Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Qupperneq 18

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Qupperneq 18
18 íþróttir KR-ingar koma til Mozyr í dag: Mikil uppbygging í gangi hjá Mozyr - níu ára gamalt félag sem er komið á toppinn Fylkir og Keflavík leika í kvöld Tvö af neðstu liðum 1. deildar- innar í knattspyrnu, Fylkir og Keflavík, mætast í kvöld á Fylk- isvelli klukkan 19. Þessum leik var frestað fyrir mánuði vegna þátttöku Keflvíkinga í Intertoto- keppninni. Keflavík, Fylkir og Breiðablik eru jöfn á botni deildarinnar með 7 stig hvert. Keflavík hefur leikið 9 leiki, Fylkir 10 og Breiðablik 11. Það er því óhætt að segja aö leikurinn í kvöld sé einn af úrslitaleikjum fallbarátt- unnar. Spáð góðu gengi íslendingaliðunum í þýsku 1. deildinni er spáð góðu gengi í vetur. Slagurinn um sigurinn verður á milli Kaiserslautern, Eintracht Frankfurt, Hertha Berlín, Bayer Uerdingen og Mannheim. Þjálfari Mannheim, sem Bjarki Gunnlaugsson leikur með, segir að ef Kobylanski og íslendingurinn vinni vel saman ætti liðið möguleika á að komast upp. Lið Eyjólfs Sverrissonar, Hertha Berlín, hefur styrkt sig mikið og er líklegt til afreka. Stoke gerir samning 1. deildar lið Stoke geröi um helgina þriggja ára samning við Asics og er verðmæti hans um 110 milljónir króna. Þetta er stærsti auglýsingasamningur sem Stoke hefur gert. Tippað á United Intertops-veðbankinn gaf um helgina út líkumar fyrir hver verður meistari í ensku úrvals- deildinni í vetur sem hefst 17. ágúst. Manchester United er þar sett efst á blað, Liverpool er sett í annað sætið, Newcastle í þriðja og Arsenal í fjórða. Skorar Helgi? Um næstu helgi fer fram 1. umferð í þýsku bikarkeppninni í knattspymu. Þá mætir Tennis Borussia Berlín, lið Helga Sig- urðssonar, stórliði Bayern Munchen. Það verður gaman að sjá hvert Helgi heldur þar upp- teknum hætti að skora. Á sama tíma leikir Mannheim gegn Chemnitzer og Hertha Berlín við Landmark Stendal. Sforza til Inter Miian Svisslendingurinn Ciriaco Sforza hjá Bayern gekk í gær til liðs viö Inter á Ítalíu sem þurfti að punga út 270 milljónum króna. Hann skrifaði undir til 1999 og fær 40 milljónir á ári. Jarni til Liverpool? Roy Evans framkvæmdastjóri Liverpool var í Sevilla um helg- ina í viðræðum við Real Betis um hugsanleg kaup enska liðs- ins á Roberto Jarni. Líklegt er aö Liverpool bjóði í dag um 310 milljónir í þennan snjalla Króata. Áfall hjá Derby Derby County varð fyrir áfalli um helgina þegar í ljós kom að Ashley Ward þyrfti að fara í að- gerð og verður frá keppni til 20. september. Derby keypti hann frá Norwich á sl. vori. Southall til Wolves Nú er talið nær öruggt að Neville Southall, markvörður Everton, fari til Wolves í vik- unni. Ákvæði var í samningi kappans við Everton um að ef nýr markvörður yrði keyptur væri Southall frjálst að fara. Ev- erton keypti Paul Goddard frá Oldham í síðustu viku. -JKS DV, Osló: KR-ingar koma í dag til Mozyr í Hvíta-Rússlandi þar sem þeir mæta heimamönnum í Evrópukeppni bik- arhafa á morgun, flmmtudag. Þeir flugu til Noregs í gærkvöldi og gistu þar og í morgun var svo flogið áfram til Hvíta-Rússlands. Þeir eru með Fokker-flugvél frá Flugleiðum á leigu og fljúga beint heim eftir leikinn á fimmtudag. Þeir lenda á Reykjavíkurflugvelli um nóttina. Níu ára gamalt félag MPKC Mozyr er nánast nýtt félag en það var stofnað árið 1987 og er að leika sitt annað tímabil í 1. deild og í fyrsta skipti í Evrópukeppni. Það er samtvinnað fyrirtæki sem nefnist Mozyr Comercial og