Dagblaðið Vísir - DV - 02.08.1996, Síða 4
28
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
Iþróttir
Valur (1)3
ÍBV (0)1
1- 0 Salih Heimir Porca (10.) með
skalla af markteig eftir fyrirgjöf
Bjarka Stefánssonar frá hægri kanti.
2- 0 Jón S. Helgason (47.) fékk
boltann út í vítateiginn eftir að Frið-
rik markvörður sló boltann frá upp
úr hornspymu Porca og skoraði með
góðu skoti.
3- 0 Bjarki Stefánsson (48.) hirti
boltann óvænt af Hermanni Hreiðars-
syni, lék inni í vítateig ÍBV og skor-
aði af öryggi.
3-1 Hermann Hreiðarsson (56.)
meö viðstöðulausu skoti af markteig
eftir aukaspyrnu Inga Sigurðssonar
nálægt endalínu hægra megin.
Lið Vals: Lárus Sigurðsson -
Bjarki Stefánsson @, Gunnar Einars-
son ©, Jón Grétar Jónsson, Kristján
Halldórsson @ - Nebojsa Corovic
(Sigurbjörn Hreiðarsson 79.), Jón S.
Helgaspn @, Salih Heimir Porca
©@, ívar Ingimarsson, Sigþór Júlí-
usson © (Anthony Karl Gregory 73.)
- Sigurður Grétarsson © (Arnljótur
Davíðsson 64.)
Lið ÍBV: Friðrik Friðriksson ©©
- Friðrik Sæbjörnsson, Jón Bragi
Arnarsson, Hermann Hreiðarsson
@, Lúðvík Jónasson (Rútur Snorra-
son 46.) - Ingi Sigurðsson, Hlynur
Stefánsson, Bjarnólfur Lárusson
(Nökkvi Sveinsson 54.), ívar
Bjarklind - Leifur Geir Hafsteinsson
(Kristinn Hafliðason 54.), Steingrim-
ur Jóhannesson.
Markskot: Valur 15, ÍBV 11.
Horn: Valur 5, ÍBV 6.
Gul spjöld: Jón Bragi (ÍBV), Leif-
ur Geir (ÍBV), Sigurður (Val), Jón -
Grétar (Valþ Porca (Val).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Bragi Bergmann, slakur
framan af en vann sig inn í leikinn.
Skilyrði: Þungbúið en þurrt, gott
knattspyrnuveður, ágætur völlur.
Áhorfendur: 364.
Maður leiksins: Salih Heimir
Porca, Val. Lék stórt hlutverk sem
sóknartengiliður, skoraði gott
mark og átti glæsilegar sendingar.
Breiðablik (0)0
Grindavík (0)0
Lið Breiðabliks: Hajrudin Carda-
klija ©© - Pálmi Haraldsson ©,
Kjartan Antonsson ©, Hreiðar
Bjamason ©, Hákon Sverrisson © -
Kristófer Sigurgeirsson, Arnar Grét-
arsson, Kjartan Einarsson, Sævar
Pétursson - ívar Sigurjónsson ©
(Gunnlaugur Einarsson 80.), Þórhall-
ur Hinriksson © (Halldór Páll Kjart-
ansson 76.)
Lið Grindavíkur: Albert Sævars-
son - Guðlaugur Jónsson (Gunnar
Már Gunnarsson 74.), Ólafur Örn
Bjarnason ©, Guðjón Ásmundsson
©, Július Bjöm Daníelsson - Hjálm-
ar Hallgrímsson, Zoran Ljubicic ©,
Siusa Kekic ©, Ólafur Ingólfsson -
Grétar Einarsson (Vignir Helgason
89.), Óli Stefán Flóventsson ©.
Markskot: Breiðablik 7, Grinda-
vík 6.
Horn: Breiðablik 7, Grindavík 2.
Gul spjöld: Sævar (B), Grétar (G).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Gylfi Þór Orrason,
dæmdi prúðmannlegan leik vel.
Skilyrði: Prýðisgott veður og flnn
völlur.
Áhorfendur: Um 300.
Maður leiksins: Hajrudin
Cardaklija, Breiðabliki, var hetja
Blikanna þegar hann varði enn og
aftur vltaspyrnu og tryggði þar
með sinum mönnum stig. Otrúleg-
ur vitabani.
