Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Blaðsíða 29

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Blaðsíða 29
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 41 Myndasögur C cö Eh w w ÍH w w • l-l o 'Ö tí o w v(D £ Göfugasta form vináttunnar finnst milli manna sem vænta mikils hver af öðrum ien biðja aldrei um það. Fréttir Bandaríkamaöurinn Malvin Nilsen meö 16 og 12 punda laxa úr Grímsá í Borgarfirði en Grímsá var í þriðja sæti í gærkvöld meö 990 laxa. DV-mynd Sigurður F. Þorvaldsson Loksins - loksins rigndi: Norðurá lang- fengsælasta veiðiáin Loksins tóku veðurguðirnir sig til og létu rigna svo um munaði um stóran hluta landsins. Veiðiámar frá Laxá á Refasveit og suður að El- liðaám eru allt önnur sjón en fyrir fáum dögum. Hrútafjarðará og Síká, sem voru að þorna upp, eru orðnar veiðiár aftur. Síkáin rann ekki en staðan er gjörbreytt núna. Vatns- dalsá var reyndar meira en vatns- mikil í gærdag, hún var eins og kókó á litinn. Enda renndi enginn í hana í gærdag. Stundum getur lika rignt oft mikið. „Við erum að komast í 1450 laxa á næstu klukkutímunum, svo þetta er í góðu lagi, vatnið er gott og næstu dagar gætu orðið mjög góðir," sagði Halldór Nikulásson, veiðivörður við Norðurá, í gærkvöld en Norðurá er langefsta veiðiáin þessa dagana og fátt virðist geta komið í veg fyrir að hún verði sú besta eitt árið enn. „Laxavinirnir eru núna í finu vatni og næstu veiðimenn ættu að veiða vel. Fiskurinn er fyrir hendi, bara að fá hann til að taka,“ sagði Halldór í lokin. „Núna erum við með Langá á Mýrum í 1030 löxum og erum komn- ir vel yfir þúsundið,“ sagði Runólf- ur Ágústsson í gærkvöld, er við spurðum frétta af veiðiskapnum. En Langá er í öðru sæti á eftir Norð- urá. Grímsá í Borgarfirði var komin með 990 laxa í gærkvöld og var hún aðeins skoluð eftir regnið. Menn áttu von á góðu skoti þegar áin hreinsaði sig. Grimsá er í þriðja sætinu. „Það eru komnir á bilinu 950 til 970 laxar á þessari stundu. Áin var lituð í morgun en er að hreinsa sig, það hefur rignt töluvert," sagði Bragi kokkur i veiðihúsinu Helga- vatni við Þverá í Borgarfirði i gær- kvöld, en Þverá er í fjórða sætinu. „Veiðin tók góðan kipp þegar tók að rigna verulega hérna á laugar- daginn," sagði Bragi enn fremur. Rétt fyrir neðan þessar fjórar eru Rangárnar, Elliðárnar, Laxá í Leir- ársveit og Laxá i Aðaldal. Vikuveið- in í Laxá í Leirársveit var um 200 laxar fyrir skömmu en núna eru er- lendir veiðimenn við veiðar. -G.Bender Hestaíþróttalands- liðið reynslumikið - keppt í Svípjóð um næstu helgi Valið hefur verið níu knapa landslið sem keppir á Norðurlanda- mótinu í hestaíþróttum um næstu helgi í Svíþjóð og jafnframt fjögurra knapa unglingalandslið sem keppir á sama stað. Flestir knapanna eru búsettir á íslandi en nokkrir þeirra gera út frá Þýskalandi og Noregi. I fimmgangsgreinunum keppa: Guðmundur Einarsson á Brimi frá Hrafnhólum, Jóhann G. Jóhannes- son á Lokku frá Stördal, Styrmir Snorrason á Öskju frá Emmelund og Guðni Jónsson á Garra frá Steinnesi. Einnig var valinn í liðið Einar Ö. Magnússon, en hann varð að hætta við keppni vegna andláts fóður síns Magnúsar Hákonarsonar, sem lést í hestaferðalgi fyrir helgina. Magnús- ar verður saknað á hestamótum. í fjórgangsgreinunum keppa: Magnús Gíslason á Þór frá Skörðug- ili, Sveinn Ragnarsson á Tindi frá Hvassafelli, Aðalsteinn Aðalsteins- son á Vigni frá Hala og Herbert Óla- son á Fleyg frá Hvassafelli. íslendingum hefur gengið mjög vel á Norðurlandamótum undanfar- in ár og eru í landsliðinu Norður- landameistarar. í unglingalandsliðinu eru: Eyjólf- . ur Þorsteinsson, Sörla, Sigurður Ámundason, Skugga, Agnar S. Stef- ánsson, Hring, og Þórdís Þórisdótt- ir, Geysi. Fararstjóri verður Rosemarie Þorleifsdóttir, liðsstjóri Tómas Ragnarsson og dómarar frá íslandi Einar Ö. Grant og Jónsteinn Aðal- steinsson, Akureyri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.