Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Blaðsíða 8
40
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 JjV
um helgina
I
I
SYNINGAR
ASH Gallerl, Lundi
Varmahlíð
Laugardaginn 3. ágúst kl. 14 veröur opnuð í Gall-
eriinu Lundi sýning á klippimyndum Jóns Laxdals
Halldórssonar. Sýningin ber yfirskriftina „Dagbók-
arblöð“. Sýníngin stendur til 20. ágúst og er opin
alla daga frá 10-18.
Eden
Hveragerði
Söngvaskáldið og ríthöfundurinn Þorsteinn Egg-
ertsson veröur með málverkasýningu í Eden um
verslunarmannahelgina og verður formlega opnuð
laugardaginn 3. ágúst kl. 14. Sýningunni lýkur 14.
ágúst.
Frystihúsiö Meitillinn
Hafnarskeiöi 6, Þorlákshöfn Þessa dagana stend-
ur yfir málverkasýning í frystihúsinu Meitlinura.
Það er listmálarinn Haukur Dór sem heldur sýn-
ingu á nokkrum verkum á nýrri skrifstofu fyrir-
tækisins.
Gallerí
Ingólfsstræti 8, Rvik
Sýning á málverkum myndlístarmannsins Kees
Visser stendur yfir í Ingólfsstræti 8. Sýningin
stendur til 2. ágúst og er opin kl. 14-18 alla daga
nema mánudaga, þá er lokaö.
Galierí Art-Hún
Stangarhyl 7, Rvík
Til sýnis eru verk eftir Erlu B. Axelsdóttur, Helgu
Ármannsdóttur, Sigrúnu Gunnarsdóttur og Mar-
gréti Salóme. Galleriið er opiö alla virka daga kl.
12-18.
Gallcrf Birgir Andrésson
Vesturgötu 20
Gunnar M. Andrésson sýnir ný verk, nokkurs kon-
ar lýriska hljóöskúlptúra þar sem unniö er meö
upprunatengsl og vitnaö i þjóðleg minni. Galleríið
er opið kl. 14-18 á firamtudögum en aðra daga eft-
ír samkomulagi.
Gallcrí Hornið
Hafnarstræti 15
Sýningu Ingu Sólveigar að ljúka. Sýningin stendur
til og með 7. ágúst og er opin alla daga, einnig frí-
dag verslunarmanna, milli kl. 11 og 23.30.
Gallerl Laugavcgi 20b
Björn Birnir heldur málverkasýningu í Gallerí
Laugavegi 20b (gengið inn frá Klapparstíg). Sýn-
ingin verður opin virka daga kl. 12-18 og laug-
ardaga kl. 11-14 og stendur fram eftir sumri.
Gallerí Sólon íslandus
Bankastræti 7A
Sýning Ráðhíldar Ingadóttur stendur yfir i Gallerí
Sólon Islandus. Sýningin er opin daglega frá 11-18
og henni lýkur 24. ágúst.
Gallerl Sævars Karls
Bankastræti 9
Hallgrímur Helgason er meö sýningu á myndverk-
um í Galleríi Sævars Karls. Sýningin samanstend-
ur af teiknimyndum og málverkum. Sýningin
stendur til 7. ágúst og er opin á verslunartíma.
Gallerí Úmbra
Bernhöftstorfunni
Sýning bandarísku grafiklistakonunnar Karenar
Kunc i Gallerí Úmbru á Bemhöftstorfunni hefur
verið framlengd til 7. ágúst.
Gallerí veitingastaöarins „22“
Laugavegi 22
Myndlístarsýning stendur yfir í galleríi veítinga-
staðarins „22“. Þar sýna þeir Láms Jóhannesson
og Snorri Sturluson verk sem þeir hafa unnið í
sameiningu á þessu ári og því síðasta. Sýningin
stendur I 3 vikur.
