Dagblaðið Vísir - DV - 27.09.1996, Page 5
UV FÖSTUDAGUR 27. SEPTEMBER 1996
%nttst „
John Mellencamp
við danstaktana
John Mellencamp hefur orðiö að gerbreyta um lífsstíl eftir að hann fékk
hjartaáfall fyrir tveimur árum.
Hljómsveitin Papar skemmt-
ir á Dublinerskránni i Hafnar-
stræti fóstudagskvöldið 27.
september. Sveitin er skipuð
þeim Páli Eyjólfssyni, sem spil-
ar á hljómborð, Vigni Ólafssyni
gítarleikara, Georg Ólafssyni
bassaleikara, Dan Cassidy
fiðluleikara, Esteini Eysteins-
syni trommuleikara og Ingvari
Jónssyni sem sér um sönginn
og spilar á kassagítar.
Karma á
Nashville
Hljómsveitin Karma frá Sel-
fossi skemmtir á Nashville
; föstudagskvöldið 27. september
og laugardagskvöldið 28. sept-
ember á neðri hæðinni. Diskó-
tek verður á efri hæðinni.
Upp-
lyfling
Hljómsveitin Upplyfting ætl-
ar að sjá um að halda uppi fjör-
inu fóstudagskvöldið 27. sept-
ember og laugardagskvöldið 28.
september í Danshúsinu Glæsi-
bæ. Báða dagana mun enski
stórsöngvarinn Poul Sommers
I skemmta.
Hljómleika-
ferð
Bubba
Hljómleikaferðalag Bubba
um landsbyggðina stendur nú
yfir og föstudagskvöldið 27.
september verður hann staddur
í íþróttahúsinu á Borgarnesi.
Laugardagskvöldið 28. septem-
ber liggur leiðin norður á bóg-
inn og þá verður spilað í
íþróttamiöstöðinni á Blöndu-
ósi.
John Mellenccunp er ekki dauður
úr öllum æðum, enn þá að minnsta
kosti. Hann var reyndar hætt kom-
inn á tónleikaferö fyrir tveimur
árum. Þá fékk hann hjartaáfall að-
eins tæplega fjörutíu og fimm ára
gamall og hefur síðan orðið að ger-
breyta um lífsstíl. Eigi að síður
heldur Mellencamp áfram að sinna
tónlistinni og sendi frá sér plötuna
Mr. Happy Go Lucky fyrir fáeinum
vikum.
„Ég held að það fyrirfinnist engin
önnur plata sem hljómar líkt og
þessi,“ segir listamaðurinn sjálfur
um endanlega útkomu Mr. Happy
Go Lucky. „Ég fann reyndar ekki
upp hjólið að nýju en mér vitanlega
hefur enginn blandað saman stílum
á þann hátt sem ég geri að þessu
sinni.“
Hér á John Mellencamp við að
hann fæst enn sem fyrr við mið-
ríkjarokkið sem gerði hann frægan
á níunda áratugnum. Saman við
það blandar hann kántrístemmum á
svipaðan hátt og á plötunni The Lo-
nesome Jubilee og að auki hefur
hann leitað í smiðju til hæfileika-
manna sem eru framarlega i flokki
við að skapa þá danstónlist sem
hæst er skrifuð um þessar mundir
og flokkast undir nútíma rhyt-
hm’n'blues.
Þeir sem aðstoða John
Mellencamp i þessum geira eru upp-
tökustjórinn Junior Vasquez frá
New York, Moe Z. M.D. sem unnið
hefúr með 2Pac og bassaleikarinn
Raphael Saddiq úr Tony! Toni!
Tone! Útkoman er ekki fullfrágeng-
in dansplata að sögn þeirra sem
heyrt hafa heldur rokkblanda með
vel þekktum upptökubrögðum út
danstónlistinni.
Allir með
„Það eina sem ég vissi um þessa
danstónlist á síðasta áratug var að
menn voru að nota trommuvélar
sem hljómuðu illa. Það vantaði ailla
tilfinningu í tónlistina. Hún var sál-
arlaus. Mig langaði að læra að gera
hana almennilega," segir John Mel-
lencamp. Hann sagði Vasquez og
Moe Z. hverju hann væri að sækjast
eftir og svo fylgdist hann með því
hvernig þeir fóru að. Liðsmenn
hljómsveitar Mellencamps urðu að
taka þátt í því að aðlaga sig þessum
nýja stíl. Kenny Arnoff trommuleik-
ari og gítarleikaramir Mike
Wanchic og Andy York voru allir af
vilja gerðir. Toby Myers bassaleik-
ara leist ekkert á blikuna og hann
dró sig í hlé. Þegar hann heyrði af-
rakstur þess sem hinir voru að
vinna sneri hann aftur og á endan-
um komst eitt af hans lögum,
Emotional Love, með á plötuna.
Hin lögin samdi John
Mellencamp sjálfur og hafði talsvert
fyrir þeim.
