Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Side 32
44
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996
^P^önn
Hreinlæti var mjög ábótavant á
tjaldstæði Akureyringa.
Ældi og meig
þar sem það
stóð
„Það má segja að hreinlætis-
mál hafi ekki verið neitt vanda-
mál hér enda hafði þetta fólk
ekki neinn áhuga á slíku, það
bara ældi og meig þar sem það
Ummæli
stóð.“
ívar Sigmundsson, yfirmadur tjald-
svæða Akureyrar, í DV.
Verð að læra að slappa af
„Ég verð að læra að slappa
meira af í keppni; það er lykilat-
riði. Að láta sér líða mjög vel.“
Jón Arnar Magnússon, í Mbl.
Alkóhólistafélagið
„Samfélög heimsins líkjast
einna helst alkóhólistafélagi þar
sem hver og einn er meistari i
afneitun."
Árni Bergmann, í DV.
Ekki lengi í embætti
„Ef ég ætti að svara því nú
hvort mér þætti líklegt eða eðli-
legt að ég sæti í embætti jafnvel
fram yfir fyrsta áratug næstu
aldar yrði svarið hiklaust neit-
andi.“
Ólafur Ragnar Grimsson, í Morgun-
blaðinu.
Vélhjól eru í dag til í mörgum
stærðum og gerðum.
Fyrstu vélhjólin
Fyrsta tvíhjólið með sprengi-
hreyfli var smíðað í Þýskalandi.
Það var Gottlieb Daimler sem
smíðaði hjólið að mestu úr
timbri í Bad Constatt í október
og nóvember árið 1885. Fyrsti
maðurinn til að aka þessu vél-
hjóli var Wilhelm Maybach.
Hjólið gat náð 19 km hraða á
klst. og vélin sem var eins
strokks, 264 cm3 fjórgengisvél
skilaði hálfu hestafli við 700
snúninga á mínútu. Vélhjólið,
sem kallað var Einspur, eyði-
lagðist í eldsvoða árið 1903.
Fyrstu verksmiðjufram-
leiddu vélhjólin
Blessuð veröldin
Fyrsta verksmiðjan, þar sem
vélhjól voru framleidd i umtals-
verðum mæli var stofnsett árið
1894 af Heinrich og Wilhelm
Hikldebrand og Alois
Wolfmúller í Múnchen í Þýska-
landi. Fyrstu tvö árin framleiddi
'verksmiðjan yfir 1000 vélhjól
með vatnskælda, 1488 cm3,
tveggja strokka fjórgengisvél
sem framkallaði um 2,5 hestöfl
við 600 snúninga á mínútu, en
það er stærsta vél, miðað við
slagrúmtaks sem framleidd hef-
ur verið í vélhjól.
Rigning eða súld
Um 500 km suðvestur af Vest-
mannaeyjum er 990 mb lægð sem
þokast austur. Langt suðsuðvestur i
hafi er vaxandi lægð sem hreyfist
allhratt norðnorðaustur.
Veðrið í dag
í dag verður austan- og suðaust-
anátt, allhvasst við suðurströndina
en kaldi eða stinningskaldi annars
staðar. Rigning eða súld verður um
sunnan- og vestanvert landið en úr-
komulítið á Norðausturlandi. Hiti
verður 8 til 15 stig.
Á höfuðborgarsvæðinu er austan-
og suðaustanstinningskaldi og rign-
ing eða súld með köflum. Hiti 9 til
13 stig.
