Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1996, Qupperneq 4

Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1996, Qupperneq 4
tónlist FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996 Hörður Torfason verður á tónleikaferð um landið í október, nóvember og desember. ísland -plötur og diskar— | 1. (1 ) Pottþétt 5 Ýmsir t 2. ( 2 ) New Adventures R.E.M. t 3. ( 4 ) Falling Into You Celine Dion t 4. ( 6 ) New Beginning Tracy Chapman t 5. ( 7 ) Unreleased Cypress Hill f 6. ( 3 ) Travelling Without Jamiroquai t 7. (10) Stone Free Úr leikriti t 8. (11) Jagged Little Phill Alanis Morissette f 9. ( 8 ) Coming Up Suede f 10. ( 9 ) Trainspotting Úr kvikmynd 111. (12) It Was Written NAS f 12. ( 5 ) No Code Pearl Jam 113. (13) Pottþétt 4 Ýmsir 114. (16) GreatEscape Blur 115. (15) Salsaveisla aldarinnar Ýmsir 116. (20) First Band on the Moon Cardigans 117. (19) The Score Fugees 118. (18) Load Metallica 119. (Al) Paranoid Skunk Anansie 120. (- ) Köld kvennaráð Kolrassa Krókríðandi London -lög- t 1. (1 ) Ready or not Fugees t 2. ( 3 ) Breakfast at Tiffany's Deep Blue Something t 3. ( - ) Escaping Dina Carrol t 4. ( - ) Seven Days and One Week BBE t 5. ( 2 ) Flava Peter Andre t 6. ( - ) The Circle Ocean Colour Scene t 7. ( - ) Marblehead Johnson The Bluetones t 8. ( 4 ) Wannabe Spice Girls t 9. (11) I Love You Always Forever v Donna Lewis c 10. ( 6 ) l'm Alive x Strecth & Vern present Maddog New York -lög- t 1.(1) Macarena (Bayside Boy Mix) Los Del Rio t 2. ( 2 ) I Love You always Forever Dcnna Lewis t 3. ( 4 ) It's All Coming Back to Me Now Celine Dion f 4. ( 3 ) Twisted Keith Sweat t 5. ( 5 ) C'mon N’ Ride it (The Train) Quad City Dj's t 6. ( 6 ) Change the World (From "Phen..) Eric Clapton t 7. ( 7 ) Loungin LL Cool J t 8. ( 8 ) You're Making Me High/Let It.. Toni Braxton t 9.(12) Where Do You Go No Mercy f 10. ( 9 ) You Learn/You Oughta Know Alanis Morissette Bretland — plötur og diskar— • 1. (-) K Kula Shaker f 2. ( 2 ) Traveiling Without Moving Jamiroquai f 3. (1 ) New Adventures in Hi-Fi R.E.M t 4. ( 6 ) The Score Fugees t 5. ( - ) Spiders Space f 6. { 3 ) Jagged Líttle Pill Alanis Morissette f 7. ( 4 ) What's the Story Morning Glory? Oasis f 8. ( 5 ) Older George Michael f 9. ( 8 ) Moseley Shoals Ocean Colour Scenc t 10. (11) Occan Drive Lighthouse Farnily Bandaríkin — plötur og diskar— t 1. ( - ) Home Again New Edition t 2. ( - ) New Adventures in Hi-Fi R.E.M t 3. (- ) Another Level Blackstreet f 4. ( 2 ) Falling Into You Celine Dion t 5. (- ) Test for Echo Rush f 6. ( 4 ) Jagged Little Pill Alanis Morissette f 7. (1 ) No Code Pearl Jam f 8. ( 3 ) Atliens Outkast t 9. ( - ) Mr. Happy Go Lucky John Mellencamp f 10. ( 6 ) Tragic Kingdom No Doubt Nýjasta plata Harðar Torfasonar heitir Kossinn og er nýkomin út. Hann er reyndar ekki skráður einn fyrir plötunni að þessu sinni. Með honum er hljómsveitin Allir yndis- legu mennirnir. „Þeir vissu ekkert af því, spil- aramir mínir, að ég ætlaði að gefa þeim sérstakt nafn. Sáu það ekki fyrr en platan kom út,“ segir Hörður og hlær dátt. „Það hafa einhverjir sopið hveljur út af þessu nafni en ekki þeir. Þeir eru harðánægðir með það.“ Yndislegu mennimir eru: Hjörtur Howser hljómborðsleikari, sem jafn- framt stjórnaði upptöku Kossins. Jens Hansson leikur á saxófón og hann var jafnframt upptökumaður. Björgvin Gíslason leikur á gítar, Friðrik Sturluson á bassa og Ey- steinn Eysteinsson er trommu- og ásláttarleikari flokksins. Þá leikur Magnús Einarsson á mandólín í einu lagi og Magnús Þór Sigmunds- son og Jóhann Helgason radda í tveimur. „Það gekk alveg frábærlega að vinna með þessum mönnum," segir Hörður um samstarfið. „Við tókum plötuna upp á þremur dögum. Þar af hljóðrituðum við sjö fyrsta daginn, afganginn þann næsta og þriðja dag- inn var sungið, raddað og skreytt. Ég þurfti ekki að gera annað en að renna með þeim yfir lögin, kenna þeim þau. Svo var snakkað aðeins um hlutina, um erindafjölda, tón- hæð og þess háttar. Hvert einasta lag fór í einni töku. Þetta vom sann- arlega góðir samverkamenn, Allir yndislegu mennimir." Sungið um mannlífið Hörður segist vera búinn að spila lögin á plötunni og skóla þau til í eitt til tvö ár, velflest. Yngsta lagið er um það bil ársgamalt, hið elsta kannski þriggja til fjögurra. Og ljóð- in? „Þau eru um allt mögulegt. Vangaveltur um mannlífið. Lífsfiló- sóferingar. Ég er ekki með eitt konsept eins og stundum áður, rauð- an þráð gegnum alla plötuna. Hér og þar brýt ég hin og þessi