að sögn Þor- DV, Suðurnesjum: Teitur Örlygsson, sem leikur með gríska liðinu Larissa í vetur, hefur byrjað æfingar hjá liðinu en áður en þær hófust fór hann í læknisskoðun sem hann stóðst. Þá fór hann einnig í lyfjapróf en undir slíkt próf þurfa allir leikmenn að gangast undir í gríska körfuboltanum. Richard Dumas veriö keypt- ur til Larissa Larissa hefur fengið til liðs við sig nokkra sterka leikmenn og í þeim hópi er enginn annar en Ric- hard Dumas sem var á sínum tíma stigahæsti leikmaður Phoenix Suns og lék þar með Charles Barkley. Dumas lenti í lyfjavandræðum og var látinn fara frá Phoenix af þeim sökum. Hann er búinn að ná sér af þeim ófógnuði og verður ef- láks virðist sem félagið hafi úr tals- verðum peningum að moða. Félagið er frá borginni Mozyr sem er í suð- austurhluta landsins, 350 kílómetra frá höfuðborginni Minsk og aðeins í um 100 km fjarlægð frá Tsjemobyl, kjarnorkuverinu illræmda í Úkra- ínu. Mikil uppbygging Þorlákur Bjömsson, fram- kvæmdastjóri knattspyrnudeildar KR, dvaldi hjá Mozyr fyrir skömmu, kynnti sér aðstæður og sá liðið spila. „Hlutimir hafa gerst hratt hjá þessu félagi og þama á greinilega mikil uppbygging sér stað. Völlur- inn sjálfur er nýr og sagður sá besti í Hvíta-Rússlandi en umgjörðin um hann er ekki mikil ennþá, stúkan er laust Larissa ómetanlegur í deild- inni í vetur. Teitur hefur verið að skoða íbúðir í Larissa en fjölskylda hans heldur utan um leið og hann hefur fundið sér íbúð. í gríska körfuboltanum era mikl- ir peningar í spilunum og þó nokkr- ir bónusar þegar liðin ná árangri. Þeir sem sitja á bekknum fá jafnháa bónusa. Larissa leggur allt í sölumar til að ná sem bestum árangri í vetur. Liðið hafnaði I neðri hlutanum á siðasta timabili en núna er stefnan að gera enn betur. Þjálfarinn þekktur fyrir aö koma mönnum í form á stuttum tíma Teitur Örlygsson hefur fengið að kynnast erfiðum æfingum í Grikk- landi. Að sögn Tómasar Tómasson- opin og minnir um margt á Kapla- krika og þeir segja að hægt sé að troöa um 6.000 áhorfendum inn á svæðið. Þeir fengu einmitt endan- lega staðfestingu frá UEFAum að þeir mættu spila á vellinum á með- an ég var hjá þeim. Framkvæmda- stjóri félagsins heitir Leonid Garai en hann kom til Mozyr fyrir fjóram mánuðum frá Dinamo Minsk. Þar hafði hann verið framkvæmdastjóri í 9 ár og forseti í 12 ár þannig að þar er á ferð maður með mikla reynslu,” sagði Þorlákur við DV. KR-ingar fóru utan með sitt sterkasta lið að öðru leyti en því að Guðmundur Benediktsson er frá vegna meiðsla. Sigurður Öm Jóns- son, sem missti af leiknum gegn Leiftri, er hins vegar búinn að ná sér og verður með í Mozyr. -VS ar, umboðsmanns Teits, eru æfing- arnar mjög erfiðar. Þjálfari liðsins er þekktur fyrir þær og hefur meira að segja skrifað bók um æfingar og hvernig komast má í gott leikform á sem skemmstum tima. Æfingarnar jaöra viö þræla- æfingar Tómas sagði í samtali við DV að Teitur hefði verið gjörsamlega bú- inn eftir æfingamar og jaðri þetta við að vera þrælaæflngar. Tómas segir að í æfmgabúðum þessa dagana sé æft uppi í fjöllum þar sem er gríðarlegur hiti en hann hefur stundum farið upp í 40 stig. Það verður gaman aö sjá hvemig einum besta körfuknattleiksmanni landsins vegnar í grískum körfu- bolta sem er einn sá besti í Evrópu. -ÆMK KR-ingar stíga upp í Fokkerinn á Reykjavíkurflugvelli í gærkvöldi. Þeir gistu í Osló í nótt, koma til Hvíta-Rússlands í dag og fljúga síöan beint heim eftir leikinn á morgun, meö stuttri millilendingu í Noregi. DV-mynd JAK Æfingar uppi