Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Side 4
32 tónlist
Topplag
Fjóröu vikuna i röð situr Em-
iliana Torrini í efsta sætinu með
lagið Lay Down úr leikritinu Sto-
ne Free. Hún heldur áfram að
stríða henni Tracy Chapman
sem er enn og aftur í öðru sæti
með lagið sitt Give me One Rea-
son.
Hástökkið
Bob Heitinn Marley heldur
áfram að syngja sig inn í hug og
hjörtu fólks löngu eftir andlát
sitt. Tónlistin lifir greinilega oft
listamanninn og það sannast
með laginu What Goes around,
Comes around sem er hástökk
vikunnar.
Hæsta nýja lagið
Cypress Hill á nú tvö lög á ís-
lenska listanum. Annað þeirra
er hið góðkunna lag Illusions.
Hitt lagið er Boom Biddy Bye
Bye sem þeir í Cypress Hill taka
með hinni geysivinsælu hljóm-
sveit Fugees. Tónlist þessara
hljómsveita hefur nú til þessa
talist eiga fátt sameiginlegt fyr-
ir utan það að vera rapp af bestu
gerö.
Rokkararnir vara
við dópi
Eftir hörmulegan dauödaga
Jonathans Melvoins, tónleika-
hljómborðsleikara Smashing
Pumpkins, fyrir nokkru af völd-
um heróínneyslu, hafa ýmsir
málsmetandi rokkarar tjáð sig
opinberlega um hinar skelfilegu
afleiðingar sem eiturlyfjaneysla
getur haft í fór með sér. Einn
þeirra er Phil Anselmo, liðsmað-
ur rokksveitarinnar Pantera, en
honum var bjargað úr dauðadái
fyrir nokkrum vikum eftir að
hafa sprautað í sig of stórum
skammti af heróíni. Sömu sögu
er að segja um David Gahan,
prímusmótor Depeche Mode, en
hann var þrívegis lifgaður við í
maí síðastliðnum eftir ofneyslu
eiturlyfja. Báðir þessir menn
hafa í viðtölum hvatt ungt fólk
til að fylgja ekki þeirra fordæmi
heldur láta eiturlyf lönd og leið
eins og þeir segjast nú sjálfir
ætla að reyna.
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996 T*>'\7'
íboði
á Bylgjunni á laugardag kl. 16.00
ÞESSI VIKA SÍÐASTA VIKA FYRIR 2 VIKUM VIKUR Á LISTANUM TOPP 40
O 1 1 5 •••4. VIKA NR. 1... LAY DOWN EMILÍANA TORRINI (ÚR STONE FREE)
Q) 3 5 5 GIVE ME ONE REASON TRACY CHAPMAN
CQ 5 6 4 OPNAÐU AUGUN ÞÍN KOLRASSA KRÓKRÍÐANDI
4 2 2 5 NO WOMAN NO CRY FUGEES
5 4 3 4 BORN SLIPPY UNDERWORLD (TRAINSPOTTING)
CD 9 12 3 WHERE IT'S AT BECK
Q) 14 17 3 MINT CAR CURE
8 6 7 3 ONLY HAPPY WHEN IT RAINS GARBAGE
CD 19 22 3 ... HÁSTÖKK VIKUNNAR... WHAT GOES AROUND COMES AROUND BOB MARLEY
GS) 11 15 3 FREE TO DECIDE CRANBERRIES
11 7 4 11 TONIGHT TONIGHT SMASHING PUMPKINS
12 8 9 9 SOMEBODY TO LOVE JIM CARREY
(§>■ 1 ... NÝTTÁ USTA... BOOM BIDDY BYE BYE CYPRESS HILL & FUGEES
NÝTT
14 17 27 3 CANDY MAN EMILÍANA TORRINI
15 23 _ 2 GOLDFINGER ASH
tTD 16 13 11 THEME FROM MlSSION: IMPOSSIBLE ADAM CLAYTON & LARRY MULLEN
m 13 2 BLURRED PIANOMAN
18 15 11 10 CHARITY SKUNK ANANSIE
QD 20 _ 2 A DESIGN FOR LIFE MANIC STREET PREACHERS
(20 21 - 2 CHANGE THE WORLD ERIC CLAPTON ( THE PHENOMENON)
21 18 18 6 THAT GIRL MAXI PRIEST 8i SHAGGY
22 •10 8 9- UNTIL IT SLEEPS METALLICA
23 12 10 6 ILLUSIONS CYPRESS HILL
(24) 1 IN TOO DEEP BELINDA CARLISLE
25 27 28 3 ROCK WITH YOU OUINCY JONES
EU NÝTT 1 SUMARNÓTT GREIFARNIR
27 24 24 5 TAKE A RIDE ROB'NRAZ
(28 30 23 6 DON'T STOP MOVIN' LIVIN'JOY
(2D NÝTT 1 MISSING YOU TINA TURNER
30 31 31 7 MYSTERIOUS GIRL PETE ANDRE
31 22 16 5 LIGHT MY FIRE MIKE FLOWERS POPS
(32) NÝTT 1 SPINNING THE WHEEL GEORGE MICHAEL
33 28 14 7 ÞAÐ ERU ÁLFAR INNl' ÞÉR SSSÓL
(34. 37 _ 2 HÚÐFLÚRAÐAR KONUR REGGAE ON ICE & HELGI SKÚLASON
35 25 20 6 WE'RE IN THIS TOGETHER SIMPLY RED
36 NÝTT 1 DAY WE CAUGHT THE RAIN OCEAN COLOUR SCENE
37 26 19 7 LÚÐVÍK STEFÁN HILMARS & MILLARNIR
38 29 35 3 ÆSANDI FÖGUR SIXTIES
39 33 30 5 DINNER WITH DELORES PRINCE
40 35 38 3 HEY GOD BON JOVI
Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Islenski listinn er samvinnuverkefni Bylgjunnar, DV og Coca-Cola á Islandi. Listinn er niðurstaða skoðanakönnunarsem er framkvæmd af markaðsdeild DVihverri viku.