Cardaklija
hefur varið
5 víti í röð
Hajrudin Car-
daklija, mark-
vörður
Breiðabliks,
varði í gær-
kvöldi sína
fjórðu víta-
spymu á þessu
tímabili en hann
hefur varið allar víta-spyrnur
sem hann hefur fengið á sig í 1.
deildinni í ár. Hann bætir því
enn eigiö met en enginn annar
hefur varið fleiri en tvær víta-
spyrnur á einu tímabili frá því
10 liða 1. deild var tekin upp árið
1977.
Cardaklija varði einnig víti í
síðustu umferðinni í fyrra
þannig að hann er búinn að
verja fimm spyrnur í röð í deild-
ÍA 11 9 0 2 29-10 27
KR 11 8 2 1 29-9 26
Leiftur 11 5 4 2 22-19 19
Valur 11 5 2 4 11-10 17
Grindavík 11 3 4 4 12-17 13
ÍBV 10 4 0 6 16-21 12
Stjarnan 11 3 3 5 10-19 12
Fylkir 10 2 1 7 13-15 7
Keflavík 9 1 4 4 8-17 7
Breiðablik 11 1 4 6 10-23 7
Markahæstir:
Guðmundur Benediktsson, KR ... 9
Bjarni Guðjónsson, ÍA ...........9
Ríkharður Daðason, KR ...........8
Haraldur Ingólfsson, ÍA .........7
Mihajlo Bibercic, ÍA.............7
Einar Þór Daníelsson, KR.........6
Rastislav Lazorik, Leiftri ......5
Valsmenn svifu
vængjum þöndum
- unnu slaka Eyjamenn auðveldlega, 3-1
Valsmenn, með Lárus Sigurösson
markvörö efstan, fagna marki Jóns
S. Helgasonar gegn IBV i gærkvöldi
Mikilvægt mark sem kom Val í 2-0
auk þess sem Jón skorar ekki mari
á hverju ári. Þetta var annaö marli
hanst á ferlinum í 1. deild.
DV-mynd GE
Fyrir tímabilið höfðu fáir trú á mikl-
um afrekum Valsmanna í 1. deildinni.
Margir orðuðu þá við fall, 6.-7. sæti í
besta lagi. En þeir eru á góðri leið með
að gera grín að öllum spádómum og
sýndu enn styrk sinn í gærkvöld þegar
þeir lögðu Eyjamenn auðveldlega að
Hlíðarenda, 3-1. ÍBV var spáð frama í
sumar, margir töldu liðið það eina sem
gæti ógnað ÍA og KR, en eftir fimm tap-
leiki í röð í deildinni þurfa Eyjamenn
að fara að hugsa sinn gang rækilega.
Sérstaklega ættu þeir að horfa vel á
fyrri hálfleikinn af myndbandi því á
lægra plan er vart hægt að komast.
Valsmenn höfðu mikla yfirburði og
það var aðeins vegna stórbrotinnar
markvörslu Friðriks Friðrikssonar að
einungis mark Heimis Porca skildi lið-
in að í hléi.
Valsmenn bættu úr því þegar Jón S.
Helgason og Bjarki Stefánsson skoruðu
báðir í byrjun síðari hálfleiks. Þar með
voru úrslitin ráðin, Hermann minnk-
aði fljótlega muninn en ÍBV komst
ekki nær þrátt fyrir nokkra pressu.
Fótboltinn sem liðin sýndu var væg-
ast sagt ólíkur. Valsmenn voru létt-
leikandi og byggðu upp margar falleg-
ar sóknir, sérstaklega í fyrri hálíleik
þegar Porca, Sigþór og Sigurður Grét-
arsson léku staða Eyjavörnina oft
grátt. Hjá Eyjamönnum er meira hugs-
að um baráttu og kýlingar, þeir hafa
mannskap til að gera miklu betur en
þetta en eru ekki líklegir til að klífa
stigatöfluna á ný með þessu áfram-
haldi.
„Við spiluðum mjög vel í dag og
þetta var virkilega sanngjarn sigur.
Eyjamenn fengu ekki markaséns allan
leikinn, þeir voru helst hættulegir í
háu boltunum en annars vorum við
ekki í vandræðum. Við vofum hund-
fúlir eftir Grindavíkurleikinn og ætl-
uðum okkur að bæta fyrir hann, og það
gerðum við. Ég er mjög sáttur við okk-
ar stöðu í deildinni en við tökum einn
leik í einu og teljum stigin í haust,“
sagði Sigurður Grétarsson, þjálfari
Valsmanna, við DV.