í fjöllum í gríðarlegum hita - Teitur Örlygsson kynnist erfiðum æfingum í Grikklandi MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 31 DV Sagt eftir leikinn: Færðum þeim sigurinn „Við fengum á okkur tvö ódýr mörk og það má segja að við höfum frekar fært þeim þennan sigur heldur en þeir hafi skapað hann. Mörkin komu á slæmum tíma. Við vorum að komast inn í leikinn þegar ósköpin dundu á. Okkur var refsað grimmilega fyrir mistökin,” sagði Guðjón Þórðarson, þjálfari ÍA, við DV eftir leikinn. „ í hálfleik reyndi ég að segja strákunum að leikurinn yrði erfiður og þeir yrðu bara að hafa gaman af honum og nýta sér þá reynslu sem hægt er að fá út úr svona leik. Menn þurfa að læra að spila við svona sterka aðila. Þessir menn spila mög einfalt. Þeir hreyfa sig vel án bolta og það er þessi vinna sem þarf að vera markvissari hjá okkur. Ég verð að meta það hvað ég hef af heilum mönnum í síðari leikinn. Bikarúr- slitaleikurinn er á eftir og við verðum bara að skoða hvað við gerum,” sagði Guðjón. Hrósa ÍA fyrir góöa frammistööu „Ég var fyllilega sáttur við leik minna manna. Sigurinn var sanngjam og við vor- um mun betri aðilinn í leiknum. Eftir að við skoraðum mörkin tvö í fyrri hálfleik vissi ég að við myndum vinna en ég get hrósað ÍA fyrir góða frammistöðu og fyrir að hafa ekki geflst upp. Auðvitað lítur þetta vel út fyrir okkur en við munum ekkert slaka á í seinni leiknum. Mér fannst vöm- in hjá ÍA spila vel og ungi framherjinn nr. 4 (Bjami Guðjónsson) er góður og hefur burði tO að ná langt í íþróttinni,” sagði Al- exander Tarkhanov, þjálfari CSKA, eftir leikinn. Fyrsti ósigurinn í 6 leikjum Tapið í gær var það fyrsta í sex síðustu heimaleikjum Skagamanna í Evrópukeppninni og um leið fyrstu mörkin sem LA fær á sig í síðustu sex leikjum eða frá árinu 1989. -GH Körfubolti: Ungverji þjálfar á Króknum DV, Sauðárkróki:. Úrvalsdeildarlið Tindastóls hefur ráðið til sín ungverskan þjálfara aö nafni Agusto Nagy og hóf hann þjálfun á liðinu í sfðustu viku. Nagy hefur mikla reynslu af ung- lingaþjálfun en þjálfun fullorðinna er nán- ast frumraun hans. Nagy tekur við starfi af Páli Kolbeinssyni sem þjálfað hefúr Tindastól undanfarin ár. Terry John er kominn til Sauðárkróks og aö sögn Halldórs Halldórssonar, for- manns körfuknattleiksdeildar Tindastóls, er stefnt að því að fá evrópskan miðherja til liðsins. Þessa dagana era Tindastóls- menn að skoða nokkra menn sem koma til greina. „Málið er í gerjun,“ eins og Halldór orðaði það í samtali við DV. Vonir standa til að Páll Kolbeinsson dragi fram skóna í vetur. -ÞÁ JOV Mihaljo Bibercic átti erfitt uppdráttar gegn feikisterkum varnarmönnum CSKA Moskva á Akranesi i gærkvöldi. Hér reynir Bibercic aö snúa á varnarmenn Rússanna sem eru fjölmennir. Skagamenn töpuöu leiknum, 0-2, og möguleikar þeirra á aö komast áfram í keppninni eru hverfandi. DV-mynd Evrópukeppni félagsliöa í knattspyrnu: Mörk á silfurfati - þegar Skagamenn töpuðu fyrir CSKA Moskva, 0-2, í gærkvöldi Draumur Skagamanna um að komast í 1. umferð Evrópukeppni félagsliða i knattspyrnu er að öllum líkindum úti eftir 0-2 tap gegn CSKA Moskva í 2. umferð forkeppni Evrópmnótsins á Akranesi I gær- kvöldi. Segja má að íslandsmeistar- amir hafi fært Rússunum sigurinn á silfurfati en bæði mörkin vora af ódýrari gerðinni og hefði verið hægt að koma í veg fyrir þau. Sigur Rússanna var þrátt fyrir það fyOilega sanngjarn. Þeir voru betri lengst af leiksins og í síðari hálfleik léku þeir £if yfirvegun og miklu öryggi. Rothögg á fjórum