Jeffersons meðan hann var sendi-
herra Bandaríkjanna í Frakklandi
1784-1789. Tveim árum áður en
Jefferson kom til Parísar með elstu
dóttur sinni hafði eiginkona hans
dáið og átta ámm áður hafði hann
samið og undirritað sjálfstæðisyfir-
lýsinguna. Frakkland og sérstaklega
París var mikill pólitískur suðupott-
ur á sendiherraárum Jeffersons og
sauð loks upp úr með frönsku bylt-
ingunni 1789. Jefferson studdi lýð-
ræðisöflin í landinu og pólitísk átök
eru áberandi í bakgrunni myndar-
innar. En aðaláherslan er þó á
Jefferson sem manneskju fremur en
sem sögulegan áhrifavald.
Jefferson var maður mikilla mót-
sagna. Hann samdi sjálfstæðisyfir-
lýsinguna, sem m.a. kvað á um að
allir menn væru fæddir jafnir, og
sagðist vera á móti þrælahaldi en
var þó sjálfur þrælaeigandi. Hann
hafði mikla samúð með fátækum al-
múganum í París en sóttist ákaft eft-
ir hámenningarlifi heimsborgarinn-
ar og kom með heilan skipsfarm af
bókum, húsgögnum, málverkum
o.fl. verðmætum hlutum með sér
heim að lokinni dvöl sinni í París.
Þar stofhaði hann til ástarsambands
við Mariu Cosway, gifta konu sem
var málari og tónlistarmaður. Á
meðan stóð hann í sambandi við
Sally Hemings, sem var þræll hans,
og er hún sögð hafa alið honum sex
hörn.
Gamalreyndur stórleikari
Það er stórleikarinn Nick Nolte
sem leikur aðalhlutverkið, Thomas
Jefferson sjálfan. Nick Nolte hefur
verið lengi í bransanum og eru tutt-
Thomas Jefferson (Nick Nolte)
ásamt þrælnum Sally Hemmings
(Thandie Newton).
ugu ár liðin síðan þessi fyrrum
ruðningsmaður lék sitt fyrsta aðal-
hlutverk í kvikmyndinni The Deep
1976. Hann hefur leikið í fjölmörgum
myndum og oft verið í hlutverki
harðjaxla, eins og útlit hans gefúr
tilefni til. En honum hefur þó einnig
tekist að öðlast viðurkenningu sem
alvarlegur leikari og reis ferill hans
hæst þegar hann fékk óskarsverð-
launatilnefningu fyrir hlutverk sitt í
Prince of Tides. Meðal annarra
þekktustu mynda hans eru Under
Fire, 48 Hours, Down and out in Be-
verly Hills og Cape Fear.
Konumar í lífi Jeffersons á þess-
um áram voru þrjár. Greta Scacchi
leikur ástkonu hans, Mariu Cosway.
Thandie Newton leikur ambáttina
Sally Hemings og Gwyneth Paltrow
leikur Patsy, dóttur Thomas Jeffer-
sons. Thandie Newton er sú þeirra
sem minnsta frægð hefur hlotið en
hún hefur þó komið fram í myndum
eins og The Young Americans og
Interview with the Vampire ásamt
því að hafa leikið aðalhlutverkið í
myndinni Flirting aðeins sextán ára
gömul.
Tvær stjörnur í
kvenhlutverkum
Greta Scacchi hefur áður leikið
fyrir Merchant og Ivory í myndinni
Heat and Dust en er þekktust fyrir
hlutverk sín í myndunum Presumed
Innocent, Shattered, The Player (þar
sem hún lék íslensku myndlistakon-
una Jónu Guðmundsdóttur) og The
Browning Version. Gwyneth Pal-
trow hefur hins vegar aðeins nýlega
slegið í gegn í kjölfar hlutverks síns
í myndinni Seven og ástarsambands
síns við stórstjörnuna Brad Pitt en
ein athyglisverðasta mynd sem hún
hefur leikið í er e.t.v. Mrs. Parker
and the Vicious Circle.
Með önnur helstu hlutverk fara
Seth Gilliam sem leikur James Hem-
ings, bróður Sally Hemings. Simon
Callow, sem leikur eiginmann
Mariu Cosway, og Michael Lonsdale
og Charlotte de Turckheim eru í
hlutverkum konungshjónanna Loð-
víks fjórtánda og Mariu Antoinette.
