Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Page 12

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Page 12
12 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 Útgáfufélag: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Stjórnarformaöur og útgáfustjóri: SVEINN R. EYJÓLFSSON Framkvæmdastjóri og útgáfustjóri: EYJÓLFUR SVEINSSON Ritstjóri: JÓNAS KRISTJÁNSSON Aóstoöarritstjóri: EUAS SNÆLAND JÓNSSON Fréttastjóri: JÓNAS HARALDSSON Auglýsingastjóri: PÁLL STEFÁNSSON Ritstjórn, skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar: ÞVERHOLTI11, blaöaafgreiðsla, áskrift: ÞVERHOLTI14,105 RVlK, SÍMI: 550 5000 FAX: Auglýsingar: 550 5727 - RITSTJÓRN: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 GRÆN númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Stafræn útgáfa: Heimasíða: http://www.skyrr.is/dv/ Ritstjórn: dvritst@centrum.is - Auglýsingar: dvaugl@centrum.is. - Dreifing: dvdreif@centrum.is AKUREYRI: Strandgata 25, sími: 462 5013, blaðam.: 462 6613, fax: 4611605 Setning og umbrot: FRJÁLS FJÖLMIÐLUN HF. Filmu- og plötugerð: ISAFOLDARPRENTSMIÐJA HF. - Prentun: ÁRVAKUR HF. Áskriftarverð á mánuði 1700 kr. m. vsk. Lausasöluverö 150 kr. m. vsk., Helgarblað 200 kr. m. vsk. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaösins! stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. „Dauðir" með merkimiða Sú minning nýliðinnar verslunarmannahelgar, sem upp úr stendur, er stutt myndskeið úr sjónvarpsfréttum. í geymsluskýli nokkru á Akureyri lágu áfengisdauðir unglingar í röðum. Teppi höfðu verið breidd yfir rænu- laus ungmennin og þau merkt með gulum miðum, rétt eins og lík í líkhúsi. Sýnin var ógeðfelld en táknræn fyr- ir þær ógöngur sem sumar útiskemmtanir þessarar helg- ar eru komnar í. Sannkallað ófremdarástand ríkti á Akureyri um helg- ina. Þar var fjölmennasta útihátíðin og hún var haldin í bænum sjáifum. Akureyri er fallegur bær og snyrtilegur en sú lýsing átti ekki við um verslunarmannahelgina. Fylliríið og sóðaskapurinn var yfirgengilegt og ástandið á tjaldsvæðinu hroðalegt að sögn yfirmanns svæðisins. Það þoldi ekki álagið enda margfalt fleiri gestir en gert er ráð fýrir. Fólkið ældi og meig þar sem það stóð, svo notuð séu orð stjórnandans á svæðinu. Lögreglan á staðnum hafði í nógu að snúast. Fimmtán til tuttugu fíkniefnamál komu á borð Akureyrarlögregl- unnar. Fimm kynferðisafbrot voru til rannsóknar, mað- ur var stunginn í brjóstið með hnífi og annar varð fyrir árás hóps og skaðaðist alvarlega á auga. Fjöldi annarra mála var og til rannsóknar, skemmdarverk og þjófnaðir. Þótt ástandið hafi verið slæmt núna á Akureyri er þetta ástand þekkt frá fyrri verslunarmannahelgum og öðrum mótssvæðum. Það gæti því orðið annars staðar á landinu næsta ár. En það er ekki náttúrulögmál að sauð- drukkin ungmenni vafri um og mörg viti sínu fjær af drykkju. Þetta þarf ekki að vera svona og það hlýtur að mega koma skikki á málin með átaki. Það gerist ekki með því að banna útisamkomur heldur með því að ná tökum á því sem er að gerast og stjóma samkomuhald- inu. Ábyrgðin er að hluta þeirra sem halda samkomurn- ar og eiga íjárhagslegra hagsmuna að gæta. Skemmtun- in á Akureyri var auglýst og fyrir helgi var ljóst að straumurinn lá þangað. Þó voru mótshaldarar óviðbún- ir þeim fjölda sem mætti. í annan stað er það vafasamt að efha til „orgíu“ sem þessarar inni í miðjum bæ. Þar vom þeir sem verst létu sjálfum sér og öðrum til ama og leiðinda. Mest er þó ábyrgð foreldra. Það er engin hemja að fjórtán eða fimmtán ára gömul börn sæki samkomur sem þessar ein síns liðs. Foreldrar verða að taka í taumana. Sé um fjölskylduhátíð að ræða fara foreldrar væntanlega með ungmenninu. Byggist samkoman hins vegar að mestu á sukki og svínaríi hefur barnið ekkert þangað að gera, hvorki eitt né í hópi