„Ég held að menn hafi verið alltof
værukærir eftir KR-leikinn og haldið
að með honum hafi þeir fengið allt. Ég
bjóst við því að hann myndi hjálpa
okkur af stað í deildinni á ný en það
var öðru nær. Síðan ætla ég að gagn-
rýna dómara í fyrsta skipti, Friðrik
markvörður var hindraður þegar Vals-
menn skoruðu annað markið. Það
mark var kjaftshögg og svo kom annað
í næstu sókn. Við erum komnir í slæm
mál og verðum að gleyma bikarnum
um sinn,“ sagði Ingi Sigurðsson Eyja-
maður við DV.
-VS
Cardaklija gulls ígildi
- varði vítaspyrnu og Breiðablik gerði jafntefli við Grindavík, 0-0
Þrátt fyrir fjöldamörg færi í
skemmtilegum leik á Kópavogsvelli í
gærkvöld skildu Breiðablik og Grinda-
vík jöfn, 0-0, í 1. deildinni.
Fyrri hálfleikurinn hafði upp á
margt að bjóða fyrir áhorfendur og var
knattspyrnan skemmtileg á köflum, þá
sérstaklega hjá frískum Blikum sem
réðu ferðinni mestallan leikinn. Bæði
lið sköpuðu sér góð færi en inn vildi
boltinn ekki. Blikar áttu nokkrar góð-
ar rispur en svo virtist sem þeir væru
eitthvað smeykir við að skjóta á mark-
iö og því runnu flestar sóknir þeirra út
í sandinn á markteig. Bestu færi fyrri
hálfleiks áttu samt Grindvíkingar, Si-
usa Kekic átti þrumuskot rétt yfir og
Zoran Ljubicic átti gott færi inni í teig
en skot hans fór hátt yfir.
Síðari hálfleikur byrjaði með látum
og strax á fyrstu mínútu hans fengu
Grindvíkingar vítaspymu þegar Kjart-
an Antonsson braut greinilega á Ölafi
Ingólfssyni. Grétar Einarsson tók
spymuna en Hajrudin Cardaklija, víta-
baninn ógurlegi, yarði slakt skot hans.
Blikar virtust vakna viö þetta og þeir
stjórnuðu leiknum meira og minna það
sem eftir var. Grindvíkingar vöröust
vel og beittu skyndisóknum sem oft
voru nálægt því að klárast. Kekic átti
meðal annars skot í stöng en vörn
Blika stóð fyrir sínu og stöðvaði flest-
allt sem kom upp völlinn.
I liði Breiðabliks var Cardaklija góð-
ur og einnig spilaði vörnin vel með þá
Hreiðar Bjarnason og Kjartan Antons-
son i fararbroddi. Ivar Sigurjónsson og
Þórhallur Hinriksson áttu einnig fínan
leik frammi. ■
Hjá Grindavík var Zoran Ljubicic
ferskur á miðjunni og er oft gaman að
fylgjast með þessum flinka leikmanni.
Óli Stefán Flóventsson átti einnig fin-
an leik frammi. -JGG
Fylkir (0)0
Stjarnan (0)0
Lið Fylkis: Kjartan Sturluson -
Enes Cogic, Aðalsteinn Víglundsson
(Þorsteinn Þorsteinsson 57.), Ómar
Valdimarsson, Ólafur Stígsson © -
Bjarki Pétursson (Sigurgeir Krist-
jánsson 85.), Kristinn Tómasson ©,
Finnur Kolbeinsson ©, Ásgeir Már
Ásgeirsson ©, Andri Marteinsson
(Erlendur Þór Gunnarsson 78.) - Þór-
hallur Dan Jóhannsson ©.
Lið Stjörnunnar: Bjarni Sigurðs-
son © - Hermann Arason, Helgi
Björgvinsson ©, Reynir Björnsson,
Ómar Sigtryggsson © - Birgir Sig-
fússon (Heimir Erlingsson 87.), Bald-
ur Bjarnason, Rúnar Páll Sigmunds-
son, Ingólfur Ingólfsson (Bjarni
Gaukur Sigurðsson 46.), Kristinn Lár-
usson (Loftur Steinar Loftsson 71.) -
Ragnar Árnason.