mínútum CSKA byrjaði leikinn betur og það tók Skagamenn nokkum tíma að komast í takt við leikinn. Rúss- arnir létu boltann vinna vel og spil- uðu oft vel í gegnum Skagamenn- ina. Eftir hálftíma leik fóra leik- menn ÍA að bíta betur frá sér og virtust vera að ná betri tökum á leiknum. En þá kom slysið. Þórði markverði urðu á mistök þegar hsmn hugðist hreinsa frá marki sínu og CSKA skoraði ódýrt og slysalegt mark. Við markið misstu Skagamenn einbeitinguna og aðeins fjóram mínúhun síðar lá knöttur- inn aftur í marki þeirra eftir mik- inn sofandahátt í vörninni. Þar með var ljóst að róður íslandsmeistar- anna yrði þungur það sem eftir lifði leiksins. Síðari hálfleikurinn var með ró- legra móti. Skagamenn reyndu að færa sig framar á völlinn en hinir léttleikandi leikmenn CSKA létu ekki smápressu hafa áhrif á sig. Þeir spiluðu af miklu öryggi út úr vöminni og leikmenn ÍA náðu sjald- an að setja leikmenn CSKA úr jafn- vægi. Rússamir voru ekki i neinum sóknarhug, þeir spiluðu vel úti á vellinum og virtust sætta sig fylli- ega við orðinn hlut. Skagamenn fengu besta mark- tækifæri sitt þegar stundarfjórðung- ur var eftir, þá skaut Jóhannes Harðarson yfir mark CSKA úr dauðafæri úr sinni fyrstu snertingu en hann hafði nýkomið inn á sem varamaður. Of mikil viröing? Með þessa stöðu er ekki hægt að reikna með því að Skagamenn geri neinar rósir í Rússlandi eftir hálfan mánuð. Lið CSKA er allt of sterkt til að geta tapað með tveggja marka mun á heimavelli. Leikmenn ÍA virtust á köflum bera of mikla virð- ingu fyrir andstæðingunum og náðu ekki að sýna sitt rétta andlit. Það var mikið rothögg fyrir Skaga- menn að fá þessi ódýru mörk á sig þegar þeir virtust vera að koma inn í leikinn. Haraldur Ingólfsson og Steinar Adolfsson léku einna best í liði Skagamanna. Vömin í heild stóð fyrir sínu þrátt fyrir sofandahátt í öðra markinu en allt bit vantaði í sóknarleikinn. Liö CSKA geysisterkt Það er engum blöðum um að fletta að hið unga lið CSKA er geysi- sterkt og engin skömm fyrir Skaga- menn að þurfa að falla úr leik fyrir því. Rússamir höfðu það umfram leikmenn ÍA að þeir spiluðu boltan- um með fáum snertingum, vora hreyfanlegir án boltans og skipu- lagöari í öllum leik sínum. -GH Frakkar spenntir eftir sigur Nígeríumanna Franskir iþróttafréttamenn eru yflr sig ánægðir með knattspyrnukeppni ólympíuleikanna og segja að hún boði skemmtilega og spennandi úrslita- keppni HM í Frakklandi áriö 1998. Á ólympíuleikunum léku lið 23 ára og yngri og þar var fjöldi leikmanna sem þegar er farinn að spila með A- landsliðum þjóða sinna og verða eflaust í aðalhlutverkum eftir tvö ár. Sóknarknattspyrna var í hávegum höfð, sérstaklega hjá Nígeríumönnum, sem unnu hug og hjarta allra með frá- bærri frammistöðu sinni en þeir skor- uðu 7 mörk hjá Brasilíu og Argentínu i undanúrslitum og úrslitum keppninn- ar. Það er knattspyrnan, sem Afríku- og Suður-Ameríkuliðin sýndu, sem hrifur Frakkana mest en þeir benda einnig á góða frammistöðu Japana og Suður- Kóreumanna. „Eftir mjög dapra Evrópukeppni eru skilaboðin frá ólympíuleikunum þau að evrópska knattspyman þarf að vakna til lífsins ef ekki á að valta yfir hana í Frakklandi 1998,“ segir íþrótta- dagblaðið L’Equipe meðal annars. France Football segir: „Flestir efni- legustu leikmannanna eru sóknar- menn, sem betur fer. Juninho hjá Bras- ilíu var sennilega besti leikmaður keppninnar og það væri honum fyrir bestu að forða sér sem fyrst frá enska liðinu Middlesboro.