Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Síða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Síða 7
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 7 Hið fræga meðal- tal hagfræðinga Þessa sögu er aö finna í Við- skiptablaðinu. Hagfræðingar eru oft gagn- rýndir fyrir meðferð sína á tölum. Ekki síst liggja hinir svokölluöu stæröfræðilegir hagfræðingar vel við höggi, einkum fyrir hið eilífa með- altal á öllu. Einu sinni fóru þrír hagfræðingar til rjúpnaveiöa. Allt í einu sáu þeir rjúpu. Einn þeirra skaut þegar í stað en kúlan lenti um það bil einum metra of langt til hægri við fuglinn. Annar skaut en kúlan lenti einum metra til vinstri við fúglinn. Sá þriðji skaut ekki en hrópaði upp fagnandi. „Við hitturn!" Nú liggja skatt- skrár landsins frammi og menn hafa að- gang að þeim í hálfan mánuð. Af einhverjum ástæðum eru þær svo teknar og læstar niður í skúffu og eng- inn fær að skoöa þær meira nema starfsfólk skatt- stofanna. Þegar skattskrárnar eru lagðar fram keppast fjölmiðlar við að birta nöfh þeirra sem greiða hæstu opinberu gjöldin á hverjum stað. Á dögunum var haft samband við Skattstofu Austurlands og beðið um lista yfir hæstu skattgreiðendur í fjórðungnum. „Þú átt við hákarla- listann," svaraði starfsmaður skatts- ofunnar og sendi síðan umbeðinn nafhalista. Þetta þótti mönnum býsna gott nafn á þessa skatta- kóngalista. DV Sandkorn Úmsjón Sigurdór Sigurdórsson Fréttir Hákarlalistinn Útdeiling sakramentis Þær eru marg- ar góðar sög- umar I bókinni Þeim varð á í messunni, eins og lesendur Sandkoms geta best dæmt um. Ein þeirra segir frá því að ný- lega hafi tveir litlir strákar farið með móð- ur annars þeirra í messu. Fylgdust þeir nú grannt með öllu sem gerðist 1 kirkjunni. Þegar svo prestur fór að útdeila sakramentinu heyrðu þeir ekki orðaskil hjá presti og hvísluðu að móðurinn: „Hvað er hann að segja núna?" Hún hvíslaði á móti og endurtók það sem prest- urinn sagði: „Líkami Krists, lifsins brauð, blóð Krists ..Hún komst ekki lengra þvi ungu mennimir gripu andann á lofti: „Ha-a, hvar fékk hann það?“ Sinn er siður í landi hverju í Víkurfréttum var á dögunum bráðskemmti- legt viðtaf við unga konu, Mörtu Eiríks- dóttur kennara, sem flutti með dóttur sína til Danmerkur fyr- ir um það bil ári. Hún segir gott að búa í Danmörku, af- koman þar sé mun betri en á íslandi og Danir hið ágætasta fólk. Hún starfaði í hluta- starfi á leikskóla í Danmörku og segir skemmtilega sögu ffá síðustu jólum. „Við íslendingar erum aldir upp á draugasögum og á jólum er siður að hræða börn með Grýlu og Leppalúða. Það er ekki litið á það sem eitthvað óhollt heldur átti það að halda okkur góðum. Fyrir okkur eru þessir hlutir eölilegir og þegar ég vildi setja upp leikrit með Grýlu í leikskólanum hryllti fóstrurnar við og báðu mig um að vera ekkert að því, það gæti bara hrætt krakk- ana. Það þótti hins vegar ekki til- tökumál að kenna þeim danskar drykkjuvísur . . .