Markskot: Fylkir 18, Stjaman 9.
Horn: Fylkir 1, Stjaman 4.
Gul spjöld: Baldur (Stj.), Ómar S.
(Stj.)
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Gísli Guðmundsson, flnn,
enda á heimaslóöum. Ólst upp þar
sem Fylkisvöllurinn stendur nú!
Skilyrði: Þungbúið, þurrt og hlýtt,
góður vöilur.
Áhorfendur: Um 350.
Maður leiksins: Bjarni Sigurðs-
son, Stjörnunni. Varði mjög vel
nokkrum sinnum og sá til þess að
Stjarnan fékk eitt stig.
Tíu daga frí
Nú verður gert tíu daga hlé á
1. deildinni en 12. umferðin verð-
ur leikin 11. ágúst. Reyndar
mætast Fylkir og Keflavík i
áður frestuðum leik í Árbænum
þann 7. ágúst.
Þrír í leikbanni
Þeir Goran Kristófer Micic og
Valdimar Kristófersson úr
Stjörnunni og Tryggvi Guð-
mundsson úr ÍBV tóku út leik-
bönn í gærkvöldi og léku ekki
með liðum sínum.
FÖSTUDAGUR 2. ÁGÚST 1996
45
Getum sjaHum
okkur um kennt
- Leiftur skaut KR-inga af toppi 1. deildar með 2-1 sigri
DV, Ólafsfirði:
Þar kom að því að KR tapaði leik
í 1. deildinni í sumar og gerðist það
á Ólafsfirði í gærkvöld þegar Leift-
ur lagði stórveldið úr vesturbæn-
um, 2-1. Reyndar leit lengi út fyrir
að KR færi með enn einn sigurinn
af hólmi því liðið leiddi þar til 15
mínútur voru eftir af leiknum og
kom sigurmark Páls Guðmundsson-
ar aðeins 5 mínútum fyrir leikslok.
Það var fyrst og fremst gríðarleg
barátta sem skóp þennan sigur Leift-
ursmanna en mikil barátta ein-
kenndi leikinn frá fyrstu mínútu og
kom það vissulega niður á knatt-
spyrnunni sjálfri en það mun svo
sem ekki vera í fyrsta skipti í sumar.
KR-ingar byrjuðu mun betur.
Þeir tóku völd á miðjunni og áttu
nokkrar snarpar sóknir, þó engar
hættulegar. Leiftursmenn voru frek-
ar daufir framan af hálfleiknum.
KR-ingar voru dæmdir rangstæðir
að minnsta kosti 6 sinnum um mið-
bik hálfleiksins en fyrsta mark
leiksins frá Hilmari Björnssyni kom
einmitt upp úr stungusendingu og
gerði þá dómarinn herfileg mistök.
KR-ingar gengu á lagið en tókst ekki
að bæta við marki.
Það var allt annað að sjá til Leift-
ursmanna í síðari hálfleik. Strax í
byrjun tóku þeir völdin á miðjunni
og pressuðu stíft. KR átti samt tvö
dauðafæri sem ekki nýttust.
Innáskipting breytti öllu
Innáskipting hjá Leiftri breytti
gangi leiksins gjörsamlega. Inn á
komu Gunnar Már Másson og Páll
Guðmundsson og skömmu síðar
jafnaði Sverrir Sverrisson. Þá var
loks komin spenna í leikinn og
Leiftursmenn miklu sprækari. KR-
ingar bökkuðu hins vegar eftir að
þeir misstu tökin á miðjunni.
Eftir að Páll skoraði annað mark
Leifturs áttu bæði lið snarpar sókn-
ir og gríðarleg spenna lá í loftinu og
þeir fiölmörgu áhorfendur sem sáu
leikinn urðu ekki fyrir vonbrigðum.
Mistök sem kostuðu okkur
sigur
Það voru vonsviknir KR-ingar
sem gengu af velli enda ságði Þor-
móður Egilsson, fyrirliði þeirra, að
það væru mikil vonbrigði að tapa
leiknum en þeir gætu sjálfum sér
um kennt því þeir hefðu fengið næg
tækifæri. „Svo gerðum við mistök í
lokin sem kostuðu okkur sigur,“
sagði Þormóður.