Hafnarborg
Strandgötu 34, Hafnarfiröi
Akvarell ísland er sýning sem stendur yfir i Hafn-
arborg, þar sýna ýmsir listamenn verk sln. Sýning-
in er opin alla daga kl. 12-18 nema þriðjudaga og
henni lýkur 22. ágúst.
Hótel Aning
Sauðárkróki
Málverkasýning Ágústs Eiðssonar stendur yfir á
Hótel Áningu á Sauöárkróki og lýkur henni 6.
ágúst.
Hótel Edda
Núpi, Dýraflröi
Nú stendur yfir hin árlega handverkssýning Kol-
tru-hópsins. Sýningin er á Núpi í Dýrafiröi og til
sýnis verður margt glæsilegra handverksmuna.
Nú í vikunni var opnuö málverkasýning með
myndum eftir Jón Hermannsson. Handverkssýn-
ingin er opin kl. 14-18 en málverkasýningin er
hins vegar opin allan daglnn i allt sumar.
Kjarvalsstaðir
v/Mlklatún
Sýning sem ber yfirskriftina Náttúrusýn í ís-
lenskri myndlist stendur yfir. Sýningin stendur frá
1. júni til 31. ágúst 1996. Kjarvalsstaöir eru opnír
daglega kl. 10-18.
Landsbókasafn íslands, Háskólabókasafn
Nú stendur yfir sýning á verkum breska skáldsins
og íslandsvinarins Williams Morris. Hann var
þekktur sem skáld og þýöandi. Sýningin stendur
til 15. ágúst og er opin á sama tíraa og safnið, kl.
9-17, mánudaga til föstudaga og kl. 13-17 á laugar-
dögum. Aðgangur ókeypis.
Leifstöö
Kynning á málverkum eftir Bjöm Birai myndlist-
armann stendur nú yfir á landgangi í Leifsstöð. {
tengslum viö kynningu þessa er sýning á verkum
Bjöms i Galleri Laugavegur 20B i Reykjavik.
Listahorn Upplýsingamiöstöövar
ferðamála á Akranesi
Dagana 15. júlí til 4. ágúst heldur Guðlaugur Jón
Bjarnason ljósmyndasýninguna Trésmiður og sjó-
maður i lístahomi Upplýsingamiðstöðvar ferða-
mála á Akranesi.
Listasafn Sigurjóns ólafssonar
Framlag listasafnsins til listahátiðar er högg-
myndasýníng Páls Guömundssonar og Sigurjóns
Ólafssonar. Sýningin ber heitið Vættatal og stend-
ur til 1. september 19%.
Listhús 39
Strandgötu 39 Hafnarfirði
Laugardaginn 27. júlí opnuöu þrir nýútskrifaðir
myndlistarmenn frá Myndlista- og handíðaskóla
Islands sýninu 1 Listhúsi 39. Sýningin verður opn-
uö kl. 16 og verður opin mánudaga-föstudaga kl.
13- 18, fimmtudaga 13-21, laugardaga 12-18, sunnu-
daga 14-18. Sýningin stendur til 18. ágúst 19%.
Norræna húsið
Guömundur Páll ólafsson er með ljósmyndasýn-
ingu 1 anddyri Norræna hússlns. Sýningin stendur
til 14. ágúst. Sýning í sýningarsölum Norræna
hússins á leirverkum eftir Eddu Jónsdóttur og
Koggu. Sýningln er opin daglega kl. 13-19. Henni
lýkur sunnudaginn 11. ágúst.
Listasetrið Kirkjuhvoli
Akranesi
Á heimaslóð er yfirskrift samsýningar sem hófst 6.
júlí. Þar sýna verk sín brottfluttir listamenn af
Skaganum. Á sýningunni em mörg óllk verk, m.a.
olfuraálverk, leir- og glerverk o.fl. Sýningin stend-
ur tU 4. ágúst og Listasetrið er opið aUa daga kl.
14- 16.30.