„Ég sem hundruð laga sem vant-
ar alla tilfinningu í,“ segir hann um
lagasmíðar sínar. „Ætli ég hafi ekki
búið til tvö hundruð lög fyrir þessa
plötu eina. Þannig verður maður að
fara að. Það sest enginn niður og
semur Bom to Be Wild í hvert
skipti sem hann ætlar að skapa eitt-
hvað. Þegar eitt heppnast hugsa ég
alltaf: Þakka þér fyrir að senda mér
þetta lag. Ég hef það nefnilega á til-
finningunni að mér berist lögin ein-
hvers staðar að. Lögin sem mér ber-
ast em því miður ekki alltaf góð. En
þau koma!“
Gerbreyttur lífsstíll
John Mellencamp ætlar ekki að
fara í hljómleikaferð til að fylgja
plötunni Mr. Happy Go Lucky eftir.
Hann segir að á árunum 1980 til ’95
hafi hann verið heima hjá sér í sam-
tals þrjú ár. „Þessar fjarvistir kost-
uðu mig annað hjónabandið mitt.
Einkalífið var allt í molum. Ég held
líka að allir sem höfðu áhuga á að
koma og hlusta á mig á tónleikum
séu búnir að koma.“
Hjartaáfallið fyrir tveimur árum
gerði það líka að verkum að John
Mellencamp þurfti að endurmeta
lífsstílinn. Hann segist líka vera far-
inn að haga sér eins og hver annar
borgari. Það hefur í för með sér að
hann borðar nú reglulega og velur
sér hollari mat en fyrr. Hann þarf
að stunda líkamsrækt og hann held-
ur sig að mestu leyti á búgarði sín-
um skammt frá Bloomington í Indi-
ana. Þar býr hann með þriðju eigin-
konu sinni, fyrirsætunni Elaine
Irwin og sonum þeirra sem eru eins
og tveggja ára. Þar búa einnig þrjú
böm hans frá fyrri hjónaböndum og
þrjú bamabörn sem elsta dóttir
hans á.
„Mér brá alveg óskaplega þegar
ég fékk hjartaáfallið," segir Mellen-
camp. „Ég hélt að ég væri skotheld-
ur. Ekkert gæti komið fyrir mig. Ég
gat vakað eins lengi og mig langaði
til. Ég gerði það sem mér datt í hug.
Þegar þetta kom fyrir ákvað ég að
hætta öllu. Ég ætlaði ekki að taka
upp plötur oftar. Ekki fara út úr
húsi. Öllu var lokið.“
Síðan þetta gerðist hefur John
Mellencamp náð tökum á lífinu á
ný. Við eitt hefur honum þó enn
ekki orðið ágengt: að hætta að
reykja. Hann reykti áður fjóra
pakka af sígarettum á dag. Á góðum
degi reykir hann 'kannski tvær
núna. Tíu til tólf á slæmum degi.
„Ég er að vinna í málinu," segir
hann. „Ég veit að það voru sígarett-
ur sem drápu Jerry Garcia. Allir
halda að það hafi verið heróin en
það var tóbakið. Læknamir voru
búnir að segja honum að ef hann
hætti ekki dræpist hann úr
hjartaslagi. Þeir spáðu rétt. Það er
því miður ekkert gott hægt að segja
um reykingar. Þær drepa.“
HB pöbbinn íVestmannaeyjum:
Stefán og Eyjólfur
Stefán Hilmarsson og Eyjólfur
Kristjánsson munu ásamt hljóm-
sveitinni Hálft í hvom skemmta
Vestmannaeyingum á hinum sívin-
sæla HB pöbb fostudagskvöldið 27.
september. Þeir félagar, Stefán og
Eyjólfur, hafa ekki tekið saman lag-
ið í Eyjum síðan á Þjóðhátíð 1995 og
er þetta því kjörið tækifæri fyrir
alla Eyjamenn til að heyra í þeim
saman á ný.
Gleðisveitin Hálft í hvom, með þá
Eyjólf, Inga Gunnar Jóhannsson og
Örvar Aðalsteinsson innanborðs
mun halda uppi stuði og Eyjastemn-
ingu fram eftir nóttu.
Stefán Hilmars-
son verður meö
Eyjólfi Kristjáns-
syni og hljóm-
sveitinni Hálft f
hvoru í Eyjum í
kvöld.
Greifarnir spila á Akranesi og Akureyri um helgina.
Greifarnir á
Hljómsveitin Greifarnir verður á
ferð og flugi um helgina. Föstudags-
kvöldið 27. september skemmtir
sveitin á Langasandi á Akranesi og
kvöldið eftir, laugardaginn 28. sept-
ember, liggur leiðin norður á bóg-
ferð og flugi
inn. Þá spilar sveitin í Sjallanum á
Akureyri á risadansleik. Greifamir
gáfu út plötuna Dúkka upp í sumar
og ekki er að efa að lög af þeirri
skífu verða spiluð á hljómleikum
sveitarinnar.