Óskar Ingimundarson, þjálfari
Leifturs, var hins vegar kampakát-
ur. „Þetta sannar að þegar Leiftur
sýnir almennilega baráttu í 90 mín-
útur getum við unnið hvaða lið sem
er,“ sagði Óskar.
Hjá Leiftri voru varnarmennirnir
Milisic, Júlíus og Auðun í aðalhlut-
verkum og stóðu sig frábærlega. Hjá
KR-ingum var Ríkharður eitraður
allan leikinn en óheppinn og
klaufskur á víxl og Heimir og Einar
Þór voru mjög duglegir.
-HJ
Ekki ánægður
með eitt stig
- markalaust í Árbænum
„Ég er alls ekki ánægður með
eitt stig úr þessum leik. Það er
stutt í pakkann fyrir ofan okkur
og fullt af stigum eftir í pottinum
svo það er nóg eftir af mótinu,“
sagði Ólafur Stígsson, leikmaður
Fylkis, eftir markalaust jafntefli
við Stjörnuna í Árbænum í gær-
kvöld.
Leikurinn fór rólega af stað og
liðin hugsuðu meira um að verj-
ast en að sækja fyrsta hálftíma
leiksins. Síðustu tíu mínútur hálf-
leiksins tóku Fylkismenn öll völd.
Kristinn Tómasson og Ásgeir Már
Ásgeirsson áttu báðir gott skot
frá vítateig sem Bjami Sigurðs-
son, markvörður Stjörnunnar,
varði mjög vel í bæði skiptin. Á
síðustu mínútu hálfleiksins varði
hann svo máttlausan skalla
Andra Marteinssonar frá mark-
teig.
Fylkismenn hófu síðari hálf-
leikinn af sama krafti og þeir
luku þeim fyrri. Strax eftir 3 mín.
fékk Þórhallur Dan Jóhannsson
dauðafæri eftir að hafa snúið af
sér varnarmann á mjög snyrtileg-
an hátt en skot hans fór hátt yfír.
Þórhallur komst svo stuttu síðar
inn fyrir Stjörnuvörnina en skaut
öðru sinni yfir. Fylkismenn héldu
áfram að sækja og voru miklu
betri. Garðbæingar fengu þó eitt
færi í leiknum og kom það eftir
stungusendingu á 73. mín. Kjart-
an Sturluson varði þá skot Ragn-
ars Ámasonar glæsilega en Ragn-
ar lék frammi í fjarveru Gorans
Kristófers Micics sem var í leik-
banni ásamt Valdimar Kristófers-
syni. Um fjórum mín. fyrir leiks-
lok var Kristinn Tómasson ná-
lægt því að skora en glæsilegir til-
burðir Bjama í markinu héldu
leiknum markalausum.
-ÞG
ÍA-CSKA á þriðjudag
Skagamenn leika fyrri leik sinn gegn CSKA Moskva frá Rússlandi í 2.
umferð forkeppni UEFA-bikarsins á þriðjudagkvöldið. Leikurinn fer
fram á Akranesi og hefst klukkan 19.
Ekki er reiknað með því að ÍA eigi mikla möguleika gegn þessum
þekktu mótherjum sínum en þeir felast þó í því hvernig til tekst í heima-
leiknum. -VS
Brady aftur til Arsenal
Liam Brady frá írlandi, sem lengi gerði garðinn frægan hjá enska
knattspymufélaginu Arsenal, sneri aftur til félagsins í gær. Hann verður
yfirmaður unglingastarfsins hjá Arsenal. Brady, sem er fertugur, reyndi
fyrir sér sem framkvæmdastjóri hjá Celtic og Brighton en með litlum
árangri. -VS
Papin til Bordeaux
Jean-Pierre Papin, sá snjalli franski knattspyrnumaður, sneri heim til
Frakklands í gær eftir tveggja ára dvöl hjá Bayern Múnchen í Þýska-
landi. Hann skrifaði undir tveggja ára samning við Bordeaux.
Enska félagið Liverpool gekk í gær frá samningi við tékkneska lands-
liðsmanninn Patrik Berger sem kemur frá Dortmund í Þýskalandi.
Skoska félagið Aberdeen keypti í gær búlgarska landsliðsmanninn
Tzanko Tzvetanov frá Mannheim í Þýskalandi.