“ Átta kynferöisafbrotamál hafa komið fram á útihátíðum um helgina: Fleiri konur kæra - eina leiðin til að stöðva þetta, segir ráðgjafi Stígamóta Flest kærumál helgarinnar komu fram á hátíðinni Halló Akureyri. Myndin sýnir nokkra gesti þar búa sig til brottfar- ar á mánudaginn. DV-mynd GK Átta kynferðisafbrotamál komu fram á útihátíðum sem haldnar voru um helgina. Sex mál komu upp á Akureyri, þar af voru þrjú kærð til lögreglu, og tvö mál í Vestmanna- eyjum, sem bæði voru kærð. Þetta eru fleiri nauðgunarkærur en kom- ið hafa upp um verslunarmanna- helgi undanfarin ár. Ráðgjafar hjá Stigamótum benda þó á að þó að sjö mál hafi komið upp á yfirborðið og fjögur þeirra verið kærð megi búast við að fleiri nauðg- anir hafi átt sér stað. Að sögn ráð- gjafa Stígamóta komi sum nauðgun- armálanna fram síðar en önnur lík- lega aldrei. „Það voru tvær nauðganir kærð- ar til okkar. Önnur þeirra var sér- staklega hrottaleg þar sem korn- ungri stúlku var nauðgað og okkur grunar að fleiri en einn hafi komið þar við sögu. Það hefur enginn ver- ið handtekin enn- vegna þessara mála en við vinnum að rannsókn þeirra," sagði. Halldór Sveinsson, rannsóknarlögreglumaður í Eyjum, við DV. Fleiri konur kæra „Þetta eru alltaf sláandi tölur en breytingin finnst mér vera að það eru fleiri konur sem kæra nú en áður. Það er tilfínning okkar hjá Stígamótum að fræðslan um þessi mál sé að skila árangri að því leyti að konur eru farnar að leita sér hjálpar fyrr en hefur tíðkast og kæra oftar nauðganir. Það er því greinilega komin sterkari meðvit- und meðal kvenna um þessi mál. Það er mjög jákvætt því einhvern veginn verður að stöðva nauðganir og eina leiðin til þess er að kæra þennan hroðalega verknað," sagði Ragna Guðbrandsdóttir, ráðgjafi hjá Stigamótum, við DV. „Það er engin spurning að flestar nauðganir yfir eina helgi eiga sér stað um verslunarmannahelgina. Útihátíðirnar eru langlíklegasti vettvangurinn fyrir nauðganir. Það eru líka mörg nauðgunarmál sem koma ekki upp á yfirborðið strax og sum gera það kannski aldrei. Okkar reynsla er sú að nauðgunarmál tín- ast inn á borð til okkar þegar líður á ágúst og jafnvel í vetur. Þetta eru þá nauðgunarmál sem eru ekki kærð og ekki fjallað um þegar þau gerast. Okkur hjá Stígamótum finnst það mjög súrt og hrein synd að við skyldum ekki vera látnar starfa á þessum hátíðum. Við höfum mesta þekkingu og reynslu í þessum nauðgunarmálum og hefðum kannski getað styrkt gæsluna í þess- um málum og hvað þyrfti að passa sérstaklega. Ég býst ekki við að við hefðum getað komið í veg fyrir nauðgun en við hefðum verið mjög vel í það búnar að styðja þær konur sem lentu i þessu og um hvernig eigi að bregðast við þessu áfalli. Það eru skipuleggjendur hátíðanna sem ákveða hverja þeir vilja láta starfa þarna og þeir töldu sig hafa fólk sem gæti sinnt þessu,“ sagði Ragna. -RR Drykkjuskapurinri: Unglingar eru spegil- mynd full- orðinna - segir Ólafur H. Árnason Ljóst er að landinn innbyrti gífur- legt