jafnaldra. Það er vitað að á þessum sukksamkomum neyta mörg ungmenni í fyrsta sinn áfengis. Þau kunna ekki með það að fara eins og dæmin sanna. Hætta er einnig fyrir hendi að þau komist í tæri við önnur og hættulegri vímuefni. Þá er það einnig þekkt að margir fá sína fyrstu kynlífsreynslu á sömu stöðum og í afar misjöfnu ástandi. Kynferðisglæpir hafa verið fylgifiskar þessara samkundna og því er óhætt að segja að margir búi við dapra reyslu af því sem átti að vera svo skemmtilegt. Það þarf að breyta hugarfarinu. Þessar „orgíur“ eru alls ekki sjálfsagðar. Menn hljóta að geta skemmt sér með öðrum hætti undir berum himni að sumarlagi en svona. Að því þurfa foreldrar og forráðamenn unglinga að gæta. Þá er það umhugsunar- og rannsóknarefni hvar þau börn, sem veltast um dauðadrukkin á útihátíðum, ná í áfengi? Jónas Haraldsson Af fréttum umliðinna daga af Hafnarfjarðarkrötum gætu sumir dregið þá ályktun að Alþýðuflokk- urinn í Hafnarfirði hefði verið sóttur til saka og dæmdur fyrir skilasvik og fjárdrátt! Auðvitað er þetta fjarstæða. Ekkert er fjær sanni. Alþýðuflokk- urinn í Hafnarfirði hefur auðvitað hreinan skjöld í þessum efnum sem öðrum og einbeitir sér að því að stýra bæjarmálum í Hafnarfirði með farsælum og árangursríkum hætti. Sterk viöbrögö Til að taka af öll tvímæli varð- andi þessar fréttir af þeim löghrot- um, sem eðlilega hafa kallað fram sterk viðbrögð og vangaveltur um hafnfirska bæjarmálapólitík, þá er rétt að geta þess að þama er um að ræða dóm yfir einum bæjarfull- Innan Alþýöuflokksins í Hafnarfiröi benda menn á aö meirihlutasam- starfiö meö tveimur sjálfstæöismönnum sé enn ■ fullu gildi, segir m.a. í grein Guömundar Árna. Þetta er staðan í Hafnarfirði kenndist af uppákom- um og innihaldslausu orðagjálfri. Hins vegar lágu engar upplýsingar fyrir á- þeim tíma um mála- rekstur á hendur áður- nefndum bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins þegar hann gekk til samstarfs við Alþýðu- flokkinn um nýjan meirihluta. Raunar var sérstaklega spurt um það við myndun meiri- hluta, í ljósi gjaldþrots Hagvirkis haustið áður, hvort einhverjir frekari eftirmálar yrðu vegna þessa gjaldþrots. Því var svarað afdrátt- „Hver sem niðurstaða þessarar umræðu og skoðanaskipta verður innan Alþýðuflokksins er mikil- vægt að Alþýðuflokkurinn verði áfram í forystu í bæjarmálum í Hafnarfirði. “ Kjallarinn Guðmundur Árni Stefánsson alþingismaöur trúa Sjálfstæðis- flokksins vegna brota sem framin voru að stærstum hluta sumarið 1994 en þá störfuðu sam- an í meirihluta bæj- arfulltrúar Sjálf- stæðisflokksins, fjórir, og Alþýðu- bandalagsins, tveir, í bæjarstjórn Hafn- arfjarðar. Sá ein- staklingur sem hlut á að máli var þá framk væmdastj ór i og aðaleigandi stórs verktakafyrirtækis í Hafnarfirði og lét undir höfuð leggjast að skila rétthöfum virðisaukaskatti, auk staðgreiðslu- skatts, félagagjalda og meðlags- greiðslna sem þá þegar höfðu verið dregin ;af síarfs- mönnum. Hér er því miður ekki um einsdæmi að ræða þegar fyr- irtæki eru í fjár- hagserfiðleikum og lenda síðan í gjaldþroti. Það breyt- ir því þó ekki að um alvarlegt mál er að ræða, lögbrot sem á ekki og má ekki líta framhjá og taka létt á. Opna skjöldu Alþýðuflokkurinn hóf meiri- hlutasamstarf við tvo bæjarfull- trúa Sjálfstæðisflokksins sumarið 1995 þegar meirihluti Sjálfstæðis- flokksins og Alþýðubandalagsins sprakk á limminu og gafst upp við stjórn Hafnarfjarðarbæjar. Þá var mikilvægt að mynda starfhæfan og kröftugan meirihluta undir traustri forystu Alþýðuflokksins til að fá hjólin til að snúast á nýj- an leik í bænum eftir hið glataða ár undir stjórn Alþýðubandalags og Sjálfstæðisflokks sem ein- arlaust neitandi. Þess vegna kom það alþýðu- flokksmönnum algerlega í opna skjöldu þegar það kom síðar fram að mál hefði verið höfðað á hend- ur