Sólarlag í Reykjavík: 22.10
Sólarupprás á morgun: 3.43
Síðdegisflóð í Reykjavík: 12.51
Árdegisflóð á morgun: 1.25
Veörid kl. 6 í morgun:
Akureyri alskýjað 6
Akurnes alskýjaó 11
Bergsstaðir skýjaö 5
Bolungarvík skýjað 6
Egilsstaðir skýjaö 6
Keflavíkurflugv. súld 9
Kirkjubkl. rigning 9
Raufarhöfn léttskýjað 8
Reykjavík rigning og súld 10
Stórhöfói súld 10
Kaupmannah. léttskýjaö 17
Ósló léttskýjaó 17
Stokkhólmur skýjað 15
Þórshöfn rigning 9
Amsterdam rigning á sið. kls. 13
Barcelona léttskýjaö 25
Chicago heiðskírt 26
Frankfurt rigning á síö. kls. 18
Glasgow hálfskýjað 12
Hamborg skýjað 16
London alskýjaö 15
Los Angeles léttskýjað 19
Lúxemborg skýjaó 13
Madrid léttskýjaó 18
Mallorca skýjaó 23
París léttskýjaö 11
Róm heiöskírt 21
Valencia þokumóóa 24
New York þokumóóa 23
Nuuk skýjaö 4
Vín hálfskýjað 14
Washington þokumóöa 22
Winnipeg heiöskirt 16
Magnús Norðdahl listflugmaður:
Fludellan hefur fylgt mér alla tíð
„Ég hef stundaö listflug lengi. A
námsárunum úti i Englandi til-
heyrði það að fikta við listflug þótt
ekki væri það hluti af flugnáminu.
Þegar heim var komið var siðan
aðeins átt við þetta á einstaka vél-
um sem voru til staðar hér en ekki
mikið. Það er varla hægt að kalla
það listflug þótt farið sé eina bak-
fallslykkju eða háa beygju enda
voru vélarnar sem þá voru til stað-
ar ekki hæfar til annars. Það má
segja að listflug byrji ekki hér á
landi fyrr en hingað kemur tékk-
nesk vél árið 1965. Þetta var góð
Maður dagsins
vél og er það enn í dag þótt hún sé
dálítið hægfara," segir Magnús
Nordahl, fyrrum flugstjóri, sem
sigraði um síðustu helgi í fyrstu
listflugskeppninni sem háð hefur
verið hér á landi.
Magnús sigraði á vél sem hann
á með Þorgeiri Ámasyni: „Vél
þessi er smíðuð með listflug í huga
og kennslu í listflugi. Það er langt
síðan það kom til tals að halda list-
flugskeppni á íslandi en þaö er
ekki mikill tilgangur í því að
Magnús Norödahl.
halda keppni þegar þátttakendur
eru aðeins einn eða tveir en aukn-
ing á flugmönnum sem stunda list-
flug gerir það að verkum að nú er
hægt að halda keppni og voru
keppendur fimm í þetta skiptið."
Magnús segir að vegna tíðra bil-
ana og óhappa meö tékknesku vél-
ina hafði áhuginn lognast út af á
tímabili. „Þegar Björn Thoroddsen
kemur með sína heimasmíðuðu
vél og ég ásamt Agnari Koefed-
Hansen fundum frönsku vélina
eftir mikla leit, má segja að list-
flug hafi hafist að nýju hér á landi.
Stutt er síðan tvær aðrar rúss-
neskar listflugvélar bættust við í
flugflotann þannig að nú má segja
að listflugið sé á uppleið og eru
það bæði eldri og yngri flugmenn
sem eru farnir að stunda listflug-
iö.“
Magnús sagði mótið hafa verið
mjög skemmtilegt: „Það kom tfl
landsins Evrópudómari, fyrrum
Concorde-flugstjóri, sem hefur
stundað listflug frá því hann var
ungur. Það kom í ljós að við höfð-
um lært við sama skóla í Englandi
en hann var aðeins á eftir mér.
Það leit ekki vel út með veðrið fyr-
ir mótið, en veðurguðirnir voru á
okkar bandi og þegar mótið hófst
var komið hið besta veður.“
Magnús var lengi flugstjóri hjá
Flugleiðum en er nú komin á eft-
irlaun. Hann er samt langt í frá
hættur að fljúga: „Auk þess að
vera í listfluginu hef ég flogið
sandgræðsluvélinni ásamt öörum
í mörg ár. Þaö er nú svo að ég hef
alltaf verið með flugdellu og þótt
flugið hafi verið mín atvinna þá
hefur flugdelian fylgt mér alla tíð
og ég losna ekkert við hana.“ -HK
Pervert.