Michael Lonsdale hefur átt langan
feril og leikið undir stjóm Orson
Welles, Francois Truffaut, Louis
Malle og Luis Bunuel m.a. og komið
fram í stórmyndum á borð við
Moonraker, The Name of the Rose
og The Remains of the Day. Simon
Callow hefur m.a. leikið i Qórum af
myndum Merchants og Ivorys ásamt
því að hafa átt hlutverk í myndum
eins og Amadeus, Postcards from
the Edge og Four Weddings and a
Funeral. -pj
UPPÁHALDS MYNDBANDIÐ MITT
r
Arni Johnsen
Ég á mér eitt æðislegt
uppáhaldsmyndband og það getur
vel verið að fólki finnist það
óvenjulegt. Það heitir River Dance
og er danssýning frá írlandi. Þeg-
ar írar voru með Eurovision-
keppnina fyrir tveimur árum
sýndu þeir dans sem heitir
River Dance. Það
reyndar hara brot af þess-
um stórmerkilega dansi
þeirra en hann tekur
samtals 98 mínútur.
Myndbandið með
þessum ævintýrlega
þjóðdansi keypti ég
Bretlandi einhvern
tímann og ég horfi oft á
það. Þetta er verulega
flókinn hópdans og þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir
hef ég ekki enn náð al-
mennilegum tökum á hon
um. Burtséð frá dansinum
góða er ég mikill mynd-
bandaáhorfandi og fer
líka oft í kvikmynda-
húsin. Ég reyni að sjá
allt sem vekur
minn. Myndir þar
sem náttúran fær að njóta sín
heilla mig alveg. Þess vegna eru
myndirnar Dansar við úlfa og
Braveheart 1 miklu uppáhaldi hjá
mér. Mér þykja sakamála- og gam-
anmyndir líka áhugaverðar en
River Dance mun
alltaf standa upp
úr.
-ilk
Bed of Roses
Bed of Roses er kjorin fyrir róm-
antískar sálir.
Hún fjallar um
tvær manneskj-
ur sem finna
hjá hvor
annarri eitt-
hvað sem þær
'hafa þráð en
ekki ræktað. í
aðalhlutverk-
um eru Christi-
an Slater og
Mary Stuart Masterson.
Slater leikur Lewis, ungan mann
sem eitt sinn átti framtíðina fyrir
sér sem verðbréfamiðlari. Þegar eig-
inkona hans dó af barnsforum sneri
hann blaðinu við og gerðist blóma-
sali. Eitt af því sem honum finnst
hann þarfnast er að afhenda blómin
sjálfur. Kvöld eitt þegar hann er að
afhenda blóm sér hann stúlku
standa hnuggna við glugga. Hann
finnur til samkenndar með henni og
tekur upp á því að senda henni
blóm án þess að geta þess hver hann
er.
Myndform gefur Bed of Roses út
6. ágúst og er hún leyfð öllum ald-
urshópum.
Mute Witness er sakamálamynd
sem vakið hefur
nokkra athygli fyr-
ir frásagnarmáta
og framsetningu.
Leikstjóri hennar
er Anthony Waller
sem þykir eiga
bjarta framtíð fyr-
ir sér. í aðalhlut-
verkum eru
óþekktir leikarar
hér á landi, Mar-
ina Sudina og Fay
Ripley.
í myndinni er sagt frá nokkrum
bandarískum ungmennum sem
stödd eru í Moskvu við tökur á
ódýrri hryllingsmynd. Kvöld eitt
lokast förðunarmeistarinn Billy
óvænt inni í kvikmyndaverinu og
þar sem hún er mállaus getur hún
ekki kallað á aðstoð. í leit sinni að
útgönguleið úr húsinu rekst hún
inn í herbergi þar sem verið er að
taka upp svæsna klámmynd. Þar
verður hún vitni að því að aðalleik-
konan er myrt. Hún kemst naum-
lega undan kvikmyndatökumönn-
unum þegar þeir verða varir við
hana. Eftir að hafa falið sig í lyftu-
göngum sleppur hún út en þá vill
ekki betur til en svo að lögreglan
neitar að trúa henni.
Skífan gefur Mute Witness út 7.
ágúst og er hún bönnuð börnum
innan 16 ára.
Playmaker
Breski leikarinn Colin Firth leik-
ur aðalhlutverkið
í dramatísku
sakamálamynd-
inni Playmaker
ásamt bandarísku
leikkonunni
Jennifer Rubin.
Leikstjóri er Yuri
Zeltzer.
í myndinni
leikur Rubin
leikkonuna Jamie
Harris sem hefur
lítið orðið ágengt í að koma sér á
framfæri. Hún getur að mestu kennt
sjálfri sér um þar sem hún á við
áfengisvandamál að stríða. Til að
leita sér hjálpar fer hún í meðferð
til Ross Talbots sem lofar henni
kraftaverki. Til að byrja með er allt
í lukkunnar standi en fljótlega fer
Jamie að gruna að Ross sé ekki all-
ur þar sem hann er séður og líst
henni ekkert á aðferðir hans, finnst
þær fáránlegar og geðveikislegar.
Hún lætur sig þó hafa það að halda
áfram með örlagaríkum afleiðing-
um.
Bergvík gefur Playmaker út 7.
ágúst og er hún bönnuð börnum
innan 16 ára.