þessum bæjarfulltrúa Sjálfstæð- isflokksins vegna skilasvika og fjárdráttar sem lyktaði með sekt- ardómi og skilyrðislausum fang- elsisdómi fyrir nokkrum dögum. Alþýðuflokksmenn í Hafnarfirði líta þetta mál mjög alvarlegum augum og ljóst er að þessi sam- starfsaðili flokksins hefur veikst umtalsvert. Eðlilega eru þvf skipt- ar skoðanir um það innan Alþýðu- flokksins í Hafnarfirði hvort þess- ir samstarfsaðilar flokksins í Sjálf- stæðisflokki hafi þann pólitíska styrk sem nauðsynlegur er eftir þessa atburði. Sumir telja að svo sé ekki og þess í stað eigi Alþýðuflokkurinn i Hafnarfirði nú að leita samstarfs við Alþýðubandalagið um mynd- um nýs meirihluta. Það eigi að grafa stríðsaxirnar frá árinu 1994 þegar Alþýðubandalagið fór sam- an með Sjálfstæðisflokknum og það eigi að treysta samstarf þess- ara vinstri flokka á nýjan leik en þeir hafa einatt áður átt góða sam- leið og samstarf í hafnfirskum bæjarmálum. Jafnframt benda ýmsir á að samstarf þessara tveggja A-flokka nú yrði raunverulegt framlag til þeirrar sivaxandi og eðlilegu um- ræðu sem víða á sér stað í þjóðfé- laginu um nauðsyn á samvinnu jafnaðarmanna hvar i flokki sem þeir standa. í forystu áfram Aðrir innan Alþýðuflokksins í Hafnarfirði benda hins vegar á að meirihlutasamstarfið með tveim- ur sjálfstæðismönnum sé enn í fullu gildi, jafnvel þótt áðurnefnd- ur bæjarfúlltrúi Sjálfstæðisflokks- ins hverfi um lengri eða skemmri tíma af vettvangi stjórnmálanna. Meirihlutinn standi eftir sem áður með fimm bæjarfulltrúa Al- þýðuflokksins og þá einn bæjar- fulltrúa sjálfstæðismanna. Hver sem niðurstaða þessarar umræðu og skoðanaskipta verður innan Alþýðuflokksins er mikil- vægt að Alþýðuflokkurinn verði áfram í forystu í bæjarmálum í Hafnarfirði. Flokksfólk mun taka sinar ákvarðanir á næstu dögum og leiða málið til lykta með lýð- ræðislegum hætti á fundi trúnað- armanna flokksins. Hver sem nið- urstaðan verður er mikilvægt að Alþýðuflokksfólk í Hafnarfirði styðji hana og virði og starfi áfram af krafti og einurð að því verkefni að gera góðan bæ enn betri. Það gerist eingöngu undir styrkri stjórn Hafnarfjarðarkrata. Guðmundur Árni Stefánsson Skoðanir annarra Farsóttin fíkn „Hvar ánetjast unga fólkiö eiturefnafikninni og hver er sá lífsstíll sem það tekur sér til fyrirmynd- ar? Hvar telja sölumenn vænlegast að leggja gildrur sínar? Ef þeir sem eru að fást við fíkniefnavandann þora að leita svara við svona spumingum gæti ver- ið að þeim yrði meira ágengt en með sífelldu bulli um vonda smyglara og að herða þurfi tollgæslu og eiturefnaleit, og standa svo frammi fyrir því að fikn- in breiðist út eins og skæð farsótt með sífellt meira framboði og aukinni eftirspum." Úr forystugrein Tímans 2. ágúst. Einkennilegt val „í ljósi þess hve útlendingar og samskiptin við þá virðast mikilvæg í augum íslendinga er einkennilegt aö rúm 40% þeirra skyldu í (forseta)kosningunum velja frambjóðanda sem um árabil kaus að taka sér stöðu í þeirri stjórnmálafylkingu sem hve hatramm- ast barðist gegn mörgum helstu gmndvallarþáttun- um í utanríkisstefnu þjóðarinnar undangengna ára- tugi, það er að segja samstarfi íslendinga við ná- granna- og vinaþjóðir sínar um viðskipti og vamir.“ Vilhelm G. Kristinsson í Mbl. 3. ágúst. Einn hátæknispítali nægir „Rökin fyrir sameiningu sjúkrahúsanna eru ein- faldlega þau, að íslendingar em ekki fiölmennari er svo, að hér þarf ekki meira en einn hátæknispítala. Jafnframt hefur það Itrekað komið fram í umræðum um stóraukinn kostnað við heilbrigðiskerfið, að sá kostnaður tengist ekki sízt þeirri hátækni, sem nú ryður sér til rúms í spítalarekstri. Það er óþarfi og ástæðulaust, að tvö stór sjúkrahús standi I sam- keppni um, hvort þeirra sé betur búið tæknilega séð.“ Úr forystugreinum Mbl. 3. ágúst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.