Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Page 30

Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Page 30
42 MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996 Afmæli Ólafur Sigurðsson Ólafur Sigurðsson, kennari, Skólavegi 7, Keflavík, er sextugur í dag. Starfsferill Ólafur er fæddur í Keflavík og ólst þar upp. Hann lauk ungur prófi í húsgagnasmíði og hefur síðan starfað við ýmiskonar smíðavinnu. Hann var verkstjóri hjá Ramma hf. í um áratug en hóf störf sem smíða- kennari eftir það. Ólafur var próf- dómari við iðnnám húsgagnasmiða við Fjölbrautarskóla Suðurnesja og matsmaður tryggingarfélaga á Keflavíkurflugvelli. í dag rekur Ólafur skiltagerð- ina Skiltahúsið samhliða smíðakennslunni í Kefla- vík. Fjölskylda Ólafur Kvæntist 10.11. 1962 Steinunni Erlings- dóttur, f. 28.12. 1941, af- greiðslugjaldkera Sjúkra- húss Suðurnesja. Hún er dóttir Erlings E. Davíðs- sonar, bifreiðastjóra, sem nú er látinn, og k.h. Guð- Ólafur Sigurösson. rúnar S. Gfsladóttur, hús- móður i Keflavík. Böm Ólafs og Steinunnar eru Ester, f. 1.12. 1962, M.A. í tónlist frá Andrew’s University og organisti við Hvalsnes og Útskálasókn, gift Elíasi Theodorssyni, viðskipta- fræðingi, og eiga þau tvö börn; Guðrún, f. 6. 12. 1963, skrifstofustjóri, gift Grétari Emi Erlingssyni, framleiðslumanni, og eiga þau eitt barn; Davíð, f. 30.1. 1969, B.A. í íslensku, ókvænt- ur. Systkini Ólafs eru Einar Bragi, f. 13.8. 1935, skipstjóri i Keflavík; Jó- hanna, f. 6.6 1938, húsmóðir í Grindavík; Ágústa, f. 7.10. 1941, hjúkrunarfræðingur í Bandaríkjun- um; Ásta, f. 11.4. 1945, bankastarfs- maður og sjúkraliði í Keflavík. Foreldrar Ólafs: Sigurður Breið- fjörð, f. 8.3. 1911, skipstjóri og út- gerðarmaður í Keflavík og k.h. Jón- ína Helga Einarsdóttir, f. 23.1.1909. Ólafur verður að heiman á afmæl- isdaginn. Runólfur Kristjánsson Runólfur Kristjánsson sjómaður, Hraunbæ 103, Reykjavík, er áttræður í dag. Starfsferill Runólfur fæddist í Ólafsvík og ólst þar upp. Hann fór til sjós um ferm- ingaraldur og stundaði síðan sjómennsku til 1970. Þá fluttist hann til Reykjavíkur og hóf störf sem vaktmaður hjá Olíu- Runolfur Kristjánsson. félaginu hf. Esso og starf- aði þar i sautján ár. Fjölskylda Runólfur kvæntist 9.9. 1941 Jóhönnu Ögmunds- dóttur, f. 3.7. 1919, d. 1.1. 1983, húsmóður. Hún var dóttir Ögmundar Jóhann- essonar sjómanns og k.h., Hermaniu Jónsdóttur. Runólfur og Jóhanna eignuðust fjóra syni. Þeir eru: Ögmundur Her- mann, f. 28.11. 1940, bifvélavirki, kvæntur Þóreyju Þorkelsdóttur kennara; Kristján, f. 4.6. 1946, sjó- maður, kvæntur Kristínu Péturs- dóttur, starfsmanni á barnaheimili; Hörður, f. 23.7. 1947, múrari, kvænt- ur Mundu Jóhannsdóttur húsmóð- ur; Sigurður, f. 4.6. 1952, vélvirki, kvæntur Kristínu Harðardóttur húsmóður. Runólfur átti sex systkini sem öll eru látin. Foreldrar Runólfs voru Kristján S. Jónsson, f. 1.8.1880, sjómaður, og k.h., Lára Eliasdóttir, f. 27.6. 