“ -VS Öpna Norðurlandamótið í körfuknattleik: Island tapaði fyrsta leiknum gegn Dönum - mætir Lettlandi í kvöld íslenska landsliðið í körfuknatt- leik tekur þátt í opna Norður- landamótinu, Polar Cup, sem hald- ið er í Tampere, Finnlandi, og spil- uðu þeir sinn fyrsta leik gegn Dön- um en töpuðu, 91-97. Danska landsliðið byi'jaði leik- inn betur og var yfir, 11-8, en þá tók íslenska liðið heldur betur við sér og skóraði 20 stig í röð og var yflr í hálíleik, 54-52. í seinni hálfleik komu Danimir sterkari til leiks og náði íslenska liðiö ekki að svara sterkum leik þeirra. ísland mætir Lettlandi í dag, síðan verður spilað gegn heima- mönnum i Finnlandi á morgun og síðasti leikurinn fer fram 10. ágúst en þá leika íslendingar gegn lands- liði Svíþjóðar. -JGG 4- íþróttir Gummi með gegn Blikum Likur eru á að Guðmundur Benediktsson verði orðinn klár í slaginn þegar KR-ingar sækja Breiðablik heim í 13. umferð 1. deildarinnar í knattspyrnu laug- ardaginn 17. ágúst. Guðmundur meiddist illa á hné í leik gegn ÍA á dögunum og gekkst undir aðgerð. Rætt var um að hann yröi ekki leikhæfur fyrr en í fyrsta lagi í september en að sögn Lúkasar Kostic, þjálf- ara KR, er hann byrjaður aö æfa og mun líklega spila með í 20-25 mínútur í leiknum gegn Breiða- bliki. -VS/GH Rodman semur Dennis Rodman, hinn litríki leikmaöur Chicago, er búinn að ganga frá eins árs samningi við Bulls en hann átti í útistöðum við forráðamenn liðsins fyrir skömmu um launamál. Þróttarar funda Aðalfundur Knattspyrnufé- lagsins Þróttar verður haldinn í kvöld í félagsheimilinu Þrótt- heimum og hefst hann stundvís- lega klukkan 20. Stólarnir ekki með Kvennalið Tindastóls hefúr dregið lið sitt úr keppni í 1. deild. Liðið hefur verið að missa fjölda stúlkna undanfama tvo vetur þannig að nú eru einvörð- ungu eftir stelpur í unglinga- flokkum. Það þótti því ekki leng- ur stætt á að senda meistara- flokk í keppni. Nokkrir í leikbann Nokkrir 1. deildar leikmenn voru úrskurðaðir í leikbann á fundi aganefndar KSÍ í gær. Grétar Einarsson, Grindavík, Jakob Jónharðsson, Keflavík, Izudin Daði Dervic, Leiftri, og Salih Heimir Porca, Val, fá allir eins leiks bann. Þorsteinn Hall- dórsson, Þrótti, Reykjavík, fær tveggja leikja bann, Daði Lárus- son, FH, fær eins leiks bann og einnig Jón Hrannar Einarsson, KA. -JKS/JGG IA (0) 0 CSKA (2) 2 0-1 Dmitri Karsakov (33.) Þóröur markvöröur átti misheppnaö útspark frá markinu. Boltinn fór í Ólaf Ad- olfsson og þaðan til sóknarmanns CSKA sem lagði hann á Karsakov og skoraði hann af öryggi. 0-2 Edgards Jankauskas (37.) fékk boltann einn og óvaldaður á vítateig og skoraði örugglega fram hjá Þórði. Lið ÍA: Þórður Þóröarson Stur- laugur Haraldsson, Zoran Miþkovic, Ólafur Adolfsson, Steinar Adolfsson - Kári S. Reynisson, Ólafur Adolfsson, Alexander Högnason (Gunnlaugur Jónsson 87.), Haraldur Ingólfsson - Bjami Guöjónsson (Stefán Þórðarson 75.), Mihaljo Bibercic (Jóhannes Harðarson 75.) Lið CSKA: Tyrapuchine Macharin, Khokhlov, Bushmanov, Semak, Karsakov (Gerassimov 60.), Minko, Jankauskas, Shoudov, Leóni- das (Pervuchine 79.), Samaroni (Ouli- anov 46.) Markskot: Akranes 9, CSKA 11. Horn: Akranes 2, CSKA 5. Gul spjöld: Sturlaugur, Khokhlov, Bushmanov. Rauð spjöld: Engin. Dómari: Lambek frá Danmörku. Dæmdi mjög vel. Áhorfendur: Um 1200. Skilyrði: Frábært knattspyrnu- veöur, logn, úrkomulaust og völlur- inn góður. Sturlaugur í bann Sturlaugur Haraldsson fékk sitt annaö gula spjald i Evrópu- keppninni í gær og missir af síð- ari leiknum i Moskvu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.