Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Side 11

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Side 11
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 11 Fréttir Auknar rekstrartekjur ríkissjóðs: Sýna mikið launaskrið og skýr merki um þenslu - segir Sighvatur Björgvinsson alþingismaður Heildartekjur ríkissjóðs á fyrri helmingi ársins urðu 64,7 milljarðar sem er 4,5 milljörðum meira en áætlað var. Að mati fjármálaráðu- neytisins verða viðbótartekjur rík- issjóðs á árinu öllu ekki undir þremur milljörðum króna. Skýringar ráöuneytisins á þess- um auknu tekjum eru þær að meiri umsvif eru í efnahagslífinu en gert var ráð fyrir, m.a. vegna aukins fiskafla. Þá er kaupmáttur heimil- anna meiri og atvinnuleysi minna. Ráðuneytið telur að um helming tekjuaukans megi rekja beint til „meiri launa- og tekjubreytinga en forsendur fjárlaga gerðu ráð fyrir“, eins og segir í fréttatilkynningu ráðuneytisins. Þá segir að tekjur hafi aukist verulega af innflutnings- og vörugjöldum, m.a. vegna mikils innflutnings neysluvara, ekki síst bíla og heimilistækja. „Skýringin á þessu er sú að það er byrjað launaskrið í þjóðfélaginu. Tekjur fjölskyldnanna verða mun meiri á árinu 1996 en áætlað var á grundvelli kjarasamninga o.fl,“ seg- ir Sighvatur Björgvinsson alþingis- maður í samtali við DV. Sé um tiltölulega fáa hópa að ræða, eins og haldið hefur verið fram, þá er launaskriðið hjá þeim mjög mikið, að mati Sighvatar, þar sem um allháar meðaltölur er að ræða í þessum tölum ráðuneytisins. „Sé hins vegar um almenna launa- uppsveiflu í þjóðfélaginu að ræða þá eru allir að fá auknar tekjur um- fram forsendur kjarasamninga og um það þarf að afla upplýsinga," segir Sighvatur. Auknar tekjur ríkissjóðs vegna meiri innflutnings á bílum og heimilistækjum helst í hendur við vaxandi skuldir heimilanna og þýðir það að fólk er ekki einungis að ráðstafa auknum tekjum sínum heldur líka að eyða fyrirfram. Þetta eru skýr þenslumerki, að mati Sighvatar, og það sé að skap- Hvalfjarðargöngin: Vilja tengiveginn vestan Akrafjalls ast hætta á að verðbólga fari vax- ar skuldabréfa ríkisins og nýs út- andi og vextir hækki, eða í það boðs á lægri vöxtum. minnsta lækki ekki, eins og þeir -SÁ ættu að gera í í kjölfar innköllun- 9 0 4 * 5 0 0 0 Verð aðeins 39,90 mín. * I Þú þarft aðeins eitt símtal | í Lottósíma DV til að fá nýjustu i tölur í Lottó 5/38, Víkingalottó ! og Kínó * LOTíOs/mi 9 0 4 - 5 0 0 0 Fyrirhuguö hraðbraut Grunnafjoröur Tilllaga Akurnesinga Akrafjall 4k Vf* Innri-Akraneshr. Akranes Fyrirhuguð Innri-Akraneshr. Núverandi vegur veröur hraöbraut malbikaður í sumar DV, Akranesi Bæjarráð Akraneskaupstaðar hef- ur skorað á ríkisstjómina að beita sér fyrir því að aðalvegtengingin vegna Hvalfjarðaganga verði vestan Akrafjalls, yfir Grunnafjörð. Þetta er í samræmi við svæðisskipulag sveitarfélaganna sunnan Skarðs- heiðar frá október 1994 og álitsgerð Hvalfjarðarnefndar frá 1992. Góð tenging við aðalvegakerfi landsins hefur mikla þýðingu fyrir framtíðarþróun atvinnulífs á Akra- nesi og Vesturlandi i heild. Umrædd vegtenging styttir vegalengdir á milli byggðarlaga umtalsvert sem er þýðingarmikið vegna samskipta þessara byggðarlaga í heilbrigðis- málum, skólamálum og fleiri mál- um. Bæjarráð minnir á þjóðhagslegt mikilvægi svæðisins sunnan Skarðsheiðar, meðal annars vegna iðnaðaruppbyggingar við Grundar- tanga. Bent skal á að miklu máli skiptir að framtíðarskipulag svæð- isins liggi ljóst fyrir hið fyrsta hvað varðar samgönguleiðir, til að eyða óvissu og koma í veg fyrir óþarfa kostnað og tvíverknað. Bæjarráð Akraness væntir þess að ríkis- stjómin taki þessari málaleitan vel stjómvalda sem fyrst. -DVÓ og aö hún fái jákvæða umfjöllun S ujraonnarl oður syfiíMRar I fu! I tf m gangi á 3 ju hié í Kringlunni S*K*I *F -A-N Mikið úrval af geislaplötum frá 199 kr. • kassettum frá 99 kr. myndböndum frá 299 kr. • tölvuleikjum frá 599 kr. Mýjíir vipjr

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.