1883. Runólfur verður að heiman á af- mælisdaginn en tekur á móti gest- um í Hraunbæ 105 laugardaginn 10.8. kl. 16.00-19.00. Leiðrétting: Hans Hafsteinsson fimmtugur Þau mistök áttu sér stað á af- mælissíðu DV þann 2.8. sl. að í afmælisgrein um Hans Haf- steinsson fimmtugan var rangt farið með nafn eins barna hans. Rétt er að böm Hans og k.h., Fríðu Kristínar Elísabetar Guð- jónsdóttur, eru Hafsteinn Hans- son, Elísabet Hansdóttir, Róbert Daði Hansson og Jón Pétur Hansson. DV harmar þessa villu. Júlíus Sigurðsson Júlíus Sigurðsson, markaðs- og söluráðgjafi, Hvassabergi 14, Hafnar- firði, varð fimmtugur þann 5.8. sl. Starfsferill Júlíus fæddist og ólst upp í Reykjavík. Hann tók verslunarpróf frá Verslun- arskóla Islands 1966 og hefur starfað hjá Sindra- stáli hf. frá 1966, fyrir utan árin 1987-89 þegar Júlíus Sigurðsson. hann var í London vegna náms við Thames Polyt- echnic. Júlíus bjó í Reykjavík til 1989 en hefur siðan látin. Júlíus hefur starfað að félagsmálum, m.a. við skíðadeild Fram og var þar formaður 1973 -1977; með Round Table ísland 1974^-1987, þar af lands- formaður 1981-82. Fjölskylda Julíus er kvæntur Lilju Jónsdóttur, f. 4.4. 1950, sölufulltrúa hjá Úr- val-Útsýn. Hún er dóttir Jóns Þ. Sigurðssonar, sem nú dvelur á Hrafn- istu, og Sigurpálu Jó- hannsdóttur sem nú er björnsdóttir, sem er dóttir Lilju; Ingi Rafnar og Jón Páll. Systkini Júlíusar eru Brynhildur, f. 12.8. 1950, og Gísli, f. 15. 11. 1956. Foreldrar Júlíusar: Sigurður Júl- íusson, f. 4.12. 1917, d. 14.2. 1984, og Sigríður Gísladóttir, f. 8.10. 1925. Júlíus tekur á móti gestum laug- ardaginn 10.8. kl. 17.00-19.00 í Borg- artúni 31. búið í Hafnarfirði. Börn þeirra eru: Elísabet Guð- Andlát Haukur Helgason Haukur Helgason, ritstjóri Úr- vals, Lundarbrekku 6, Kópavogi, varð bráðkvaddur sunnudaginn 28.7. sl. Útför hans fer fram frá Há- teigskirkju í dag, miðvikudaginn 7.8., kl. 13.30. Starfsferill Haukur fæddist á Akureyri 1.12. 1936. Hann lauk stúdentsprófi frá MR 1955, viðskiptafræðiprófi frá HÍ 1960, stundaði framhaldsnám í hag- fræði við Hamborgarháskóla 1960-62 og lauk MA-prófi í hagfræði frá háskólanum i Chicago 1967. Haukur starfaði í hagfræðideild Seðlabanka íslands 1965-67, var blaðamaður á Vísi 1968-74, ritstjórn- arfulltrúi 1974-75, aðstoðarritstjóri Dagblaðsins og síðan DV 1975-96 og ritstjóri tímaritsins Úrvals 1973-74 og frá 1995. Haukur sat í stjórn Dagblaðsins hf. frá 1975 og var utanríkisritari Stúdentaráðs HÍ 1955-56. Hauki var veittur styrkur til hag- fræðináms frá fyrirtækinu Agli Vil- hjálmssyni hf. 1959-61 og hlaut Ful- bright-styrk 1962. Fjölskylda Eftirlifandi eiginkona Hauks er Nanci Arnold Helgason, f. 27.7. 1931, einkaritari. Hún er dóttir Lathrop Walker Amold, f. 7.12. 1901, d. 22.9. 1947, majors og rithöfundar í Oak Park í Illinois, og k.h., Edith Schmitz Amold, f. 23.6. 1904, nú lát- in, húsmóður. Systir Hauks er María Katrin Kri- stoffersen, f. 19.8. 1946, skurðhjúkr- unarkona í Kaupmannahöfn, gift Steen Kristoffersen verkfræðingi. Foreldrar Hauks voru Helgi Sveinsson, f. 25.7. 1908, d. 3.6. 1964, skáld og sóknarprestur að Hálsi í Fnjóskadal en síðar í Amarbæli í Ölfusi og Hveragerði, og k.h., Katrín Magnea Guðmundsdóttir, f. 4.1. 1908, nú látin, húsmóðir. Ætt Meðal systkina Helga má nefna Jakob, yfirkennara í Reykjavík; Sig- urð, garðyrkjuráðunaut Reykjavík- urborgar; Magnús, kennara og rit- höfund, og Ingibjörgu, móður Sigur- geirs heitins Þorgrímssonar, ætt- fræðings DV. Helgi var sonur Sveins, b. á Hvítsstöðum, Helgason- ar, hreppstjóra í Álftártungu, Brandssonar, bróður Helga eldri, afa Bjarna Þorsteinssonar, prests og tónskálds á Siglufirði, og afa Þor- steins, afa Þorsteins Gunnarssonar leikara. Annar bróðir Helga var Ólafur, langafi Bjarna Bjömssonar, leikara og gamanvísnasöngvara, og Sigríðar, móður Rögn- valds Sigurjónssonar