Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Blaðsíða 10
42 FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 JÖ"V jmyndbönd Vestrinn Desperado fer í fyrstu viku beint í fjórða sæti myndbanda- listans. í myndinni leikur Antonio Banderas aðalhlutverkið. Mótleik- kona hans er mexíkóska leikkonan Salma Hayek og það fer ekki fram hjá neinum hin kynngimagnaða út- geislun sem stafar frá henni, sér- staklega í djörfum ástaratriðum Banderos og hennar. í Hollywood er varla talað um annað þessa dagana en þessa ungu leikkonu og er hún nánast í öllum blöðum sem fjalla um skemmtiiðn- aðinn. Er greinilegt að búist er við miklu af henni í framtíðinni og ekki vantar hana tilboðin en þau streyma til hennar. Hayek segir að öllum þeim hlutverkum sem líkjast hlutverki Caroline í Desperado sé fleygt til hliðar. í síðustu viku var frumsýnd nýj- asta kvikmynd Hayek, Fled, þar sem hún leikur á móti Laurence Fishburne og Stephen Baldwin. Fram að því hafði hún að mestu verið undir verndarvæng eins leik- stjóra í bandarískum kvikmyndum, Roberts Rodriquez. Fyrst var það Desperado, síðan hluti Rodriquez í Four Rooms og nú síðast í From Dusk till Dawn þar sem hún lék eina blóðsuguna. Salma Hayek lék einnig lítið hlutverk í Fair Game, mislukkaðri kvikmynd þar sem reynt var að gera Cindy Crawford að kvikmyndastjörnu. Kynni Hayek og Rodriquez voru nánast tilviljun. Hayak segir að hún hafi farið að sjá E1 Mariachi og hrif- ist mikið af myndinni og segist hafa óskað þess að fá að starfa með leik- stjóra myndarinnar, Robert Rodriquez. Rodriguez hafði aftur á móti séð viðtal við Hayek á spænskumælandi sjónvarpsstöð og sagt við eiginkonu sína að þama va;ri leikkona sem myndi passa vel inn í Desperado. Bað hann eigin- konuna, Rosalie, að hafa uppi á leikkonunni, þannig að það má segja að þau hafi mæst á miðri leið. Rodriquez skrifaði síðan hlutverkið fyrir Hayak. Hún fékk samt ekki tniklu ráðið um hlutverk sín í Four Rooms og From Dusk till Dawn og segist ekki vera mjög ánægð með þau. Þegar svo Joel Silver heillaðist af henni og bað hana um að leika kærustu Williams Baldwins í Fair Game hafði hún nokkuð um það að segja hvernig hún túlkaði hlutverk- ið þótt ekki væri það stórt. Stjarna í Mexíkó Salma Hayek er nýstirni í Hollywood. Hún fæddist í Veracruz i Mexíkó og er 27 ára gömul. Hayek var löngu orðin ein vinsælasta sjónvarpsstjaman í Mexíkó áður en hún öðlaðist frægð í Bandaríkjunum. hún að þakka sjón- varpsseríunni Teresu, sem naut fádæma vin- sælda í Mexíkó, en Hayek lék titil- hlutverkið. Var hún valin besta leikkon- an áriö 1992. Áður hafði hún fengið verðlaun sem besti nýlið- V inn í annarri sjónvarpsser- íu. í kjölfarið fylgdu kvik- myndirnar Mi Vida Loca, sem Alli- son Anders leik- stýrði og vann til verðlauna á kvikmyndahátið- inni í Berlín, og E1 Callejon De Los Milagro sem er vinsælasta kvik- myndin í Mexíkó sem Mexíkómenn hafa sjálfir gert. Á hátindi frægð- arinnar í Mexíkó ákvað Salma Hayek að flytja til Los Angeles og byrjaði hún á því að fara enskunám því það í ljós ensku- kunnátta hennar var mörk uð. Með an sperado að hún lék öll áhættuatrið- iri sjálf. „Það er ekkert grín að vera eina konan innan um alla þessa karlleikara sem eru að reyna að vera kaldir. Þeir vora alltaf að segja að ég gæti ekki gert þetta og hitt og áhættuleikari væri nauðsynlegur en ég lét orð þeirra sem vind um eyru þjóta og eftirminnilegast var þegar viö Antonio þurftum að stökkva á milli tveggja bygginga. Við voram með öryggisbönd. Mér leið eins og ég væri að fljúga og vildi ekki hætta og bað um að fá að gera þetta atriði aftur og aftur. í dag hefur Salma Hayek öll ráö í hendi sér varðandi kvikmyndir sem hún leikur í og næst á eft- ir Fled fáum við að sjá hana í róman- tísku gaman- myndinni Fools Rush in sem frumsýnd verður síðar á sessu ári. -HK Salma Hayek ásamt Antonio Banderas í Desperado. enskunáminu stóð fékk hún lítil hlutverk í sjónvarpsseríum og vann sig skjótt upp í stærri hlutverk en það var hlutverk hennar í Desperado sem kom öllu af stað. Engin nektaratriði Salma Hayek þykir mjög ákveðin stúlka sem veit hvað hún vill. Það var til þess tekið að hún skyldi fá Joel Silver til að samþykka breyt- ingu á hlutverki hennar í Fair Game. Þá hefur Robert Rodriquez orðið að tala hana til í bæði Four Rooms og From Dusk till Dawn. Henni leist ekkert á hlutverkið í Four Rooms og sagði að þaö væri ekki uppáhaldsklæðnaður sinn að vera í bikiní og ekki var hún hrifn- ari af því að þurfa að handleika snáka í From Dusk till Dawn en hún segir sjálf að enginn geti sann- fært hana betur en Rodriquez og lét hún undan í bæði skiptin. Það var einnig eftir þvi tekið í De- í From Dusk till Dawn lék Salma Hayek fagra bióösugu sem reyndist þó ekki mjög fögur þegar fór aö hitna í kolunum. Á hátindi frægðar- innar í Mexíkó ákvað Salma Hayek að flytja til Los Angeles og byrjaði hún á því að fara í enskunám því það kom í ljós að enskukunnátta henn- ar var takmörkuð. Lára Ásgrímsdóttir: Something to Talk about, hún var mjög góð. Birna Kristinsdóttir: Ég sá Apollo 13. Hún var ágæt. Auður Björk Einarsdóttir: Ætli það hafi ekki verið Walking in Clouds. Mér fannst hún mjög góð. Esther Sigurpálsdóttir: Ég sá nýjustu Banderas- myndina, Desperato. Hún var mjög góð og Antonio er mjög sexí.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.