magn af áfengi um verslunar- mannahelgina. Mikið var um að unglingar allt niður í fjórtán ára væru á ferð eftir- litslausir, og víst þykir að margir þeirra hafi haft áfengi um hönd. Ólafur Haukur Árnason, formað- ur Áfengisvamaráðs, segir ekki skrýtið þó unglingamir vilji prófa að drekka áfengi því það sé haft fyr- ir þeim að það sé sjálfsagt að drekka ef fólk ætlar að skemmta sér. Ung- lingarnir séu bara spegilmynd af fullorðna fólkinu og temji sér eðli- lega svipaða siði og það. „Ég held að þetta sé agaleysi ís- lendinga að kenna. Af einhverjum ástæðum eiga unglingarnir ekki í neinum vandræðum með að ná sér I áfengi og þar liggur vandamálið. Drykkjan sjálf er auðvitað afleiðing þessa en það er alveg ljóst að þarna er verið að brjóta lög, einhverjir út- vega áfengið. í Bandaríkjunum t.a.m. er lögum betur framfylgt og lögaldur til áfengiskaupa er hærri. Hér erum við ekki síst að glíma við það hugarfar fólks að það sé sjálf- sagt að nota áfengi til að skemmta sér,“ sagði Ólafur. -gdt Lifnar yfir veið- unum í Smugunni Um síðustu helgi lifnaði heldur yfir veiðum íslensku togaranna í Smugunni. Að sögn Péturs 0. Sverr- issonar, hjá íslenskri aflamiðlun, virtist sem líf væri loks að lifna á svæðinu. Engar tölur éru þó hald- bærar enn þá. Um helgina voru 25 íslenskir togarar að veiðum í Smug- unni en voru 30 þegar mest var á dögunum. Veiðin hefur verið fádæma dræm á svæðinu síðustu vikur, mun lak- ari en á sama tíma i fyrra. -S.dór Ef þú kaupir þvottavét, án þess að skoða AEG þvottavélar. AEG AEG Lavamat 6955 Lavamat 9205 aegDŒEEIí] AEG þvottavélar eru á um það bit 27.000 íslenskum heimilum. • AEG þvottavélar eru á tvöfalt fteiri heimitum. er næst algengasta þvottavélategundin. • Yfir 857» þeirra sem eiga AEG þvottavel. mundu vilja kaupa AEG aftur Hvað segir þetta þer um gæði AEG þvottavéla7 Eða AEG yfirleitt? Þriggja ára ÁBYRGÐ Á ÖLLUM AEG ÞVOTTAVÉLUM ...er það eins og ferð til Egyptalands án þess að skoða 1 jr jr ■ Gerð LAVAMAT 508 LAVAMAT 9205! sn.pr. mín. BS 700 - 1000 LAVAMAT 9451 700 - 1200 si LAVAMAT 6955 I 700 - 1500 Staðgr. 79 500 106 900 Vesturland: Málningarþjónustan Akranesi, Kf. Borgfirðinga, Borgarnesi. Blómsturvellir, Hellissandi. Guðni Hallgrímsson, Grundarfirði. Ásubúð.Búðardal. Vestfirðir: Geirseyrarbúðin, Patreksfirði. Rafverk, Bolungarvfk.Straumur.ísafirði.Norðurland: Kf.Steingrímsfjarðar.Hólmavfk. Kf. V-Hún., Hvammstanga. Kf. Húnvetninga, Blönduósi. SkagfirðingabúðiSauðárkróki. KEA byggingavörur, Lónsbakka, Akureyri.KEA, Dalvík. KEA, Siglufiröi Kf. Þingeyinga, Húsavík.Urð, Raufarhöfn. Austurland: Sveinn Guðmundsson, Egilsstöðum. Kf. Vopnfirðinga, Vopnafirði.Verslunin Vík, Neskaupsstað. Kf. Fáskrúðsfiröinga, Fáskrúðsfirði. KASK, Höfn. Suðurland: Mosfell, Hellu. Árvirkinn, Selfossi. Rás, Þorlákshöfn. Jón Þorbergs, Kirkjubæjarklaustri. Brimnes, Vestmannaeyjum. Roykjanes: Stapafell, Keflavík. Rafborg, Grindavík.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.