Dagblaðið Vísir - DV - 07.08.1996, Side 36
L«TTf
til irniW/s
>
Vinningstölur ( g
6.8. 96
KIN
FRETTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotiö
í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
13550 5555
Frjalst.óhað dagblaö
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1996.
Læknadeilan:
Biður lækna
um að vera í
héraði
- líkur á fundi
„Við eigum von á bréfi frá heil-
brigðisráðherra þar sem hann fer
fram á það við okkur að stjóm Fé-
lags heimilislækna tryggi að læknar
verði kyrrir í sínum hémðum. Það
er ekki verið að biðja um formlega
vakt heldur einungis að menn verði
í héraði. Við tökum þessa beiðni fyr-
ir á eftir. Ég geri ráð fyrir því að við
munum taka henni vel og mælast til
þess við okkar félaga að þeir verði í
héruðunum, hver á sínum stað, í 2
til 4 daga, svo framarlega sem virkar
samningaviðræður verði í gangi,“
sagði Gunnar Ingi Gunnarsson, for-
maður Félags heimilislækna, í sam-
tali við DV í morgun.
Þórir Einarsson ríkissáttasemjari
sagðist í morgun boða sáttafund í
dag svo fremi sem samningamenn
ríkisins taki til greina nánari skýr-
ingar Læknafélags íslands á yfirlýs-
ingu stjórnar félagsins frá því fyrir
helgi. Þar var skorað á lækna að
ganga ekki í störf þeirra sem hafa
hætt störfum. Stjórn Læknafélags-
ins fundaði um þetta mál í morgun
og var þeim fundi ekki lokið þegar
DV fór í prentun. -S.dór
Leigubílstjóri af Suðurnesjum var á ferð í Reykjavík:
Skorið á öll fjög-
ur dekk bílsins
- telur reykvískan keppinaut bera ábyrgðina
„Ég var á leið til Reykjavíkur
aðfaranótt sunnudagsins að ná í
farþega frá Keflavík sem ég hafði
keyrt á skemmtistað fyrr um
kvöldið. Á leiðinni tók ég eftir því
að það elti mig leigubíll úr Reykja-
vík. Ég þurfti aðeins að koma við
heima hjá mér, en ég bý í Reykja-
vík, og þá stökk miðaldra maður
út úr leigubílnum og hafði í hót-
unum viö mig,“ sagði Hans Ómar
Borgarsson, leigubílstjóri hjá
Ökuleiðum í Suðurnesjabæ.
„Hann sagðist hafa látið vita af
mér og að það yrði fýlgst með
mér,“ sagði Hans Ómar sem hafði
í hugsunarleysi keyrt til Reykja-
víkur með kveikt á „Taxi“ ljósinu.
Hans Ómai- telur líklegt að leigu-
bílstjórinn úr Reykjavík hafi hald-
iö að hann væri í leyfisleysi að
keyra farþega í Reykjavík.
Aðeins ráðist á minn bíl
„Þegar ég svo kem að Kaffi
Reykjavik, sem er skemmtistaður-
inn þar sem viðskiptavinir mínir
voru, legg ég bílnum á stæðinu við
enda hússins og fer inn að leita að
þeim. Ég hef ekki verið meira en
svona kortér í burtu en þegar ég
kom út aftur var búið að skera gat
á öll dekkin undir bílnum með
oddhvössum hlut. Bílnum var lagt
innan um marga aðra bíla en eng-
inn þeirra var skemmdur nema
minn,“ sagði Hans Ómar.
Aðspuröur sagðist hann gruna
leigubílsfjórann sterklega þar sem
hann sagðist hafa „látið vita af
honum“.
Reyni að finna manninn
„Ég verð ekki í rónni fyrr en ég
finn þennan mann. Ég veit hvern-
ig bíllinn er og hvemig maðurinn
lítur út, ég mundi þekkja hann al-
veg um leið. Ég fer í það strax að
reyna að finna manninn og hætti
ekki fyrr en ég finn hann. Leigu-
bílstjórar hér á Suðurnesjum eru
mjög reiðir og hóta því að gefi
maðurinn sig ekki fram, eða finn-
ist, verði setið fyrir reykvískum
leigubílum við Leifsstöð. Bílstjór-
amir hér vita ekki nema þeir geti
átt von á einhverju svipuðu ef þeir
yfirgefa bílana sína í Reykjavik,"
sagði Hans Ómar.
