Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Blaðsíða 9
DVfÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 0n helgina „ '•**; 'v....rf- v: -*•>&* -''tVÁ" 'i*-*"'' •. ci*:' 'A-•. ■ .■■«-*.;• -4 itfá '&jf - í ' m Flakk áSnæ- fells- nesi ivsí-í ■■»'■**■■ w ðij™fass8 Borgarfjörður eystra: Borgarfjörður eystra hefur löng- um verið staður áífanna. Þess vegna ætla íbúar þar að halda há- tíð um helgina sem þeir kalla Álfa- borgarséns. Á hátíðinni verður margt um að vera og má í því sam- bandi nefna tónlist, leikbrúðusýn- ingu um álfa og ófreskjur, söng, upplestur, götukörfubolta, hesta- leigu, siglingu, skrúðgöngu og margt fleira: í kvöld verður svo- kallað kráarkvöld í Fjarðarborg og á morgun verður hinn árlegi harm- óníkudansleikur. Á sunnudags- kvöld verður tendraður varðeldur, grillað og sungið fram á rauða nótt. Dagskránni lýkur ekki fyrr en seint á mánudagskvöld með kvöld- vöku og tilheyrandi fjöri þar sem sagöar verða álfasögur. -ilk Um þessa ágætu verslunar- mannahelgi, sem nú er að ganga í garð, stendur Flakk-klúbburinn fyr- ir snjóbretta- og skíðaferð vestur á Snæfellsnes í samvinnu við snjó- brettabúðina Týnda hlekkinn. Þetta verður eins konar útihátið þar sem vímuefni verða bönnuð. Gist verður á Arnarstapa á Snæfellsnesi en hann er skammt frá jöklinum. Einnig verður boðið upp á hesta- ferðir, sjóstangaveiði og gönguferð- ir. Verð í þessa ferð er 5.750 krónur en í því er innifalið tjaldstæði, rúta báðar leiðir, ferð upp á Snæfellsjök- ul, grillveisla, smokkar og dansleik- ur. Komið verður upp tveimur stór- um danstjöldum þar sem plötusnúð- arnir Maggi Legó, Richard, Kári, Einar og fleiri munu skemmta gest- um. -ilk Þessi má ekki gleymast um helgina en hans líkir eru innifaldir í verði Flakks. Nú verður haldin í tíunda sinn útihátíð í Vík i Mýrdal. Boðið verð- ur upp á varðelda og brekkusöng, flugeldasýningu, söngvarakepimi, fjársjóðsleit, vatnsfótbolta og margt annað skemmtilegt. Reynt verður að höfða til allrar fjölskyldunnar en miðaverð inn á svæðið er 1.500 krónur. Börn yngri en 12 ára fá þó frítt inn á svæðið. Dansleikir verða í Vík á laugardags- og sunnudags- kvöld og verð á þá er kr. 1.000 fyrir tjaldgesti Vík ’96. Búist er við mikilli skennntan í Vík. -ilk Á Þingvöllum er oendanlega fallegt. Það verður nóg um að ve: Kirkjubæjarklaustri um hel; þótt ekki sé um skipulagða úti: að ræða. Á morgun verður úti: aður og hlutavelta og um kvu,____ verður dansleikur í Kirkjuhvoli’þar sem hljómsveitin Karma mun leika fyrir dansi. Á sunnudagskvöldið verður varðeldur, flugeldasýríing, fjöldasöngur og fleira. Boðið verður upp á gönguferðir með leiðsögn, sö- gustundir og dagskrá verður fyrir yngstu kynslóðina. Á sunnudag verður haldin guðs- þjónusta í bænahúsinu á Núpsstað. Sundlaug, golfvöllur, bátaleiga og hestaleigur verða opnar og veiöi- leyfi seld í Upplýsingaþjónustunni. Það er ekki úr vegi að taka það ólega um helgina og njóta náttúr- aar á Kirkjubæjarklaustri. -ilk Það verður útimarkaður Vík '96: 1 Eitthvað fyrir alla Röltá Þingvöllu skrá verður fyrir þau þar. Klukkan 13.30 verður svo lagt af stað í gönguferö og einnig kl. 16.00. Klukkan 21.00 verður svo farið í kvöldrölt um næsta nágrenni arins. Á sunnudag verður helgis fyrir börn í Þingvallakirkju og ið verður i gönguferðir. Á mí verður svo gengið með vátnsba Þingvallavatns og kl. 14 lagt af stað í þriggja klukkustunda gönguferð í Skógarkot. Það er fallegt sem endranær Þingvöllum og gaman að ganga ] um og skoða forna staði. -ilk austur: r r natt nar Það verður mikið gengið á Þing- völlum um helgina. í kvöld kl. 21.00 verður kvöldrölt um Spöngina og næsta nágrenni Þingvallabæjar. Lagt verður að stað frá Peningagjá og mun ferðinni ljúka í kirkju. Á morgun eru svo á dagskrá þrjár gönguferðir. Börnunum býðst að fara í Hvannagjá og sérstök dag- Dansað í Úthlíð Verslunarmannahelgin í Út- hlíð hófst í gær þegar Bogomil Font og Milljónamæringjarnir léku fyrir dansi. Þeir í Úthlíð eru þó hvergi hættir en í kvöld er opið hús í Réttinni og diskó- tek. Á morgun verður brenna og fjöldasöngur og ekki má gleyma dansleiknum með hljómsveitinni Dægurlaga- kombó. Á sunnudaginn verður enn einn dansleikurinn og þá mun hljómsveitin Ómar vera á staðnum. Aldurstakmark á dansleik- ina er 18 ár og nóg er af tjald- stæðum á staðnum. -ilk Snæfellsásmótið: Vinátta, gleði og friður Mannrækt undir jökli nefn- ist Snæfellsásmótið á Brekku- bæ á Hellnum um helgina. Mun þetta vera 10. mótið af þessum toga en aðalmarkmiðið er að kynna fólki allar þær leiðir sem það á kost á að fara i sinni eigin sjálfsrækt og per- sónulegri leit að auknum þroska. Meginþema mótsins er vin- átta, gleði og friður og lögð verður sérstök áhersla á þessa þætti meö fræðslu, leik og söng. Boðið er upp á námskeið í umbreytingardansi, grasa- ferðir, heilunarvígslur, svita- hof, skyggnilýsingar og ótal margt fleira. Mótssetning verður kl. 22.00 í kvöld og aðgangseyrir er 3.900 krónur. -ilk Neskaupstaður: Neista- fluy '96 Þau i Neskaupstað verða með ærleg hátíðarhöld um helgina. Um er að ræða Neista- flug sem verið er að halda í fjórða sinn. Hátíðarhöldin fara öll fram í bænum og næsta ná- grenni og standa frá deginum í dag til mánudagsins. Hápunkt- ur hátiðarhaldanna er skemmtidagskrá á sunnudag sem lýkur með varðeldi, söng og flugeldasýningu í lystigarði bæjarins. Á meðal þeirra sem skemmta munu á Neistaflugi eru Aggi Slæ og Tamlasveitin, Spaugstofan, Sixties, Edda Heiðrún Backman ásamt fjölda annarra listamanna. Háð verð- ur kraftakeppni, golfmót verð- ur á staðnum, strandablak, tjaldmarkaður, körfuboltamót og margt fleira. Aðgangseyrir á hátíðina er ókeypis og sömuleiðið á tjald- stæðin. -ilk

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.