Myndgátan hér að ofan lýsir orðtaki.
DV
Fylkir, sem á myndinni er í leik
gegn KR, leikur gegn Keflvíking-
um í kvöld.
Fylkir-Kefla-
vík í 1. deild
Nú er Ólympíuleikunum lokið
og því myndast hálfgert tóma-
rúm í hugum margra sem fylgst
hafa með gangi mála í Atlanta í
hálfan mánuð. Það er samt alltaf
nóg um að vera í íþróttum hér
heima og erlendis og til að
mynda er unglingalandslið okk-
ar í knattspyrnu, 16 ára og yngri,
statt í Noregi þar sem það tekur
þátt í Norðurlandamóti. í dag er
fyrsti leikur liðsins og eru
mótherjamir Svíar. Unglingalið
okkar hafa oft staðið sig vel á er-
íþróttir
lendri grand og er ekki að efa að
þeir veita Svíum mótspyrnu.
Hér heima er það helst að
Fylkir leikur gegn Keflvíkingum
í 1. deild karla og fer leikurinn
fram á Fylkisvelli í Árbænum.
Nú er kominn ágúst og þar með
breytast tímasetningar á kvöld-
in. í sumar hafa leikirnir hafist
kl. 20.00 en leikurinn i kvöld
hefst kl. 19.00. Á sama tíma leika
einnig í 2. deild kvenna Hafnar-
fjarðarliðin FH og Haukar á
Kaplakrikavelli.
Bridge
Fyrsti slagurinn er mjög oft sá
sem mestu máli skiptir í spilinu.
Því miður er það þannig með marga
spilara, að þeir átta sig ekki á þeirri
staðreynd fyrr en í þrettánda slag.
Skoðum hér eitt spil, austur gjafari
og allir á hættu:
* Á986
V KD105
92
* 953
4 53
ÁG8742
-f KDG
4 84
4 KDG107
v 9
4 Á76
* ÁG72
Austur Suður Vestur Norður
lv 14 pass 24
pass 44 p/h
Suður gerði rétt í því að segja 1
spaða yfir hjartaopnun austurs, en
úttektardobl í þessari stöðu reynist
oft verr, þvi erfitt getur verið að
finna 5-3 samlegu í spaðanum ef sú
leið er valin. Þó suður hafi valið
réttar sagnir var hann ekki jafn
gæfuríkur í úrspilinu. Vestur spil-
aði út hjartasexunni og sagnhafi
setti kónginn í blindum. Austur
drap á ásinn og spilaði tígulkóng.
Sagnhafi drap á ásinn, tók tvisvar
tromp, henti tígli í hjartakóng og
spilaði síðan laufi á gosann. Það var
nokkuð vonlaus tilraun, eftir að
austur var þegar búinn að sýna tíu
punkta í rauðu litunum. Sagnhafi
gaf tvo slagi á lauf og sinn hvom
slaginn á rauðu litina. Fyrsti slagur-
inn var það sem mestu máli skipti.
Hjartanían var gulls ígildi og hana
átti sagnhafi að nýta. í blindum átti
að setja hjartafimmuna í upphafi og
leyfa austri að fá slag á gosann. Tíg-
ulkóng mátti drepa á ás, taka spaða-
kóng og spila spaðatíunni á ásinn.
Síðan væri hægt að taka trompsvíh-
ingu í hjarta og henda tapslögum í
tígli þar til austur leggur hjartaás-
inn á. Spaðasjöan yrði síðan yfirtek-
in af áttunni sem innkoma í blind-
an. ísak Örn Sigurðsson
4 42
V 63
4 108532
4 KD106