Enska liðið Newcastle sigraði úrvalslið í Singapore, 5-0, í gær. Ginola
2, Ferdinand, Kitson og Beardsley skoruðu en Alan Shearer lét sér nægja
að horfa á sína nýju félaga. -VS
Skagamenn komnir á
kunnuglegar slóðir
- efstir í 1. deildinni á ný eftir 0-3 sigur í Keflavík
DV, Suðurnesjum:
Akurnesingar komust á kunnug-
legar slóðir í gærkvöld þegar þeir
sigruðu Keflvíkinga, 0-3, i Keflavík
og tóku þar með forystuna í 1. deild
á ný.
Það var ekki hægt að sjá í fyrri
hálfleik hvort liðið færi með sigur
af hólmi. Keflvíkingar stóðu sig vel
og áttu hættulegri marktækifæri en
reynsluleysi kom í veg fyrir að þau
nýttust. Hættulegustu færin komu
um miðjan hálfleikinn. Ólafur Gott-
skálksson, markvörður Keflavíkur,
varði mjög vel frá Sturlaugi Har-
aldssyni og síðan bjargaði Zoran
Miljkovic á marklínu ÍA eftir skot
Eysteins Haukssonar. Stuttu síðar
komst Haukur Ingi einn inn fyrir
vörn Skagamanna en Þórður Þórð-
arson gerði stórvel og varði í horn.
Bjami skoraði fyrir ÍA en Jón dóm-
ari dæmdi markið af eftir að hafa
rætt við aðstoðardómarann.
Skagamenn höfðu greinilega
heyrt í leikhléi að KR-ingar væm
yfir á Ólafsfirði. Strax í upphafði
náði Alexander Högnason að skora
og þá var ekki aftur snúið. Skaga-
menn efldust með hverri mínútu og
settu heimamenn út af laginu. Þeir
réðu ferðinni eftir þetta og Bjarni
Guðjónsson og Haraldur Ingólfsson
bættu við mörkum áður en yfir
lauk.
„Þeir börðust eins og ljón að
vanda og það tók tíma að brjóta þá
niður. Það kom hins vegar þegar
við fórum að spila í gegnum þá.
Markið í upphafi síðari hálfleiks
var mjög þýðingarmikið og það var
ekki verra að fá annað markið sem
gaf okkur meiri öryggiskennd. Mað-
ur getur þó aldrei verið rólegur hér
í Keflavík með tveggja marka for-
ystu og við urðum að keyra áfram
og spila okkar bolta,“ sagði Ólafur
Þórðarson, fyrirliði ÍA.
Keflvíkingar komu Skagamönn-
um í opna skjöldu með góðri bar-
áttu og hinir ungu leikmenn liðsins
voru ekkert smeykir við tröllin af
Akranesi. En þeir brotnuðu eftir
fyrsta markið og fóru að reyna kýl-
ingar, án árangurs, í stað þess að
spila og nota miðjuna betur.
„Ef við hefðum nýtt færin okkar
hefði leikurinn þróast öðruvísi.
Þetta eru ungir strákar og reynslu-
leysi um að kenna að þeir skyldu
ekki skora. Við fengum fimm mjög
góð færi í fyrri hálfleik en fengum
síðan ódýr mörk á okkur,“ sagði
Jakob Jónharðsson, fyrirliði Kefl-
víkinga, við DV.
-ÆMK
íþróttir
Leiftur (0)2
KR (1)1
0-1 Hilmar Björnsson (36.) fékk
stungusendingu frá Heimi Guðjóns-
syni, hikaði vegna þess að hann var
kolrangstæður, en hljóp aftur af stað
þegar ekkert var dæmt og skoraði ör-
ugglega, aleinn á móti Þorvaldi mark-
verði.
1- 1 Sverrir Sverrisson (75.) skaut
að marki eftir fyrirgjöf Péturs Björns
frá hægri, boltinn fór I vamarmann
og fram hjá Kristjáni markverði sem
var lagstur.
2- 1 Páll Guðmundsson (85.) óð
upp völlinn eftir útspark Þorvalds og
skalla Gunnars Más og skoraði fram
hjá Kristjáni markverði.