Fjöldi svarenda erábilinu 300 til400, á aldrinum 14 tii 35 ára aföllu landinu. Jafnframter tekið mið afspilun þeirra á íslenskum útvarpsstöðvum. Islenski listinn birtist
a hverjum laugardegi í DV og er frumfluttur á Bylgjunni kl. 14.00 'á sunnudögum i sumar. Listinn er birtur, að hluta, í textavarpi MTV sjónvarpsstöðvarinnar. Islenski
listinn tekur þátt i vali "World Chart" sem framleiddur er af Radio Express i Los Angeles. Einnig hefur hann áhrif á Evrópulistann sem birtur er i tónlistarblaðinu Music
& Media sem er rekið af bandariska tónlistarblaðinu Billboard.
989
GOTT UTVARP!
Yfirumsjón meö skoðanakönnun: Hrafnhildur Kristjánsdóttir - Framkvæmd könnunar: Markaðsdeild DV - Tölvuvinnsla:,Dódó - Handrit: Sigurður Helgi
Hlöðversson, Ágúst Héðinsson og fvar Guðmundsson - Tæknistjórn og framleiðsla: Þorsteinn Ásgeirsson og Þráinn Steinsson - Útsendingastjórn: Halldór Backrr
og Jóhann Garðar Ólafsson - Yfirumsjón með framleiðslu: Ágúst Héðinsson - Kynnir: Jón Axel Ólafsson
Vinna og
ráðningar
Breska hljómsveitin Elastica
hefur loksins ráðið til sín nýjan
bassaleikara en sveitin hefur
nánast verið bassaleikaralaus i
eitt ár. Og fyrst sveitin var í
mannaráðningum á annað borð
var fastri, stöðu hljómborðsleik-
ara bætt við í leiðinni. Nýi bass-
leikari Elasticu er tvítug stúlka,
Sheila Chipperfield að nafni, en
hún hefur aldrei leikið með
hljómsveit áður. Hljómborðs-
leikarinn er hins vegar Dave
nokkur Bush en hann var áður
liðsmaður hinnar kunnu
rokksveitar The Fall.
Trommari
Menswear rekinn
Matt Everett, trommuleikari
bresku poppsveitarinnar Mens-
wear, var rekinn úr hljómsveit-
inni eftir heiftarlegt rifrildi við
aðra liðsmenn sveitarinnar á
dögunum. Að sögn talsmanna
sveitarinnar snerist rifrildið um
tónlistarstefnu og persónulegan
ágreining og lauk því með
ákvörðun meirihluta hljóm-
sveitarmanna um að leysa Ever-
ett tafarlaust frá störfum.
Warren G
í steininn
í síðustu viku sögðum við frá
því að rapparinn Nate Dogg, sem
starfað hefur með kollega sínum,
Warren G, hefði verið handtek-
inn vegna gruns um aðild að
vopnuðu ráni. Sú frétt var enn
glóðvolg þegar tíðindi bárust að
vestan um að Warren G hefði
verið handtekinn eftir ólæti fyr-
ir utan næturklúbb í Los Angel-
es. Ekki bætti úr skák að lögregl-
an fann hlaðna skammbyssu í
bifreið rapparans.
Dýr myndi
Hafliði allur
Henry Neumann, fyrrum um-
boðsmaður bandarísku stór-
sveitarinnar Hootie and the
Blowfish, hefur höfðað mál á
hendur hljómsveitinni fyrir
samningsrof og ógreidda þókn-
un. Það eru ekki beint smáaur-
ar sem Neumann fer fram á í
skaðabætur en samtals nema
kröfur hans um 150 milljónum
dala eða um einum milljarði ís-
lenskra króna. Talsmenn Hootie
and the Blowfish segjast munu
berjast með kjafti og klóm gegn
kröfum Neumanns.
-SþS-