Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Page 6
6 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 Viðskipti Plastprents hf: Hagurinn vænkast Söluaukning Plastprents á fyrstu sex mánuðum ársins er 5% miðað við sama tima í fyrra. Þá er hagnaður fyrir fjár- magnsliöi og skatta 5,5% meiri en þá, eða 76,1 milljón króna. Heildarveltan á fyrri árshelm- ingi er 490 milljónir króna. Þetta kemur fram í milliupp- gjöri fyrirtækisins. Hagnaður Plastprents eftir skatta er 47,6 milljónir króna en var á sama tíma í fyrra 59 millj- ónir króna. Ástæðan er sú að í fyrra voru reiknaðir skattar engir en eru nú yfir 8 milljónir króna, auk þess sem fyrirtækið naut gengishagnaðar í fyrra af erlendum lánum. Fjárhagsstaða fyrirtækisins hefur styrkst og handbært fé frá rekstri jókst um 40 milljónir króna miðað við sama tíma á síðasta ári. Eiginfjárhlutfall var 1. júlí í fyrra 19% en í ár er það komið í 35%. Þá hefur skulda- staðan batnað til muna og eru langtimaskuldir sem hlutfall af heildareignum 40% en voru á sama tíma i fyrra 52%. Viðskipti meö hlutabréf í Plastprenti hófust á Verðbréfa- þingi íslands 10. aprö sl. Upp- haflegt gengi hlutabréfanna var 3,25 en er nú 6,0. Fjöldi hluthafa er 375. -SÁ Hlutafjárútboð í ÚA: Hluthafar kaupa allt sem í boði var - 675 milljónir uppseldar Hlutafjárútboði Útgerðarfé- lags Akureyringa er nýlokið. Boöin voru út hlutabréf að nafnverði 150 milljónir króna á genginu 4,5, eða fyrir 675 millj- ónir króna. Hluthafar höfðu for- kaupsrétt að bréfunum og var eftirspurn þeirra meiri en hægt var aö anna, þvi að 498 þeirra óskuðu eftir kaupum á bréfum fyrir rúmar 200 milljónir að nafnverði, en umreiknað á gengi 4,5 er það um 900 milljón- ir króna. Hjá ÚA og Kaupþingi Norður- lands er nú verið að vinna úr innsendum beiðnum hluthaf- anna um hlutafjárkaup og verð- ur þeim innan skamms tilkynnt um hve stóran hlut þeir fá keyptan. Jafnframt er ljóst af undirtektum hluthafanna að engin bréf verða seld á almenn- um markaði úr þessu hlutafjár- útboði, þar sem ekki reynist unnt að verða við ýtrustu ósk- um hluthafa um hlutafjárkaup. -SÁ Sparisjóður S-Þingeyinga: Nýr sparisjóðs- stjóri DV-Húsavlk Gunnar J. Magnússon á Húsa- vik hefur verið ráðinn spari- sjóðsstjóri við Sparisjóð S-Þing- eyinga í stað Dags Tryggvason- ar. Gunnar hefur starfað á skrif- stofu Kaupfélags Þingeyinga undanfarin ár og mun hefja störf þann 1. des. nk. -aga íslensk kornrækt: Búist við tvö þús- und tonna uppskeru - allt aö Qögurra tonna uppskera á hektara Komuppskera á íslandi stefnir í að slá öll fyrri met og að sögn Ólafs Eggertssonar á Þorvaldseyri er ekki margt úr þessu sem komið gæti í veg fyrir það. Tiðarfar hefur verið mjög gott í sumar til kornræktar og hægt var að sá snemma þar sem lít- ill sem enginn klaki var í jörðu eft- ir síðasta vetur. Alls var sáð í um 7- 800 hektara um allt landi, sem er mun meira akurlendi en áður hefur verið lagt undir til kornræktar. „Við vonumst til þess að uppskeran geti orðið um tvö þúsund tonn,“ seg- ir Ólafur. í meðalárferði má búast við um tveggja tonna meðaluppskem korns á hektara á íslandi, en Ólafur telur að uppskeran geti orðið, þegar upp verður staðið, 2,5 til 3 tonn á hekt- ara að meðaltali á landinu öllu, en þar sem aðstæður eru bestar megi búast við fjögurra tonna uppskem á hektarann. Þegar á heildina er litið má búast við a.m.k. helmingi meiri kornuppskeru á íslandi en á síðasta ári. Kornrækt á íslandi hefur verið að sækja I sig veðrið og er að sögn Ól- afs orðin mun öruggari en áður fyr- ir tilstilli kynbóta á korni í þeim til- gangi að fá fram fljótsprottnara og veðurþolnara kom. Kornuppskera- tíminn hefst í kring um næstu mán- aðamót. -SÁ Kornakrarnir á Þorvaldseyri eru mjög fallegir yfir að líta og Ólafur Eggertsson bóndi býst við metuppskeru í ár, þar sem tíðarfar hefur verið fádæma gott