Lið Leifturs: Þorvaldur Jónsson -
Daði Dervic ©, Slobodan Milisic ©,
Júlíus Tryggvason ©, Auðun Helga-
son © - Ragnar Gíslason, Gunnar
Oddsson ©, Sverrir Sverrisson, Pét-
ur Bjöm Jónsson © - Baldur Braga-
son © (Páll Guðmundsson 70.),
Rastislav Lazorik (Gunnar Már Más-
son 70.)
Lið KR: Kristján Finnbogason -
Þormóður Egilsson, Brynjar Gunn-
arsson @, Ólafur H. Kristjánsson @,
Þorsteinn Guðjónsson - Þorsteinn
Jónsson, Heimir Guðjónsson ©,
Hilmar Btörnsson ®, Einar Þór Dan-
íelsson © - Ásmundur'Haraldsson
(Óskar Hrafn Þorvaldsson 75.), Rík-
harður Daðason ©.
Markskot: Leiftur 6, KR 9.
Horn: Leiftur 3, KR 7.
Gul spjöld: Óskar þjálfari (L),
Sverrir (L), Auðun (L), Daði (L), Ein-
ar Þór (KR), Brynjar (KR).
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Egill Már Markússon,
þokkalegur, gerði mistök en var sam-.
kvæmur sjálfum sér.
Skilyrði: Völlur góður, örlítil
norðangola en hlýtt.
Áhorfendur: Rúmlega 1.100, að-
sóknarmet á Ólafsfirði.
Maður leiksins: Slobodan Milis-
ic, Leiftri. Mjög traustur í vörn-
inni, sterkur í öllum návigjum og
mjög mikill sprettur á honum all-
an leikinn. Langbesti leikur hans i
sumar.
Stórveldin sigruð
Leiftursmenn hafa nú sigraö
bæði stórveldin, ÍAog KR, í 1.
deildinni á Ólafsfirði í sumar.
Keflavík (0)0
ÍA (0)3
0-1 Alexander Högnason (47.)
kom á fleygiferð viö markteig eftir
skallasendingu frá Ólaft Adolfssyni
og skoraði.
0-2 Bjarni Guðjónsson (69.)
hamraði boltann í netið, óvaldaður
inni í vítateig, eftir sendingu frá Kára
Steini Reynissyni.
0-3 Haraldur Ingólfsson (76.) með
þrumuskoti frá vítateigslínu eftir
stungusendingu frá Alexander.
Lið Keflavíkur: Ólafur Gott-
skálksson © - Kristinn Guðbrands-
son, Guðmundur Oddsson, Jakob
Jónharðsson © - Ragnar Steinarsson
(Róbert Sigurðsson 79.), Gestur Gylfa-
son, Eysteinn Hauksson ©, Jóh’ann
B. Magnússon, Karl Finnbogason
(Sverrir Þór Sverrisson 79.) - Haukur
Ingi Guðnasaon, Jóhann B. Guð-
mundsson (Adolf Sveinsson 72.)
Lið ÍA: Þórður Þórðarson © -
Sturlaugur Haraldsson, Ólafur Ad-
olfsson © (Gunnlaugur Jónsson 79.),
Zoran Miljkovic ©, Steinar Adolfs-
son - Kári Steinn Reynisson, Alex-
ander Högnason ©, Ólafur Þórðar-
son ©, Haraldur Ingólfsson (Jóhann-
es Harðarson 79.) - Bjami Guðjóns-
son @, Mihajlo Bibercic.
Markskot: Keflavík 7, ÍA 13.
Horn: Keflavík 3, ÍA 9.
Gul spjöld: Engin.
Rauð spjöld: Engin.
Dómari: Jón Sigurjónsson, hafði
mjög góð tök á leiknum og var alltaf
snöggur á brotstað.
Skilyrði: Smávindur, völlur sæmi-
legur, kalt, skýjað og farið að rökkva
í síðari hálfleik. Hefði þurft að byrja
leikinn klukkan 19.
Áhorfendur: Um 700.
Maður leiksins: Ólafur Þórðar-
son, ÍA. Var sívinnandi og hefur
keppnisskapið fram yflr marga
aðra. Var mjög hreyfanlegur og úti
um allan völl.
Haraldur hélt
upp á afmælið
Skagamaðurinn Haraldur Ing-
ólfsson átti 26 ára afmæli i gær
og hélt upp á það á viðeigandi
hátt. Hann skoraði þriðja mark
leiksins og fékk efsta sætið í
deildinni i afmælisgjöf.