Helsti annatimi leigubílsfjóra er
mn helgar og því erfitt fyrir leigu-
bílstjóra aö missa bílinn á þennan
hátt. Hans Ómar varð bæði fyrir
vinnutapi og fjárhagstjóni sem
hann metur á 50-100 þúsund krón-
ur. Hann þurfti að endurgreiða
viðskiptavinmn sínum „túrinn“
og skilja bílinn eftir niðri í bæ um
nóttina en fékk svo lánuð dekk til
að keyra hann til baka.
-ingo
Hljóp fyrir bíl
Þriggja ára bam slapp svo til
ómeitt eftir að það hljóp í veg fyrir
bíl á Suðurlandsbraut um miðjan
dag í gær. Barnið hljóp út á götuna
frá 14 ára dreng og til móður sinnar
sem beið hinum megin götunnar.
Bílstjóri bifreiðarinnar mun hafa
náð að beygja vel frá baminu. Það
féll engu að síður í götuna og var
flutt á Sjúkrahús Reykjavíkur með
kúlu á enni. -sv
Ekið á staur
Ekið var á ljósastaur á Hnífsdals-
•vegi um miðjan dag í gær og hann
klipptur í sundur. Fjórir voru í bíln-
um og var einn fluttur á sjúkrahús
á ísafirði til skoðunar. Hinir sluppu
með skrekkinn. Talið er aö allir hafi
verið í beltum. -sv
Datt úr
vinnupöllum
Maður datt úr vinnupöllum við
hús við Gnoðavog laust eftir klukk-
an 6 í gærkvöldi. Hann hafði verið
að klifra upp í pallana þegar hann
missti takið og datt niður á steypta
stétt. Maðurinn mun eitthvað hafa
meiðst en þó ekki alvarlega. -sv
i U-Z mm /; • ■. irf ' Sjfi
Wk, - /iV’-ícS
Knattspyrnulið KR-inga lagði upp frá Reykjavíkurflugvelli til Hvíta-Rússlands í gær. KR-ingar leika við Mpcc Mozyr,
sterkasta lið Hvít-Rússa á morgun. Það var ekki að sjá neinn kvíða á þeim félögum enda fylgdi þeim dyggur hópur
stuðningsmanna liðsins úr KR- klúbbnum. DV-mynd JAK
Stúlku bjargað:
Föst í leðju
í sjónum
„Tvær þýskar vinkonur mínar
vom í gönguferð í fjörunni niðri hjá
gamla kaupfélaginu. Þær sáu tvö
börn, um 3-4 ára gömul, stúlku og
dreng, og var stúlkan fost í leðju um
5 metra úti í sjónum. Sjórinn náði
upp að hnjám á stúlkunni og hún
var mjög hrædd. Vinkonur mínar
reyndu að ná til hennar með spýtu
en hún var svo skelfd að hún gat
ekki tekið á móti. Litli drengurinn
gróf þá með höndunum í leðjunni og
náði einhvern veginn að losa stúlk-
una og þau komust bæði í land,“
segir María Eðvarðsdóttir í Borgar-
nesi um atvik sem gerðist þar í fjö-
runni sl. sunnudag. Tvær þýskar
bekkjarsystur Maríu, 71 árs gamlar,
urðu vitni að atvikinu og sögðu
Maríu frá því.
„Það vildi litlu stúlkunni til
happs að fjara var því ef flóð hefði
verið hefðu þau verið í stórhættu.
Litli drengurinn sýndi líka mikið
hugrekki. Stúlkan jafnaði sig betur
þegar hún var komin í land en var
samt enn mjög hrædd. Vinkonur
mínar fylgdu þeim síðan heim,“ seg-
ir María.
-RR
L O K I
Veðrið á morgun:
Fremur hlýtt
í veðri
Á morgun er búist við suð-
austanátt um allt land en við
suðurströndina verður all-
hvasst. Annars staðar verður
hægara og hlýtt í veðri. Rign-
ing verður um sunnan- og vest-
anvert landið en þurrt að mestu
norðanlands.
Veðrið í dag er á bls 44.
Isuzu m
Crew Cab r
ÍSÉRSTÖKD m
TILBOÐI ■
með 3.1. túrbó díselvél 109 hestöfl
Bílheimar ehf.
Sœvarhöföa 2a Sími: 525 9000