Listhúsiö í Laugardal
Engjateigi 17
Galleri - Sjöfii Har. Þar stendur vfir myndlistar-
sýning á verkum eftir Sjöfh Har. Sýningin ber yf-
irskriftina íslensk náttúra, íslenskt landslag. Opiö
virka daga kl. 13-18 og laugardaga kl. 11-16.
Listasafn Akureyrar
Þar stendur yffr samsýníng ungs myndUstarfólks
undir yfirskriftinni Ást. Listasafhið er opiö alla
daga vikunnar nema mánudaga kl. 14-18.
Mokka og Sjónarhóll
Hverfisgötu 12
Guniila Möiler heldur sýningu á Mokka. Sýningin
ber heitið Hús og kveikjan. Sýningin stendur tU 10.
ágúst.
NýUstasafniö
Vatnsstíg 3b
Katrin Sigurðardóttir, Lind Völundardóttir og
Pletertje van Splunter opna sýningar í aöalsölum
NýUstasafhsins laugardaginn 3. ágúst ki. 16.1 setu-
stofu verður opnuö kynning á verkum Ana Mendi-
eta. Sýningamar em opnar daglega frá kl. 14-18 og
þeim lýkur 18. ágúst.
Perlan
Rikey Ingimundardóttir myndlistarkona er með
36. einkasýningu sína í Perlunni. Sýningin stend-
ur til 3. ágúst.
Ráöhús Reykjavikur
Þar stendur yfir sýning á steindu gleri eftír Ing-
unni Benediktsdóttur.
Sjóminjasafhlö
Hafnarfirðl
í forsal Sjómínjasafhsins stendur nú yfir sýning á
15 oliumálverkum eftir Bjama Jónsson listmálara.
Sjóminjasafhið er nú opiö alla daga kl. 13-17 fram
til 30. september.
Snorrastofa
Reykholti, Borgarfiröi
Opnuö hefur veriö sögusýning í Snorrastofu í
Reykholti l Borgarfirði og elnnig sýníng um
Snorra Sturluson og verk hans.
Vcitingahúsiö Laugavegur 22
Þar stendur yfir málverkasýning Siggu Völu.
Viö Hamarlnn
Sex nýútskrifaðir myndlistarmenn úr MHÍ halda
sýningar i sýningarsalnum Viö Hamarinn í Hafn-
arflröi i sumar. Sýningamar veröa þrjár, og er
einni þeirra lokiö. 13.6.-27.7. sýna Bergllnd Svav-
arsdóttír og Ólöf Kjaran Knutsen. 10.8.-25.8. sýna
Ásdís Pétursdóttir og Ingibjörg María Þorvalds-
dóttir. Sýningamar verða opnar Iaugardaga og
sunnudaga kl. 14-20.
Hentar allri fjöl-
skyldunni
Mikil áhersla er lögð á að há-
tiðin henti allri fjölskyldunni.
Tjaldsvæðið í Kjamaskógi er til-
valið fyrir þá sem vilja vera í ró
og næði og þaðan verða sérstakar
strætisvagnaferðir inn í bæinn.
í gömlu íþróttaskemmunni verða
unglingadansleikir öll kvöldin en í
Á Akureyri er ekki leiðinlegt að
vera um verslunarmannahelgina.
Um það geta vitnað hinir 6 þúsund
gestir sem sóttu Akureyri
heim á sama tima í fyrra.
Að þessu sinni er búist i
við metaðsókn og óvenju- *
mikið er lagt í hátíðina.
Helgina lengja Akureyr-
ingar um einn dag
þannig að hátíðar-
höldin eru þegar
byrjuð. í gær var |
nefnilega sett upp
tivolí og farið i í
skrúðgöngu.
Alla dagana verð-
ur boðið upp á eró-
bikk- og tískusýningar,
götuleikhús og útitón-
leika. Veitingahúsin
státa af vinsælustu
hljómsveitum landsins
og ætlunin er að engum
leiðist.
Sjallanum verður dagskrá fyrir
eldra fólkið. Þar verða hljómsveit-
irnar Stjórnin og Sálin hans Jóns
míns sem
leika ■ fyrir
dansi.