hugtök til mergjar," segir skáldið sem ógjarn- an vúl láta kalla sig tónlistarmann, gagnstætt við Leonard Cohen sem harðneitar að vera skáld, bara tón- listarmaður. Árlegir hausttónleikar Harðar vom i Borgarleikhúsinu í byrjun september. Þar renndu hann og All- ir yndislegu mennirnir plötunni í gegn fyrir áheyrendur. Hörður seg- ist hafa haft þennan háttinn á tví- Sir George Martin sest ekki í helgan stein þótt hann hætti að taka upp plötur. vegis áður þegar þannig bar til að hann var að ljúka plötu um svipað leyti og hann hélt hausttónleika. „Svo tók maður náttúrlega auka- lög,“ segir Hörður. „Ég kallaði alla hljómsveitina til mín og við spiluð- um saman Ég leitaði blárra blóma í fullri hljómsveitarútsetningu. Fólk varð voðalega hissa og margir hrifn- ir. Það hafði vanist því að heyra lag- ið aðeins með kassagítarundirleik og mörgum þótti mikið til þess koma að fá að heyra aðra hlið á lag- inu. Nokkrir hafa orðað það við mig eftir tónleikana að ég ætti að endur- útsetja sum gömlu lögin og gefa þau út að nýju.“ Tónleikaferð Útgáfutónleikar Kossins verða í Loftkastalanum níunda október. Daginn eftir hefst tónleikaferð Harð- ar um landið. Hann verður á Kirkju- bæjarklaustri tíunda október, held- Frægasti upptökustjóri allra tima, Sir George Martin, ætlar að láta af störfum á þessu ári. Það er að segja: „...ekki taka upp plötur með nokkrum manni oftar. Ég á hins vegar eftir að ljúka við ýmis sjónvarpsverkefni. Þá ætla ég að stjórna AIR- hljóðverinu og Heart- útvarpsstöðinni og stjórna einum og einum tónleikum eftir því sem færi gefst,“ svo að vitnað sé í orð Sir Ge- orges sjálfs í nýlegu blaðaviðtali. Upptökustjórinn gamalreyndi varð sjötugur fyrr á árinu. í júní- mánuði, þegar Elísabet drottning ur austur og norður um og spilar á næstum því hverjum þéttbýlisstað til fyrsta nóvember. Það kvöld kem- ur hann fram á Hvammstanga. Síð- an tekur við nokkurra daga frí og loks fer Hörður um þau héruð sem eftir eru og verður á ferðinni fram til jóla. En er hægt að fara í ferð sem slíka og halda sig við gamla heit- strengingu um að fara ekki inn á' pöbba lýðveldisins til tónleikahalds? „Ég er ekkert á móti pöbbum í eðli sínu,“ svarar Hörður. „Ég get al- veg spilað á þeim ef loftræstingin er góð. Vandamálið er að ef ég fæ reyk í röddina verður þögn næsta mánuð- inn. En ef fólk kemur til að hlusta á það sem ég hef að segja en ekki til að skvaldra, drekka og reykja eru vel loftræstir pöbbar ekkert verri en önnur hús.“ Hörður er alvanur að ferðast um landið og flytja fólki ljóðin sín og lög. Áheyrendahópurinn hefur verið varð sjálf sjötug aðlaði hún jafn- aldra sinn, fyrstan allra upptöku- stjóra. Sir George segist hafa orðið „fullkomlega forviða" þegar hann frétti af því hvað til stæði. „Ég geri einungis ráð fyrir að fólk hafi viljað veita mér einhvern heiður áður en ég kveddi þetta jarðlíf," sagði hann um vegsauka sinn nokkru síðar. Sir George Martin setti AIR-hljóð- verið á laggirnar árið 1965, um það leyti sem Bítlaæðið stóð sem hæst. Hann sagði einhverju sinni að brú- in milli venjulegrar popptónlistar og klassískra þátta 1 tónlist The misjafn. Stundum nokkrir tugir. Einu sinni kom ein kona. „Ég ætla að láta meira á mér bera að þessu sinni en oft áður,“ segir Hörður Torfason. „Fólk segir að ég sé með sölulega plötu í farteskinu að þessu sinni. Margar eldri plöturnar mínar hafa selst hægt og rólega en fólk segir að þessi eigi möguleika." Hann fór ekki í tónleikaferð um landið í fyrra og ekki heldur í hittið- fyrra. Ástæðan er tvö bílslys sem hann lenti í með stuttu millibili. „Ég held að ég sé núna að verða góður af afleiðingum slysanna," seg- ir hann. „Ég varð fyrir miklu fjár- hagslegu tjóni vegna þessara slysa og sennilega varð líkamlega tjónið miklu meira því að maður nær sér aldrei fyllilega eftir slys sem þessi. En núna er ég að láta á það reyna hvað ég get og ég hef trú á að ég komist það sem ég ætla mér.“ -ÁT Beatles hefði átt mikinn þátt í að eyða tónlistarlegum fordómum á sjöunda áratugnum. En skyldi það þrengja enn frekar bilið milli dæg- urtónlistar og sígildrar að drottn- ingin hafði séð ástæðu til að aðla einn helsta afrekamann Bítlakyn- slóðarinnar? „Það held ég ekki,“ svarar Sir Ge- orge Martin. „En kannski gerir fólk sér betur grein fyrir því en áður að að dægurtónlistin og þá kannski sér í lagi hljómplötuiðnaðurinn eru afar þýðingarmikil tannhjól í gang- verki bresks þjóðfélags." Sir George lætur af störfum

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.