píanóleikara. Móðir Sveins var Sigríður, langamma Megasar. Sigríður var dóttir Sveins, læknis á Laxár- holti í Hraunhreppi, Þórðarsonar, og Ingi- bjargar Þórðardóttur. Elísabet Guðrún var dóttir Jóns, b. í Drápu- hlíð í Helgafellssveit, Guðmundssonar, og Guðrúnar Kristínar, systur Matthildar, móð- ur Magnúsar Þorsteins- sonar, prests á Mosfelli, langafa Höskuldar Þráinssonar prófessors. Guðrún var dóttir Magnúsar, b. á Fjarðarhomi í Eyrarsveit, Þorkels- sonar, og Guðrúnar Bjarnadóttur. Katrín Magnea var dóttir Guð- mundar, b. í Hákoti í Njarðvík, bróður Finnboga, afa Kristbjargar Kjeld leikkonu. Guðmundur var sonur Guðmundar, b. í Tjarnarkoti, Gíslasonar, tómthúsmanns í Útskál- um, Gíslasonar. Móðir Guðmundar var Guðrún Jónsdóttir, b. í Gríms- fjósum, Bjarnasonar. Móðir Guð- rúnar var Guðrún Helgadóttir, hreppstjóra í Brattholti, bróður Jóns prests á Hrafnseyri, föður Sig- urðar, föður Jóns forseta. Helgi var sonur Sigtnðar, b. í Ásgarði í Grímsnesi, Ásmundssonar. Móðir Guðmundar var Guðfinna Eyjólfsdóttir, b. í Efri- vatnahjáleigu, Pálssonar. Móðir Katrínar Magneu var Ragnheiður, systir Margrétar, móður Guð- mundar í. Guðmundssonar ráðherra. Ragnheiður var dóttir Guðmundar, út- vegsb. á Neðri-Brunnastöð- um á Vatnsleysuströnd, ívarssonar, formanns í Skjaldarkoti, Jónssonar. Móðir Guðmundar var Ragnheiður Gísladóttir, húsmanns á Miðengi á Álftanesi, Jónssonar. Móðir Ragn- heiðar var Katrín Andrésdóttir, hreppstjóra í Syðra-Langholti, Magnússonar, alþm. í Syðra-Lang- holti, Andréssonar. Móðir Andrésar var Katrín Eiríksdóttir, ættföður Reykjaættarinnar, Vigfússonar. Starfsmenn Frjálsrar fjölmiðlun- ar þakka Hauki gott samstarf á liðn- um árum og senda Nanci og öðrum aðstandendum samúðarkveðjur. Haukur Helgason. I>V Til hamingju með afmælið 7. ágúst 85 ára Anna Glsladóttir, Dalseli 8, Reykjavík. 80 ára Guðrún Hafberg, Réttarholtsvegi 77, Reykjavík. Helga Jónsdóttir, Smyrilsvegi 31, Reykjavík. Reimar Marteinsson, Faxabraut 13, Reykjanesbæ. Reimar tekur á móti gestum i Vikinni í Keflavik laugar- daginn 10.8. kl. 16.00-19.00. 75 ára Helgi Pálmason, Háagerði 21, Reykjavik. Eyþór Jónsson, Grænukinn 10, Hafnarfirði. 70 ára Júlía Kristjánsdóttir, Brautai-hóli, Akureyri. Aðalheiður Helgadóttir, Hjaltabakka 8, Reykjavík. Unnur Bjömsdóttir, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. 60 ára Brynjar Þór Leifsson, Kríuhólum 4, Reykjavík. Haraldur Sigurjónsson, Álfhólsvegi 24a, Kópavogi. 50 ára Árni Rúnar Þorvaldsson, Arkarholti 16, Mosfellsbæ. Geir Hallsteinsson, Sævangi 10, Hafnarfiröi. Sigurður Sigurðsson, Hrísholti, Laugarvatni, Laugardalshreppi. 40 ára Jóna Ingólfsdóttir, Silfurbraut 15, Homafirði. Jóhanna Tryggvadóttir, Sjávargötu 20, Bessastaðahreppi. Páll Guðjónsson, Heiöarbraut 6, Hnífsdal. Áki Hermann Guðmundsson, Bæjarási 1, Skeggjastaðahreppi. Hrafnhildur Geirsdóttir, Jömndarholti 6, Akranesi. Örn ísleifsson, Álakvísl 7c, Reykjavík. Svanhildur Karlsdóttir, Þórðargötu 2, Borgarbyggð. Halldór H. Kristiansen, Snælandi 6, Reykjavík. Ólöf Dóra Þórhallsdóttir, Lyngbergi 13a, Hafnarfirði. Sigurbjörg Jónsdóttir, Tjarnarholti 7, Raufarhöfii. Bára Traustadóttir, Ástúni 12, Kópavogi. Snjólaug Sigurðardóttir, Gránufélagsgötu 33, Akureyri. Ægir Haraldsson, Skipholti 38, Reykjavík. Askrifendur fá aukaafslátt af smáauglýsingum Smáauglýsingar

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.