Á
sunnu-
daginn
I sundlauginni er hægt að láta sér líða vel.
verður karnivalskrúðganga frá Ráð-
hústorginu með tilheyrandi stultu-
Þeim líður vel þessum í góða veðr-
inu og spáin segir að góða veðrið
verði fyrir norðan um helgina.
fólki, trúðum og eldspúurum. Svo
verður haldin flugeldasýning og
hægt að fylgjast með fallhlífastökkv-
urum svífa um í háloftunum.
Já, það verður örugglega ekki
leiðinlegt á Akureyri um helgina.
-ilk
Flókalundur:
Kajaksiglingar
Þeir sem vilja gera eitthvað villt-
ara en að sofa í tjaldi um verslun-
armannahelgina ættu að skella sér
í Vatnsfjörðinn. Þar verður Kajak-
mót Flóka Vilgerðarsonar haldið í
annað sinn. Boðið verður upp á
ferðir í þessum mjóu bátum í úteyj-
ar og sker og annað kvöld verður
kveiktur varðeldur í fjörunni.
Kappleikir á kajak verða svo á
sunnudeginum ásamt ferðalögum
um staðinn.
Hótel Flókalundur býður upp á
sérstakt gistitilboð um helgina,
2.400, krónur á mann og morgun-
vérður faést á 700 krónur. Sérstak-
ur kajakmatseðill verður í boði alla
helgina og sundlaugin og tjaldstæð-
in eru öllum opin.
-ilk
Þaö hvílir viss rómantfk yfir safninu í Árbæ.
Árbæjarsafn:
Gamlir tímar
Fjörið á Árbæjarsafni verður á
sínum stað um verslunarmanna-
helgina. Það væri því ekki úr vegi
fyrir þá sem verða í bænum að
skella sér þangað og skoða fróðleg
og gömul vinnubrögð.
Bömin fá að sitja hesta og heilsa
upp á önnur húsdýr safnsins. Farið
verður í leiki og leikfangasýningin
verður opin.
Fólk mun kynna handverk eins
og gullsmíði, tóvinnu og roðskó-
gerð. Harmóníkuleikur hljómar
einnig við Árbæinn.
Á mánudaginn verður heyjað ef
veður leyfir. Það verður að sjálf-
sögðu gert með gamla laginu. Gest-
ir fá að taka þátt í heyskapnum og
í raun er hjálpin vel þegin.
Árbæjarsafn verður opið um
verslunarmannahelgina frá
kl. 10-18.
-ilk
Fjölskyldur munu fjölmenna á
Á sunnudaginn fer svo fram
Flúðir þessa helgina. Þar verður furðubátakeppni fyrir börnin en
nefnilega nóg um að vera fyrir alla
fjölskyldumeðlimi og svo eitthvað
sé nefnt verður settur upp húsdýra-
garður og boðið verður upp á hesta-
ferðir og gönguferðir. Annað kvöld
verður tendraður varðeldur og stað-
ið fyrir fjöldasöng.
hún hefur í gegnum tíðina vakið
mikla lukku. Ef veður og aðstæður
leyfa verðúr einnig farið i kajak-
siglingu niður Litlu-Laxá.
Allir á Flúðir.
-ilk
Það er búið að setja upp útidans-
pall í Bjarkarlundi í Reykhólasveit
og þar er ætlunin að halda úti-
dansleiki um helgina.
í kvöld mun hljómsveitin Sól-
strandargæjarnir senda sand og
Utidansleikir verða í Bjarkarlundi
sumarblíðu yfir mannskapinn en á
laugardags- og sunnudagskvöld
sér hljómsveitin Hunang um
stemninguna.
Nóg er £if tjaldstæðum i Bjarkar-
lundi og sundlaugar í grennd að
ógleymdri móður náttúru sem um-
lykur svæðið. Hótel Bjarkarlundur
býður upp á gistingu, bæði í upp-
búnum rúmum og svefnpoka-
plássi.
-ilk