til kornræktar á þessu ári. Á innfelldu myndinni sést þegar verið var að plægja akrana í marsmánuði sl. vor en hægt var að sá óvenju snemma vegna þess hve voraði snemma og klaki fór fljótt úr jörðu. JDV Volvo: Selur bréf í Pharmacia & Upjohn Stjóm Volvo í Gautaborg hef- ur sett meirihluta af hlutabréf- um Volvo í lyfjafyrirtækinu Pharmacia & Upjohn á hluta- bréfamarkaði i Evrópu og Bandaríkjunum. Fyrst ákvað stjórnin að selja 46.000.000 hluti, eða 2/3 hlutafjáreignar Volvo í lyfjafyrirtækinu, en í kjölfar góðra undirtekta hefur verið ákveðið að setja 6.900.000 hluti í sölu til viðbótar, en Volvo vænt- ir þess að fá um 2.700 ísl. kr. fyr- ir hvern hlut. Samtals er því ver- ið að selja hlutabréf fyrir 143,1 milljarð fsL króna. Sala hluta- bréfanna hófst 29. júlí sl. Ef hlutabréfin seljast öll, að viðbótarbréfunum meötöldum, þá verður heildareign Volvo í lyfjafyrirtækmu 3,3 prósent. Stjórn Volvo hefur lýst því yfir að þessi bréf sem eftir verða í eigu Volvo verði ekki seld á næstu sex mánuðum. -SÁ Eimskipafélagiö: Nýtt skip á Norðurleið Eimskipafélagið fékk skömmu fyrir helgina afhent nýtt 9.200 lesta gámaskip sem fé- lagið hefur tekið á tímaleigu. Skipið heitir Víkartindur eftir samnefndu færeysku fjalli og mun sigla á nýrri siglingaleið félagsins, svonefndri Norður- leiö. Vikartindur er í eigu þýskra aðila og er nýtt, smíðað í sömu skipasmiðastöð í Póllandi og Brúarfoss, hið nýja flaggskip fé- lagsins. Burðargeta þess er 9.200 tonn og getur það flutt 900 gámaeiningar. Það er 133 metra langt, 22,9 metra breitt og ristir 7,9 metra. Hin nýja Norðurleið Eim- skips hefst í Reykjavík en það- an er siglt til Þórshafnar i Fær- eyjum, Hamborgar, Árósa, Kaupmannahafnaar, Helsing- borgar í Svíþjóð, Gautaborgar og Frederiksstad í Noregi. Frá Frederiksstad er siglt til Reykja- víkur með viðkomu í Þórshöfn. -SÁ Alverðið afar óstöðugt Heildarviðskipti á Verðbréfaþingi íslands og Opna tilboðsmarkaðnum námu 108.550.100 krónum þann 1. ágúst sl. og voru breytingar á gengi hlutabréfa ekki stórvægilegar en héldu áfram að stíga. Álverð var sveiflukennt í síðustu Viku. Það var 1496 dollarar tonnið á síðasta degi júlímánaðar en féll 2. ágúst niður í 1481 dollar. Það hélt síðan áfram að síga og var í 1467 dolluram í fyrradag. Byrjunarverð- ið i gær var hins vegar 1470 og bú- ist var við að það færi að stíga úr þessu eða þegar sumarleyfum lýkur í iðnríkjunum en að þeim loknum, þegar hjólin taka að snúast á ný, er búist við talsverðum breytingum. Gengi dollarsins gagnvart marki hélst í 1,47 þýskum mörkum og er búist við hækkun hans næstu daga. Búist er við að gengi hans taki í þessari viku mið af öðrum hagtöl- um en bandarískum, þó að vissu- lega verði horft til svonefndrar Brúnbókar bandaríska seðlabank- ans sem birt verður í dag. í brún- bókinni eru upplýsingar um efna- hagsmál sem lagðar verða fyrir bankaráð bankans 20 þ.m. Þetta eru þó nánast eingöngu upplýsingar sem áður hafa birst einhvers staðar. Togarinn Haukur seldi afla á markaði í Bremerhaven 29. ágúst. Aflinn var aðallega karfi, 139,2 tonn, en alls var landað 147,5 tonnum úr skipinu. Meðalverð reyndist 107,74 krónur á kíló. Hæsta verðið fékkst fyrir grálúðu, tæpar 200 krónur fyr- ir kílóið en magnið af henni var hins vegar ekki mikið, eða aðeins 187 kíló. Fyrir utan karfa og grálúðu var aflinn aðallega ufsi, 3,4 tonn og blandaður afli4,6 tonn. Gámafiski var landað í Bretlandi skömmu fyrir helgina. Hæsta verðið fékkst fyrir grálúðu, eða 196 krónur fyrir kílóið. Mest var af ýsu í þetta sinn, eða 470 tonn, og var meðalverð á kíló 82,58 krónur. 46 tonn af þorski voru boðin upp og reyndist kíló- verðið 108,36 krónur. Heildargáma- sala í Bretlandi var fyrir 75,4 millj- ónir króna. Heildarmagnið var 744 tonn og meðalverð á kíló var 101,34 krónur. -SÁ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.